Þjóðviljinn - 04.04.1973, Page 3

Þjóðviljinn - 04.04.1973, Page 3
Miðvikudagur 4. april. 1973 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 3 Ferðast um með málverk og eftirprentanir Nýting landsins rædd á 2ja daga ráðstefnu — leiddir saman fulltrúar ýmissa sjónarmiða 25 erindi varöandi skipu- lag landnýtingar á islandi verða flutt á ráðstefnu, sem haldin verður að Hótel Loftleiðum, Kristalssal, á föstudag og laugardag n.k. og boðað er til af Land- vernd, landgræðslu- og náttúruverndarsamtökum islands í samvinnu við \Búnaðarfélag islands, Náttúruverndarráð, Sam- band íslenzkra sveitarfé- laga, Skipulagsstjórn ríkis- ins og Landnýtingar- og landgræðslunefnd. Ráðstefnuna sækja um 130 full- trúar stofnana og félaga úr öllum landshlutum og er tilgangur hennar að leiða saman fulltrúa frá sem flestum aðilum, sem á einhvern hátt gera tilkall til landsins og gæða þess, og með starfsemi sinni hafa áhrif á eðli landsins og framtiðarviðgang, að þvierfram kemur i fréttatilkynn- ingu frá Landvernd. Reynt verð- ur að fá yfirlit um hin ýmsu sjón- armið varðandi nýtingu lands og ræða möguleika á samræmingu þeirra. Einnig verður rætt um nauðsyn skipulagslegra og fé- lagslegra aðgerða til að: 1) tryggja skynsamlega nýtingu landsins, 2) fyrirbyggja spjöll á landi vegna mannlegrar starfsemi, 3) bæta þau sár er hlotizt hafa af völdum óbliðrar náttúru, eða vegna búsetu i landinu. Teknir verða til umræðu flestir þeir þættir er snerta samskipti þjóðarinnar og landsins, bæði hinir hefðbundnu, svo sem land- búnaður, svo og þeir þættir nú- tima þjóðfélags, sem fyrirsjáan- lega þurfa á auknu landrými að halda i framtiðinni. Má þar til nefna aukna byggð á þéttbýlis- svæðum og mannvirkjagerð utan þéttbýlis, svo sem bygging vega, hafna, orkuvera, svo og einnig vaxandi þörf á landi til útilifs, iþrótta, ferðalaga, ferðamanna- þjónustu o.fl. Þá verður reynt að gera sér grein fyrir á hvern hátt skynsamleg landnýting og nátt- úruvernd geta bezt farið saman. Framkvæmdastjóri ráðstefn- unnar er Haukur Hafstað, en með honum hafa starfað i undir- búningsnefnd þeir Vilhjálmur Lúðviksson, Ingvi Þorsteinsson, Arni Reynisson, Unnar Stefáns- son, Magnús G. Björnsson, Jónas Jónsson og Agnar Guðnason. Hákon Guðmundsson setur ráð- stefnuna kl. 9 á föstudag, en siðan flytja erindi Páll Lindal, Páll Bergþórsson, Þorleifur Einars- son og Ingvi Þorsteinsson. Sið- degis hafa framsögu þeir Gunnar Guðbjartsson, Óttar Geirsson, Sveinn Runólfsson, Hákon Bjarnason, Sigurður Sigurðsson, Gunnar Bjarnason, Jakob Björnsson og Snæbjörn Jónsson. Siðari dag ráðstefnunnar flytja framsöguerindi Hjörleifur Gutt- ormsson, Vilhjálmur Lúðviksson, Árni Reynissón, Brynjólfur Ingólfsson, Stefán Már Stefáns- son, Asgeir Bjarnason, Gestur Ólafsson, Bjarni Einarsson, Jón- as Jónsson, Magnús G. Björns- son, Ragnar Arnalds og Eysteinn Jónsson. Fundarstjórar fyrri daginn verða Zóphonias Pálsson, Pálmi Jónsson og Ellert Schram, en sið- ari daginn Benedikt Gröndal, Steinunn Finnbogadóttir og Stein- grimur Hermannsson. I árslok 1971 skipaði landbún- aðarráðherra sjö manna nefnd til að vinna að gerð heildaráætlunar um landgræðslu og gróðurvernd, svo og alhliða skipulagningu á notkun landgæða. Með skipun þessarar nefndar var af hálfu rikisvaldsins tekin ákvörðun um að minnast 11 hundruð ára byggðar i landinu með stórátaki á þessu sviði. Það verkefni sem hér um ræðir er mjög viðamikið og mun marg- brotnara og vandasamara en flestir gerðu sér grein fyrir, og segir i fréttatilkynningunni að Landvernd og þeir aðilar aðrir, sem standa að ráðstefnunni um landnýtingu, vilji leggja sitt af mökum til að þetta starf verði sem árangursrikast. Telja þessir aðilar, að ráðstefna sem fjallar um skipulag landnýtingar á breiðum grundvelli geti orðið