Þjóðviljinn - 04.04.1973, Síða 15

Þjóðviljinn - 04.04.1973, Síða 15
Á bannsvæði Framhald af bls. 1. þvi Þjóöverjarnir aö brjóta viður- kennda alþjóðareglu. Og ekki er vitað til þess, aö Bretar eða bjóð- verjar hafi hingað til véfengt þennan rétt. Þetta hefur verið al- gerlega ljóst i öllum okkar við- ræðum. Við Jón Arnalds vorum strax sammála um að ekki kæmi til mála að hefja viðræður við þetta fólk, eins og málin stóðu. Að sjálf- sögöu lá beinast við að ætla, að með svo einstakri ósvifni, eins og þarna var á ferðinni væri ætlunin að spilla gjörsamlega öllum sam- komulagsmöguleikum. Við Jón fluttum svo öörum nefndarmönnum þessi ótiöindi og lýstum þvl sjónarmiði okkar, að viðræður gætu þvi aðeins hafizt, að allir togararnir héldu út af svæðinu. — Þjóöverjarnir komu nú þarna á vettvang, og töldu að sér væri ókunnugt um þennan atburð á miðunum. Við höfðum svo samband við rikisstjórnina, eða forsætisráð- herra fyrir hennar hönd og lýsti hann þeirri afstöðu rikisstjórnar- innar að sjálfsagt væri að hefja engar viðræður meöan togararnir héldu ekki burt af umræddu svæði. Varð þvi ekki af fundi. — En okkar siðustu orð voru þau, aö þvi aðeins kæmu viðræður til greina, að landhelgisgæzla okkar hefði gefið út yfirlýsingu um aö allir togararnir væru farnir. Klukkan 3 munu togararnir svo hafa verið farnir að tinast út fyrir. Húsnæðismál Framhald af bls. 6. hverja stefnu, sem höfð yrði að leiöarljósi við samningu nýrra laga. Aö lokum benti Ragnar þing- mönnum á, að býsna margir myndu fylgjast meö viðbrögðum Alþingis i þessu máli. Bjarni Guönason (SFV) sagðist vilja itreka meginatriðin i ræðu Ragnars. Bjarni er ásamt Jónasi Arnasyni og Stefáni Gunnlaugs- syni(A) i minni hluta allsherjar- nefndar i þessu máli. Bjarni ræddi þrjár leiðir, sem til greina kæmu til að styðja fjárhagslega við efnalitið fólk eða leigjendur. t fyrsta lagi að veita leigjend- um skattfriðindi i hlutfalli við greidda húsaleigu, og myndi sá háttur án efa stuðla að þvi, að leiga yrði rétt upp gefin til skatts. t öðru lagi að veita opinberan húsaleigustyrk, en sá háttur er viða hafður á á Norðurlöndum. Og i þriöja lagi að hefja skipulega byggingu leiguhúsnæðis. En þvi miöur, sagöi Bjarni, rik- ir hér i þessum málum lögmál hins frjálsa markaöar. Atkvæðagreiðslu var frestað, enda fáir þingmenn við. Tryggingafélög Framhald af bls. 6. in gjörsamlega úrelt. t greinar- gerð nefndarinnar með laga- frumvarpinu er þess getið, að nú- gildandi löggjöf um trygginga- starfsemi á Norðurlöndum hafi verið athuguð rækilega og höfð til Hjartans þökk fyrir hlýhug og vinsemd við andlát og jarð- arför móður okkar, tengdamóður og ömmu, FRÚ LÁRU Ó. KOLBEINS, Skeiðarvogi 157, Rvik. Sérstaklega þökkum við læknum og hjúkrunarliöi Landa- kotsspitala og öllum, sem voru henni vel I sjúkralegu hennar. Börn, tengdabörn og barnabörn. Móðir okkar HRÓÐNÝ JÓNSDÓTTIR andaðist að Hrafnistu 2. april. Jarðarförin ákveðin siðar. Arnþrúður Jónsdóttir Kristján Jónsson Svava Jónsdóttir hliðsjónar viö