Þjóðviljinn - 01.09.1972, Blaðsíða 8
8 SIÐA — ÞJÖÐVILJINN Föstudagur 1. september 1972
SPORÖSKJULAGAÐIR
TOGHLERAR
FRÁ A.S. BERGENS MEKANISKE VERKSTEDER
í NOREGI
BETRI EN RÉTTHYRNDIR HLERAR
A.S. Bergens Mekaniske Verksteder hafa smiðað toghlera i mörg ár, og
árið 1959 smiðaði fyrirtækið fyrstu samstæðuna af toghlerum fyrir botn-
veiðar. Þessi samstæða var vandlega prófuð af norskum siðutogara með
mjög jákvæðum árangri.
LÖGIMN GERIR ÞAÐ AÐ VERKUM,
AÐ TROLLIÐ NÆR YFIR STÆRRA SVÆÐI
Áframhaldandi viðtækar prófanir voru seinna framkvæmdar af A.S.
Bergens Mekaniske Verksteder, og prófanir voru einnig gerðar i samvinnu
við Skip Model Tank i Þrándheimi. Hvert einstakt atriði i smiði hinna spor-
öskjulöguðu toghlera frá A.S. Bergens Mekaniske Verksteder felur i sér
mikla reynslu og framfaraspor. Toghlerarnir frá A.S. Bergens Mekaniske
Verksteder hafa verið vandlega prófaðir við hinar breytilegustu aðstæður
og hafa sannað kosti sina fram yfir hina venjulegu rétthyrndu toghlera.
Stærð Lengd Breidd Þyngd
Gerð 1 2050 mm 1210 mm um 290 kg
Gerð 2 2255 mm 1330 mm um 380 kg
Gerð 3 2360 mm 1390 mm um 460 kg
Gerð 4 2450 mm 1400 mm um 700 kg
Gerð 5 3120 mm 1780 mm um 1000 kg
Gerð 6 3120 mm 1780 mm um 1200 kg
Gerð 7 3450 mm 1970 mm um 1400 kg
AÐALUMBOÐSMENN
EGGERT KRISTJÁNSSON & CO, H.F.
SUNDAGÖRÐUM 4 — SÍMI 85300
Belgísk nefnd
væntanleg til land-
Kelgisviðræðna
Aö undanförnu hafa fulltrúar islenzkra og belgiskra stjórnvalda átt
meö sér viöræöur um landhelgismáliö, og hafa þær leitt til þess aö
fimm manna belgisk sendinefnd er væntanleg hingaö til lands. Belg-
arnir komaá sunnudaginn, og ætla þeir aö ræöa viö stjórnvöld hér um
takmarkanir á veiöum innan fimmtiu milna fiskveiöilögsögunnar.
Stjórn Belgiu hefur, sem kunnugt er, lagzt gegn útfærslu islenzku
landhelginnar.
Norrœn æskulýðsfélög
vara við aðild að EBE
Helsinki 31/8. A fundi fulltrúa
þrjátiu og sex norrænna æsku-
lýðssamtaka, sem lauk i Helsinki
i dag, var samþykkt ályktun, þar
sem segir aö stækkun Efnahags-
bandalagsins muni hafa neikvæö
áhrif á tilraunir til að tryggja frið
og öryggi i Evrópu og öörum hlut-
um heims. 1 ályktuninni er varab
við aðild Dana og Norömanna að
EBE, jafnt af öryggisástæðum
sem efnahagslegum.
Einungis tvö æskulýðsfélög
greiddu ekki atkvæði með álykt-
uninni og voru það ungmenna-
samtök thaldsflokksins og
Vinstriflokksins i Danmörku.
SÖGULEGUR
FUNDURI
NORÐUR-KÓREU
Seoul 31/8. Fulltrúar Rauöa
Krossins i Suður-Kóreu hittu á
miðvikudag kollega sina norðan
landamæranna i Pyonyang, til að
hefja samninga um lausn á mál-
um hinna 10 miljóna Kóreubúa,
scm nú búa nauöugir viijugir í sitt
hvoru landinu, aðskildir frá fjöl-
skyldum sinum.
Báðir aöilar eru ásáttir um að
vinna að áætlun, sem á að sam-
eina hinar sundruðu fjölskyldur á
nýjan leik, eftir tuttugu og sjö ára
aöskilnað.
Fulltrúar Suður-Kóreu héldu
heim á leið siðdegis i dag, og
næsti fundur nefndanna verður
haldinn hinn 13. september i Seo-
ul, höfuðborg Suður-Kóreu.
Nixon og Tanaka
ræðast við á Hawai
Honolulu 31/8. Tanaka,
forsætísráðherra Japans,
kom í nótt til Honolulu á
Hawai-eyjum, ogtók Nixon
Bandaríkjaforseti á móti
honum á flugvellinum. I
dag og á morgun ræða leið-
togarnir tveir saman um
sambúð ríkjanna og hugs-
anlegan ágreining, sem
kann að hafa komið upp að
undanförnu, einkum í því
er varðar efnahagsmál og
vöruskiptajöfnuð.
Nixon sagði við móttökuna, að
fundurinn myndi auka friðarlikur
á Kyrrahagssvæðinu og að fund-
arstaðurinn hefði drjúga tákn-
ræna þýðingu, en eins og alkunna
er, hófst styrjöld Bandarikja-
manna og Japana með árásinni á
Perluhöfn á Hawai 1941. Tanaka
þakkaði Nixon ávarpið, og kvað
þjóð sina myndu fara meö veiga-
meira og ábyrgðarfyllra hlutverk
i alþjóðamálum i framtiðinni.
Kjarnasprengja kom af
stað 22 jarðskjálftuni
Washington 31/8. Hin umdeilda
kjarnasprenging Bandarikjahers
á Alutaeyjum siðastliðið haust
kom af stað tuttugu og tveimur
minni háttar jarðskjálftum og or-
sakaði mörg hundruð höggbylgj-
ur i jarðskorpunni, segir i skýrslu
visindamanna um tilraunina,
sem gefin var út i gær. Kjarna-
sprengingin, sem var fimm
megatonn að styrk, kom þó ekki
af stað jafn afdrifarikum jarð-
hræringum og margir óttuðust.
Siðasta jarðskorpubreytingin
af völdum sprengjunnar varð
þremur mánuðum eftir að hún
var um garö gengin.
Málverkasýning
í dag er opnuð kynningarsýning með
nokkrum listaverkum Sigurðar Kristjáns-
sonar, listmálara. Opið kl. 1—6 alla virka
daga til 15. þ.m.
Gjörið svo vel, ókeypis aðgangur.
Sýningarsalurinn Týsgötu 3 — simi 17602.
Málverkasalan.