Þjóðviljinn - 12.11.1972, Side 1
Vopnahlé í Indókína fyrir jól?
Thieu vill
ekki fækka í
Saigonhemum
PARÍS, SAIGON 11/11 — Ýmislegt bendir til að
vænta megi fundar samningamanns Norður-Viet-
nams Le Duc Tho, og Bandarikjanna, Henry Kiss-
ingers, innan skamms. Ekki er þó búizt við vopna-
hléð komist á fyrr en undir jól.
fulltrúi bandariska sendiráösins
til að láta uppi áætlanir Haigs, en
hann mun ræða við Thieu að nýju.
Tilgangurinn er að ná sam-
komulagi við Theu um þau atriði i
samkomulagi N-Vietnams og
Bandarikjanna, sem Henry Kiss-
inger vill ræða nánar við Le Duc
Tho i Paris. Haig fer til Banda-
rikjanna á morgun.
Bandariskar heimildir i Saigon
hermdu, að von væri til, að samn-
ingurinn tæki gildi það fljótt, að
striðsaðgerðum lyki fyrir jól.
Samkvæmt öðrum heimildum er
eitt af atriðum, sem Saigon-
stjórnin og Bandarikjastjórn
þræta um, grein i samkomulag-
inu, sem ekki hefur verið birt
opinberlega fram að þessu. Á hún
að kveða svo á, að Saigonherinn
skuli minnka niður i 250 þúsund
manns á þrem mánuðum og i 175
þúsund á næstu sex mánuðum eft-
ir að samkomulagið er undirrit-
að. Samskonar grein nær yfir
norðurvietnamskt herlið i S-Viet-
nam, segja sömu heimildir.
Ýmsir efast hinsvegar um að
vopnahlé komis á fyrir jól, ef biða
á eftir samþykki Thieus og er i
þvi sambandi bent á kaldar mót-
tökursem Haig fékk iSaigon.
Le Duc Tho er væntanlegur til
Parisar næstu daga, að þvi
er fulltrúi n-vietnamska
sendiráðsins þar upplýsti.
Gera fréttaskirendur ráð fyrir að
hann komi til að semja frekar við
Kissinger, en sendiráðsfulltrúinn
sagði hins vegar, að N-Vietnams-
stjórn héldi fast við það þeir hitt-
ust aðeins til að undirrita samn-
inginn, eins og hann er nú i upp-
kasti.
I Saigon ræddi hernaðarráð-
gjafi Nixons, Alexandei Haig
hershöfðingi, við bandariska em-
bættismenn i dag um viðtal við
Thieu forseta i gær. Ekki fékkst
Vonzku-,
veður á Isafirði
Mikil snjókoma með 9 vind-
stigum var á Isafirði i gær.
Bilar sátu fastir i umferðinni,
og suma hafði fennt i kaf.
Verið var að vinna við að
moka veginn milli ísafjarðar
og Hnifsdals svo og flugvöll-
inn, ef veður lægöi og flug gæti
hafizt.
Tjón hafði ekki orðið i veðr-
inu.
Enn skerst í odda
útaf vinnumála
dómstól Heats
LONDON 11/11 — Leiðtogar
brezka járn- og málmiðnaðar-
sambandsins ákváðu i gær að
borga ekki af jrjífsumvilja sekt,
sem vinnumáladómstóll, skip-
aður af ríkisstjórninni, hefur
dæmt sambandið til að grciða. Er
almennt gert ráð fyrir, að þessi
ákvörðun leiði til enn umfangs-
meiri deilna rikisstjórnarinnar og
brezkra verklýðssamtaka.
Járn- og málmiðnaðarmanna-
sambandið hefur fengið frest til
21. nóvember til að borga sektina.
Neiti þeir að borga , eiga þeir á
hættu að gert verði lögtak á eign-
um sambandsins.
Sambandið var dæmt i sektina
af þvi að það á að hafa sýnt rétt-
inum óvirðingu. Það neitaði að
senda fulltrúa til réttarhaldanna,
þegar verkamaður kvartaði yfir,
að honum hefði verið visað af
fundi i félagi sinu.
