Þjóðviljinn - 15.12.1972, Blaðsíða 10

Þjóðviljinn - 15.12.1972, Blaðsíða 10
10 StÐA — ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 15. desember 1972 Föstudagur 15. desember 1972 ÞJÓÐVILJINN — StÐA 11 AF STJÓRNMALUM I VESTUR-ÞÝZKALANDI UM OG EFTIR ÞINGKOSNINGAR Góðar óskir fylgja Brandt og Scheel Það er upplífgandi, að meirihluti þýzkrar þjóðar hefur valið frið og skilning milli þjóða en snúizt gegn þjóðahatri og stríði... Gagnstætt því sem gerðist um marga þingmenn létu kjósendur ekki múta sér með þeim miljónatugum sem varið var til auglýs- ingaáróðurs. Loks eru Þjóðverjar orðnir mynd- ugir... Þjóðin varpar önd- inni léttar og heitir sér ,,g!eðilegum jólum"... Svona langt erum við leiddir. Þeir rauðu sigruðu. Glötunin er vis. Vei þeim sem hefur skakkt flokks- skírteini eða ekkert. Það er farið að hvisla um póli- tískar fangelsanir og nauð- ungarflutninga. Moskva á að hafa boðizt til að láta Síberíu í té. Rauði herinn er viðbúinn að veita bróður- lega aðstoð. Hvað var Hitl- er i samanburði við það sem nú tekur við? Þeir kristilegu höfðu á réttu að standa að vara þjóðina við rauða fasismanum. En hún átti ekki annað skilið, sjálf- viljug gekk hún undir okið. I síðustu frjálsu kosn- ingunum valdi hún sósíal- -ismann. Þetta eru nokkrar glefsur úr lesendabréfum í þýzka fréttaritinu Spiegel sem birzt hafa eftir hinn mikla kosningasigur sósíaldemó- krata og frjálsra demó- krata um daginn. í síðasta bréfinu er vísað til hins öfgafulla andkommunista- áróðurs sem hægri menn beittu i kosningabarátt- unni. í þessari viku kemur vestur-þýzka sam- bandsþingið saman i fyrsta skipti eftir kosn- ingarnar sem haldnar voru 19. nóvember s.l. Þingiö sem nú kemur saman er æði frábrugðið þvi sem Willy Brandt sendi heim til sin i haust, einu ári fyrir lok kjörtimabilsins. bá var svo komið að stjórn og stjórnarandstaða stóðu jafnt að vigi, hvor aðili um sig með 248 þingmenn. 6 þingmenn stjórnar- flokkanna höfðu hlaupizt undan merkjum á kjörtimabilinu — ýmsir þeirra voru taldir hafa tekið við mútum frá fjársterkum aðilum, sem fylgdu kristilegum að málum — og það nægði til að kippa fótunum undan stjórninni. Sá meirihluti í þingi sem sósfal- demókratar og frjalsir demó- kratar lögðu af stað með eftir kosningar 1969 var i alira naupi- asta lagi. Má segja að sam- steypustjórn þeirra hafi unnið kraftaverk með ekki sterkari að- stöðu. Þar ber utanrikismálin að sjálfsögðu hæst: griðasáttmálinn Það er gcfið og þegið á vixl i viðræðum um stjórnarmyndun. Waltei Scheel frá frjálsum demókrötum til vinstri og Willy Brandt fra demókrötum til hægri. Þeir horfa saman út i kuldann, Rainer Barzel leiðtogi CDU til vinstri, og Franz-Josef Strauss foringi CSU til hægri. við Sovétmenn og Pólverja og samningsgerð við Austur-Þjóð- verja sem jafningja. A innan- landsvettvangi var minna áorkað, en ýmsir telja þó, að heföu kristilegir ihaldsmenn haldiðum stiórnvölinn hefði verið nokkur hætta á þróun i átt til skerðingar á lýðræði og gengið hefði verið á hlut verkalýðsins. Nú hafa samstarfsfiokkarnir eins sterka þinglega stöðu og nokkur samsteypustjórn getur óskað sér. Meiriíiiuti þeirra er 24 þingsæti, og verður hann ekki frá þeim tekinn með neinum bola- brögðum. Sigur vinstri aiTanna Stjórnmálasérfræðingum ber saman um að þýzku kosningarnar 1972 hafi verið mjög sögulegar. 