Þjóðviljinn - 15.12.1972, Blaðsíða 19

Þjóðviljinn - 15.12.1972, Blaðsíða 19
Föstudagur 15. desember 1972 ÍÞJöÐVILJINN — SÍÐA 19. Brandt Framhald af bls. 11. gætir tilhneiginga til raunsæis hjá kristilegum demókrötum (CDU), en þeim mun harkalegar spyrnir hinn ofstopafulli foringi kristi- legra sósialista (CSU) i Bæjara- landi, Strauss, viö fótum. Strauss gortar af þvi að einmitt hjá sér og öðrum álika gall- hörðum ihaldsmanni i Hessen hafi gætt fylgisaukningar, en alls staðar þar sem kristilegir voru meira hægfara i andstöðunni við austurstefnu Brandts og boðaðar þjóðfélagsumbætur hans hafi þeir tapað. Um leið er S.trauss auð- vitað að koma höggi á hinn lán- litla leiðtoga kristilegra demó- krata, Barzel, sem teflt var fram sem kanslaraefni. Yfirgangur og ráðriki Strauss gekk svo langt, að hann hótaði þvi að segja upp 23 ára gömlu sam- komulagi flokkanna tveggja, CDU og CSU, um sameiginlegan þingflokk. Að lokum tókst þó að bræða saman stuttaralegan og loðinn málefnasamning, en kunn- ugir segja að um leiö hafi verið gert samkomulag um það i leyni, að þingflokkurinn skuli berjast gegn allsherjar samkomulagi Brandts við Austur-Þýzkaland og gegn öllum umbótum heima fyrir. „Engar sósialiskar til- raunir” segja fylgismenn Strauss hinir hróðugustu. „Engin opnun til vinstri” andvarpa hinir hóf- samari CDU-menn og eru ekki bjartsýnir á framtiðina. Það á svo að heita að CDU/CSU hangi saman eins og verið hefur. CSU hefur ekki gert alvöru úr þeirri hótun að stiga út fyrir landamæri Bayerns og taka að keppa við CDU um hylli hægri sinnuðustu kjósendanna. En i Austur-Westfalen hefur það gerzt, að ungir ihaldsmenn (Junge Union) hafa i mótmæla- skyni við hægrimennsku CDU boðað, að þeir muni bjóða fram sérstaklega við sveitarstjórnar. kosningar i marz á næsta ári, en ekki styðja „gömlu mennina”. Unga róttæka fólkið eflir baráttuna En hvað um unga fólkið innan stjórnarliðsins? Vafalaust finnst mörgum ungum baráttumanni fyrir sigri Brandts, að ekki spái það góðu að enginn verulega rót- tækur maður var settur i samn- ignanefndina til að semja við frjálsa demókrata um endur- nýjun stjórnarsamstarfsins. Og vitað mál að FDP hugsar sér að vera hemill á „alltof mikinn sósialisma” á næsta kjörtimabili. En vinstri sinnaðir þingmenn sósialdemókrata, einir 45 að tölu samkvæmt Spiegel.hafa ákveðið að hafa samband sin i milli og taka af þingfararkaupi sinu til að halda uppi sérstakri skrifstofu og starfsliði fyrir sig. Þeir eru taldir standa ungsósialistum nærri. Forystumaður ungsósialista, Wolfgang Roth, hefur lagt áherzlu á það, að sósialdemó- kratar hafi ekki sigrað þrátt fyrir hina byltingarsinnuðu jusos, heldur að hluta til einmitt fyrir þeirra framlag og dugnað. Og hann segist hafa hugsað sér að ná árangri i nokkrum helztu bar- áttumálum ungsósialista á kjör- timabilinu. Á meðal þeirra eru: Settar verði reglur um það að starfsmenn skuli hafa jafnmarga fulltrúa i stjórnarnefnd einka- fyrirtækja