Þjóðviljinn - 23.11.1972, Side 3

Þjóðviljinn - 23.11.1972, Side 3
Fimmtudagur 23. nóvember 1972 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 3 Hver stendur fyrir þessu? Til er nokkuð sem kallað er sorpfréttamennska. Undir hana hlýtur maður að flokka það, þegar einstaklingar eða stofnanireru lagðari einelti i frásögn af leiðinlegum at- burðum, ef svo öllum öðrum er sleppt þegar sams konar at- vik koma fyrir. Þvi er þetta nefnt hér, að undanfarnar vikur hefur Morgunblaðið alltaf tekið það fram þegar unglingar eru teknir fyrir óknytti, ef svo hefur viljað til að einn eða fleiri úr þeim hópi sem tekinn hefur verið er frá upptöku- heimili rikisins i Kópavogi. En um aðra unglinga hefur ekki verið getið. Að visu hafa nöfn ekki verið nefnd en ávallt tekið fram að einn eða fleiri úr hópnum hafi verið frá upp- tökuheimili rikisins i Kópa- vogi. Svo gerist það að sjónvarpið tekur upp sama sið allt i einu. 1 fyrrakvöld var sagt frá þvi i fréttum sjónvarpsins, að stór hópur unglinga hefði verið tekinn vegna óspekta er lög- reglan var að fjarlægja tvær stúlkur af leiktækjastofu einni i borginni. Siðan er allt i einu tekið fram að einn úr þeim hópi,sem tekinn var, hafi verið frá upptökuheimili rikisins i Kópavogi og að annar sé kunnur fyrir innbrot undan- farna daga. öllum öðrum var sleppt við að segja frá hverjir eða hvaðan þeir værú. Hvers vegna stundar Morgunblaðið þessaljótuiðju og hvers vegna tekur fréttastofa sjónvarpsins -það upp eftir Morgunblaðinu? Hvaða aðili stendur á bak við þessa fréttamennsku og það að rakka niður og sverta upp- tökuheimili rikisins hvenær sem hægt er? Getur það hugsazt að það sé lögreglan i Reykjavík, en þvi er haldið fram að hún sé ekki hrifin af stofnuninni? Vissu- lega eru þau börn sem á upptökuheimilinu eru oft erfið. En þau sannindi að ,,aðgát skuli höfð i nærveru sálar” eiga hér við eins og alltaf. Það bætir ekki þessa unglinga ef fjölmiðlar leggja þá i einelti. Meðan það er ekki siður islenzkra fjölmiðla að birta nöfn ógæfumanna, þá er það sorpfréttamennska að taka fram hvenærsem hægt er að einn úr hópnum sé frá þessum eða þessum stað, á meðan öllum öðrum er hlift við sliku. Fyrir ekki alllöngu birtist i Morgunblaðinu mikil ádrepa á frettamennsku dagblaðsins Visis vegna frásagnar af barnaverndarnefnd Reykja- vikur og máli sem kom upp milli móður og nefndarinnar. Sú ádrepa Morgunblaðsins átti vissulega rétt á sér og er þakkarverð. En getur það hugsazt að Morgunblaðið hafi komið með þessa ádrepu vegna þess að það hafi verið að verja barnaverndarnefnd en ekki vegna þess að blaðinu hafi ofboðið fréttamennska Visis? Manni býður i grun að svo hafi verið, þar eð Morgun- blaðið tekur upp sams konar fréttamennsku þegar i hlut á unglingur frá upptöku- heimilinu i Kópavogi. Svo þegar fréttastofa sjón- varpsins tekur upp sams konar sorpfréttamennsku þá kastar fyrst tólfunum. Fréttir islenzka sjónvarpsins eru sjálfsagt lélegustu og verst unnu fréttir sem nokkur sjón- varpsstöð sendir út, en að ætla að reyna að bæta úr þvi með „hasafréttum”, þar sem ung- lingar sem orðið hafa illa úti i lifsbaráttunni eru notaðir sem miðpunktur fréttarinnar, þá er illa farið og sýnir a.m.k. ekki kristilegt hugarfar. S.dór. Tillaga á þingi ASI: Sameiginlegt húsnæði verkalýðs- samtakanna? „Þingið itrekar þá samþykkt siðasta sambandsþings að kjósa nefnd til aöhuga, hvernig bezt verði fyrir komið sameiginlegri byggingu fyrir starfsemi ASI og annarra verkalýðssamtaka á höfuðborgarsvæðinu, sem áhuga kynnu að hafa á samstarfi við sambandiðum slika framkvæmd. Alveg sérstaklega verði athugað um aðild sérsambandanna að slikri byggingu. Fjármálalegar skuldbindingar i sambandi við hugsanlegan undirbúning og framkvæmdir verði háðar samþykki sambands- stjórnar. Þá er miðstjórn sambandsins heimilað að leysa húsnæðisþarfir sambandsins og stofnana þess til bráðabirgða með kaupum á húsnæði, ef hagkvæmt húsnæði býðst við eðlilegu verði að dómi miðstjórnarinnar”. Hrönn styöur þingsályktunar- tillögu Rlaðinu hefur borizt eftirfar- andi tilkynning frá ungtemplara- félaginu Hrönn: „UngtemplarafélagiðHRÖNN i Iteykjavik lýsir yfir fullum stuðn- ingi við framkomna þingálykt- unartillögu, þar sem skorað er á rikisstjórnina að hætta vinveit- ingum i veizlum sinum. Þar eð mjög eru i brennidepli umræður um áfengisneyzlu ungs l'ólks og skaðsemi hennar, teljum við ungtemplarar, að rikisstjórn tslands ætti að sýna æskulýðnum i landinu gott fordæmi og láta af vinveitingum i veizlum þeim, er hún stendur fyrir.” Stœrstu vöru- skemmur landsins Inni við Sundahöfn i Reykjavik er Eimskipafélag ts- lands að reisa stærstu vöru- skemmu á landinu. Ilér er um tvær sambyggðar skemmur að ræða, sem hvor um sig er (iOOO fermetrar að flatarmáli. Bygging þessa húss hófst i febrúarmánuði sl. en ekki er vitað hvenær byggingu hússins lýkur. Byggingameistari hússins er Kristinn Sveinsson. TUC vill ræða við ASÍ Björn Jónsson, skýrði svo frá i upphafi þingfundar Alþýðusam- bandsins i gær, að framkvæmda- stjóri brezka alþýðusambands- ins, TUC, hefði átt simtal við sig i gærmorgun, þar sem hann áréttaði efni skeytis sem þinginu barst við setningu þess, en þar var frá þvi skýrt að sambandið sæi sér ekki fært að þiggja boð ASt um að senda áheyrnarfull- trúa til þingsins. Björn kvað íramkvæmdastjórann hafa tekið fram að innan brezku verkalýðs- hreyfingarinnar væri mikill áhugi á málstað íslands i landhelgis- málinu. Þannig myndi TUC eiga einn ráðgjafa i nefnd þeirri sem hingaö kemur til viðræðna um landhelgismálið. Heitir hann David Schelton. Var það tillaga framkvæmdastjórans að ef samningar færu út um þúfur þá mundi þessi fulltrui vilja eiga sérstakar viðræður við forseta Alþýðusambandsins. V-Þjóðverjar flykkjast inn fyrir landhelgislínuna Ofremdarástand er á landhelgisgæzlunni” segir Auðunn Auðunsson, skipstjóri Vestur-þýzki verksmiöju- skipaflotinn hefur nú flykkzt inn fyrir nýju land- helgislínuna og þrengir aö islenzkum fiskiskipum, sem þar hafa stundað veið- ar meö sæmilegum árangri undanfarna daga. Þessir togarar eru verksmiðju- togarar, sumir hverjir, og eru skipin af stærðinni 1500-3000 tonn. Hefur atgangur þeirra verið slikur að islenzkir fiskibátar hrekjast undan. Veiðisvæði þetta er 15-20 milur innan við nýju land- helgislinuna. — Þetta er algjört ófremdar- ástand, og ef þessu heldur áfram éta þeir upp allan fisk af þessum miðum, þvi fiskikistur okkar eru þvi miður ekki óþrjótandi, sagði Auðunn. — Flugvél frá land- helgisgæzlunni flaug hér yfir i dag, en það var ekki fyrr en eftir að skyggja tók, svo ekki hafa þeir komizt að merkum hlutum með þvi flugi. Athæfi Þjóðverjanna er ekki beint ólöglegt, og ekki er kannski hægt að segja að þeir hafi Frh. á bls. 15 Atök í Sjúlfstœðisflokknum: Blaðið náði tali af skipstjóran- um á Hólmatindi SU, Auöuni Auð- undssyni en Hólmatindur er ein- mitt á miðunum suð-austur af landinu. Sagði Auðunn að um 20 skip, v- þýzk, hefðu flykkzt á Mýrar- grunni og væru sifellt að færa sig upp á skaftið þvi þeir fengju að vera i friði fyrir Landhelgisgæzl- unni. Forseti íslands „Skortur á sterkum og hæfum forustumönnum” sendi þingi ASÍ kveðju t gær barst Alþýðusambands- þinginu svofelld kveðja frá for- seta íslands. Óska þinginu gæfu og gengis i störfum, Kristján Eldjárn. - segir Mogginn Ritstjóri Morgunblaðsins notar tilefnið i gærdag er hann skrifar um úrslit vestur-þýzku kosning- anna til þess að lita i eigin barm. Hann segir: „Skortur á sterkum og hæfum forustumönnum og hugmynda- rikri stefnu i utanrikismálum liefur leitt til þcss, að kristilegir demókratar hafa misst valdaað- stöðu sina og ekki liklegt að þeir endurheimti hana i bráð. Er að- staða þeirra vissulega nokkurt ihugunarefni fyrir stjórnarand- stöðuflokka i öðrum löndum og margar hliðstæður mætti ncfna.” Eins og sjá má er Jóhanni Hafstein i þessari forustugrein likt við hinn misheppnaða leið- toga CDU, Rainer Barzel. Nú skilst áhugi Matthiasar Jóhann- esens á vestur-þýzku kosn- ingunum, en um þær hefur birzt að undanförnu siða við siðu i Morgunblaðinu. Skyldi hann hafa komizt að þvi hver er Strauss i Sjálfstæðisflokknum á tslandi.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.