Þjóðviljinn - 01.09.1972, Síða 7

Þjóðviljinn - 01.09.1972, Síða 7
Föstudagur 1. september 1972 ÞJOÐVILJINN — SIÐA 7. Bretar segja sjálfir: 195 brezkir togarar við ísland í fyrra Á siðasta ári — 1971 — stunduðu samtals 195 brezkir togarar veiðar hér við land samkvæmt töl- um sem Bretar sjálfir hafa gefið upp. 1 þessum skipafjölda voru — einnig samkvæmt tölum Breta sjálfra — um 30 frystitogarar og sex verksmiðju- skip eða skip þar sem unnt er að vinna aflann að meira eða minna leyti. Nokkrir brezku togaranna eru nýir, 1000—1400 tonn. Ummæli Ingvars vekja athygli viði fiskstofnanna, hafa vakið mikla athygli á Bret- landseyjum, og hinn fimm- tánda ágúst birtu að minnsta kosti sautján dag- blöð ásakanir hans á hend- ur brezku togaraútgerðinni. Fregnir blaðanna af ummælum Ingvars eru tiltölulega sam- hljóða, og eru flestar eitthvað á þessa leið: „Ingvar Hallgrimsson sakaði i gær brezka togara á Islandsmiö- um um að stunda veiðar á ungum árgöngum af þorski og ýsu. Hr. Hallgrimsson sagði i viðtali við fréttamenn i Reykjavik að brezku togararnir veiddu 31% heildar- aflamagns á miðunum, en hins vegar 53% af fjölda hinna ein- stöku fiska. betta sannaði að þeir beindu veiðunum að ungviðinu. Fiskimálastjórinn kvað smáfisk vera eftirsóttastann á brezka markaðinum, og einn helzti til- gangurinn með útfærslu fisk- veiðilögsögunnar væri, að koma i veg fyrir ofveiði á ungum árgöng- um, sem aldrei fengju tækifæri til að hrygna.” Skrif brezkra blaða síð- ustu mánuði um landhelg- isdeiluna eru orðin býsna mikil að vöxtum, og eins og vænta má hafa þau flest hver tekið óbilgjarna af- stöðu gegn málstað islend- inga. En ekki er þetta með öllu einhlítt. Ummæli Ingv- ars Hallgrimssonar for- stjóra Hafrannsóknastofn- unarinnar, þess efnis að Bretar stundi ofveiði á ung- íslenzki fáninn dreginn að húni Blaðafulltrúi rikisstjórnarinnar bað Þjóðviljann að koma þeim skilaboðum á framfæri, að stjórn- in óskar eftir að lslendingar al- mennt hefji fánann að húni í dag vegna útfærslu landhelginnar. Hvers kref jist þér.... AF OLÍUKNÚINNI STÝRISVÉL? Endingargóð — Fyrirferðarlitil — Þétt — Hljóðlát — Til- búin til niðursetningar —Mjög litið slit — Auðvelt viðhald—Afgreiðist meðöllutilheyrandi — Högg á stýri finnast vart. VIÐ KREFJUMST ALLS ÞESSA — OG HELDUR BETUR STYRISVELAR fyrir 25-200 feta báta Einföld og sterk bygging SERVI stýrisvélanna skipar þeim í fremstu röð. Hagkvæmt verð. SERVI stýrisvélar er hægt ad tengja við öll sjálfstýristæki. Það borgar sig að leita upplýsinga um þessar úrvals norsku stýrisvélar. Við óskum cftir að okkur verði sendir bæklingar yfir SERVI stýrisvélar. Nafn...... Heimilsf....... % CYLinDERSERVICE Einkaumboðsmenn á isiandi Einar F'arestveit & Co. h.f. Box 991 Rvk. SIMRAI) 25 ÁRA SIMRVl) Og SIMRAD er 19 ára á Islandi. SIMRAD fiski- leitartækin hafa á þessu timabili átt verulegan þátt i að byggja upp skipastól okkar eins og hann er i dag. Og nú hefst nýr sögukafli fyrsta september þegar fiskveiðilögsagan verður færð út i 50 sjómilur. Og áfram getum við treyst SIMRAD-tækjunum við fiskileit.í tilefni 25 ára afmælis fyrirtækisins voru sýndar 12 nýjar gerðir fiskileitartækja frá SIMRAD á sýningunni i Þrándheimi, i ágúst s.l. Hönnunarkostnaður við þetta framtak varð 135 miljónir króna, en árangurinn er undraverður bæði i verði og tæknifullkomnun, fyrir allar stærðir fiski- skipa. SIMRAD - umboðið, Bræðraborgarstíg 1, símar 14135 og 14340. Friðrik A. Jónsson.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.