Það er ihaldsstjórnin, sem
skipaö hefur þennan nýja vinnu-
máladómstól, en sú ráðstöfun
hefur mætt eindreginni andstöðu
verklýðshreyfingarinnar. Er
andstaðan svo hörð, að við alls-
herjarverkfalli lá i sumar, þegar
þrir hafnarverkamenn voru
handteknir fyrir að sýna þessum
nýja rétti ihaldsins óvirðingu.
I DAG
Þegar Surtscyjargosið hófst
uröu mikil umbrot neðansjávar.
Hlutar úr setlögum botnsins bár-
ust upp með glóandi hrauninu.
Um þessar mundir er ungur is-
lenzkur jarðfræðingur að rann-
saka (i—7 þúsund ára gömul
sjávardýr úr þessuin setlögum,
jafnframt því sem hann kannar
gömul sjávardýr, sem fundizt
hafa við Sæfjall í Vestmannaeyj-
um, en þau komu upp á yfirborð
Vestmannaeyja með sama hætti.
Sjá viðtal i opnu blaðsins.
Ólýðræðisleg vinnubrögð i Kópavogi:
Fallni meiri-
hlutinn áfram
með stjórnina
r
I
KLAKA
HÖLLU
Þessa grýlukertamynd tók
Ijósmyndari Þjóöviljans, Ari
Kárason, i höfuðborginni á
föstudag, en þá var nokkurt
frost. Heldur dró úr frostinu i
gær. en áframhaldandi norð-
anátt mun verða i dag og á
morgun, og segja vcðurfræð-
ingar að hún muni fara fremur
kólnandi.
Gert cr ráð fyrir éljagangi á
norðanverðum Vestfjörðum, á
Norðurlandi og suöur á Aust-
firði, cn bjart verður að mestu
á Suður- og Vesturlandi.
Hvassviðri var á miðunum
allt i kring um landiö i gær, að
undanteknu hafsvæðinu sunn-
an Vatnajökuls, en þar var
hæg breytileg átt. Veðurfræö-
ingar töldu litlar likur á þvi að
veður gengi niður á miðunum
þessa heigina.
Fjórir aðilar af fyrrverand
bæjarstjórnarmeirihluta i
Kópavogi viðurkenndu það
á bæjarráðsfundi í Kópa-
vogi á föstudag, að þeir
sætu enn sérlega fundi með
bæjarstjóra og undirbyggju
mál fyrir bæjarráðs- og
bæjarstjórnarfundi.
A fundi bæjarráðs i fyrradag
lögðu Svandis Skúladóttir, sem á
sæti i bæjarráði fyrir Félag
óháðra borgara, og Asgeir
Jóhannesson bæjarfulltrúi
Alþýðuflokksins, sem hefur setu-
rétt á fundum bæjarráðs án
atkvæðisréttar, fram fyrirspurn ,
sem hljóðaði svo:
— Mætir bæjarstjóri á reglu-
lega fundi hjá aðilum sem studdu
fyrrverandi meirihluta, og leggur
hann þar fyrir mál til undir-
búnings fundum i bæjarstjórn og
bæjarráði?
Björgvin Sæmundsson, bæjar-
stjóri, sagði, að skýlausasta
svarið við fyrirspurninni væri já.
Stóð þá upp Axel Jónsson fyrir
hönd fyrrverandi meirihluta og
flutti yfirlýsingu frá sér og öðrum
sjálfstæðismanni til, og tveimur
framsóknarmönnum, og lýsti þvi
yfir að þessum vinnubrögðum
yrði ekki haldið áfram af þeirra
hálfu.
Miklar umræður urðu siðan i
ráðinu um fyrirspurnina og þau
ólýðræðislegu vinnubrögð sem
fallinn meirihluti hafði beitt.
Blaðið hafði simsamband við
Sigurð Grétar Guðmundsson,
annan bæjarfulltrúa Félags
óháðra borgara i Kópavogi, og
spurði hann hvort honum virtist
Frh. á bls. 15