Þjóðviljinn - 02.09.1972, Page 9
Laugardagur 2. september 1972 ÞJ0ÐVILJINN — SIÐA 9
Kaffisala
Styrktar>
félags
lamaðra og
fatlaðra að
Hótel Sögu
Kvennadeild Styrktarfélags
lamaðra og fatlaðra heldur árlega
kaffisölu sina að Hótel Sögu á
morgun, sunnudag, frá klukkan
2—6.
Meðan á kaffisölunni stendur
munu margir ágætir skemmti-
kraftar koma fram. Má þar nefna
að hljómsveit Ragnars Bjarna-
sonar mun leika, Róbert Arn-
finnsson syngur við undirleik
Carls Billichs og Þrjú á palli
koma fram.
Ástæöa er til að geta þess að
þeir skemmtikraftar sem fram
munu koma taka ekki laun fyrir
framlag sitt, en eftirláta
Styrktarfélaginu launin.
Fjárhagur þeirrar starfsemi
sem rekin er fyrir lamaða og fatl-
Róbert Arnfinnsson.
aða er bágborinn, en
Styrktarfélagið hefur árlega
þrjár fjáröflunarleiðir, og er
kaffisalan ein þeirra.
Eins og áður segir verður kaffi-
salan frá klukkan 14.00 — 16.00 á
sunnudag.
Leiðrétting á
bátsnafni
I viðtali við Markús Þorgeirs-
son, sem birt var í blaðinu i gær,
1. september, misritaðist nafn
trillu Markúsar. Trillan heitir
Katrin GK 90, en ekki Kristin eins
og fram kom i viðtalinu.
Hlutaðeigendur eru beðnir vel-
virðingar á þessu.
Norrænt
kennara-
nemamót
Dagana 1. til 6. sept. verður
lialdið norrænt kennaranemamót
að Laugarvatni og er það haldið á
vcgum Sambands islenzkra kenn-
aranema.
Þátttakendur verðá 40, 7 frá
Noregi, 11 frá-Sviþjóð, 5 frá Dan-
mörku, 2 frá Færeyjum og 15 frá
Islandi. Aðalefni mótsins veröur
jarðfræði og saga tslands. Farið
verður i ferðir til Gullföss og
Geysis undir stjórn fræðimanna,
jaröfræðinga og sagnfræðinga.
Þá verða haldnir 6 fyrirlestrar
á mótinu. M.a. mun Sigurður
Þórarinsson jarðfræðingur flytja
þar fyrirlestur. Dvalið verður aö
Laugarvatni og munu 3 stúlkur úr
húsmæðraskólanum þar á staðn-
Sœlt er
að vera
fátœkur
Maður er nefndur
Hinrik Thorarensen, og
auðkenndur yngri í
firmaskrá Reykjavikur,
en þar er hann skráður
fyrir tveimur tizkuverzl-
unum í höfuðborginni,
Tizkuskemmunni og
Tízkuverzluninni
Helenu, sem opnuð var
fyrirskömmu í nýju hús-
næði á horni Skólavörðu-
stígs og Laugavegs.
Helena er rekin af
Tízkuskemmunni sam-
kvæmt þeim upplýsing-
um sem firmaskrá
geymir.
Nú,þetta er allt gott og
blessað.
I Skatta- og útsvarsskrá
Reykjavikur segir um Hinrik
Thorarensen, að honum sé
gert að greiöa 106 þúsund i
tekjuskatt og 69 þúsund i út-
svar. Þetta þýðir að tekjur
hans hafi veriö á bilinu 650 að
700 þúsundum, og frádráttur
talsverður til tekjuskatts.
Enn er þetta allt gott og
blessað.
Hér með er birt mynd af
sumarhúsi, sem verið er að
byggja við Þingvallavatn,
nánar tiltekið i Hestvik. 1
þetta hús munu þegar vera
runnar 3 miljónir króna og er
það þar með orðið fokhelt.
Neðsti hluti hússins mun
ætlaður undir geymslur fyrir
eftirtalda hluti, en þeir eru all-
ir i eigu húseigandans:
Blazer-jeppa, hraðbát, tvo
gúmbáta, — annan af Zodiac-
gerð, — og sérsmiðað hjólhýsi.
Þessir hlutir komast þarna
fyrir allir samtimis.
Jarðrask og girðing við
sumarhús þetta er áætlað að
kosti 1 miljón króna, en við
þetta bætist leiga á lóð. Full-
gert mun þetta mannvirki
kosta um þaö bil 5 miljónir
króna. Eigandinn hefur hvilt
sig i útlandinu hluta þess tima
sem framkvæmdirnar hafa
farið fram. Og einnig þetta er i
bezta lagi.