og eigendur þeirra. Þetta atriði er mjög umdeilt, þvi hingað til hafa frjálsir demó- kratar bitið sig i það að eigendur ættu aö hafa þriðjungi fleiri en verkalýðsfélagið. Þá leggja ungsósialistar mikla áherzlu á iðnmenntun og verk- menntun og opnun leiða til æðri menntunar. Þeir krefjast umbóta i skattamálum, þannig að beinir skattar séu lækkaðir af lágtekjum en færðir yfir á hærri tekjur. Svipaðar yfirlýsingar hafa vinstri menn i þingflokki sósial- demókrata gefið um sin áhuga- mál. En Roth hefur hugsað sér að láta ekki við það sitja sem rót- tækir þingmenn kunna að segja inni i þingsölum. Fáist málin ekki fram með öðrum hætti, boðar hann „beinar aðgerðir”, svo sem miklar hópgöngur til Bonn úr öllum héruðum Þýzkalands. Þeirri stjórn sem þeir Willy Brandt og Walter Scheel eru að mynda þessa dagana fylgja góðar óskir frá meirihluta þýzkrar þjóðar, raunar ekki aðeins i Vestur-Þýzkalandi, heldur einnig i hinu titt gleymda systur-riki, Austur-Þýzkalandi. Almenningur og stjórnvöld i þvi landi eiga póli- tik þeirra margt að þakka, hvernig sem þakklætið verður fram reitt. Unga fólkið og verka- lýðshreyfingin i Vestur - Þýzkalandi væntir sér mikils af þessari stjórn. Ef tekst að knýja fram atvinnulýðræði i stjórn einkafyrirtækja með jafnræðis fyrirkomulagi, er þar um að ræða stórkostlega tilraun i þjóðfélags- málum sem getur hrundið af stað hraðfara og ófyrirséðum breyt- ingum. Með þessari grein er einn- ig birt linurit um þær kjara- bætur, sem verkalýðshreyfingin hyggst ná á kjörtimabilinu. En ákaflega talandi dæmi um hug þýzku þjóðarinnar i garð hinnar nýju og áframhaldandi samstypustjórnar er niðurstaða úr skoðanakönnun um viðbrögð almennings við kosningaúrslit- unum. 56% hinna spurðu kváðust vera ánægðir með sigur stjórn- arinnar, en aðeins 24% sögðust hafa orðið fyrir vonbrigðum. h — 2. uniræða Framhald af bls. 6. hafnarmannvirkja i 64 milj. kr., og tillögur um framlög á næsta ári miðast við, að þær hverfi þá með öllu. | Skömmu fyrir siðustu alþingis- j kosningar voru tekin lán samtals I að upphæð um 20 milj. kr. i hafna- j bótasjóð og þeim úthlutað. Lánin skyldu endurgreidd á árunum 1972 og 1973. Afborganir og vextir 1972 hafa verið endurgreiddir með bráðabirgðaláni úr rikis- sjóði, og falla þvi lánin ásamt vöxtum til greiðslu á næsta ári. Sú greiðsla mundi tæma sjóðinn með öllu, miðað við framlag til hans i fjárlagafrv., sem er áætlað um 30% hærra en á fjárl. 1971. Fjvn. hefur ekki tekið afstöðu til þess, hvernig skuli fara með þennan skuldahalann úr hinu „blómlega búi viðreisnar”. Vangreidd framlög iþróttasjóðs vegna iþróttamannvirkja hafa hrúgazt upp á undanförnum árum og munu nema rúml. 82 milj. kr. Þökkum innilega auðsýnda samúö við andlát og jarðarför eiginmanns mins og föður okkar p:iríks snjólfssonar Brávallagötu46 Guðbjörg Eiriksdóttir Hörður Eiriksson Eiríkur Svavar Eiriksson ÞORKELL JÓNSSON Bárugötu 30a Ileykjavik sem andaðist 8. þ.m. verður