Þjóðviljinn - 16.08.1972, Page 7
6. SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN MiöviKudagur 16. ágúst 1972
Miövikudagur 16. ágúst 1972 ÞJóÐVILJINN — SÍÐA 7.
F j ölsky lduheimili,
skólaheimili,
vistheimili og
vöggustofur í Rvík
i ársskýrslu Félags
málastofnunar borgarinnar
fyrir síðasta ár er að finna
fróðlegar upplýsingar.
Þjóðviljinn birtir hér kafla
úr ársskýrslunni um þessar
stofnanir.
Reykjavíkurborg rak árið
1971 eftirtalin vistheimili:
Vöggustofu Thorvaldsens-
félagsins
Heimili þetta er vöggustofa
fyrir 19 börn á aldrinum 0—2 ára
og vistheimili fyrir 14 börn á
aldrinum 2—6 ára. Á árinu var
enn fremur starfrækt deild fyrir 7
örvita. Árið 1971 voru dvalar-
dagar 7.312 og dvöldu þar að
meðaltali 20 börn á dag. A örvita-
deild voru dvalardagar 2.562 og
dvöldu þar að meðaltali 7, 3 börn.
Ariö 1970 voru dvalardagar sam-
tals 6.195
Barnaheimilíð í Reykjahlíð
Vistheimili fyrir 13 börn, 7 ára
og eldri. Árið 1971 voru dvalar-
dagar 4.013 og dvöldu þar að
meðallali 11 börn á dag. Árið 1970
voru dvalardagar 4.749.
Fjölskylduheimili að Skála
Kjölskylduheimili fyrir 7 börn.
Árið 1971 voru dvalardagar 2.340
og dvöldu þar að meðaltali 6,4
börn á dag. Árið 1970 voru dvalar-
dagar 2.555.
Upptökuheimili við Dal-
braut
Upptökuheimili fyrir börn á
aldrinum 3—12 ára. Arið 1971
voru dvalardagar 5.1H8 og dvöldu
þar að meðaltali 14,2 börn á dag.
Árið 1970 voru dvalardagar 5.724.
Fjölskylduheimili,
Ásvallagötu 14
Fjölskylduheimili ætlað 7 börn-
um. Árið 1971 voru dvalardagar
2.161 og dvöldu þar að meðaltali
5.9 börn. Arið 1970 voru dvalar-
dagar 2.190.
Skólaheimili, Tjarnargötu
35
Skólaheimili ætlað 7—9
drengjum að 15 ára aldri. Árið
1971 voru dvalardagar 1.225 og
dvöldu þar að meðaltali yfir
vetrarmánuðina 5,1 drengir á
dag. Árið 1970 voru dvalardagar
1.032.
Mæðraheimili, Sólvalla-
götu 10
Mæðraheimili ætlað 6 stúlkum.
Árið 1971 voru dvalardagar 593,
en heimilið var tekið i notkun á
árinu.
Fóstrunarkerfið
Arið 1971 stiirfuðu 12 einka-
heimili i fóstrunarkerfinu og
dvöldu þarsamlals 20 biirn i 1.858
dvalardaga.
Sumardvöl utan Reykja-
vikur
Árið 1971 fóru 144 börn 106
Ijölskyldna til sumardvalar i
sveit á vegum Fólagsmálastofn-
unar Heykjavikurborgar. Dvöldu
börnin á 68 heimilum i samtals
10.871 dvalardag.
Vistun á einkaheimilum
Árið 1971 dvöldu, á vegum
Félagsmálastofnunar Reykja-
vikurborgar, 10 öryrkjar á 4
einkaheimilum i samtals 719
dvalardaga. Knnlremur 179 börn
á 111 einkaheimilum i samtals
34.739 dvalardaga.
Bandarísk landafrœði
Oftersagt að allir hlutir eða
öll mál hafi tvær hliðar, eftir
þvi hvernig litið er á og hvaða
skoðanir menn hafa. Þannig
segja menn: ,,bað er nú til
sannleikur og sannleikur”.
Einnig mætti segja að til væri
landafræði og landafræði: I
bandariskri landafræði handa
æöri skólum eftir James og
Davis frá árinu 1962 stendur
m.a.:
„ísland varð sjálfstætt lýð-
veldi árið 1944. Fjárhagur
landsins er undir fé, er Banda-
rikin eyða i herstöðvar og við-
hald þeirra á þessum
hernaðarlega stað, kominn.
En þrátt lyrir þessa tekjulind,
búa Islendingar ekki við jafn-
góð lifskjör og Danir. Og hvað
mun gerast ef herstöðvarnar
verða lagðar niður?”
Ætli miðstjórn Sjálfstæðis-
flokksins og ritstjórn Morgun-
blaðsins hafi lesið þessa bók?
Einn fegursti útsýnisstaður Reykjavíkur gerður að
ógeðslegum sorphaug.
© Hefur Reykjavíkurborg margbrotið lög
um umhverfisvernd?
Eru umhverfisverndarlögin aðeins samin
að láta brjóta þau?
Séð úr fjörunni uppað bakkanum fyrir neðan Ártúnshöfðann.
