Þjóðviljinn - 01.09.1972, Síða 17

Þjóðviljinn - 01.09.1972, Síða 17
Föstudagur 1. scptember 1972 ÞJÓÐVILJINN — StÐA 17.- JENNY BARTHELIUS: J5 SPEGIL- MYND FÖSTUDAGUR 1- september 7.00 Morgunútvarp. Veður- fregnir kl. 7.00, 8.15 og 10.10. Fréttir kl. 7.30, 8.15, (og for- ustugr. dagbl.), 9,00 og 10.00. Morgunbæn kl. 7.45. Morgunleikfimi kl. 7.50. Morgunstund barnanna kl. 8.45: Guðjón Sveinsson les framhald sögu sinnar um ,,Gussa á Hamri” (15). Til- kynningar kl. 9.30. Létt lög milli liða. Spjallað við bændur kl. 10.05 Tónleikar kl. 10.25: Sinfóniuhljóm- sveitin i Minneapolis leikur Slavneska dansa op. 46 eftir Antonin Dvorák, Antal Dor- ati stj. György Cziffra leik- ur á pianó meö hljómsveit Tónlistarskólans i Paris Ungverska fantasiu eftir Franz Liszt, Karel Ancerl stj. Fréttir kl. 11.00. Suisse Romande hljómsveitin leik- ur ,,Sex fornar grafskriftir” eftir Claude Debussy: Ern- est Ansemet stj. og færði verkið i hljómsveitarbúning / Sinfóniuhljómsveitin i Prag flytur ásamt tékk- neska Filharmóniukórnum „Psyché”, sinfóniskt ljóð eftir Cesar Franck, Jean Fournet stjl. 12.00 Dagskráin. Tónleikar. Tilkynningar. 12.25 Fréttir og veðurfregnir. Tilkynningar. 13.00 Eftir hádegið Jón Gunn- laugsson leikur létt lög og spjallar viö hlustendur. 14.30 Siðdegissagan: „Þrútið loft” eftir P.G. Wodehouse. Jón Aðils leikari les (15). 15.00 Fréttir. Tilkynningar. Lesin dagskrá næstu viku. 15.30 Miðdegistónleikar. Þýzki tenór söngvarinn Pet- er Schreier syngur óperu- ariur og sönglög. 16.15 Veðurfregnir. Létt lög. 17.00 Fréttir. Tónleikar. 17.30 Ferðabókalestur: Skóla- ferð eftir séra Ásmund Gislason. Guðmundur Arn- finnsson les fyrsta lestur. 18.00 Fréttir á ensku. 18.10 Tónleikar Tilkynningar. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Fréttir. Tilkynningar 19.30 Frá ólympiuleikunum i Munchen. Jón Ásgeirsson segir frá. 19.40 Fréttaspegill. 20.00 Norræn alþýðulög. Danski drengjakórinn og Norski einsöngvarakórinn flytja. 20.25 Mál til meðferðar. Arni Gunnarsson fréttamaöur sér um þáttinn. 20.55 Konsert fyrir pianó og hljómsveit nr. 3 i C-moll op. 37 eftir Beethoven. Arthur Schnabel leikur með hljóm- sveitinni Filharmóniu, Issay Dobrowen stj. 21.30 Ctvarpssagan „Dalalif" eftir Guðrúnu frá Lundi Valdimar Lárusson les (17). 22.00 Fréttir 22.15 liandknattleikslýsing frá Ólympiuleikunum, Jón Ásgeirsson lýsir siðari hluta hálfleik i leik tslendinga og Tékka. 22.45 Danslög i 300 ár. Jón Gröndal kynnir. 23.05 Á tólfta timanum. Létt lög úr ýmsum áttum. 23.55 Fréttir i stuttu máli. Dagskrárlok. FÖSTUDAGUR 1. september þar sem hann var vanur að álpast áfram án tilgangs og takmarks. Strax á unglingsárunum hafði það verið þannig, að hann hafði ekki sömu áhugamál og aðrir. Þegar félagar hans léku knatt- spyrnu hafði hann staðið álengd- ar og furðað sig á þvi, að þeir skyldu leggja á sig allt þetta erfiði til að fá liflausan klump til að lenda á milli tveggja stólpa....Þetta hafði ekki ýtt undir góðan félagsanda. Og þvi hafði hann gengið um eins og framandi meðal hinna strákanna að nokkru hlægilegur i erfðum og breyttum fötum, að nokkru dapur trúður i leiknum. Bert var eiginlega eini vinurinn sem hann hafði nokkru sinni átt. En Bert var gæddur öllu þvi sem hann skorti sjálfan — sjálfsöryggi ög lifsgleði og athafnasemi og kjarki. Allt sem Bert sagði virtist vera rétt og sjálfsagt, hann hikaði aldrei, honum mistókst aldrei. Jú, ef til vill, i sannleika sagt hafði Bert mistekizt að ná vin- sældum i fyrirtækinu. Hinir köll- uðu