1 fyrsta skipti náði sósfaidemó- krataflokkurinn þvi markmiði að verða stærsti þingflokkur lands- ins og með hæsta tölu atkvæða á bak við sig. Og þetta er i fyrsta sinn sem náðst hefur i þýzkri sögu traustur og starfhæfur meirihluti vinstri miðflokkahreyfingar. Að visu vinnur sósialdemó- krataflokkurinn aðeins 6 þing- sætum meira nú en hann gerði 1969. En tala kjördæmakosinna þingmanna hækkar úr 25 i hvorki meira né minna en 152. Og sam- starfsflokkurinn, frjálsir demö- kratar, treystir stöðu sina mjög verulega og vinnur 12 nýja þing- menn. Ýmsir höfðu talið flokkinn i þeirri hættu að falla niður fyrir 5% markið (þá er enginn þing- maður kosinn), en honum virðist nú langra lifdaga auöiö. Ef litið er á þróun flokkafylgis siðan vestur-þýzka sambandslýð- veldið var stofnað, 1949, sést að kristilegir demókratar (og bræðraflokkurinn kr. sósialistar i Bæjaralandi) ná þegar 1953 þeirri stærð sem þeir nú hafa. En á sama tima hafa sósialdemd- kratar verið i stöðugri sókn. Milliflokkar hafa þurrkazt út, allir aðrir en frjálsir demókratar. Flestir þeirra hafa verið borgara- legir, og margir æði mikið hægri sinnaðir, og þeir hafa með einum og öörum hætti runnið inn i kristi- lega sambandið. Þess er ekki að dyljast að á þessum tima hefur orðið talsverð breyting á sósialdemókrata- flokknum. Hann hefur hvað stefnuskrá og úrræði i efnahags- málum snertir fengið æ meiri miðflokkssvip. Með Godesberg stefnuskránni 1959 sagði flokkur- inn skilið við marxismann, eða Stimmenanteiie bei den jBundestagswahlen 1949-1972 in% 1949 1953 1957 1961 1965 1969 1972 BœzEmoioíus Linuritið sýnir hlutdeild 3ja helztu flokka í Vestur-Þýzkalandi i heildar atkvæðatölu við kosningar til sambandsþings 1949—’72. Kristilegir (CDU/CSU> eru svartir, frjálsir demókratar (FDP) eru daufgráir, en sósialdemókratar (SPD) dökkgráir. A milli þeirra lágu aðrir flokkar, hvitir, cn þeir mega heita horfnir 1972. ZUSCHLAG FÖR ARBEITNEHMER Entwícklung des Bruttosozialprodukts und der Einkommen; 1972 bis 1977 nach der Zielprojektion des DGB Index 1962=100 i-rm : «zj Bruttoeinkommen Æ _ aus unselbstándiger __Æ_ Arbeit ! i j 'Æ (einschiisfliicfi Arheit- Æ So íiaix erSíCberur-g) Æ í 'Æ i_ Í24ZJÆ . f Y/ ■ 1 ! Prozent TMO i-L- U 1972 bis 1977 j 1972 Private Bruttoeinkoraijien aus Unternehmertátigkeit und Vermögen (chne Ab>cftfeibungen) 1977 ■■ ! J 273, — i 200 hi / J\28 | i I í í Prozent 2uwachsl972 bis 1977 Verkalýðshreyfingin i Vestur-Þýzkalandi ætlar sér aukinn hlut af þjóð- arframleiðslunni á næstu árum: Til vinstri er vöxtur þjóðarfram- leiðslu, áætlaður 57% frá 1972 til 1977 1 miðjunni er vöxtur launavinnu- tekna, áætlaður 65% frá 1972 til 1977. Lengst til hægri eru tekjur af at- vinnurekstri og eign. Þær telur vestur-þýzka verkalýðssambandið aö eigi ekki að vaxa meira en 37% á 5 árum fram til 1977. Þannig á verka- lýðsstéttin að hagnast á vexti