jarðsunginn 16. þ.m. kl. 10.30. Jarðsett vcrður i kirkjugarðinum viö Suðurgötu. Fjóla Bjarnadóttir Oddbergur Eirfksson. eftir að úthlutun úr sjóðnum hefur farið fram á þessu ári. Fjárveit- ing til iþróttasjóðs var á núgild- andi fjárlögum hækkuð um 160% frá árinu 1971, og var þess þá get- ið, að það væri gert i þeim til- gangi að stefna að þvi, að þróun undanfarinna ára um stöðuga skuldasöfnun yrði snúið við. Er þvi nú gerð tillaga um að taka enn frekar á þessu máli og á þann veg, að i stað þess, að sveitarfélög og iþróttafélög biði árum saman og endalaust eftir greiðslu lög- boðinna rikisframlaga, verði samið við þau um að falla frá 20% inneigna sinna hjá rikissjóði um n.k. áramót gegn þvi, að eftir- stöðvar verði greiddar að fullu á næstu 4 árum. Við þetta er til- laganum framlag til iþróttasjóðs miðuð og þvi áætlaðar 16,6 milj. kr. til greiðslu eftirstöðva, 5,3 milj. kr. til félagsstyrkja o.fl., en 3,1 milj. kr. gangi til greiðslu á hluta rikissjóðs af framkvæmd- um á næsta ári við þau mann- virki, sem nú eru i byggingu og hljóta þar með rétt samkvæmt nýgerðri breytingu á iþróttalög- um. Framlag til iþróttasjóðs nemur þvi alls 25 milj. kr. samkv. tillögu nefndarinnar og hefur þá fimmfaldazt frá fjárlögum 1971. Við afgreiðslu núgildandi fjár- laga var meir komið til móts við óskir forráðamanna rikisspit- alanna um ráðningu starfsliðs en gert hafði verið á undanförnum árum, þegar óhjákvæmilegum þörfum á þessum sviðum var svo litt sinnt, að til vandræða horfði i rekstri sjúkrahúsa. 1 fjárlagafrv. er gert ráð fyrir aukningu á þjónustu á þessu sviði i framhaldi af breytingum, sem gerðar voru á fjárlagafrv. i fyrra við afgreiðslu þess, og nefridin flytur nú tillögu um breyt. á fjár- lagafrv. á þann veg, að gert verði ráð fyrir aukningu starfsliðs, svo að nemur um 30 milj. kr. útgjöld- um á næsta ári. Er hér um að ræða um 14,8 milj. kr. vegna vinnutimastyttingar, 7,5 milj. kr. vegna nýrra sjúkradeilda og nýrrar þjónustu, 7,7 milj. kr. vegna aukinnar þjónustu i eldri deildum. Af þessum upphæðum falla 27.290 þús. kr. á rikissjóð. Breytingartillögur þær, sem fjvn. flytur sameiginlega, mundu, ef samþykktar væru, valda 268.188 þús. kr. nettógjaldaaukn- ingu hjá rikissjóði og yrði greiðsluhalli rikissjóðs þá 164.242 þús. kr. íþróttir Framhald af bls. 11. þar með góðan sigur og fylli- lega sanngjarnan. Beztu menn Fram- liðsins að þessu sinni voru þeir Björgvin, Sigurbergur og Ingólfur. Axel átti einnig sæmilegan leik framan af en stóð sig ekki nógu vel undir lokin. Ármanns-hðið i heild lék betur en það hefur gert i haust og þeir Hörður og Vilberg báru af i sókninni. Þá átti Guðmundur Sigurbjörnsson ágætan leik, sem og Björn Jóhannsson. Mörk Ármanns: Hörður 7, Vilberg 7, Guðmundur 3, Björn 3, Jón Ástv. 2 og Olfert 1. Mörk Fram: Ingólfur 8 (6 viti), Axel 3, Sigurbergur 3, Sveinn 3, Pétur og Björgvin 1- Fjárlögin Framhald af 1. Geir sagði að aðeins ein 'öreytingartillaga værii