Þjóðviljinn - 16.08.1972, Qupperneq 9
Miftvikudagur 16. ágúst 1972 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 9.
GETRAUNA-
SPA
&}<
Ekki gekk okkur sem verst
með fyrsta getraunaseðilinn i
siðustu viku. Heilir 6 réttir, og
maður er sæmilega ánægður.
bó var nokkuð um mjög óvænt
úrslit, eins og til að mynda tap
Leeds 0:4 fyrir Chelsea og tap
Man.Utd. fyrir Ipswich sem
kom áreiðanlega flestum mjög
á óvart. Þá náðu Englands-
meistararnir aðeins jafntefli
gegn Southampton, og svona
mætti lengur telja með óvænt
úrslit.
Ekki er þessi seðill sem nú
kemur árennilegri þeim fyrri.
Bæði ér þar um leiki milli
sterkra liða að ræða, og eins
háir þaö manni enn um sinn að
vita svo litiö sem raun ber vitni
um styrkleika liðanna. Fyrsta
umferðin segir svo litið um
hann. En við verðum að láta
slag standa og reyna við
seðilinn.
Arsenal — Stoke 1
Arsenal vann sinn fyrsta leik
gegn Leicester og það á útivelli,
svo við verðum að spá þvi sigri
á heimavelli gegn Stoke, jafnvel
þótt Stoke hafi einnig unniö sinn
leik heima um siðustu helgi.
Coventry — Southampton X
Þetta er einn af þeim leikjum
sem allt getur gerzt i. Þótt
maður setji jafntefli á hann, þá
kemur heimasigur einnig sterk-
lega til greina, og það er langt
frá þvi að nein goðgá sé að spá
útisigri.
C. Palace — Liverpool 2
Hér ætti að verða um nokkuð
öruggan útisigur að ræða.
Liverpool vann góðan sigur um
siðustu helgi gegn Man. City, og
hér er um mun veikari and-
stæðing að ræða, svo útisigur
ætti að vera nokkuð öruggur.
Iíerby — Chelsea 1.
Jafnvel þótt meistarar Derby
hafi aðeins náð jafntefli um
siðustp helgi og Chelsea unnið
Leeds-liðið hálf-brotið, þá spái
ég Derby sigri i þessum leik.
Everton — Man.Utd. X
bað blæs ekki byrlega fyrir
Man.Utd um þessar mundir, og
jafnvel þótt Best verði kominn i
liðið um næstu helgi þori ég ekki
að spá Manchester meiru en
jafntefli.
Ipswich — Birmingham 1
Ipswich tók sig til og vann
Man.Utd. um siðustu helgi, og
þess vegna ætti að vera óhætt að
spá þvi sigri á heimavelli gegn
nýliðunum i 1. deild Birming-
ham.
Leeds — WBA 1
Leeds fékk slæma útreið um
siðustu helgi gegn Chelsea, en
þá voru einir 4 menn á sjúkra-
lista hjá Leeds og þeir léku
aðeins 10 allan siðari hálfleikinn
með einn útileikmanninn i
markinu. Ef að likum lætur ætti
slikt ekki að endurtaka sig og þá
spáum við Leeds sigri.
City — Norwich 1
Hið sterka Manchester-lið
ætti ekki aö eiga i erfiöleikum
með nýliðana i 1. deild og það á
heimavelli. Heimasigur ætti þvi
að vera nokkuð öruggur.
Shcff. Utd. — Newcastle X
Erfiður leikur, þar sem allt
getur gerzt. Þó hallast ég frek-
ast að jafnteflinu, en heima-
sigur kemur einnig sterklega til
greina.
West Ham — Leicester 1
Ég hygg að heimavöllurinn
verði það sem dugar fyrir West
Ham, og þvi spái ég þvi sigri.
En einnig kemur jafntefli sterk-
lega til greina.
Wolves — Tottenham 1
Ulfarnir eru sagðir eitt
erfiðasta lið Englands heim að
sækja og unnu marga fræga
sigra á heimavelli á siðasta
keppnistimabili. bess vegna
ætti að vera óhætt að spá þvi
sigri gegn Tottenham.
Ilull — Nottingham F. 2
Þetta er eini 2. deildarleik-
urinn á seðlinum, og það er liðið
sem féll niður i fyrra sem þarna
mætir Hull-liðinu; við spáum
Nottingham-liðinu hiklaust
sigri, þótt á útivelli sé. —S.dór.
Breiðablik í 3. sœti
Eftir jafntefli við KR 0:0 í einum lélegasta leik sumarsins
Evrópumet
KR og Breiðablik skildu
jöfn á Laugardalsvellinum
í fyrrakvöld í einhverjum
leiðinlegasta leik sem sézt
hefur hér á landi i langan
tima/ og hafa þó margir
verið slæmir. Að vísu léku
liöin við erfiðar aðstæður;
völlurinn var þungur af
mikilli rigningu/ og á tima-
bili var svo dimmt að varla
sást yfir völlinn ofan úr
stúkunni. Ef veður helzt ó-
breyttværi vissulega þörf á
að færa leikina sem eftir
eru fram um eina klst.
Enn einu sinni yfirgáfu
áhorfendur völlinn eftir að hafa
látið sér leiðast i 90 minútur i
rigningu og leiðindaveðri.
Skemmtikraftar kvöldsins, KR og
Breiðablik, stóðu sig með ein-
dæmum illa, og hvorugt liðið
sýndinokkuð sem kalla má knatt-
spyrnu. Leikurinn allur ein-
kenndist af þófi á miðjum velli,
spörkum út fyrir hliðarlinur eða
aftur fyrir endamörk. And-
stæðingarnir léku sér saman i
mesta bróðerni og skiptust á um
að sparka boltanum fram og aftur
um Laugardalinn. Þó komu
þokkalegir kaflar i leikinn, og þá
rankaði maður við sér og mundi
að þetta var knattspyrnuleikur
sem þarna fór fram.