þjóðarframleiðslu við hallkvæmt stjórnarfar. þær leifar sem eftir voru. Hins vegar er flokkurinn eftir sem áð- ur fjöldaflokkur verkalýðsins og sækir þangað afl sitt. Á siðustu árum hefur vaxið upp róttæk æskulýðshreyfing, sem er hvort tveggja i senn, sér skipulögð og innan flokksins. Og þar er marxsisminn sannarlega ekki talinn úrelt kredda. Um þriðjung- ur fiokksmanna mun nú tilheyra ungliðahreyfingu sósialdemó- krata, — jusos. Stefna sósfaldemókrata hefur á siðustu árum verið i hægfara umbótaátt á innanlands vett- vangi, en i utanrikismálum hefur áhugaefnið verið að draga úr spennu gagnvart Austur-Evrópu. Það þýðir i reynd að gera Þýzka- land aftur hlutgengt á alþjóða- vettvangi, sannfæra aðrar Evrópuþjóðir um að þeim standi ekki hætta af býzkalandi. 1 þvi sambandi var nauðsynlegt að viðurkenna rfkisr.áttarlega stöðu Austur-Þýzkalands sem póli- tiskan veruleika. Að þessu sinni fór Brandt, leið- togi sósialdemókrata, að vinna þegar hann varð utanrikisráð- herra i „stóru samsteypunni” með kristilegum 1966. En veru- legur skriður komst ekki á málið fyrr en eftir að hann gat sjálfur tekið forystu i nýrri stjórn, 1969. Og er fyrr að þeim ávinn- ingum hans vikið. Kristilegir þjóna auðvaldinu Með happasælli utanrikisstefnu sinni hefur Willy Brandt orðið eins konar þjóðartákn i landi sinu, og hefur það vafalaust haft ólitið að segja um sigur sam- steypustjórnarinnar. A hinn bóginn guldu kristilegir ein- strengingslegrar afstöðu sinnar gegn sáttastefnu Brandts i utan- rikismálum. Fólk sneri við þeim bakinu vegna þrjózku þeirra við að viðurkenna ekki pólitiskar staðreyndir. En hér kom fleira til. Mörgum blöskraði hið óstöðvandi áróðurs- flóð sem frá kristil. kom i kosn- ingabaráttunni, blöð þeirra, bæk- lingar og auglýsingar. Er talið að allur herkostnaður kristilegra nemi um lOOmiljónum marka. Og augu margra hafa opnazt fyrir þvi, hver stendur straum af þessu: iðjuhöldar og einka- bankar. Aðeins auglýsingar, veggspjöld og dreifirit sem ekki voru bundin kjördæmum munu hafa kostað kristilega um 55 miljónir marka, en af þvi hafa flokkarnir sjálfir (þ.e. CDU og CSU) aðeins greitt 21 miljón. Hitt var greitt af „frjálsum fram- lögum áhugahópa”. Til saman- burðar má geta þess, að sóslal- demókratar vörðu aðeins 13 miljónum marka i áróður sem ekki var bundinn kjördæmum. „Það er þýðingarlaust fyrir mig að sanna kjósendum að flokkurinn okkar gangi ekki erinda atvinnurekenda”, sagði einn af frambjóðendum kristi- legra. „Þvi daginn eftir koma heilsiðuauglýsingarnar og sanna það gagnstæða”. Ungsósíalistar unnu vel og dyggilega fyrir flokk sinn, þótt þeim þyki hann ihaldssamur i mörgum greinum og séu stað- ráðnir að breyta honum. Og unga fólkið svaraði kalli. Kosninga- aldur var lækkaður á siðasta kjörtimabili niður i 18 ár, svo að nú gengu 6 árgangar að kjörborð- inu I fyrsta sinn. Og það þykir sannað mál að tveir þriðju þeirra hafi kosið samsteypustjórnina. Af þessari þróun mála hafa kristi- legir hinar mestu áhyggjur sem vonlegt er. Kristilegir töpuðu fylgi meðal allra stétta þjóðfélagsins og i hinum ólikustu hópum kjósenda. Minnst