Þjóðviljinn - 10.04.1973, Síða 5
Þriðjudagur 10. aprfl 1973. ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 5
Helgi Seljan, alþingismaður:
í TILEFNI HRINGVEGAR
Næsta ár minnumstvið 1100 ára
afmælis íslandsbyggðar. Sem
betur fer mun nú afráðið, að ekki
skuli efnt til þeirrar vafasömu
fjöldahátiðar, sem stefnt var að á
Þingvöllum og hefði hæglega get-
að á annan veg farið en bjart-
sýnismenn álitu.
Þessa afmælis er hins vegar
sjálfsagt að minnast með marg-
vislegum öðrum hætti m.a. með
nýrri sók'n i landgræðslu- og land-
verndarmálum okkar.
Eitt er þó það mál, sem getur
sett meiri svip á þetta merkisár
en allt annað, sem getur einmitt
gefið þvi nafn siðar i sögunni,
fyrir annað og meira en 1100 ára
afmælið eitt.
Hér á ég við hringveginn svo-
kallaða austur yfir Skeiðarár-
sand, sem allar likur benda til, að
hægt verði að opna til umferðar
sumarið 1974.
Allar framkvæmdir hafa frá
upphafi gengið sérstaklega vel,
og þeir aðilar, sem þarna vinna
einkum að, Seðlabankinn og
vegamálastjórn, stefna að þvi, að
opnun þá verði að veruleika.
Meginforsendan er þó sú, að
fólkið i landinu skilji nauðsyn
þessa verks og leggi þvi lið sitt i
verki með þvi að ávaxta fé sitt i
þágu þessara framkvæmda. Hér
á ég auðvitað við happdrættis-
skuldabréfin, sem nú eru öðru
sinni boðin út.
Það er þvi sannarlega á valdi
fólksins i landinu, hvort
hringvegurinn verður staðreynd
á næsta ári.
Allir muna, hver viðbrögð fólks
voru i fyrra, þegar til þess var
leitað með sölu happdrættis-
skuldabréfa upp á 100 miljónir
króna.
Þessi bréf voru keypt á svip-
stundu og viðbrögðin sýndu, að
‘lirtölumenn i þessum efnum áttu
harla litinn hljómgrunn meðal
almennings, og svo trúi ég, að enn
muni reynast.
Ekki skal ég neita þeirri miklu
framför fyrir okkur Austfirðinga,
sem þessi framkvæmd er i sam-
Helgi Seljan
göngumáium okkar og rýfur þá
miklu einangrun, sem við höfum
átt við að búa vetrarlangt i sam-
göngum á landi. En hitt dylst vist
fáum, að þetta er stórkostleg
samgöngubót fyrir okkur öll og
hlýtur að valda gerbreytingu á
ferðamöguleikum fólks almennt.
Það er sizt ofmælt, þegar sá
mæti áhugamaður um þetta mál,
Eysteinn Jónsson, hefur sagt, að
hér yrði um hreina byltingu að
ræða i samgöngumálum þjóðar-
innar allrar, nú sé landið eins og
tagi i samgöngulegu tilliti, en við
þessa framkvæmd yrðu þar á
alger umskipti.
Fáar framkvæmdir munu þvi
marka heilladrýgri spor i sam-
göngusögu okkar og um leið
stuðla meira að hagstæðri
byggðaþróun en flest annað.
A það hefur verið bent, hve hér
sé um kostnaðarsama fram-
kvæmd að ræða, sumir blöskrast
jafnvel yfir óþarfa bruðli og
eyðslu. Auðvitað fylgir fram-
kvæmdinni mikill kostnaður, slik
stórvirki verða ekki unnin án
mikils fjármagns.
En af þvi atriði skulu menn ekki
hafa áhyggjur það fjármagn skil-
ar sér rikulega aftur og það fyrr
en siðar.
Og að þvi mætti gjarnan huga,
að þessi framkvæmd er jafndýr
Keflavikurveginum, ef umreikn-
að er til núgildandi verðlags.
1 fjölmiðlum hefur fram-
kvæmdin sjálf verið rækilega
rakin og frá henni greint, svo við
það hef ég engu að bæta.