gagnleg til að samræma aðgerðir allra þeirra sem að þessum mál- um vinna. Veitingahúsaeigendur hafa lýst verkbanni á fé- lagsmenn i Félagi fram- reiðslumanna þar eð þeir vilji ekki fallast á nýjan uppgjörsmáta við veitinga- húsin. Voru því veitingahús lokuð i fyrrakvöld, og ekkert benti til að lyktir fengjust í málinu í gær þar eð það verður dómfest fyrir Félagsdómi i dag og hafa því veitingahúsin að líkind- um verið lokuð í gær. I samningum þeim sem i gildi eru milli framreiðslumanna og veitingahúsa er sagt, að þóknun til framreiðslumanna skuli vera 15% miðað við verð veitinga til almennings. Veitingahúsamenn vilja nú skilja þessi ákvæði samningsins svo, að 15% þóknun til fram- reiðslumanna skuli ekki koma' ofan á söluskattinn. Þvi er það að veitingahúsa- eigendur krefjast þess nú af framreiðslumönnum, að þeir taki UPP nýja háttu við uppgjör við veitingahúsin og reikni álag sitt á það verð sem á veitingunum er MANAGUA 1/4 — I nótt kom öflugur jarðskjálfti f höfuðborg Mið-Ámerikurikisins Nicaragua og hrundi fjöldi húsa. Borgin er hvort sem er að talsverðu leyti i rúst eftir jarðskjálftana miklu i desember sem kostuðu 30 þúsund manns lifið. PRAG 2/4 — Gustav Husák, mesti valdamaður Tékkóslóvakiu, fór ásamt sveit manna til Kúbu i dag, þar sem hann mun dveljast nokkra daga i boði Castros. Baldvin Arnason sýnir þrjár myndir i glugga Málarans þessa daga og kennir þær við natúriskan súrrealisma. Baldvin ferðaðist i fyrra um Færeyjar, seldi eigin myndir og eftirprentanir af islenzkum lista- verkum. Hann málaði einnig þar i eyjunum. Nú er hann á förum til áður en söluskattur kemur þar ofan á. Þýðir þetta uppátæki 11% rýrnun á kjörum framreiðslu- manna. Samningar þeir sem i gildi eru milli framreiðslumanna og veitingahúsaeigenda gilda til 1. nóvember i haust, og telja fram- reiðslumenn þvi, að verið sé að rjúfa gerða samninga, en auk þeirrar skýlausu greinar um upp- Noregs, ætlar að ferðast þar um og selja eigin myndir og eftir- prentanir, og vonast til að við- tökur verði ekki siðri þar en hjá Færeyingum. Þetta er i senn skemmtiferðalag og starf og þá um leið kynningarstarf. Ég hefi einnig boðizt til að dreifa Vest- mannaeyjakortum þar i Noregi, sagði Baldvin. gjör framreiðslumanna við veitingahúsin er sagt er frá hér að framan, segir i 4. grein samninganna, að veitingahúsa- eigendur skuldbindi sig til að taka ekki upp ný vinnubrögð á samningstimanum sem skert gætu laun framreiðslumanna. Hversu lengi veitingahúsaeig- endur standa að verkbanni sinu er enn óvist. — úþ. í norskt sjónvarp S.l. mánudagsmorgun fóru tvö börn frá Vestmannaeyjum til Oslóar til þess að koma þar fram I barnatima sjónvarps og útvarps tii aðstoöar fjársöfnun I Noregi vegna fyrirhugaðrar sumardvaia barna frá Vestmannaeyjum i Noregi. Börnin heita Vilhjálmur Garðarsson og Arnfríður Einarsdóttir. Þau eru 12 ára gömul, og eru væntanieg heim aftur n.k. fimmtudag. Noregsferðir barna frá Vestmannaeyjum hefjast um miðjan júnimánuð n.k., og lýkur þeim ibyrjun september. tslenzku flug- félögin gcfa „Norsk- isiandsk samband” helming flugfara. Ung afrekskona Þessi unga stúlka, Kristin Hjördis Leosdóttir, útskrifaðist úr Hjúkrunarskóla Islands 10. marz siðastiiðinn, og fékk við það tækifæri vcrðlaunapening úr bronsi, sem veittur er af stjórn Minningarsjóðs Katrinar Thoroddsen fyrir framúskarandi góða frammistöðu við hjúkrunarnám, bæði verklegt og bóklegt. Kristin Hjördis hefur nú ráöið sig að nýjustu deild Land- spitalans, endurhæfingardeildinni. Hjúkrunarskóli tslands útskrifar á þcssu ári 44 hjúkrunarkonur, og munu þær siöustu ljúka skyldum sinum við skólann 23. mal. Landhelgin 2. apríl Verkbann í veitingahúsum Veitingahúsaeigendur ganga á gerða samninga

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.