flutt varð- andi tekjuhlið frumvarpsins, þess efnis að slysatryggingariðgjöld atvinnurekenda, áhættuiðgjöld af irillubátum og búvélum hækki um 45 miljónir, og væri þessi hækkun i samræmi við nýja áætlun Tryggingarstofnunar- innar um iögjöld til slysa- trygginga á næsta ári. Þessu næst gerði framsögu- maður nánari grein fyrir breytingartillögum nefndarinnar varðandi f járveitingar til einstaka maáflokka, og sagði að ef þær yrðu samþykktar þýddi það um 268 milj. kr. nettógjalda- aukningu og greiðsluhalla er næmi um 164 milj. kr. — Geir sagði að lokum, að við 3ju um- ræðu yrðu fluttar breytingartil- lögur við tekjuhlið frumvarpsins, sem tryggja myndu afgreiðslu greiðsluhallalausra fjárlaga. AUGLÝSING um takmörkun á umferð í Reykjavík, 16. — 23. desember 1972. Ákveðið hefir verið að gera eftirfarandi ráðstafanir vegna umferðar á timabilinu 16. — 23. desember n.k.: I. Einstefnuakstur: Á Vatnsstig frá Laugavegi til norðurs að Hverfisgötu. Á naustunum frá Tryggvagötu að Hafnar- stræti II. Vinstri beygja bönnuðt 1. Af Laugavegi suður Barónsstig. 2. Af Klapparstig vestur Skúlagötu. 3. Af Vitastig vestur Skúlagötu. III. Bifreiðastöðubann á virkum dögum kl. 10—19: Á Skólavörðustig norðan megin götunnar, frá Týsgötu að Njarðargötu. Frekari tak- markanir en hér eru ákveðnar verða settar um bifreiðastöður á Njálsgötu, Laugavegi, Bankastræti og Austurstræti, ef þörf krefur. IV. Ökukennsla i miðborginni milli Snorrabrautar og Garðastrætis er bönnuð á framangreindu timabili. V. Umferð bifreiða, annarra en strætis- vagna Reykjavikur, er bönnuð um Austurstræti, Aðalstræti og Hafnarstræti, laugardaginn 16. desember frá kl. 20 til kl. 22 og laugardaginn 23. desember frá kl. 20.00 til kl. 24.00. Sams konar umferðartakmörkun verður á Laugavegi og i Bankastræti á sama tima, ef ástæða þykir til. Vakin skal athygli á þvi, að á þessu auglýsta timabili geta ökumenn á ferð um Laugaveg átt von á þvi, að lögreglan visi þeim af Laugavegi, t.d. við Höfðatún eða Rauðarárstig. Ennfremur geta ökumenn búizt við þvi, að umferð úr hliðargötum Laugavegar, Bankastrætis og Austurstrætis verði tak- mörkuð inn á þessar götur á vissum timum. Þeim tilmælum er beint til ökumanna, að þeir forðist óþarfa akstur um Laugaveg, Bankastræti og Austurstræti og að þeir leggi bifreiðum sinum vel og gæti vand- lega að trufla ekki eða tefja umferð. Þeim tilmælum er beint til gangandi vegfar- enda, að þeir gæti varúðar i umferðinni, fylgi settum reglum og stuðli með þvi að öruggri og skipulegri umferð. VI. Gjaldskylda við stöðumæla verður sem hér segir.: Föstudaginn 15/12 Laugardaginn 16/12 Mánudaginn 18/12 Þriðjudaginn 19/12 Miðvikudaginn 20/12 Fimmtudaginn 21/12 Föstudaginn 22/12 Laugardaginn 23/12 Kl. 09,00-22,00 Kl. 09,00-22,00 Kl. 09,00-18,00 Kl. 09,00-22,00 Kl. 09,00-18,00 Kl. 09.00-18,00 Kl. 09,00-22,00 Kl. 09,00-24,00 Lögreglustjórinn i Reykjavik, 14 des. 1972

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.