Þjóðviljinn - 28.11.1972, Síða 4
4 SiÐA — ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 28. nóvember 1972
Hús
dagsins:
Tjarnargata 40
Staldrið við á morgungöngu i glaðasólskini og virðið
fyrir
ykkur útskornar vindskeiðar á húsinu á horni
Tjarnargötu og
Skothúsvegar. Þessi form má sjá úthöggvin i sand-
stein i
Danmörku á þeim tima sem húsið var byggt (1908) en
hér er það skorið i tré. Þessi fallegu form snúa
út á við en ekki inn á við og eru þvi með nokkrum hætti
almenningseign. Um eitt skeið lá við borð að þetta
hús drabbaðist niður, en hefur nú verið gert
upp og hefur enginn haft á orði siðan að óprýði væri að
þvi.
Rekstur frystihússins
á Þórshöfn gengur vel
Þegar herstöðin var lögð niður fór atvinnulífið
að blómgast á ný í plássinu
Gott atvinnuástand hefur verið
á Þórshöfn a þessu ári og er starf-
rækt hér blómleg útgerð — þá
hefur verið góð nýting á frysti-
húsinu. Er búið að vinna hér 3
þúsund tonn af fiski á árinu, sagði
Pálmi Ólafson oddviti i viðtali við
Þjóðviljann.
Hérna stunda um 25 bátar róðra
og eru einir 15 dekkbátar 45 til 50
tonna. Dekkbátarnir voru á linu i
fyrravetur, þá voru þeir á nóta-
veiði i sumar og siðan á snurvoð i
haust. Þá byrja þeir aftur á linu i
byrjun desember. Þetta úthald
hefur skapað frystihúsinu nægt
hráefni og er 80% af þvi þorskur
og að meirihluta i fyrsta verð-
ílokki.
Hér nyrðra veiðist oft i marz og
april rigaþorskur i net.
Hraðfrystihúsið hér var byggt
árið 1950 og er staðsett nokkuð
langt frá höfninni.
Nú stendur til að byggja nýtt
frystihús niður við höfnina og er
gert ráð fyrir að það geti unnið úr
4 þúsund tonnum af fiski. Er það
talin heppileg stærð miðað við
byggðarlagið hér og skapar um 40
til 50 manns atvinnu. Gert er ráð
fyrir að byggingarkostnaður
verði um 50 miljónir kr.
Agætis nýting var á frysti-
húsinu á Þórshöfn siðastliðið ár
og nýlegir og góðir bátar hafa
verið keyptir til staðarins.
Bjartsýni rikir nú um atvinnulif
Þórshafnarbúa og liggur það nú
ekki lengur undir fargi her-
stöðvarinnar. Þegar hún var lögð
niður árið 1969 fóru þorpsbúar að
huga betur að sjálfstæðum at-
vinnurekstri og efldu útgerðina i
plássinu.
Við spurðum Pálma um skóla-
hald á Þórshöfn. Eitt hundrað
nemendur eru i barna- og
unglingaskólanum. Byrjaði
skólinn 1. október. Allir kennarar
eru réttindafólk og eru 4 talsins.
Á siðastliðnu ári fluttu 9 fjöl-
skyldur til Þórshafnar. Hefur
hreppsnefndin nú ákveðið að
ráðast i byggingu 5 nýrra húsa til
þess að mæta fólksfjölguninni.
Eru mikil umskipti orðin hér i
þorpinu borið saman við ástandið
fyrir 3 árum, þegar allt var hér i
eymd og volæði.
Herstöðin á Heiðafjalli hafði
óbein áhrif á framkvæmdadug
fólksins hér. Atvinnufyrirtækin
dröbbuðust niður og þegar her-
stöðin var lögð niður fóru menn
að nuga að úrræðum. Þannig lá
beint við að efla útgerðina vegna
hinna ágætu fiskimiða hér fyrir
utan.
Mikil uppgrip voru hér hjá fólki,
þegar herstöðin var byggð upp á
sjötta áratugnum. Siðan tók við
los á fólki og það for burtu héðan,
— ekkert var við ið vera heima
fyrir og atvinnulifið lamað.
STYRKUR
til háskólanáms í Sviss
Svissnesk stjórnvöid bjóða fram styrk handa tsiendingi
til háskólanáms i Sviss háskólaárið 1973-74. Ætlazt er til
þess, að umsækjendur hafi lokið kandfdatsprófi eða séu
komnir langt áleiðis i háskólanámi. Þeir, sem þegar hafa
verið mörg ár i starfi, eða eru eidri en 35 ára, koma að
öðru jöfnu ekki til greina við styrkveitingu. Styrkfjárhæð-
in nemur 650 frönkum á mánuði fyrir stúdenta, en allt að
800 frönkum fyrir kandidata. Auk þess hlýtur styrkþegi
nokkra f járhæð til bókakaupa og er undanþeginn kennslu-
gjöldum. — Þarsem kennsla i svissneskum háskólum fer
annaðhvort fram á frönsku eða þýzku, er nauðsynlegt, að
umsækjendur hafi nægilega þekkingu á öðru hvoru
þessara tungumála. Þurfa þeir aðvera undir þaðbúnir, að
á það verði reynt með prófi.
Umsóknum um styrk þennan skal komiö til menntamála-
ráðuneytisins, Hverfisgötu 6, Reykjavík, eigi siðar en 22.
desember n.k. — Sérstök umsóknareyðublöð fást i
menntamálaráðuneytinu.
Menntamálaráðuneytið,
23. nóvember 1972.
SJÚKRAHÚS SKAGFIRÐINGA
SAUÐÁRKRÓKI ÓSKAR AÐ RÁÐA
s júkraþj álf ara
Umsóknir með upplýsingum um menntun
og fyrri störf sendist til varaformanns
stjórnar sjúkrahússins, Friðriks J.
Friðrikssonar, héraðslæknis, Sauðár-
króki.
BREIÐHOLTSBUAR
Söngfólk vantar i kirkjukór Breiðholts-
safnaðar. Vinsamlegast hafið samband
við organleikarann, Daniel Jónasson, i
sima 30584, næstu daga frá kl. 17-20.
RANNSÓKNASTOFNUN
FISKIÐNAÐARINS
óskar eftir stúlku
til simavörzlu og almennra skrifstofu-
starfa.
RANNSÓKNASTOFNUN FISK-
IÐNAÐARINS
SKÚLAGÖTU 4, SÍMI 20240.