En með þessu fátæklega grein-
arkorni vildi ég aðeins vekja enn
frekari athygli á þessari þörfu
framkvæmd og um leið hvetja
fólk, ekki sizt Austfirðinga, til
þess að leggja málinu verðugt lið-
sinni með kaupum á happdrættis-
skuldabréfunum, sem nú eru boð-
in til sölu.
Þeim peningum er ekki aðeins
vel varið, hvað snertir góða og
þarfa f járfestingu, þeir eru einnig
vel tryggðir fyrir framtiðina og
þeir gefa einnig möguleika til
þess að færa eigandanum kær-
kominn vinning.
Og siðast en ekki sizt er það
ekki litils virði að hafa lagt sitt lóð
á vogarskálina til þess, að árið
1974 verði minnisstætt i þjóðar-
sögu okkar einmitt með opnun
hringvegar, sem verðugs minnis-
varða um djarfhuga framtak is-
lenzkrar þjóðar.
Sjúkraliði óskast
Á röntgendeild Landspitalans er laus
staða fyrir sjúkraliða (karlmann).
Upplýsingar gefur yfirhjúkrunarkona
röntgendeildar, simi 24160.
ReykjaVik, 6. april 1973
Skrifstofa rikisspitalanna.
Laus staða
Staða deildarstjóra byggingardeildar menntamálaráðu-
neytisins er laus til umsóknar. Meðal verkefna deildarinn-
ar er að vinna að áætlanagerð og umsjón með undirbún-
ingi skólabygginga, gerð fjárhags- og framkvæmdaáætl-
ana, skipulagningu skólamála o.fl.
Æskilegt er, að umsækjandi hafi háskólamenntun og
reynslu á sviði áætlanagcrðar og skipulagningar.
I.aun samkvæmt launakerfi starfsmanna rlkisins.
Umsóknir, ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf,
sendist menntamálaráöuneytinu fyrir 2. maí 1973.
Menntamálaráðuneytið,
4, april 1973.
'xííir
VERÐTRYGGT
HAPPDRÆTTISLÁN RÍKISSJÓÐS
SKULDABRÉFB
MERDTiRYGGT
Þeir sem kaupa skuldabréf í hinu verðtryggða
happdrættisláni ríkissjóðs eiga:
Sparifé sem heldur verðgildi sínu,
happdrættisbréf sem gilda í 10 ár án endurnýjunar,
þátt í að Ijúka hringvegi um landið._________________
Verð hvers bréfs er 1000 kr. Að tíu árum liðnum
verða þau endurgreidd me3 verðbótum sem miðast við
hækkun framfærsluvísitölu þetta tímabil.
Bréfin eru númeruð og gilda sem happdrættismiði.
Dregið er árlega um 344 vinninga
samtals að upphæð 9,1 milljón kr., fyrst 30. júní 1973.
Hæstu vinningar eru tveir á 1 milljón hvor.
Vinningar eru skattfrjálsir og skuldabréfin
framtalsfrjáls.
Happdrættislánið verður notað
til að Ijúka einu erfiðasta verkefni
í íslenzkri vegagerð: vega- og brúa-
lagningu á Skeiðarársandi. Með
opnun hringvegar um landið þjóð-
hátíðaráríð 1974 hefur þjóðin
sameinazt um að Ijúka verki sem
lengi verður minnzt.
Brúargerð er að Ijúka á tveimur
af þremur stórfljótum á Skeiðarár-
sandi. Unnið er þar við gerð vega
og varnargarða. Síðasti áfanginn
er framundan og metnaðarmál að
Ijúka honum að ári. Þá fá skuldabréf
í happdrættisláni ríkissjóðs nýtt
gildi sem vegabréf um ísland.
Einnig opnast ferðafólki nýr
heimur austan sandsins. í Öræfum
skartar íslenzk náttúra sínum
tignarlegustu andstasSum. SEÐLABANKJ jSLANDS
SÖLUSTAÐIR: Bankar, bankaútibú
og sparisjóðir um allt land.
Sala hefst þriðjudaginn 10. apríl.