Þjóðviljinn - 15.12.1972, Síða 12

Þjóðviljinn - 15.12.1972, Síða 12
12 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 15. desember 1972 55 mörk í 60 mín- útna hinna varnarlausu liða Víkings ogKR Að þaö skuli hafa verið skoruö 55 mörk i 60 mín- útna leik segir ef til vill meira en mörg orð um hve hörmulega lélegar varnir þessara liða, KR og Víkings, voru. Þessi leikur er gott dæmi um þá lýsingu sem við höf- um gefið á Vikings-lið- inu. Mjög góður sóknar- leikur sem skilar 32 mörkum/ en nær engin vörn sem fær á sig 23 mörk gegn jafn slöku liði og KR-liðið var að þessu sinni. Þegarþesser gætt, að fjölmargar sóknarlot- urbeggja liðanna fóru út um þúfur, en samt voru skoruð 55 mörk i leikn- um, þá sýnir það hvers konar skrípaleikur þarna fór fram. Hver sóknar- lota hefur ekki staðið meira en nokkrar sekúndur, þá hafði myndazt gat í annarri hvorri vörninni og skoti hleypt af. Og þótt ótrú- iegt megi virðast, þá vörðu markverðirnir alls ekki illa, en varnir voru ekki til. ÞaB hefur lika komið i ljós i leikjum gegn sterkari liðun- um, eins og Fram og Val, að Vikingur ræður ekkert við þau, þótt ekki vanti að liðið skori mörk. Gegn Val skor aði liðið heil 19 mörk, en það fékk bara á sig 27, og gegn Fram skoraði það 18, en fékk á sig 21 mark. Það liggur i aug- um uppi, að það á að vera nóg fyrir lið að skora 18 til 20 mörk i leik til að sigra. Og það er meira en litið að i vörninni ef svo er ekki. Lið með slika vörn getur ekki vonazt eftir sigri i heilu móti, ekki að minnsta kosti i alvöru. V • m 1 K f jKKfW ' - s 1 imtwM’tt11 H f 111 r^v 1 Kinar Magnússon, „risinn” I Vikingsliðinu, var óvenju ógnandi i leiknum við KR og skoraöi 11 mörk. Ef Einar ógnar er erfitt að verjast honum, enda er maðurinn nær 2 m. að hæð, léttur og sterkur. Það horfir nú orðið alvar- lega fyrir KR-liðinu eftir 5 tapleiki i röð og ekki sizt eftir að Armann hefur náð sér i 2 stig. Það er alveg sama sagan með KR og Viking, liðiö er al- gerlega varnarlaust, en það getur skorað, þótt það hafi ekki jafn mörgum góðum skyttum á að skipa og Viking- ur. Hið eina sem getur bjargað KR frá falli úr þessu, er að það taki sig verulega á i varnar- leiknum, leggi alla áherzlu á að styrkja vörnina. Ef við litum á gang þessa leiks, þá var það nú svo að maður var varla búinn að skrifa niður eitt markið þegar annað var komið, eða þá i það minnsta markskot. Vikingar leiddu allan leikinn en munur- inn var aldrei mikill fyrr en undir lokin að KR-liðið gafst hreinlega upp. Þegar 19 minútur voru liðn- ar af leik var staðan 10:8 Vik- ingi i vil og hún var 14:12, þeg- ar 1 minúta var eftir og 15:12 i leikhléi. Sem sagt 27 mörk á 30 minútum. Eftir 10 minútur af siðari hálfleik var staðan 20:17 og eftir 15 minútur 22:19. Þegar um það bil 10 minútur voru til leiksloka var staðan 25:20, en þá hrundi KR-liðið algerlega niður. Lokaminúturnar voru svo hrein martröð fyrir KR- inga, þegar Vikingar skoruðu hvert markið á fætur öðru, án þess að KR-ingar fengju svar- að fyrir sig. Lokatölurnar urðu svo 32:23 sigur Vikings. Stórskyttur Vikings, með Einar Magnússon i broddi fylkingar, áttu