Þjóðviljinn - 16.08.1972, Side 4
4 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Miftvikudagur 1«. ágúst 1972
DIOBVIUINN
MÁLGAGN SÓSÍALISMA,
VERKALÝÐSHREYFINGAR
OG ÞJÓÐFRELSIS
Útgefandi: Útgáfufélag Þ|óðviljana.
Framkvæmdastjóri: Eiður Bergmann.
Ritstjórar: Sigurður Guðmundsson,
Svavar Gestsson (áb.).
Auglýsingastjóri: Heimir Ingimarsson.
Ritstjórn, afgreiðsla, auglýsingar:
Skólav.st 19. Simi 17500 (5 línur).
Áskriftarverð kr. 225.00 á mánuði.
Lausasöluverð kr. 15.00.
Prentun: Blaðaprent h.f.
NÝJUSTU TILLÖGUR RÍKISSTJÓRNARINNAR
íslenzka rikisstjórnin hefur nú gert
brezku stjórninni nýjar tillögur i landhelg-
ismálinu. Hinar nýju tillögur byggjast á
þeim grundvallaratriðum, sem rikis-
stjórnin hefur áður haft til leiðsögu i land-
helgismálinu. i fyrsta lagi á þvi, að viður-
kennt verði i samkomulagi ef það næst, að
ísleridingar hafi eftirlit með framkvæmd
þeirra reglna, sem settar yrðu, þ.e.a.s. að
íslendingar hafi sjálfir ótviræða lögsögu. í
öðru lagi er miðað við það sem meginatr-
iði, að íslendingar njóti meiri réttinda til
fiskveiða á svæðinu inn að 12 milunum en
aðrar þjóðir.
Á þessum grundvelli eru settar fram
siðustu tillögur islenzku rikisstjórnarinn-
ar. Lúðvik Jósepsson sjávarútvegsráð-
herra greindi frá þremur meginatriðum
tillagnanna i viðtali við Þjóðviljann i gær:
Fyrsta atriði er að islenzka rikisstjórnin
lýsir sig fúsa til viðræðna um að veiði-
heimildarsvæðin fyrir brezka togara nái
upp að 12 milna mörkunum á ýmsum
svæðum. Enda er þá gert ráð fyrir þvi að
tillaga okkar um veiðisvæði verði að öðru
leyti óbreytt frá þvi sem áður hefur verið
— þ.e. að svæðinu milli 12 og 50 milna
verði skipt i sex veiðisvæði og aðeins tvö
þeirra verði opin fyrir Bretum á sama
tima — en hin fjögur lokuð. Þessi tillaga
þýðir ekki að Bretar fái i öllum tilvikum
að veiða upp að 12 milum i hólfunum
tveimur — heldur aðeins á ýmsum stöðum
i þessum hólfum.
Annað atriði er, að viðmiðun um skipa-
stærð er nú breytt, þannig að gert er ráð
lyrir 750—800 rúmlesta eða 180 féta há-
marksstærð skipa; þó mega frystiskip eða
verksmiðjuskip ekki vera innan 50 miln-
anna enda þótt þau séu minni en tilgreind
hámarksstærð.
Þriðja atriðið er svo, að samkomulags-.
timabilið nái til 1. júni 1974 i stað áramóta
73/74.
Nýjar tillögur islenzku rikisstjórnarinn-
ar eru lagðar fram til þess að skapa mál-
efnagrundvöll svo viðræður geti hafizt á
nýjan leik. íslendingar munu færa land-
helgi sina út i 50 milur um næstu mánaða-
mótjtil þess að hafa þeir fullan rétt, og það
er sú stefna sem alþingi hefur samþykkt
samhljóða. Vonandi sjá Bretar sig um
hönd i nýjum viðræðum og fallast á tvö
grundvallaratriði íslendinga i landhelgis-
deilunni.
„VONANDI SÉR JÓN BOLI í TÆKA TÍÐ SÓMA SINN . . .”