Olæsileg sjón eða hitt þó heldur.
óþverra. Þar ægir saman plast -
ilátum sorpi bilflökum, ónýtum
húsgögnum, steýpuafgöngum,
járnarusli, glerilátum og brot-
um, spýtnarusli o. fl. o.fl. Það
má vera, að þarna sé verið að
hugsa um uppfyllingu. En þó
svo væri þá er fjaran svo sóða-
leg að engu tali tekur, en hana
fylla þeir ekki upp. Það er einn-
ig óafsakanlegt, ef fylla á upp
fyrir framan bakkana, að láta
þetta ógeðslega rusl liggja
þarna ár eftir ár, þvi að mikið af
ruslinu hefur legið þarna i ein
tvö ár.
Þá eru það öskuhaugarnir svo
kölluðu uppi i Gufunesi. Þeir eru
að sjálfsögðu einhver ljótasti
bletturinn á umhverfi borgar-
innar og ekki nóg með það, held-
ur fýkur óþverrinn frá þeim um
nágrennið. Mikið fer niður i
fjöruna og berst siðan um allar
fjörur i nágrenni borgarinnar.
Það sagði mér kennari, sem
vinnur með vinnuflokki ungl-
inga uppi i Saltvik viö umhverf-
ishreinsum þar efra, að fjaran
þar fyrir neðan fylltist af rusli
jafnóðum og hún væri hreinsuö.
Hann sagði að flokkur hans þar
efra hefði litiö annað gert i sum-
ar en að hreinsa óþverra úr fjör-
unni, hlaða honum i kesti og
kveikja i ruslinu. Þetta er vissu-
lega þarft og þakkarvert starf.
„Hrein torg — fögur borg”
Einskisvert slagorð
eða er það úr gildi fallið?
Plastilát umvafin plastdúk i fjörunni.
Á hverju sumri komast af stað
meiri og minni umræður á opin-
berum vettvangi um sóðaskap
okkar Islendinga gagnvart nátt-
úru landsins. bað er ekkert eðli-
legra en að þessar umræður
komist af stað eftir að menn,
sem láta sig umhverfisvernd
einhverju skipta, hafa ferðzt um
landið. Sannleikurinn er sá að
umgengni ferðafólks er til há-
borinnar skammar. En það sem
meira er og ef til vill afsakar
umgengni ferðafólks er að opin-
berir aðilar láta sig þetta mál
enn minna varða.
Úti á landi eru þeir staöir telj-
andi á fingrum sér sem hafa
komið upp aöstöðu fyrir ferða-
menn sem ekki dvelja á hótel-
um. beir staðir sem þetta hafa
gert, hafa þá um leið komið upp
sorpilátum á þeim stöðum sem
ferðamönnum er ætlað að tjalda
á og þar er sóðaskapur ferða-
fólks algerlega óafsakanlegur
en hann er vissulega fyrir hend-
ir. En á öllum öðrum stöðum,
þar sem aðstaðan er ekki fyrir
hendi lendir hreinlátasta fólk i
vandræöum hvað þá sóöarnir.
Það eru bæði kaupstaðir, kaup-
tún og aðrir staðirsem ferðafólk
sækir sem eru undir þessa sök
seldir.
En maður littu þér nær, segir
ef til vill einhver ibúi úti á landi
við mann búsettan i Reykjavik,
og er það engin furða. Sennilega
eru fjörur og aðrir útjaðrar
Reykjavikur stærsti sorphaugur
landsins. Það fer vart milli
mála að Reykjavikurborg er
einhver mesti liigbrjótur um
umhverfisvernd sem fyrir
linnst á landinu. Meira að segja
legurstu útsýnisstaðir borgar-
innar eru stærstu sorphaugarnir
og má þar nefna Ártúnshöfðann.
I-andslagsfegurð er alltaf um-
deilanleg og það sem einum
finnst fallegt finnst öðrum ekki
fallegt o.s.frv. Þó hygg ég að
þeir séu ekki margir staðirnir i
Reykjavik þar sem útsýni er
fegurra en frá Ártúnshöfðanum.
En hvernig er umhverfisvernd
háttað á þessum fagra staö?
Hún er vægast sagt hryllileg.
Þarna er i fjörunni stærsti sorp-
haugur landsins. Allt frá geym-
um Sementsverksmiðju rikisins
á tanganum og inni Grafarvog
er fjaran og bakkarnir fullir af
En þetta er eins og að moka i
botnlausa tunnu, sagði kennar-
inn. Við hreinsum fjöruna en
næsta morgun er hún orðin full
al tur. Og það sem þangar rekur
er nær eingöngu rusl af ösku-
haugum Reykjavikurborgar.
Mest ber á hvers konar plast -
iíátum,ogsagði kennarinn að
þvilik kynstur af slikum ilátum
ræki þar á fjörur að hann hefði
vart trúað þvi að óreyndu.