ekki i nokkrum erfiðleikum með að skora hjá hinni hörmulegu lélegu vörn KR. Jafnvel ágæt markvarzla Ivars Gissurarsonar dugði skammt, þegar vörnin hleypti öllu i gegn. Stefán Halldórsson hefur vakið mikla athygli i siðustu leikjum Vikings fyrir góðan sóknarleik og það varð engin breyting á þvi nú. Þá áttu þeir Guðjón og Páll Björgvinsson einnig ágætan leik i sókninni. Um vörn var ekki að ræða hjá Vikingi. I KR-liðinu voru það helzt þeir Haukur Ottesgn og Birn- irnir Pétursson og Blöndal sem eitthvað kvað að i sókn- inni. Mörk Vikings: Einar 11 (6 viti), Guðjón 5, Stefán 4, Ólaf- ur 4, Viggó 3, Páll 3, Jón og Sigfús 1 mark hvor. Mörk KR: Björn P. 6, Steinar 4, Haukur 3, Björn Bl. 3, Geir, Bjarni og Karl 2 mörk hver og Bogi 1 mark. Jólamót í innan- hússknattspyrnu fyrir þá yngstu Knattspyrnuráð Reykjavik- ur hefur ákveðið að gangast fyrir jólamðti i innanhúss- knattspyrnu fyrir 4. og 5. fl. pilta og fer það fram á sunnu- daginn kemur i Laugardals- Markahlutfall gildir i riðlum. Leiktimi: 2x5 minútur. 5. FLOKKUR. 1. FLOKKUR. 1. Þróttur - K.R. Kl. 6.15 2. Fram-Í.R. Kl. 6.30 3. Valur-Ármann Kl. 6.45 4. Fylkir - Vikingur Kl. 7.00 5. Þróttur-Fram Kl. 7.15 hölíinni og hefst kl. 14.30. l. Vikingur- Í.R. Kl. 2.30 6. K.R.Í.R. Kl. 7.30 Þetta er mjög skemmtileg 2. Armann - Fylkir Kl. 2.43 8. Armann - v íkmgur Kl. 8.15 nýbreytni og það fer ekkert 3. K.R.-Þróttur Kl. 2.56 9. Þróttur - l.R. KI.8.HÓ milii mála að þarna verður 4. Fram - Valur Kl. 3.09 10. K.R.-Fram Kl. 8.30 um jafna og skemmtilcga 5. Viklngur — 11. Valur-Vikingur Kl. 8.45 keppni að ræða og fátt er Armann Kl, 3.22 12. Armann - Fylkir Kl. 9.00 skemmtilegra en að horfa á 6. í.R. - Fylkir Kl. 3.35 13. Leikur um 7. sæti Kl. 9.15 unga pilta leika innanhúss- 7. K.R. - Fram Kl. 3.48 14. Leikur um 5. sæti Kl. 9.30 knattspyrnu. 8. Þróttur - Valur Kl. 4.01 15. Leikur um 3. sæti Kl. 9.45 Keppt verður i tveim riðl- 9. Vikingur - Fylkir Kl. 4.14 16. úrslit Kl. 10.00 um og hefur þegar veriö 10. í.R.-Ármann Kl. 4.27 a-riðill: b-riðill: dregið i riðla. 11. K.R.-Valur Kl. 4.40 ÞRÓTTUR VALUR a-riðill: b-riðill: 12. Þróttur-Fram Kl. 4.53 K.R. ARMANN VÍKINGUR K.R. 13. Leikur um 7. sæti Kl. 5.10 FRAM FYLKIR Í.R. ÞRÓTTUR 14. Leikur um 5. sæti Kl. 5.23 Í.R. VÍKINGUR ARMANN FRAM 15. Leikur um 3. sæti Kl. 5.36 Markahlutfall gildir • i riðlum. FYLKIR VALUR 16. úrslit Kl. 5.50 Leiktimi: 2x6 minútur. Staðan eftir leiki Vikings og KR og Fram og Armanns er þessi: FH 4 4 0 0 73:67 8 Valur 4 3 0 1 90:65 6 1R 4301 79:67 6 Vikingur 5 3 0 2 112:102 6 Fram 5 3 0 2 98:91 6 Haukar 4 1 0 3 75:77 2 Ármann 5 1 0 4 81:108 2 KR 5 0 0 5 83:114 Markhæstu menn. Ingólfur Óskarss. Fram 33 Einar Magnúss. Vikingi 31 GeirHallsteinss. FH 30 Vilberg Sigtryggss. Arm. 27 Bergur Guðnason Val 25 Haukur Ottesen KR 25 Brynjólfur Markúss. IR 25 Ólafur ólafss Haukum 22 Guðjón Magnúss. Vik 19 Hörður Kristinss. Árm. 17 ÓlafurH, Jónss. Val 15 Björgvin Björginss. Fram 15 Páll Björgvinss.Viking 14 Sigurbergur Sigsteins. Fram 13 I Ingólfur Óskarsson er nú I markbæstur i 1. deild. staðan

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.