Þjóðviljinn - 15.12.1972, Blaðsíða 13

Þjóðviljinn - 15.12.1972, Blaðsíða 13
Föstudagur 15. desember 1972| ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 13. Hið óvænta gerðist Ármann hlaut sín fyrstu stig úr viðureigninni við Islandsmeistara Fram ,,Við breyttum aðeins til fyrir þennan leik, við slepptum æfingunni i gær en fórum þess i stað allir i gufubað, slöppuð- um af og ræddum málin og þetta varð árangurinn", sagði Gunnar Kjartansson þjálfari Ármanns eftir hinn óvænta sigur Ármenninga yfir islandsmeisturum Fram i fyrrakvöld. ,,Við vorum ákveðnir í að halda í við þá i fyrri hálfleik vegna þess að við höfum í öllum leikj- um okkar unnið siðari hálfleikinn, en munurinn hefur bara alltaf verið orðinn of mikill í leikhléi, þetta tókst okkur og við unn- um leikinn", sagði Olfert Naaby, fyrirliði Ármanns, og að vonum voru Ármenningar kátir eftir þennan sigur, sem lyfti þeim af botni deildarinnar og vissu- lega er nú bjartara framundan hjá þeim. En hvað var að hjá Fram? Sennilega algert vanmat á andstæðingunumogþar af leiðandi slakur leikur. Þetta tap minnkar sigur- vonir Fram i mótinu aII- nokkuð. Samfara þvi að Fram átti nú slakan leik áttu Ármenningar sinn bezta leik i mótinu tilþessa ef undan er skilinn leikurinn við FH á dögunum, þar sem óheppni ein réði þvi að Ármann hlaut ekki annað stigið. Og mennirnir á bak við þennan ágæta sigur Armanns voru þeir Hörður Kristinsson, Vilberg Sigtryggsson og maðurinn sem heldur öllu spili liðsins gangandi, Olfert Naaby. Allir þessir menn áttu skinandi góðan leik og Hörður hefur ekki verið betri i sóknar- leiknum en nú, hann skoraði alls 7 mörk, flest með upp- stökkum úr aukakasti. Réð Fram-vörnin litið við þennan harðskeytta risa sem er nær óstöðvandi ef hann beitir sér. 1 byrjun leiksins sýndi Ármanns-liðið að það ætlaði að selja sig dýrt og lék af krafti sem færði þvi forustu 4:2. En það stóð ekki lengi. Fram náði að jafna, og meira, það náði forustu 7:5 og hélzt 2ja marka forusta lengst af i fyrri hálfleik og i leikhléi var staðan 14:12 Fram i vil. Byrjun siðari hálfleiks var á þann veg, að maður átti von á stórsigri Fram. Ingólfur Óskarsson skoraði 3 mörk i röð, öll úr vitum, án þess að Armenningum tækist að svara fyrir sig og staðan 17:13, 4ra marka munur og komið fram i siðari hálfleik. En þá fór Ármanns-liðið fyrst i gang og um leið virtist allur vindur úr Framliðinu. Þegar 18 minútur voru liðnar var staðan orðin 18:17 Fram i vil, en siðan kom 19:17, en svo Umsjón: Sigurdór Stgurdórsson þegar 20 minútur voru liðnar náðu Ármenningar að jafna 19:19. Axel Axelsson lét verja hjá sér linuskot og Ármenningar bruna upp og Hörður skorar 20. mark Armanns. Þá gerðist það i næstu sókn Fram, að einn leikreyndasti leikmaður Armanns, Ragnar Jónsson, braut klaufalega og gróflega á einum leikmanni Fram og var vikið af leikveili. Nú taldi maður vist að Fram tæki lokasprett sem dygði til sigurs. En það var nú eitthvað annað. I stað þess að jafna misstu Framarar boltann og Björn Jóhannsson skoraði 21. mark Ármanns, og aftur skömmu siðarskoraði Björn 22.markið. Þá loks tókst Fram að skora sitt 20. mark og nú reyndu þeir að leika maður á mann, en ekkert dugði, enda timinn að renna út, en áður en það gerðist skoraði Vilberg 23. mark Ármanns og innsiglaði Framhald á bls. 19 NÆSTU LEIKIR Nú er aðeins cftir einn leikur i l.