Það er þvi engin furða þótt
maður haldi að auglýsingaplögg
þau sem hengd voru upp i
Reykjavik og báru slagorðin
,,Hrein torg, fögur borg” hafi
verið búin til og uppsett af tómri
sýndarmennsku. Þótt Ártúns-
höfðinn og Gufunesið hafi hér
verið tekið sem dæmi, mætti
nefna mörg fleiri dæmi úr
Reykjavik um ótrúlegan sóða-
skap.
Meðan slikur sóðaskapur i
sjálfri höfuðborginni er látinn
afskiptalaus af þeim sem sjá
eiga um að lög um umhverfis-
vernd séu haldin, er varla von á
að almenningur taki lögin al-
varlega og fari eftir þeim.
— S.dór.
Þaö eru ekki aðeins upp-
lýsingar um vansköttun há-
tekju-manna sem okkur
berast hingað í blaðið,
heldur einnig upplýsingar
um ofsköttun, en þar er
aðallega um að ræða ellilíf-
eyris- og bótaþega.
Eitt daémi um ofsköttun
barstokkur úr Hafnarfirði í
gær um manneskju sem
þegið hefur bætur frá
sjúkrasamlagi, sem bærinn
lagði útsvar á.
Stúlka ein úr Hafnarfirði
Útsvar lagt á bœtur frá sjúkrasamlagi
17 ára 1970, hafði verið
sjúklingur meira og minna
allt frá fæðingu vegna
hjartagalla.
Árið 1970 fór hún til upp-
skurðar til Englands og
kom heim síðustu daga
þess árs. Stúlkan var síðan
viðloðandi sjúkrahús 7
fyrstu mánuði ársins 1971,
en útskrifaðist í byrjun
ágúst.
Frá sjúkrasamlaginu
fékk stúlkan bætur fyrir
þessa 7 mánuði, og auk þess
fékk hún greiddar nokkrar
bætur fyrir árið næst á und-
an, þannig að greiðslurnar
urðu nokkuð hærri en nem-
ur 7 mánaða bótum.
Um miðjan ágúst fékk
stúlkan vinnu, svo hún var
vinnandi 4 og 1/2 mánuð af
árinu.
Tekjur hennar síðasta ár
urðu því 130 þúsund og um
helmingur þeirra bætur úr
sjúkrasamlagi.
Tekjuskattur til rikisins
varð enginn við álagning-
una nú, en hins vegar er
henni gert að greiða 9.700
krónur í útsvartil bæjarins.
Þegar stúlkan byrjaði að
vinna var þegar hafizt
handa af vélmennum kerf-
isinsvið að heimta af henni
fyrirframgreiðslur upp í
væntanleg gjöld til ríkis-
ins, en áður hafði hún ekki
greitt skatta til ríkisins og
slík fyrirframgreiðsla því
ólögleg, þar sem hún var
ekki ákveðin í samráði við
greiðanda.
Þegar skattseðl unum
hafði verið dreift og í Ijós
kom að stúlkan átti ekki að
greiða neitt í rikissjóð, fór
hún fram á að fá féð endur-
greitt með sömu vöxtum og
ríkið tekur af vanskilafé.
Að sjálfsögðu fékk hún
greitt til baka það sem af
henni hafði verið tekið en
enga vexti.
Af útsvari stúlkunnar,
9700 krónum, sem tekið er
af 130 þúsund króna
tekjum, er augljóst að
meirihluti bæjarstjórnar í
Hafnarfirði, sem skipaður
er krötum, framsóknar-
mönnum og óháðum borg-
urum, hefur ekki notfært
sér þær heimildir sem gefn-
ar eru i skattalögunum til
að undanþiggja bætur
sjúkrasamlagsins útsvarsá-
lagningu.
Blaðið reyndi að ná sam-
bandi við ábyrga menn á
skrifstofum Hafnar-
f jarðarbæjar til að grennsl-
ast fyrir um það hvort hér
væri um að ræða einangrað
fyrirbæri eða hvort undan-
þáguheimildinhafi yfirleitt
alls ekki verið notuð, en
tókst ekki, því ýmist voru
hinir ábyrgu veikir, i fríi,
eða nýkomnir úr fríi, og
þorðu ekki fyrir sitt litla líf
aðseg ja af eða á um málið,
þannig að frekari upplýs-
ingar um álagningarkúnst-
ir bæjarstjórnarinnar i
Firðinum verða að bíða
betri tima.
En óneitanlega væri það
undarlegt ef meirihluti
bæjarstjórnar undir leið-
sögn umhyggjusamra Al-
þýðuflokksmanna, legði á
slíkar bætur sömu daga og
málgagnið þeirra hrópar
dag frá degi yfir sköttun
rikisins á öldruðum og
bótaþegum.
Hvað sem um það má
seg ja, er þó Ijóst, að hafn-
firzkir gjaldendur ættu að
huga að skattseðlunum
sinum og sinna og athuga
hvort bæjarstjórnin gerir
öllum skylt að greiða út-
svaraf bótum hverju nafni
sem nefnast, og kæra til
skattstjóra ef lagt er á bæt-
urnar og geyma bak við
eyrað hver hugur stjórn-
enda bæjarins er og muna
mismuninn milli upphróp-
ana þeirra og gerða. — úþ