hann i háði „Jolly Good Fellow” á bak og einn teiknarinn hafði einu sinni sagt: „Hvernig geturðu haldið hann út þennan leiðinlega hrokagikk? Hann traðkar á þér eins og hundi! Af hverju færðu þér ekki aðra vinnu hjá öðrum húsbónda? En svona lagað var ástæöulaust að taka alvarlega; sennilega var þetta ekki annað en öfund. Það vakti bersýnilega gremju innan fyrir- tækisins að hann og Bert skyldu stundum hittast utan vinnunnar. Þeir héldu vist að fristundir hans og Berts væru eilif röð af veizlum og partium og kvennastandi. En þannig var það alls ekki. Bert átti ekki einu sinni sérlega margar vinkonur. Upp á siðkastið hafði þessi stúlka i Heisingborg farið að skipta meira máli. Bert fór nú orðið oft til Helsingborgar. bæði um helgar og i miðri viku. En hann talaði aldrei um hana og það var ólikt Bert að vera svona þag- mælskur um stúlku. Hljóð i bilflautu varð til þess að hann tók viðbragð og sveigði til hægri. Silfurgljáandi Porsche birtist við hliðina á honum, þaut framhjá og hvarf i hvitu reyk- skýi. Þetta var bill i lagi. Já, svo sannarlega bill i lagi....Bert átti Mercedes sportbil. Sjálfur átti hann Fiu sem oft var i lamasessi . Siðast var það stýrið.... Já, þannig var það! Nú mundi hann það. Stýrið hafði losnað og hann hafði allt i einu setið þarna með nokkrar skrúfur i hendinni og stýrið laust. Tré hafði birzt fyrir framan hann eins og i súrrealiskum draumi. Að hann skyldi ekki hafa munað það fyrr, að svona hafði það gengið til. Hann þreifaði i skyndi undir stýrið, tók i það, fann að skrúf- urnar voru vel fastar. Svitinn spratt fram á enni hans þegar hann mundi eftir bjargarleysis- kenndinni... Siðan kom árekst- urinn. Heilahristingur höfðu þeir sagt. Læknirinn hafði lofað þvi að höfuðverkurinn myndi bráðlega hverfa. 1 bili fann hann ekki fyrir honum, en hann vissi að hann myndi aftur gera vart við sig, áleitinn og hvimleiður. Læknirinn hafði ráðlagt honum að vera ekki að brjóta heilann um það sem gerzt hafði. „Kaupið nýjan bil, það er það eina sem ég get ráðlagtyður,” hafði hann sagt og klappað honum á öxlina og brosað fagmannslega. Þegar hann hafði sagt Bert frá þessu, haföi Bert hlegið og sagt: „Auð- vitað þarftu að fá nýjan bil. Við skulum sjá til eftir leyfið. Fyrir- tækið getur lánað þér peninga, svo að þú getir losað þig við Fiu. Það er óskemmtilegt að eiga bil sem er alltaf að bila. En i svipinn var hún i ágætu standi, virtist stálslegin eftir sið- ustu heimsóknina á verkstæðið. Bert hafði sótt hana þangað og ekið henni á sjúkrahúsið og hún hafði staðið við gangstéttarbrún- ina og beðið eftir honum þegar hann útskrifaðist. Litil og grá og af sér gengin og með dálitlar menjar eftir áreksturinn á aur- brettinu og slitna hjólbarða. Eins og tryggur og trúr gamall vinur sem gat ekkert gert að ellihrum- leikanum. Allt i einu minntist hann móöur sinnar, furðu skýrt. Eða að minnsta kosti þeirrar konu sem hann hafði kallað móður sina. Hún hafði dáið án þess að segja honum, hver hann var i raun og veru. Hann mundi ekki eftir and- liti hennar, aðeins höndunum, sem voru rauðar af striti, negl- urnarslitnarogsprungnar. Henni hafði þótt vænt um hann — að minnsta kosti hafði hann imyndað sér það. Einu sinni hafði hún.... Golf-skiltið lýsti eins og gervi- tunglá kvöldhimninum. Svensson myndi loka fljótlega — hann var á siðustu stundu. Þegar búið var að fylla á brús- ann, fór hann inn á skrifstofuna meðan verið var að skrifa kvitt- unina. Inni var hlýtt og bjart. Lágvær tónlist heyrðist frá