-deildarkeppninni fyrir jól. Er það leikur erkifjendanna FII og Hauka úr Hafnarfirði. Fer liann fram þar syðrp á sunnudaginn kemur. Aðrir leikir hafa cnn ekki vcrið ákveðnir, en þó mun vera ákveðið að mótið liefjist aftur 9. janúar, en ekki 7. eins og við sögðum frá fyrir skömmu. En hvaða leikir þá fara fram er ekki vitað. Björgvin Björgvinsson kominn i gegn, og þá þarf ekki að sökum að spyrja, boltmn lá i netinu. Staðan í nokkrum löndum Frakkland OGC' Nissa FC Nantes (). Marseilles 16-41:18-26 16-26:16-21 16-30:12-20 Portúgal Benfica 12-45:5 -24 Belenenses Lissah. 12-24:15-18 Sporting Lissab. 11-26:11-15 Vitoria Setubal 12-30:11-14 CUF Barrelro 12-17:16-14 Skotland Celtic 13-38:13-23 Hibernian 13-30:15-19 Alls staðar i Evrópu er G. Rangers 13-33:14-18 deildarkeppnin i i knattspyrnu komin nokkuð á veg og i sum- Búlgaria um lönduin er hún hálfnuð um ZSKA 13-32:16-19 aramotm. Viö birtum her a Lok Plowdiw 13-29:16-17 eftir stoöu efstu liöanna i 1. Akademik Sofia 13-27:14-16 deild i nokkrum löndum. V-Þýzkaland Pólland Bay. Mitnch. 14-11-1-2-39:11-23 Gornik 13-15:5 -18 Fort. Dusseld. 14-7-5-2-32:23-19 R.Chorzow 13-17:8 -18 Fc Köln 14-7-4-3-28:17-18 Stal Mielec 13-23:13-16 YVuppert SV 14-7-3-4-24:14-17 VfB Stuttgar 14-8-1-5-26:22-17 Ungverjaland italía Dozsa Ujpest 12-26:8 -17 Lazio Rom 8-10:4-13 Ferencvaros 11-26:14-16 1. Milan 8- 9:3-12 Raba ETÖ 12-24:17-15 Ac Milan 8-21:10-11 Holland Tékkóslóvakia Ajax 14-50:7 -24 Sparta Trnava 15-22:9 -21 Feyenoord 14-34:7 -24 Tatran Presov 15-21:12-21 FC Tventy 14-20:10-21 ZVL Zilina 14-26:12-19 Er okrað á skíöafólki? Skiðaáhugamaður einn kom að máli við blaðið og sagði frá þvi að um lireint okur væri að ræða i skiðaiyftunni við Skiða-, skálann i Hveradölum. Kostar hvcr fcrð með lyftunni 10 kr. Benti ifiaðurinn að að það yrði drjúgur peningur fyrir 4ra til 5 manna fjölskvldu að fara þangað uppeftir og lcika sér á skiðum i einn dag. Bara kostn- aðurinn við skiðalyftuna myndi nema inörg hundruð ef ckki þúsund kr. Hann benti á að i lyftuna við Skiðaskálann á Akureyri hcfðu verið seld kort að lyft- unni scm kostuðu 200 kr. fyrir allan daginn og mætti þá nota hana eins oft og maður vildi fyrir þctta kort á einum degi. Eins var þar hægt að kaupa kort fyrir allan veturinn fyrir 2000 kr. A tsafirði kostaði til skamms tfma 50 kr. á dag að nota skiðalyftuna þar og máttu menn þá fara eins margar ferðir og þá lysti. Að visu getur þetta hafa hækkað eitthvað á ísafirði, en það fer aldrei i það okur scm er á ferðum mcð lyftunni i Hvcra- dölum. Nokkrir menn, sem voru við Skiðaskáiann i Hveradölum fyrir skönunu, gerðu lauslega könnun á þvi hve mikið tckið væri inn af peningum viö lyft- una á dag, þegar mest cr um að vera um helgar. l.auslega áætlað töldu þeir að það væru um 25 þúsund kr. Það er ekki lengi gert að borga lyftuna með sliku okri. Á sama tima og verið er að livetja almenning til útivistar og hreyfingar, er tækifærið notað af Reykjavikurborg, sem á og rekur þessa lyftu, til að okra á almenningi. Það væri sannarlcga gaman að fá skýringu á þcssu frá iþrótta- fulltrúa Reykjavikurborgar sem sér um rekstur skiðalyft- unnar. Ef grannt er skoðað

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.