Þjóðviljinn - 23.11.1972, Síða 5
Kimmtudagur 21!. nóvember 1972 l>JóÐVll.JINN — StÐA 5
Rabbað við T *rfa Halldórsson, fyrrum skipstjóra:
,,Eigi m við ekki
að s vgja að 21
sé mín örlagatala”
i hópi nýrra rithöfunda
er Torfi Halldórsson,
fyrrum skipstjóri. Torfi,
er dvelur á Hrafnistu, er
prýöilega ern og gengur
aö spilaborðinu því næst
á hverjum degi. Bók
hans ,,Klárir í bátaná'/er
að koma út um þessar
mundir.
Hvar ertu fæddur, Torfi?
— Á Smáhömrum i Stein-
grimsfirði, 24. september 1896,
og er þvi á sjötugasta og sjö-
unda árinu.
Hvað ertu búinn að vera
lengi hér á Hrafnistu?
— Ég er búinn að vera hér
lengst allra, sem nú eru á
Hrafnistu, eða i rúm 14 ár.
— Hvenær hættir þú sem
skipstjóri?
— Ég seldi bátinn minn
Þorstein RE 21 árið 1951, var
þá orðinn heilsulitill. En eftir
það var ég samt með nokkur
skip i igripum. Ég var kominn
með fullar örorkubætur þegar
ég kom hingað, en þetta er
liðin tið, nú er ég friskur og
algjörlega batnað. Ég hætti
semsagt samfelldri skipstjórn
um 1952, og var þá búinn að
vera að nær óslitið frá 1927. Ég
tók pungapróf á tsafirði og fór
siðar i Stýrimannaskólann þá
orðinn fullorðinn maður, 32ja
ára og sjö barna faðir. Það var
NÝIR
RIT-
HÖFUNDAR
sjaldgæft þá, að svo miklir
barnakarlar settust á skóla-
bekk. sagði skólastjórinn mér,
en ég hafði ekki tima til þess
fyrr - var i kvennasnatti og
mátti ekkert vera að þessu.
Ég varð semsagt fiskiskip-
stjóri, ætlaði mér aldrei
annað. Eftir að ég hætti skip-
stjórn á Þorsteini fór ég
reyndar nokkra túra til út-
landa, sem skipstjóri á flutn-
ingaskipum, m.a. á Oddi frá
Vestmannaeyjum i eitt ár. Ég
sigldi svo túr og túr á svona
koppaskröttum.
36 sumur á sild
- Þetta rekur þú allt i þinni
bók?
— Já, þetta er fyrst og
fremst min sjóferöasaga —
min saga fram á striðsárin.
Ég læt lokið þar minni sjálfs-
sögu, með þvi að ég var sekt-
aður fyrir landhelgisbrot og
eftir það hætti ég að toga i
landhelgi!
Ég var 36 sumur á sildveið-
um samfleytt,og ég efast um
að nokkur tslendingur hafi
verið eins leirgi á sildveiðum
og ég, byrjaði 1915 og hælli
1950. II m þetta timabil er
góður þáttur og vel skrifaður i
bókinni. Ég var kunnugur
ákaflega mörgum skipstjór-
um. þekkti reyndar alla skip-
stjóra sem ha'gt var að nelna
þvi nalni, og tel þá upp i bók-
inni. Þar koma fram allir
be/.tu aflamenn islands á sild-
veiðum - myndir af aflakóng-
unum og skipum þeirra eltir
þvi sem tök voru á að linna og
umsögn min um þá. Þetta var
strembinn kafli.
— Hvenær tókstu þá
ákvörðun að skrifa þessa bók?
Það er langt siðan. Ég
hef lengi verið hvattur til að
skrifa mina sögu - er nokkuð
þekkt naln lyrir ýmislegt.
Er ekki talsVerður
strákur i þér ennþá?
- Jú. . . hann verður alltaf.
. . Svo hef ég serstakan þátt
um spilamennsku, þáð getur
vel verið að hann þyki nokkuð
persónulegur, gæti reyndar
haft hann persónulegri ef ég
kærði mig um, en geri það
ekki að sinni. Ég get þar um
marga góða spilamenn. Það
er ekkert grin að spila vel, það
er mikil æfing lyrir hugann, og
það er margt gott um spilin að
segja þó að þau séu frá fjand-
Torfi og báturinn Þorsteinn RE 21 (Myndin er á bókarkápunni)
segja samt.
anum. Þau eru það. En spila-
klúbbarnir eru nauðsynlegir
það eru margir menn sem
hafa ekki annað sér til afþrey-
ingar en að spila.
Spilar flesta daga
Þú spilar enn?