var tapið hjá starfs- mönnum i þjónustugreinum borg- anna, 0,9%. Og i öllum héruðum landsins kom fram tap hjá þeim, nema i Bæjaralandi og i Hessen. A báðum þeim stöðum varð óveruleg fylgisaukning. Þetta er sett i samband við hrun nýnaz- istaflokksins. Einmitt i þessum héruðum hafði hann verið sterkur i kosningunum 1969, en hann þurrkaðist að heita mátti út núna (landsmeðaltal hans féll úr 4,3% i 0,6). Þá er ekki siður athyglisverð sú þróun sem orðið hefur á FDP, flokki frjálsra demókrata. Hann hefur alltaf öðru hverju frá striðslokum verið i stjórnarsam- starfi með kristilegum ihalds- mönnum og sem slikur hefur hann fyrst og fremst þjónað hags- munum smáatvinnurekenda, sem hafa sætt sig ágætlega við þjóðfé- lagið eins og það er. Flokkurinn var alltaf i þeirri hættu að molna sundur milli stóru flokkanna tveggja og hljóta sömu örlög og aðrir borgaralegir milliflokkar. Svo kom augnablik hinnar miklu ákvörðunar 1969, og flokkurinn ákvaðað vinna til vinstri og vera raunverulegur miðflokkur. betta hefur haft ákaflega friskandi áhrif á flokkinn og stefnu hans. Forystumaður fyrir ungsósialista (jusos), Wolfgang Itoth. enda segir nú forystulið hans: Flokkurinn er ekki lengur hags- munastreituflokkur, heldur raunverulegur umbótaflokkur. Fylgi hans hefur orðið miklu staðfastara en það var. Arið 1969 var „tryggðarprósenta” hans aðeins 40 (miðað við næstu kosn- ingar áður) en núna var hún komin upp i 77. Til samanburðar má hafa að „tryggðarhlutfall” SPD er 83%. Og nú er svo komið að meirihluti FDP-kjósenda eru ekki lengur smáborgarar, heldur launafólk, rikisstarfsmenn og iðnaðarmenn. Stjórnarandstaðan ber höfðinu við steininn Eftir kosningarnar hefur athygli manna i býzkalandi ekki beinzt svo mjög að stjórnarflokk- unum og samningaþófi þeirra um myndun nýrrar rikisstjórnar, heldur einmitt að stjórnar- andstöðunni. Hún er auðvitað i sárum eftir þá slæmu útreið sem hún fékk i kosningunum, og margir spá þvi, að kristilegir verði „úti i kuldanum”, ekki aðeins næstu 4 árin, heldur 8-12 ár i það minnsta. Það sem veldur þessum óglæsi- legu spádómum um möguleika kristilegra til að vinna sig upp stafar af óhyggilegri stefnu- mörkun þeirra. Til þess að halda þvi að vera borgaralegur fjölda- flokkur með möguleika á hreinum meirihluta (eins og þeir fengu raunar 1967), þurfa þeir að iðka pólitiskt raunsæi i innan- sem utanrikismálum. Það er þeim nú fyrirmunað. Að visu Framhald á 19. siðu. Nýjung í menningar- Nýjung i menning- arlifi borgarinnar eru bókmenntakvöldin, sem SÚM og SÚR (Samband ungra myndlistarmanna og Samband ungra rit- höfunda) gangast fyr- ir i sameiningu i sýn- ingarsal SÚM innan um málverkin, þar sem lesið er úr nýjum verkum ungra höf- unda. Önnur kynningin af þessu tagi var i fyrrakvöld, og las þá Þorsteinn frá Hamri úr tveim nýjustu bókum sinum, Úlfur Hjörvar las úr bók Þráins Bertelssonar, Kópamaros, Steinunn Sigurðardóttir las ný ljóð eftir sig, Arni Larsson las úr bók sinni Uppreisnin i gras- inu og Vésteinn Lúðviksson úr Gunnari og Kjartani 2. bindi. Ekki var mannmargt þetta kvöldið, og mun jólafiðringur vera farinn