samningu frum- varpsins. Fjöldi tryggingafélaga t greinargerö með frumvarpinu koma fram athyglisverðar upp- lýsingar um fjölda tryggingafé- laga á landinu. Samkvæmt yfirliti þar eru 19 stofnanir, sem reka tryggingastarfsemi samkvæmt sérstökum lögum# þar af 9 báta- ábyrgðarfélög. Þá rekur 21 hluta- félag, 3 gagnkvæm félög og eitt félag á vegum bifreiðatrygginga- félaganna vátryggingarstarf- semi, en af hlutafélögunum er eitt þrotabú. Þá eru skráð i firmaskrá 8 erlend félög, en starfsemi þeirra er hverfandi og a.m.k. 4 munu hætt starfsemi, þótt þau hafi ekki verið afmáð úr firmaskrá enn. Sagt er, að þetta yfirlit sé vart tæmandi, en þeir aðilar, sem ekki eru meðtaldir, muni að likindum reka hverfandi starfsemi og ekki skipta máli. Sköpun heimsins Framhald af bls. 9. enda þótt fáir stjarnfræðingar tryðu á Steady State kenninguna, var hún ekki afsönnuð. Eina ráðið var að halda áfram með mælingar Ryles og Clarkes, en Hoyle hélt þvi fram, að frávik frá hans eigin kenningu lægju innan við tölfræðilega óvissu þeirra mælinga. En nú hefur bandariski stjörnu- fræðingurinn Maarten Schmidt endurbætt mælingar þeirra Ryles og Clarkes og reiknað nákvæm- lega út frávikin. Útreikningar Schmidts sýna, að frávik milli athugunar á fjarlægum vetrar- brautum og spádóma kenningarinnar um stöðugt ástand er 500%. En hið tölfræði- lega frávik er aðeins 20% — og er þessi niðurstaða bersýnilega i andstöðu við Steady State kenninguna. Af þessu leiðir m.a. að hið virta enska náttúrufræðitimarit Nature hefur þegar birt eftirmæli um kenningu Hoyles. Svo virðist sem 25 ára gamalli deilu sé að fullu lokið. (Eftir Information) Athugasemd Framhald af bls. 6. hlutfallið yrði 30% að þvi er varðaði leikskólana. Þessi til- laga Ragnars kom til at- kvæðagreiðslu á mánudaginn og var hún þá felld með 9 at- kvæðum gegn 7, enda voru tveir stjórnarþingmenn fjar- verandi og tveir greiddu ekki atkvæði. Þetta er nauðsynlegt að Miðvikudagur 4. april. 1973 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 15 fram komi til skýringar á fréttinni i gær — en kjarni hennar — að tilraunir ihalds- ins til að eyðileggja máliö mistókust — er að sjálfsögðu réttur. DAS-húsið Framhald af bls. 16. — Hafiö þiö áður fengið vinning hjá DAS? Jóhann spyr konu sina: — Jú, einu sinni fimm þúsund króna vinning. — Viö höfum veriðmeðfrá byrjun og eigum 5 eða 6 miða. — Ætlið þið að flytja i slotið? — Það er nú ekki búið að ráðslaga mikið, en ég á einn dreng, sem vantar húsnæði eins og er, og ætli maður reyni ekki aö bjarga honum i bili að minnsta kosti. — Er hann einkabarn? — Nei, við eigum sex syni. Einn er byggingafræðingur, annar læröi mjólkurfræöi á sinum tima og vinnur nú hjá tollinum, þriðji er hér heima og býr i sama húsi og við. Hann er bilasmiður. Sá fjórði er vélstjóri og er á leiðinni að sækja nýjan togara til Japans, fimmti er bakari og starfar hér I Borgarnesi, og sá sjötti og yngsti er nú i Kaupmanna- höfn að læra ritvéla- og tölvu- viðgerðir. — Hafið þið hjónin farið utan? — Einu