En það sem ekki er i lagi er,
ef upp úr dúrnum kæmi, að
verzlunareigandinn Hinrik,
skattgreiðandinn Hinrik meö
650—700 þúsund króna árs-
tekjur.og sá sem lætur byggja
sér sumarhús fyrir 5 miljónir
við Þingvallavatn, og greiðir
til byggingarinnar 3 miljónir i
ár, væri einn og sami Hinrik-
inn.
Þaö þyrftu skattrannsókn-
armenn að athuga. ___ ..
Samtök
A mánudaginn var, þann 28.
ágúst, var boöaö til stofnfundar
um samtök exemsjúklinga á ts-
landi. Höröur Ásgeirsson deildar-
stjóri hefur i nokkur undanfarin
ár haft i hyggju að stofna til slíkra
samtaka, þar sem i nágra'nna-
löndunum þykja slik samtök
sjálfsögö. Höröur haföi þess
vegna forgöngu um aö stofna slik
samtök s.I. mánudag.
Stofnfundur var auglýstur
nokkrum sinnum i blöðum og út-
varpi og reiknuðu þeir, sem
undirbjuggu fundinn meö Herði,
að fá á milli 30 og 60 manns á
fundinn og þóttust þó vera nokkuð
bjartsýnir. Þegar svo fundurinn
skyldi hefjast voru mættir um 300
manns, og fengu ekki allir sæti,
sem vildu. Þetta sýnir þá gifur-
legu nauðsyn, sem er á slfkum
félagsskap, og hvað þeir sjúkling-
ar, sem bera exemsjúkdóma, eru
i mikilli þörf fyrir hjálp.
A fundinum höfðu nokkrir af
viðstöddum framsögu um exem-
sjúkdóma, bæði þeir, sem hafa
sjúkdóminn, og þeir sem þekkja
til hans frá ættingjum sinum eða
vinum og öðrum skyldmennum.
Þá var borin upp tillaga hvort
ekki væri æskilegt að stofna sam-
tök exemsjúklinga, og var það
einróma samþykkt á fundinum.
Megintakmark samtaka exem-
sjúklinga mun veröa það, að
halda uppi fræöslu fyrir exem-
sjúklinga, þ.e. kynna allar nýj-
ungar á sviði exemlækninga.
Einnig munu samtökin beita sér
um sjá um matseld fyrir hópinn.
Þátttökugjald eí 2500, kr. fyrir
tslendinga en erlendu gestirnir
þurfa aö greiða ferðir sinar sjálfir
en fá fritt uppihald hér.
SIK hefur fengið styrk frá rikínu
og samtökum barnai og fram-
haldsskólakennara til aö standa
undir kostnaði við mótiö. — S.dór
Frá stofnfundi samtaka exemsjúklinga.
fyrir þvi, að exemsjúkir beri
minni kostnað af lækningu sjúk-
dómsins, en margir exemsjúkl-
ingar þurfa aö bera stórar fjár-
hagsbyrðar vegna fjárútláta fyrir
meööl til lækningar exemi.
Félagið mun einnig beita sér
fyrir þvi, aö bætt verði læknisaö-
staða fyrir exemsjúka á Islandi,
en það hefur komið i ljós, aö
sjötta deild Landsspitalans er
þegar orðin alltof litil, svo aö
margir exemsjúkir, sem þurfa á
læknisaðstoð og legu þar að
halda, þurfa að biða i langan tima
eftir plássi.
Hvatt var til þess á fundinum,
að ekki eingöngu þeir, sem bæru
þennan sjúkdóm, væru i félaginu,
heldur allir þeir sem ættu ætt-
ingja eða vini með þennan sjúk-
dójm, svo og allir velunnarar
exemsjúkra og þeir, sem styrkja
vildu þennan góöa félagsskap.
t undirbúningsstjórn félagsins
voru kosnir: Hörður Asgeirsson
deildarstjóri, Jónas Guðmunds-
son framkvæmdastjóri AA-sam-
takanna og Asgeir Gunnarsson
forstjóri. Stjórninni mun verða til
aðstoðar Þórður Magnússon for-
maður Sjúkrasamlags Kópavogs.
Nixon sigur-
stranglegur
Washington 30/8 Niðurstöður
skoöanakönnunar, sem birtar
voru i Bandarikjunum i dag, sýna
að hvorki meira né minna en 64%
Bandarikjamanna taka Nixon
fram yfir McGovern, sém fram-
bjóðanda til forsetaembættisins.
Ahangendur McGoverns telja um
30% þjóðarinnar, en 6% hafa enn
ekki tekið afstöðu til frambjóð-
endanna.