Breiðabliksmenn sóttu öllu
meira i fyrri hálfleik og ógnuöu
oft töluvert. Sóknarmönnum
liðsins tókst að opna KR-vörnina
skemmtilega, en allt rann út i
sandinn þegar þeir höfðu spilað
sig inn i markteig KR-inganna.
Kom þá fyrir, að manni fannst
KR-heppnin töluverð, t.d. þegar
Breiðabliksmenn spiluðu
skemmtilega upp eftir miðjum
velli, Heiðar skaut frá vitateig, en
bjargað var á linu, boltinn hrökk
út i teig, og aftur small hann i
sitjanda eins KR-ingsins. Enn
hrökk boltinn út i teig. Þór
Hreiöarsson var i góðri skotaö-
stööu en fast skot hans fór hátt
yfir.
f seinni hálfleik snerist dæmið
við, og nú var það KR sem sótti
öllu meira. En „gatasia” Breiða-
bliks meö Rikharö Jónsson sem
bezta mann stóð sig vel, og
sóknarlotur KR-inga voru gjör-
samlegabitláusar. Atli Þór komst
þó nokkrum sinnum einn inn
fyrir, en Ólafur Hákonarson
markvöröur átti góðan dag og
hirti boltann af tám hans. Nú fór
Breiðabliksmönnum að leiðast
þófiö og tóku sig aöeins á. Ógnuðu
þeir öllu meira á siöustu
minútunum, og sókn þeirra var
opin og hættuleg. A siðustu
sekúndum leiksins gaf ólafur
markvörður háan bolta fram
Þóf og aftur þóf var í leik KR og Breiöabliks eins og myndin sýnir.
völlinn. Þór Hreiðarsson hljóp
varnarmenn KR uppi og brunaði
upp að vitateig. Var hann þar
kominn i dauðafæri, en Magnús
markvörður KR bjargaði fallega
meö úthlaupi á réttum tima.
Þannig lauk leiknum, ekkert
mark var skorað. Urslitin verða
að teljast sanngjörn: hvorugt
liðið átti sigurinn skilið eftir
þessa frammistöðu.
Dómari var Jóhann Gunn-
laugsson og var alltof vægur á
brotunum. Skyssur hans og linu-
varðanna voru margar og
kannski það eina sem áhorfendur
skemmtu sér yfir á þessum leik.
Óneitanlega fannst manni KR-
liöið notfæra sér þessa linkind
dómarans, og léku þeir oft á tiö-
um leiðinlega gróft. G.S.P.
Aðeins kraftaverk getur nú
bjargað Víkingum frá falli
Nú getur ekkert nema krafta-
verk bjargað Vikingi frá falli
niður i 2. deild eftir 1:2 tap fyrir
Val i gærkvöld.
Alexander Jóhannesson skoraöi
fyrra mark Vais á 6. minútu
leiksins og urðu mörkin ekki fleiri
i fyrri hálfleik, þrátt fyrir mörg
góð marktækifæri.
A 55. minútu skoraöi Ingi Björn
Albertsson annað markið fyrir
Val en Hafliöi Pétursson slcoraði
mark Vikings á 80. minútu með
skalla. Vikingar voru mjög nærri
þvi að jafna og áttu það sannar-
lega skilið.
Það bar til i leiknum að Bjarna
Gunnarssyni, miðveröi Vikings,
var vikið af leikvelli fyrir grófan
leik æ ofan i æ. Eins og áöur segir
má nær fullyrða að Vikingur sé getur bjargað Vikingum héöan af.
fallinn, þvi að liöið hefur nú Ef svo fer sem horfir, þá kveður
aöeins :i stig eftir 10 leiki, en citt bczta lið sem við cigum,
Valur er enn i næst neðsta sæti deildina vegna meiri óhappa-
með 7 stig eftir 8 leiki. Það er keöju en dæmi eru um áður.
ekkert nema kraftaverk sem S.dór.
Nikolai Pankin setti nýtt
Evrópumct i 200 m bringusundi á
sundmóti i Moskvu s.l. sunnudag,
er liann synti á 2:24,2 min. Eldra
mctið átti Þjóðverjinn Walter
Kusch, og var það 2:25,1 min.
Ileimsmetið á Bandarikja-
maðurinn John llencker Holfer,
og er það 2:22,7 min.
16:0
Blöð erlendis rifja nú upp eitt
og annaö úr sögu olympiu-
teikjanna, og lesendur taka þátt I
þcim umræðum af áhuga. t
lesendabréfi i Stern er að finna
eftirfarandi fróðleik: Einn hrika-
lcgasti ósigur OL átti sér stað áriö
1912 þegar rússneska landsliðið I
knattspyrnu tapaði 16:0 gegn
Þjóðverjum. Varð Rússlands-
keisari þá svo reiöur að hann
neitaði að greiöa leikmönnum
förina heim. Þá má geta þess, að
einn af leikmönnum Þjóðverja
skoraði 10 mörk i leiknum, en 1937
varð hann að flýja frá Þýzkalandi
þar sem hann var Gyöingur.
r
Iþróttakeppni eða fararstjórakeppni
Á morgun birtist hér á
iþróttasiðu Þjóðviljans
grein um hina freklegu
misnotkun ólympíu-
nefndar og forráða-
manna ISi á peningum
þeim sem ÓL-nefndinni
hefur áskotnazt, til að
senda sjálfa sig sem
fararstjóra með litlum
hópi iþróttamanna til
Munchen. Greinin
nefnist — iþróttakeppni
eða fararstjórakeppni.
—S.dór.