Þjóðviljinn - 12.11.1972, Side 12
12,SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 12. nóvember 1972
SKILIN EFTIR . . .
Teiknimyndasaga frá Kína
örlögin hagaþvi svo til, að Hsiang-lien og börn hennar fá inni á sömu
krá og Shih-mei hafði búið á. Þau komast að þvi hjá Chang veitinga-
manni að Shih-mei stóðst prófið og Hsiang-lien hlýnar um hjarta-
ræturnar af hamingju.
En siðan segir Chang henni, að Shih-mei sé orðinn tengdasonur gömlu
keisaraynjunnar. Hún verður sem lömuð við fréttirnar og biður Chang
að fara með sig til Shih-meis. Hann samþykkir það.
LllLI 2T
GLUGGINN f
MYNDAGATA
Manninn i stiganum vantar eitthvað i hægri
höndina. Það er eitthvað á einni af þessum 6
myndum. Hvað er það, sem hann vantar?
Lausn á fiska-gátu
Kiskarnir nr. 2 og 6 eru eins.
YIKÍNGASKIP
Ilér getur að lita hið gjörvilegasta víkingaskip. Og það er hann Þorsteinn litli Siglaugsson á
Hvolsvelli, sem hefur teiknað þaðhanda litla glugganum. Þakka þér fyrir,Þorsteinn.
Yandið valið
á lífhrútum
Fimm háskólalærðir ungir menn endurreisa
Búnaðarblaðið sem opin og óháðan
vettvang til umræðna um landbúnaðarmál
Búnaðarblaðið hefur nú hafið
göngu sina á ný, og sést varla i
það fyrir auglýsingum, nema það
sé opnað: þá kemur i ljós mikið
og fjölbreytt efni.
Endurreisnarmenn Búnaðar-
blaðsins segjast allir vera ungir
menn, meira og minna tengdir
landbúnaði, hafandi sveitarætur,
en flestir starfsmenn ýmissa
landbúnaðarstofnana að aðal-
starfi. Stofnanir þessar fría þeir
þó allri ábyrgð af útgáfunni.
Búnaðarblaðið er viða þekkt af
fyrri göngu, en það kom út um 9
ára skeið nokkurn veginn sam-
fellt, en lagði upp laupana fyrir
svo sem þrem árum. Útgefandi
þess var þá ágóðafélag landbún-
aðaráhugamanna að nafni Hilmir
hf., en Hilmir hefur nú hasazt upp
á útgáfu fyrir bændur landsins og
á engan hlut að Búnaðarblaðinu
nú. Mun þar margur sakna vinar i
stað.
5 háskólalærðir búvisindamenn
skipa nú ritnefnd Búnaðarblaðs-
ins, þeir Þorvaldur G. Jónsson
(ábm.) , hvanneyrarlærður,
rikislaunaður eftirlitsmaður
kjarnfóðurs, tilvonandi bóndi á
Guðrúnarstöðum, Jón Björnsson,
dansklærður áætlunarsér-
fræðingur hjá Landnámi rikisins,
Bjarni Guðmundsson hvann-
eyrarlærður með viðbót i Noregi,
heyverkunarsérfræðingur við
bútæknideild Rannsóknarstofn-
unar landbúnaðarins á Hvann-
eyri, Gisli Karlsson, dansk-
lærður, kennari i hagfræði við
Hvanneyrarskóla, Jón Viðar Jón-
mundsson norsklærður, fyrrv.
aðstoðarmaður við Rannsóknar-
stofnun landbúnaðarins á
Keldnaholti, nú við framhalds-
nám á Asi, Þorvaldur G. er frá
Innra-Hólmi á Skaga, Jón frá
ölvaldsstöðum á Mýrum, Bjarni
er frá Kirkjubóli i Dýrafirði, Gisli
frá Hvammi á Barðaströnd og
Jón Viðar er frá Hrafnsstöðum i
Svarfaðardal.
Ritnefndarmönnum þótti hæfa
að byrja þetta fyrsta blað sitt á
viðtali við Halldór E. Sigurðsson
fjármála- og landbúnaðarráð-
herra og fá fram afstöðu hans til
þeirra mála sem efsteru á baugi i
landbúnaði um þessar mundir.
Þá mæla ritnefndarmenn mjög
með greininni Val lifhrúta, þeirri
grein ætti enginn að sleppa óles-
inni. 1 henni segir að kynbota-
framfarir standi i réttu hlutfalli
við úrvalsstyrkleikann og arf-
gengi eiginleikans en i öfugu hlut-
falli við ættliðabilið. Varað er
sterklega við þvi, að menn dæmi
mjólkurlagniog frjósemi af útliti,
Þessir hrútar hafa þjónað vel og lengi til hagsbóta fyrir bændur og búalið, framförum i landbúnaðinum
til heilla, en eru nú leiddir til slátrunar. Þökk sé þeim og öðrum gamalhrútum!
og mælt með þvi aö bændur haldi
skýrslur um hjörð sina og taki
mark á þeim. Af öðru efni má
meðal annars nefna greinarnar:
Heyhiti og hlöðueldar, Nýju jarð-
ræktarlögin og Baggavagn.
Hinn nýi eigandi blaðsins ætlar
að gefa út 3 hefti fyrir áramót og
senda þau til kynningar öllum
bændum á landinu og þeim öðrum
sem ætla má, að hafi áhuga á
landbúnaðarmálum. Fyrir þetta
vill hann fá 200 krónur i áskriftar-
gjald af a.m.k. 1.500 manns. A
næsta ári á að gefa út 10 tölublöð
fyrir 600 kr. á skriftargjald frá 2
þúsund manns.
Utanáskrift fyrir áskrift er:
Búnaðarblaðið, hjá Jóni Björns-
syni, Hvassaleiti 18, Rv., en fyrir
efni fyrst um sinn: Búnaðar-
blaðið, hjá Þorvaldi G. Jónssyni,
Hringbraut 31. Hf.
Þess má að lokum geta að i rit-
stjórnarrabbi blaðsins er heilli
stétt og heilum atvinnuvegi talin
lifsnauðsyn á málefnalegri um-
ræðu. „Sé engin slik umræða og
enginn vettvangur til fyrir hana,
er illa komið þeirri atvinnugrein.
Yfir hana leggst dauða hönd
sinnu- og athafnaleysis, þar sem
beðið er frumkvæðis og aðgerða
að ofan”.
Þjóðviljinn óskar hinu endur-
reista Búnaðarblaði, aðstandend-
um þess og bændum landsins alls
góðs.
h —