„Vonandi sér Jón boli i tæka tið sóma
sinn, áttar sig á staðreyndum málsins:
sanngirni og nauðsyn friðunar fiskistofns-
ins, svo og að gervöll tilvera örsmárrar
nágrannaeyþjóðar er undir þvi komin, að
hún fái að njóta óáreitt eigin löglegra auð-
linda”. Þannig kemst Gunnar Gunnars-
son, rithöfundur, að orði i snjallri blaða-
grein er hann skrifar nýlega undir fyrir-
sögninni „Bolabragð undir yfirskini al-
þjóðaréttar”. Er það nema von að menn
beiti fast penna sinum er hótanir berast
um viðskiptabann og ofbeldi við sann-
gjörnum aðgerðum íslendinga? Gunnar
Gunnarsson rithöfundur bendir Bretum á
að yrkja garðinn sinn: ,,Jón boli hefur
brallað margt á sinum duggarabandsár-
um, er hann langtimum saman átti að
heita einvaldur á siglingaleiðum hnattar,
huldum vatni, þar sem álfurnar eru aðeins
hólmar á stangli. Athafnasviðið hefur upp
á siðkastið þrengzt til mikilla muna, og
ætti þvi að vera auðveldara að ráða þar
lögum og lofum. En hvernig er útkoman?
Ógnirnar á irska skikanum, sem hann
enn telst ráða yfir og i heimalandi ringul-
reið, er jaðrar við stjórnleysi segja til um
það. — Manni verður að spyrja hvort sá
boli sé með réttu ráði, sem eins og á stend-
ur telur sig þess umkominn, að skipa rétti
um íiskveiðilögsögu við framandi strend-
ur og undir innsigli Hennar Hátignar
geysist fram i fararbroddi jafningja i
veiðigirni?‘’
íslendingar hafa áður átt i deilum við
erlendar þjóðir. í þeim deilum hefur oft
verið beitt orðsins brandi, bæði gegn.þeim
sem við glimum við og til þess að hvetja til
samstöðu sjálfra okkar á sigurgöngu. Enn
mun fara svo i viðureigninni við Breta.
Það er forvigismönnum þeirra nauðsyn-
legt að gera sér ljóst. Nú eiga þeir kost á
að setjast að samningaborði um skynsam-
legar og sanngjarnar tillögur. Lengra
geta íslendingar ekki gengið i þá áttina.
En „vonandi sér Jón boli i tæka tið sóma
sinn. . .”
Information um landhelgina:
Okkur sæmir ekki
að fylla fjandaflokk
Islendinga. . .
Uiú virla danska blaú, Infor- vorfti viA kröfum danska sjó-
nialion. birtir þann 11. ágúst leið- mannasainbandsins um að fs-
ara um landhelgismálið. L>ar er len/kum fiskiskipum verði bann-
þvi eindregið mótiiiælt, að orðið að að lenda i dönskum höfnum —
enda segir blaðið að það muni að-
eins skaða viðkomandi hafnir og
danskan fiskiðnað.
Blaðið bendir á að tslendingar
skaði danska fiskimenn ekki með
útfærslunni — hins vegar séu þeir
smeykir um aukna samkeppni á
syðri miðum eftir útfærsluna.
Kæreyingar eru i annarri aöstöðu
Framhald á II. siðu.
*
Ifullri vinsemd
t Þjóðviljanum á laugardaginn
var greint frá Eystrasaltsvik
unni i Austur-Þýzkalandi og þátt-
töku tslendinga þar. Af þvi tilefni
hefur einn lesenda Þjóðviljans
vakið athygli á skrifum Morgun-
blaðsins afsama tilefni i Velvak-
anda frá 16. júli siðastliðnum. Þar
stendur eftirfarandi vitsmuna
framleiðsia: „Ótfðindi berast frá
Rostock i Austur-Þýzkalandi. Þar
er staddur á svonefndri Eystra-
saltsviku i boði eftirmanna Ul-
brichts herra prófessor Bjarni
Guðnason. Erindi hans austur
þangað i borgaðri boðsferð virðist
vera það eitt að framlengja kalda
striðið. Meðan Willy Brandt er að
reyna að semja við austantjalds-
menn kemur Bjarni með þá ein-
hliða yfirlýsingu, að Austur-
Þýzkaland, hið sovézka hernáms-
svæði, eigi að viðurkenna sem
sjálfstætt riki! Þvert ofan i til-
raunir Brandts, sem treystir
bandamönnum sinum til þess að
hjáipa sér, kemur yfirlýsing frá
pólitiskum áhrifamanni og valda-
manni á tslandi um að fara eigi
strax að öliu leyti að óskum lepp-
'stjórnarinnar i Pankow áður en
nokkuð er fengið á móti frá aust-
anmönnum. Hvað á svona lagað
að þýða? .... Nægði einn flug-
miði ásamt uppihaldskostnað-
arávisun til þess aö koma Bjarna
Guðnasyni i flokk þeirra, sem lifa
á kalda striðinu.”