út- varpinu, og það var kaffilykt. Hversdagslegum notaleika og ör- yggi stafaði frá veggjunum. Litla herbergið var eins og vin i fjand- samlegum heimi, þar sem furöu- legir hlutir gátu gerzt. Hann velti fyrir sér hvort hann ætti að segja söguna um horfna benzinið, en hætti við það. Það var ástæðu- laust að gera veður út af þvi. Sennilega var einhver nærtæk skýring á þessu, þótt hann kæmi ekki auga á hana. Siminn hringdi og Svensson svaraöi, hlustaði andartak og sagði: — Já, það vill svo til að hann er staddur hér. Hann rétti honum heyrnartólið. — Til yðar, sagði hann. Það var Bert. Hann var ekki sjálfum sér likur i rómnum. — Þetta var kúnstúgt, sagði hann. —■ Að þú skyldir einmitt vera þarna staddur. Ég ætlaöi bara að hringja og vita hvort sézt hefði til þin. Þú tekur oft benzin þarna. —■ Bert, sagði hann, og nú var hann næstum óðamála. — Bert, þetta er dálitið furðulegt með benzinið. Ég lét fylla hann i gær- kvöldi, og samt var búið af geym- inum núna. Það er óeðlilegt, ég hefði átt að hafa nóg benzin til allrar leiðarinnar og vel það. — Já, sagði Bert, og nú virtist rödd hans öruggari. — Já það var einmitt þess vegna sem ég hringdi. Sjáðu til, ég gleymdi að segja þér, að i gær, þegar ég sótti kerruna á verkstæðið, þá sögðu þeir að geymirinn læki aðeins ögn. Þig vantaði bilinn i dag, svo að þeir höfðu ekki tima til að gera við það, en náunginn fullvissaði mig um að þetta skipti sáralitlu máli... En hann sagði lika að hann væri farinn að eyða meiru núorð- iö. En hafðu engar áhyggjur af þessu. Þegar þú kemur til baka, útvegum við þér nýjan bil. Liði þér vel i leyfinu. Ég lit kannski inn einhvern tima. Þegar hann lagði tólið á, fann hann til óendanlegs léttis. Bert hafði hugsað til hans; Bert bar umhyggju fyrir honum. Það var eins og Bert hefði fundið það i hundrað kilómetra fjarlægð að hann var órólegur út af einhverju — benzininu. Og nú hafði hann fengið skýringuna. Meðan Svensson ók honum aft- ur að Fiu, lét hann móðaií mása allan timann. Mest af feginleik, auk þess sem það var notalegt að hafa mannveru við hliðina á ser. Tiu minútum seinna sat hann aftur inni i Fiu og vélin malaði einsog mettur köttur. Hann hafði kveikt ljósin og vegurinn varð til fyrir framan hann, bút fyrir bút i skininu. Bugður — tré —• girðing- ar — smáhús sem virtust depla til hans syfjuðum augum. Honum leið óvenju vel — hann fann ekk- ert til og hann var órólegur. Hann þurfti ekki einu sinni að reykja, þótt hann hefði keðjureykt alla leiðina fram að þessu. Nú vissi hann að allt var i lagi. Nú vissi hann... Köttur stökk yfir veginn, rétt framan við bilinn, og hann steig á hemilinn og skrensaði á malarveginum en náöi valdi á bilnum um leið og framhjólin komust yfir að vinstra kanti. Hann ók yfir að hægti brúninni, stöðvaði bilinn,slökkti ljósin; lét aðeins stöðuljósin loga. Svo sat hann langa stund i myrkrinu með hendur á stýri og horfði beint fram fyrir sig. Enn einu sinni þurfti hann að bæla niður ákafa löngun til að snúa við og aka til Málmeyjar aftur. Einhvers stað- ar i undirvitund hans hafði kvikn- að á aðvörunarljósi. Ósjálfrátt vissi hann að eitthvað var öðru visi en það átti að vera, rétt eins og dýr hefur hugboð um hættu án þess að vita i hverju hún er fólgin. Hann hallaði enninu að stýrinu og reyndi að hugsa skýrt. En hugs- anirnar runnu burt, fengu enga fótfestu, þær bylgjuðust eins og þoka i höfði hans. Hann hugsaði með sér, aö þannig liöi manni trú- lega eftir að hafa tekið svefnlyf og er i þann veginn að sofna. Hann