Ég! Á hverjum einasta
degi ef ég get. Það er mitt
hobbý, ég hef ekkert annað að
gera. Orðinn gamall maður og
úr leik.
Spilaklúbbar eru litnir horn-
auga af mörgum, ekki sizt
kvenfólkinu, og ég skal játa,
að það er nokkuð eðlilegt, en
þeir eru nauðsynlegir vegna
þess að það er fjöldi af mönn-
um sem eru einsla'ðingar og
þeir hafa gaman af að spila.
Margir eru fræknir spila-
menn. Við þurfum einhvers
staðar að koma saman - frá-
skildu mennirnir, einhleyp-
ingarnir og skrifstofumenn-
irnir. Þeir þurfa að koma
saman, rabba saman, og
þeirra hobbý er að spila ein-
hvern tima úr sólarhringnum.
Margir spila frá hálf fimm eða
limm til sjö. Þá er þeirra
spilaþörf lokið, Þá fara þeir
heim til sin og koma þarnæsta
dag eða einhvern tima seinna.
Svo er það annað mál að það
er ekki haigl að reka spila-
klúbbana nema með vinsölu,
og það á að leyfa vinsölu til fé-
lagsmanna. Ég er búinn að
vera 25 ár i spilaklúbbum, og
það helur aldrei þurl't að
sa'kja liigreglu til eins eða
neins - hér á veitingahús-
unum eru þjófnaðir og hvers-
konar lestir, en þetta þekkist
ekki hjá okkur. . .
Hvernig vannstu við
skriltirnar?
Ég byrjaði á þessu 1969,
vann oft tvo tima á morgnana.
Svo hii'tti ég við og við, lét
þetta liggja. Ég vissi alveg
hvað ég a'tlaði að skrifa, um
sjálfan mig, en satl bezt að
segja var sildveiðiþátturinn
ekki min hugmynd; það var
annar maður sem benli mér á
það svið.
Enda kannski að verða
siðustu lorvöð að gera góða
grein fyrir þessum tima.
Já, þetta er eins og með
bókina Sigling fyrir Núpa,
sem ég átti hlut að, það voru
alveg siðustu forvöð að laka
þessa menn uppá bók. Þar var
ég siðasti maðurinn sem gat
anna/.t það verk. Ég er viss
um að það verður oft vitnað i
þennan sildveiðiþátt, og þau
árlöi og tölur, sem ég nel'ni,
eru rétt.
Talan 21
Áð lokum, Torfi, hvernig
stóð á þvi að Þorsteinn var RK
21 ?
Þessi tala 21 er anzi rik i
minum huga, hún fylgir mér
einkennilega mikið og kemur
iðulega lyrir i minu lifi.
Semsagt þin happataia,
eða. . .
- Ja, eigum ^við ekki að
segja örlagatala, og það er
skrýtið að þegar Þorsteinn var
nefndur, þá i'ylgdi alltaf með
RE 21. Ilann var aldrei nefnd-
ur öðruvisi. Ég hef þessa tölu i
nalnskirteini, ég gerði samn-
inginn um bókina 21. septem-
ber og svo framvegis og svo
framvegis. sj.
Politískt banamein
fransks vinstriblaðs
PARIS. Les lettres
francaises, róttækt
menntamannablað, sem
hóf göngu sína í hernumdu
Frakklandi á striðs-
árunum, hefur hætt göngu
sinni. Ritstjóri þess hefur
alla tið verið Louis Aragon,
einn þekktasti rithöfundur
Frakka og atkvæðamaður i
Kommúnistaflokknum.
Les lettres francaises hefur
lengi notið mikils álits heima og
erlendis. Allverulegur hluti af
upplaginu seldist áður fyrr i lönd-
um Austur-Evrópu, en eftir að
Aragon tók upp harða gagnrýni á
Sovétmenn vegna innrásar i
Tékkóslóvakiu og eftirleiks
hennar, hefur blaðið ekki verið
þar til sölu. Og franski
kommúnistaflokkurinn greiddi
blaðinu banahögg sjálfur á
Aragon
dögunum með þvi að hætta fjár-
hagslegum stuðningi við það.
Aragon hélt nýlega upp á 75 ára
afmæli sitt.
AÞENU 20/11 — Margir
stúdentar voru handteknir i lög-
fræðideild Aþenuháskóla i dag við
kosningar til stjórnar i stúdenta-
félagi. Voru það mestu kosningar
sem fram hafa farið i landinu
siðan herforingjar hrifsuðu völdin
1967. Siðar i dag gengu hundruð
stúdenta fylktu liði um aðalgötur
borgarinnar og báðu um stuðning
almennings.