Þjóðviljinn - 15.12.1972, Blaðsíða 1
Jólabókaflóð í hámarki
300 titlar
á markað
Jólabókaflóðið hefur nú náö hámarki. Þessi mynd cr tekin i Bóka-
búö Máls ug mcnningar aö Laugavegi 18, og á boröinu á miöju gólfi
eru allar bækurnar sem komiö hafa út fyrir þessi jól, nærri :I00 að
titlatölu. —S.dór.
Opið til 10
annað kvöld
Samkomulag hefur náöst um að
hafa búðir opnar hér á höfuðborg-
arsvæðinu til kl. 10 næsta laugar-
dagskvöld, en loka hins vegar kl.
18 mánudag. Breytingin er fólgin
i þvi, að búðum átti að loka kl. 18
annað kvöld, en hafa opið til kl. 10
á mánudagskvöld. Samkomulag
þetta gerðu Verzlunarmannafé-
lag Reykjavikur, kaupmanna-
samtökin og borgaryfirvöld.
mmmmm
ERLf
H
3
DLR
bekur
Jónas bjartsýnn
um úrslit málsins
Atkvæðagreiðsla um tillögu
íslendinga verður á mánudag
Landbelgisfunduriim i Judith
Point liefur vakiö mikla athygli i
bandariskum fjölmiölum á
austurströndinni, en þar mættu
islenzku fulltrúarnir á allshcrjar-
þingi S.l>. siöastliöinn sunnudag á
fundi um útfærslu fiskveiöitak-
marka. og rétt strandrikja til
þess aö nýta fiskimiðin.
Jónas Arnason sagði Þjóðvilj-
anum i gær, að fjallað hefði verið
ýtarlega um þennan fund i banda-
riska stórblaðinu Boston Globe,
sem er sjötta stærsta blað Banda-
rikjanna. Þá hefur verið sagt frá
fundinum i útvarpi og sjónvarpi
og vinsamlega bent á hagsmuni
þess fólks er hefur atvinnu sina af
fiskveiðum.
Akveðið hefur verið af útvegs-
mönnum og sjómönnum að halda
ráðstefnu 28. desember, senni-
lega á Rhode Island, og á að kalla
hana Fishermen’s Forum. Þar
mætir fiskveiðiráðherra Banda-
rikjanna. A þessa ráðstefnu mæt-
ir einnig einn af fulltrúum Islands
á þingi S.Þ., sagði Jónas.
Útvegsmenn og sjómenn i
Judith Point hafa kjörið fulltrúa
til þess að fara til Washington til
þess að hafa áhrif á bandariska
ráðamenn að leggja tillögu ís-
lendinga og Perúmanna lið á alls-
herjarþinginu.
A mánudag verður gengið til
atkvæða um þessa tillögu á alls-
herjarþingi S.Þ. Jónas var bjart-
sýnn i gær, að tillagan næði fram
að ganga, og heyrzt hefur að
Bandarikjamenn ætli ekki að
leika sama leikinn og i 2. nefnd að
reyna að skaða tillöguna með
breytingatillögu.
Þá er ljóst, að fulltrúi Kanada
ætlar að leggja tillögunni lið i at-
kvæðagreiðslunni á mánudag.
Hins vegar er ekki ljóst ennþá
um afstöðu frænda vorra á
Norðurlöndum. Einstakir fulltrú-
ar Norðurlanda á þinginu eru þó
ákaflega vinsamlegir i garð ís-
lendinga og óska tillögu Islend-
inga og Perúmanna farsællegra
lykta.
HÞ 1972
Þessi hill er aöalvinniiigurinn i llappdræUi Þjóöviljans.
Aðeins 10 dagar eftir
A Þorláksmessu verður dregið i Happdrætti Þjóðviljans. Þvi eru
allir dagar skiladagar, en tekið er á móti skilum á afgreiðslu
blaðsins Skólavörðustig 19 og á skrifstofu Alþýðubandalagsins
Grettisgötu 3, á báðum stöðum til klukkan 6.
Þá taka umboösmenn úti á landi við skilum hver á sinum stað.
GEIR GUNNARSSON:
Fjárlögin munu markast
af ástandi efnahagsmála
„Þróun mála siöan fjárlog voru
afgreidd i fyrra er sú, aö annars
vegar hafa vcrið geröir kjara-
samningar viö verkalýðsfclögin,
sem færöu launþegum meiri
kaupmáttaraukningu en átt haföi
sér staö i nokkrum samningum
áöur. Hinsvegar hefur á þessum
tima orðið veruleg minnkun þess
afla, sem mestu máli skiptir i
sjávarútvcgi og fiskiönaði, þrátt
fyrir aukna sókn." — A þcssa leiö
komst Geir Gunnarsson, formað-
ur fjárveitinganefndar m.a. að
oröi um hiö almenna ástand i
efnahagsmáiunum, er hann mælti
fyrir áliti meirihluta fjár-
veitinganefndar á fundi
sameinaðs þings i gær.
t ræðu sinni sagði Geir
Gunnarsson, að sér væri það
vissulega óljúft að 2. umræða um
fjárlagafrumvarpið þyrfti að fara
fram, án þess að fyrir lægi
hvernig tekjuhlið frumvarpsins
yrði afgreidd. Slik vinnubrögð
hefðu þvi miður verið of algeng
við afgreiðslu fjárlaga, og sagðist
Geir sjálfur hafa tekið þátt i að
gagnrýna þetta á undanförnum
árum þegar þáverandi stjórnvöld
áttu i hlut. En hvað sem liði
ágreiningi um hin stærri pólitisku
mál, ættu fulltrúar allra flokka að
geta sameinazt um að gera það
sem unnt væri til að auka hag-
kvæmni og sparnað i starfsemi
rikisins.
Geir kvaðst ekki myndu ræða
efnahagsmálin almennt, en kvað
það staðreynd, að gera yrði ráð
fyrir auknum tekjum rikissjóðs
umfram þær sem fjárlagafrum-
varpið gerði ráð fyrir. Staða
rikissjóðs nú gerði það einnig
nauðsynlegt að takmarka sem
mest útgjöldin. Ef haft væri i
huga að verulegur hluti rikis-
utgjaldanna væri lögbundinn,
leiddi það af sjálfu sér, að við nú-
verandi aðstæður hefði meirihluti
fjárveitinganefndar ekki talið
fært að veita fé til ýmissa veiga-
mikilla þátta verklegra fram-
kvæmda og félagsmála i jafn rik-
ummæliog nauðsyn krefði.
Sagði Geir, að samkvæmt
heimild i bráðabirgðalögum sem
sett voru i júli s.l. hefðu fjár-
veitingar á fjárlögum þessa árs
til einstakra málaflokka verið
lækkaðar um samanlagt 175
miljónir. Hér væri um að ræða
hafnarmál, 28,6 milj., skólamál 75
milj. og heilbrigðismál 71 miljón.
Sagði Geir, að við tillögugerð i
þessum málaflokkum hefði verið
’tekið tillit til þessara lækkana.
Þrátt fyrir það að meiri hluti
nefndarinnar hefði ekki séð sér
íært að ganga lengra i fjár-
veitingum til verklegra fram-
kvæmda en fram kæmi i tillögum
mefndarinnar , hefði sérstaklega
verið haft i huga að eyða ýmsum
skuldahölum sem safnazt hefðu
upp á viðreisnarárunum, t.d.
varöandi hafnarmál og iþrótta-
mannvirki, en samanlagt næmu
slikar skuldir rikissjóðs við
sveitarfélög og iþróttasamtök nú
um 150 miljónum.
Framhald á bls. 19