sinni til Kaup- mannahafnar að heimsækja elzta strákinn okkar þegar hann var við nám. Jóhann vinnur nú hjá mjólkurbúinu, við ýmsar við- gerðir, en hann er rafsuöu- maður að iðn, fæddur að Höfða i Eyjafirði, en fluttist til Borgarness áriö 1930 þar sem hann kynntist síðar eiginkonu sinni. sj. Málverkauppboð I dag heldur Kristján Fr. Guð- mundsson listaverkasali mál- vérkauppboð i Súlnasal Hótel Sögu, og hefst það klukkan 17. A uppboðinu eru 69 númer, og kennir þar margra grasa. Eru það verk eftir 41 málara og þeirra á meðal eru Kjarval, Þorvaldur Skúlason, Jón Engilberts, Sigurð- ur málari, Veturliði Gunnarsson o.fl. Verkin verða til sýnis aö Hótel Sögu i dag. Tiðindalaust i Eyjum i gær — Það er allt tiðindalaust hér i Eyjum, sagði starfsmaður slökkviliðsins þar, er við óvænt náðum simasambandi i gær. — Allar dælurnar eru komnar i gagnið, og það er sprautað á hraunið niður við höfnina og við Bólstaöarhlið, sem er við Austur- veg, og heldur kælingin hrauninu i skefjum. Hjá slökkviliðinu i Eyjum starfa nú 27 menn að öllum jafn- aöi, allt Eyjabúar, og er starf þeirra fyrst og fremst við kæling- una og að skoða húsin á gassvæð- unum. 1 gær var litiö gos og ekk- ert öskufall, og ekkert hús varð hrauninu að bráð. t gær komu til Eyja plastpipur frá Reykjalundi, samtals eins kilómetra langar. sj. Um 5 miljónir frá Kanada Forsætisráðherra hefur borizt bréf frá Canada Iceland Founda tion ásamt ávisun að upphæð 5 25.000.00 (jafnvirði isl. kr 2.413.750.00*), sem félagið hefur safnað i Kanada vegna náttúru hamfaranna i Vestmannaeyjum Fé þetta hefur verið afhent Við lagasjóði til ráðstöfunar. Aöur höfðu borizt $ 2.640.00 frá þjóðræknisfélagi Islendinga i Vesturheimi, sem hóf söfnunina en bað Canada Icelanc Foundationsiðan að annast fram- hald hennar. Samtökin hafa ákveðið að halda áfram fjársöfnun i Kanada vegna náttúruhamfaranna i Vest- mannaeyjum. PRAG 3/4 — Svoboda forseti Tékkóslóvakiu skipaði i dag Zdovzk Roskot sendiherra Tékka i Noregi og tslandi. Núverandi sendiherra sem hefur aðsetur i Osló, Jozef Kriz, verða fengin önnur verkefni, segir i sama fréttaskeyti. LONDON 1/4 — Bretar fengu i 1,-apriWgjöf frá stjórninni og Efnahagsbandalaginu verðauka- skatt, 10%, sem leggst á allar vörur. Hann leysir eldri tegundir neyzluskatta af hólmi, og segir stjórnin að vöruverð muni ekki hækka af þeim sökum. MJÓR ER MIKILS^ § SAMVINNUBANKINN EITT MORGUNBLAÐ ER EKKINÓG Það eru að minnsta kosti tvær hliðar á hverju máli. Fjögur dagblöö af fimm sem gefin eru út í landinu sýna aöeins aðra hliö málanna. Fimmta blaöiö Þjóöviljinn sýnir hina hliðina. Þess vegna er ekki nóg að kaupa eitt blað. I I I Ég undirritaður óska eftir að gerast . ■ áskrifandi að Þjóðviljanum I Nafn.............................. I Heimili...................................... I Sendist Þjóðviljanum, Skólavörðustig 19, Reykjavík. l l KAUPIÐ EINNIG ÞJÓÐVILJANN. MOÐVIUINN VOPN í BARÁTTU VINNANDI FÓLKS SÍMI 17500. -

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.