Eins og kunnugt er skrifa rit-
stjórar Morgunblaðsins versta
hroða sinn i Velvakandadálka,
gjarna undir dulnefninu „Hús-
móðir i vesturbænum". Tilvitn-
unin hér að ofan er sama eðlis;
ritstjórinn hefur fengið hastar-
legra sefasýkiskast við ritvélina
en venjulega og er þá langt til
jafnað. Alla jafna er sorafram-
leiðslan notuð i leiðara, en i þetta
skiptið i Veivakanda.
En berida mætti á i fullri vin-
semd aö þátttakendur i þing-
mannaráðstefnunni i Austur
Þýzkalandi voru ekki einungis
prófessor doktor Bjarni Guðna-
son. Þar komu lika þingmennirn-
ir Gils Guðmundsson, Þórarinn
Þórarinsson og loks Oddur Ólafs-
son, læknir, þingmaður Sjálfstæð-
isflokksins. Fjalar.
Kommúnista-
flokkar gagnrýna
réttarhöldin
í Tékkóslóvakíu
Ýmsir kommúnistaflokk-
ar og róttækir flokkar í
Evrópu hafa sent frá sér
yfirlýsingu þar sem réttar-
höldin í Tékkóslóvakíu eru
ýmist fordæmd eöa gagn-
rýnd.
Sænski kommúnistaflokkurinn,
Vansterpartiet-kommunisterna,
hefur sent frá sér yfirlýsingu
varðandi hin pólitfsku réttarhöld,
sem eru um þessar mundir i
Tékkóslóvakiu. I yfirlýsingunni
stendur m.a.:
„Þegar litið er á pólitisku rétt-
arhöldin og dómana i Tékkó-
slóvakiu, vaknar spurningin um
sósialisma og skoðanafrelsi. t
auðvaldsþjóðfélagi takmarkar
vald auðvaldsins og ok þess ávallt
lýðræðisleg réttindi fólksins.
Kommúnistar berjast fyrir skoð-
ana- og skipulagsfrelsi, ekki fyrir
takmörkun eða banni þessara
réttinda. Afturhaldssöm öfl á að
berjast við með frjálsari og mál-
efnalegri baráttu. SóSialiskt riki
verður að verjast innri og ytri á-
rásum, en það má ekki leiða til
þess að lögregla, dómstólar og
fangelsi komi i stað pólitiskra
rökræðna.
Slikt er skaðlegt liftaug lýðræðis
og sósialisma og stefnir kommún-
iskum hugmyndum i hættu”.
Þá hefur enski kommúnista-
flokkurinn einnig tekið afstöðu i
þessu máli: „Að visu skortir
nægilega miklar upplýsingar um
réttarhöldin, en samkvæmt
skýrslum eru menn ákærðir fyrir
aö semja og dreifa flugritum við
siðustu haustkosningar. Sé þetta
rétt, eru réttarhöldin og dóm-
arnir vafasamir og slikt athæfi
stjórnvalda ber að harma”.
ttalskir kommúnistar hafa
einnig tekið afstöðu gegn réttar-
höldunum og segja m.a.:„Ef rétt
er að þeir ákærðu hafi átt þátt i að
dreifa flugritum þar sem tekin er
afstaða andstæö rikinu, ætti að
vera kleift aðsvaraslikumeð rök-
um. Það ætti að taka málin upp i
opnum pólitiskum umræöum og
gera öllum sannleikann ljósan.
Lögræði gerir aðeins illt verra.”
AF ERLENDUM
VETTVANGI