tók viðbragð, lyfti höfðinu, kveikti i sigarettu, kveikti á lág- ljósunum og ræsti bilinn. Fia rann hægt af stað. Hann skrúfaði niður rúðuna og fann loftið leika mjúk- lega um ennið. Allt i lagi. hugsaði hann: Allt i lagi, látum það koma. Hvað svo sem það er. Fimm minútum seinna ók Fia niður löngu hlíðina sem lá niður að bænum. Hann lagði bilnum fyrir ofan húsið, tók töskuna sina út og læsti. Vitinn yzt á hafnarbakkanum deplaði vingjarnlega til hans ljós- unum, og bærinn lá fyrir neðan hann eins og afmælisterta með hundrað ljósum. Hafið söng lag sitt eins og það hafði alltaf gert og myndi alltaf gera og það skrjáf- aði i stóru eskikrónunni yfir höfði hans. Heima. Loksins. Húsið virtist litið og einmana- legt með hlera fyrir gluggunum og garðhúsgögnin samanlögð i einu horninu á veröndinni. Allt var eins og hann hafði skilið við það — skóflan, sem hann hafði gleyrrit að setja inn, hallaðist upp að veggnum, rigningarvatns- tunnan var næstum tóm og diska- þurrkan hékk til þerris á nagla fyrir utan eldhúsgluggann. Það vareins og hann hefði aldrei farið að heiman, hefði aðeins skroppið i göngu út i garðinn. Hann and- varpaði feginsamlega, stakk hendinni i vasann og tók upp lykilinn. Eins og vanalega var erfitt að opna dyrnar. Það var segin saga þegar hann hafði ekki komið i bú- staðinn lengi. Hann bjástraði stundarkorn við læsinguna, sneri lyklinum fram og til baka, svo tókst það og dyrnar opnuðust,og það marraði lágt i hjörunum. Innilokuð lykt barst á móti hon- um, húslyktin, sambland af gasi og tjöru og köldum reyk og ham- ingjan mátti vita hverju. Hann kveikti á tveim luktum, lagði i eldstóna, tindi fram nokkr- ar niðursuðudósir og setti skaft- pott yfir gastækið. Meðan súpan var aö hitna, sat hann i ruggu- stólnum og horfði i kringum sig. Þetta hús hefði faðir hans byggt með eigin höndum, meðan timbur var ódýrt og lóðir auðfengnar. Faðir hans — framandi maður sem hafði komið sem gestur i tveggja herbergja ibúðina i borg- inni til hans og móðurinnar og hafði horfið aftur til að veiða eða drekka eða fara i bátsferðir á sunnudögum. Maður sem hann hafði aldrei þekkt. Maður sem hann hafði verið hræddur við. Og nú sat hann i húsi þessa framandi manns, sem hann hafði erft, 18.00 Frá Olympiuleikunum. Fréttir og myndir frá Olym- piuleikunum i Miinchen teknar saman af Ómari Ragnarssyni. (Evrovision) lllé. 20.00 Fréttir. 20.25 Veður og auglýsingar. 20.30 Landhelgisdagurinn. Dagskrá kvöldsins er til- einkuð útfærslu fiskveiði- lögsögunnar i fimmtiu mfl- ur. I dagskránni verður fjallaö um sögu islenzku landhelginnar og spjallað við sjómenn viðs vegar um land um viðhorf þeirra til útfærslunnar. Sýndar verða svipmyndir úr þorskastrið- inu 1958, og rætt við Islend- inga, sem þar komu við sögu, og greint verður frá afstööu ýmissa þjóða til út- færslunnar. Þá verður sýnd kvikmynd frá heimsókn sjónvarpsmanna til útgerð- arbæjarins Aberdeen, þar sem rætt var við forystu- menn á sviöi fiskveiða og fiskiðnaöar. Og loks verður svo rætt við islenzka fiski- fræðinga um verndun og hagnýtingu fiskistofnanna við landið. Umsjónarmaöur Eiður Guönason. Frá Heimsmeistaraeinvig- inu i skák.Að lokinni land- helgisdagskránni greinir Friðrik ólafsson frá nýjustu einvigisskákinni. Dagskrárlok óákveðin. Húsbyggjendur — Verktakar Kambstál: 8, 10, 12, 16, 20, 22, og 25 m/m. Klipþum bg beygjum stál og járn eftir óskum viðskiptavina. Stálborgh.f. } Smiðjuvegi 13, Kópavogi. Slmi 42480.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.