að segja til sin i fólki, en fyrirhugað er að framhald verði á þessum bók- menntakvöldum eftir áramót. Myndirnar tók ljósm. bjóð- viljans, A.K. Það er Vésteinn, sem les. Kynnir Svíum ísl. tónlist og íslendingum sænska — Plötukynning í Norræna húsinu á morgun Hljómplötukynning verður i bókasafni Nor- ræna hússins á morgun, Iaugardag, kl. 16,30. Kynnir Göran Bergen- dal frá tónlistardeild sænska rikisútvarpsins þá með tóndæmum og frásögn af tónverkunum plötur, sem sænska út- varpið hefur gefið Nor- ræna húsinu. A blaðamannafundi með Göran Bergendal, konu hans Lenu Roth, sem hér er með honum, og bóka- verði Norræna hússins Else Mie Sigurðsson i gær kom fram m.a., að þegar tónlistarstjóri sænska rikisútvarpsins, Magnus Enhörn- ing, var hér á ferð i sumar vegna norrænnar samkeppni ungra pianóleikara, bauðst hann til að senda Norræna húsinu úrval hljómplatna, sem stofnun hans hefur látið gera. Það eru þessar plötur, sem nú eru komnar og verða kynntar á morgun, en þær verða siðan allar til útláns i bóka- safni Norræna hússins. Göran Bergendal hefur dvalizt hér á landi i nokkrar vikur til að viða að sér efni i safnrit um nú- timatónlist á Norðurlöndunum, sem Bo Wallner ritstýrir, og kem- ur út á ensku og dönsku. A einn kaflinn að fjalla um islenzka nú- timatónlist og hann annast Gör- an. Hann sagðist taka fyrir nú- timatónlist frá og meö Jóni Leifs og Páli ísólfssyni og halda sér við alvarlegri tegund tónlistar, en sjálfur kvaðst hann annars persónulega gera öllum tegund- um tónlistar jafn hátt undir höfði og vera á móti þvi, þegar fólk ein- skorðaði sig við eina tegund eins og þegar eldra fólk vildi ekki heyra nútimatónlist og popp-lög eða það yngra ekki sigilda tónlist. Göran Bergendal sagðist vinna sem tónlistarfréttamaður, sem ekki mætti rugla saman við gagn- rýnendur. Hann kynnir tónlistina, og skýrir áður en hún er flutt og álitur það mun gagnlegra hlut- verk en gagnrýnina, sem mótist af smekk þeirra sem við hana fást og snúist gjarna um of um flutn- inginn, en ekki tónlistina sjálfa. t sambandi við ritið um nú- timatónlist hefur Göran rætt við marga núlifandi tónlistarmenn islenzka, hæði tónskáld og túlk- endur, og eru þetta reyndar ekki fyrstu kynni hans af islenzkri tón- list, þvi hann kom hingað á Lista- hátiðina sl. vor þeirra erinda að kynna sér hana i sambandi við 4ra tima islenzka kvölddagskrá i sænska rikisútvarpinu i nóvem- ber sl. Var þessi dagskrá bæði um alvarlegri nútimatónlist og um vinsæla tónlist af léttara taginu. Þá ritaði Göran Bergendal grein um islenzka tónlist i vel þekkt tónlistartimarit, sem sænska rikisútvarpið gefur út. Auk fjölda timaritagreina um sænsk tónskáld hefur hann skrif- að bækur um tónlist, og kemur þessa dagana út bók eftir hann i Sviþjóð „33 nútima sænsk tón- skáld”. Margra grasa kennir á plötu- kynningunni á morgun, m.a. verður kynnt þjóðleg sænsk tón- list úr Dölunum, hljómsveitar- verk, sænskur jazz, frönsk barokktónlist og kaflar úr jóla- óratoriu eftir Hilding Rosenberg. Aðgangur er ókeypis og öllum heimill. —vh

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.