Þjóðviljinn - 04.04.1973, Qupperneq 12

Þjóðviljinn - 04.04.1973, Qupperneq 12
12 SIÐA — ÞJ6ÐVILJINN Miðvikudagur 4. april. 1973 Skákkeppni stofnana 1973 lokið Ss ...... UMSJÓN: JÓN G. BRIEM I A-flokki tefldu 22 sveitir, og urðu úrslit þessi: 1. Útvegsbankinn A-sveit 21 v. 2. Búnaðarbankinn 20 1/2 v. 3. Stjórnarráðið 18 v. 4. Orator 17 v. 5. -6. Skrifst. borgarverkfræðings, Menntaskólinn v/Hamrahlið 15 v. 7.-9. Loftleiðir A-sveit, Hreyfill, Barnaskólar Reykjavikur A-sveit 14 1/2 v. 10.-13. Orkustofnun A-sveit, Breið- holt, Landsbankinn A-sveit, Landssiminn A-sveit 14 v. 14-16. Veðurstofan, Rafmagns- veitan A-sveit, Sveinsbakari 13 v. 17. Verkfræðist. Sigurðar Thor- oddsen 12 v. 18-19. Barnaskólar Reykjavikur B-sveit, Strætisvagnar Reykja- vikur 11 1/2 v. 20. Borgarbilastöinn 11 v. 21. Vegamálaskrifstoían 10 v. 22. Otvegsbankinn B-sveit 7 v. Það er tæplega hægt að segja að úrslitin hafi komið á óvart. Útvegsbankinn sigraði einnig i fyrra og var sú sveit ásamt sveit Búnaðarbankans talin sigur- stranglegust nú. 1 sveitinni tefldu Björn Þor- steinsson, Gunnar Gunnarsson, Bragi Björnsson og Jóhannes Jónsson. Bragi Björnsson vann það glæsta afrek að sigra i öllum skákum sinum, sjö að tölu. Liklega eru liðsmenn Búnaðar- bankans ekki sem ánægðastir með að ná ekki efsta sætinu. Fyrir siðustu umferð voru sveitir bankanna jafnar, en i henni fékk Búnaðarbankinn 1/2 v. minna en útvegsbankinn. Sveit Stjórnarráðsins sem sigr- aði i keppninni 1971 virðist eitt- hvað vera að gefa sig. Hún varð i 2.-3. sæti 1972 og nú i 3ja sæti. Friðrik Ólafsson fékk þó 6 l/2v. á fyrsta borði, gerði aðeins jafntefli við Guðmund Sigurjónsson sem tefldi á fyrsta borði fyrir Orator. Sex neðstu sveitir i A-flokki missa sæti sin þar og falla niður i B-flokk, og 6 efstu sveitir B-flokks flytjast upp i A-flokk. Þær eru: 1. Tryggingamiðstöðin 19 1/2 v. 2/Orkustofnun B-sveit, Unglinge- flokkur TR, Vélsmiðjan Kvarði 18 v. 5- 6. Stjórnarráðið B-sveit, Isal A- sveit 17 1/2 v. A fimmtudaginn s.l. fór fram hraðskákkeppni A-flokks og þar tefldu að auki nokkrar sveitir sem ekki tóku þátt i aðalkeppninni. Sveitirnar voru 30 og tefldar 7 umferðir og tvær skákir á mann i hverri. Tefldi þvi hver sveit 56 skákir. Úrslit urðu þessi: 1. Búnaðarbankinn A-sveit 41 v. 2. Útvegsbankinn A-sveit 5 35 1/2 v. 3-4. Stjórnarráðið A-sveit, Iþróttafél MH 34 1/2 v. 5. Menntaskóiinn v/Hamrahlið (Kennarar) 33 1/2 v. 6- 7. Harpa/Gutenberg 32 v. 6-7. Heilv. Guðm. Arasonar 32 v. 8. Orkustofnun 31 1/2 v. 9-10. Orator, Barnaskólar Reykjavikur A-sveit 30 1/2 v. 11-12. Veðurstofan, Skrifst. borgarverkfræðings 30 v. Skákþíngi Kópavogs lokið t meistaraflokki urðu efstir þeir Björn Sigurjónsson og Ingvar Ás- mundsson með 6 v. af 8 möguleg- um. Björn er Kópavogsbúi og. telst hann þvi skákmeistari Kópavogs 1973, en þeir Ingvar munu tefla fjögurra skáka einvigi um rétt til að tefla i landsliðs- flokki á skákþingi tslands 1973. I 3.-4. sæti urðu Freysteinn Þor- bergsson og Jóhann Þórir Jóns- son með 5 v. t 5.-6. sæti urðu Geir- laugur Magnússon og Jónas Þor- valdsson með 4 v. I II. flokki varð Þórarinn Björnsson efstur með 7 1/2 v. úr 9 skákum, og i unglingaflokki Sverrir Árnason með 7 v. úr 8 skákum. Hér kemur svo ein stutt og skemmtileg skák sem tefld siðasta ólympiumóti. var á HVtTT: RANTANEN SVART: DENMAN Sikileyjarvörn. 1. e4 c5 2. Rf3 d6 3. d4 cxd4 4. Rxd4 Rf6 5. Rc3 a6 6. Bg5 e6 7. f4 Be7 8. Df3 Dc7 9. 0-0-0 Rbd7 10. Be2 b5 11. BxR RxB Ef ll....gxB þá 12. Dh5 Rc5 13. Bf3 Bb7 og 14. f5 og hvitur stend- ur betur. 12. e5 Bb7 13. exR BxD 14. BxB Hc8 I þessari stöðu er talið betra að leika Bxf6. Framhaldið gæti þá orðið 15. BxH BxRd4 16. HxB d5 17. Bxd5 exB 18. Hel Kf8 19. Rxd5 Dc5 20. e3 g6 21. He5 Kg7 22. f5 og hvitur stendur heldur betur. 15. fxB I)b6 Léki svartur l5....Dxe7 kæmi 16. Rf5 og hvitur vinnur. 16. Hhel h5 17. f5 e5 18. f6 Nú er hvitur með unnið tafl. Ef svartur leikur 18....exR þá 19. fxg7 Hg8 20. Rd5 og hótar bæði að drepa drottninguna og að máta á f6. Léki hann hins vegar 18....HxRc3 kæmi 19. fxg7 Hg8 20. Rf5 og hvitur vinnur. 18........................... g6 19. Hxe5 dxH 20. Bc6 Nú verður svartur að drepa biskupinn og hvitur drepur aftur með riddara. Hótunin er þá að leika Hd8 og máta, og við þvi er engin vörn til. Svartur gefst upp. Jón G. Briem. PIERPONT-úrin handa þeim, sem gera kröfur um endingu, nákvæmni og fallegt útlit. Kven- oq karl- manns- úr af mörgum gerðum og verð- um. SIGURÐUR TOMASSON, úrsmiður Skólavörðustíg 21 sími 13445 ^ INDVERSK UNDRAVERÖLD lil JJ Nýjar vörur komnar, m.a. ilskór, útskorin borö, vegghillur, vegg- stjakar, könnur, vasar, borðbjöllur, öskubakkar, skálar og mangt fleira. Einnig reykelsi og reykelsiskerin f miklu úrvali. Gjöfina sem veitir varanlega ánægju fáið þér i JASMIN Laugavegi 133 (við Hlemmtorg) TEIKNARI JEAN EFFEL — Þú skalt sækja um stöðuna. Hann er alveg dauðupp- gefinn eftir einyrkjabaslið nú upp á siðkastið. — Hafið þér nokkur meðmæli til starfans?

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.