Þjóðviljinn - 10.04.1973, Qupperneq 13
Þriftjudagur 10. apríl 1973. ÞJÓDVILJINN — SIÐA 13
Hann lét þá lesa simskeytið.
Thornburg blistraði, þegar hann
3á hve hátt lausnargjaldið var, og
Vecchio roðnaði af reiði. — Þessi
bölvuð svin, tautaði hann. — Þeir
láta sér ekkert fyrir brjósti
brenna. Hub einn hafði ekkert um
þetta að segja. Hann las sim-
skeytið þegjandi og fékk Andy
það aftur.
— Rock, þú veizt betur en ég
hvernig efnahagur minn er, sagði
Andy. — A ég hundrað þúsund?
Vecchio setti stút á munninn. —
Ég gizka á — já — sennilega. Að
visu ekki i reiðufé, en...
— Hve fljótt er hægt að útvega
það?
— Það veit ég ekki. Megnið af
þessu er i fasteignum, hiutabréf-
um og verðbréfum. Það tekur
sinn tima að koma þvi i verð, að
minnsta kosti rétt verð. Maður
verður að hafa augun hjá sér.
Skákþraut
Þessi staða kom upp i skák
þeirra Fairhurst og Reshewsky i
Hastings 1938. Reshewsky sem
var með svart sá ekki aö hann gat
mátað i 7 leikjum. Hvernig fer
hann að þvi?
Lausn á dæmi no 21.
1. Bd3ef svartur leikur RxH þá
kemur 2. Rh5 gxR 3. Bxh7 og hvit-
ur mátar. Ef svartur leikur HxR
kemur 2. Rh5 og hvitur mátar
eins og áður!
Lausn á síðustu
krossgátu
1 = F, 2 = L,3 = A, 4 = K, 5 = R, 6 = 1,
7 = H, 8 = J, 9=0, 10 = N, 11 = S,
12 = V, 13 = fi, 14 = 0, 15 = Á,
16 = M, 17 = T, 18 = t, 19=0, 20 = U,
21 = E, 22 = G, 23 = D, 14 = Æ,
25= P, 26 = Y, 27 = 0.
— Við höfum engan tima til
þess. Geturðu útvegað peningana
fyrir annað kvöld?
Vecchio þurrkaði lófana á
buxunum. — Ég hef aldrei reynt
neitt slikt fyrr. Mér dettur i hug,
að það væri ekki nema sanngjarnt
að fjármálastjóri Lissu útvegaði
helminginn, svo að þú þyrftir ekki
að leggja þá alla fram. Þetta
gerir þig allslausan Andy, og þú
14
yrðir aux pess skuldugur upp
fyrir eyru.
— Það skiptir engu máli. Það
er Drew sem á i hlut.
— Ég veit það, en með tilliti
til...
— Ég skipa þér hér með að
selja það sem þú getur og fá lánað
það sem á vantar. Útvegaðu
peningana, þótt ég verði skuld-
ugur til æviloka. Andy hækkaði
róminn. — Og gerðu þetta i
skyndi.
— Já, já, sagði Vecchio. — Ég
fer með morgunlestinni héðan og
byrja strax að ganga i skrokk á
fólki. En það er kraftaverk sem
þú heimtar af mér.
— Já, það er nú einmitt það. Ég
bið um kraftaverk.
Augnaráð Vecchios varð fjar-
rænt; hann var farinn að ihuga
hina ýmsu möguleika. — Ég verð
að kynna mér þetta frá sjónar-
horni skattayfirvaldanna. Það
hljóta að vera einhver rað til að
afskrifa þetta sem persónulegt
tap... Hann fór burt og var enn að
tauta fyrir munni sér. Þrátt fyrir
sýnilega tregðu Vecchinos, vissi
Andy að hann myndi útvega
peningana. Spurningin var
aðeins: tækist honum það i tima?
Ræningjarnir höfðu sett frest —
annað kvöld — og þótt þessi
frestur kynni að verða teygjan-
legur, myndi sérhver töf aðeins
auka á þá hættu að þeir gerðu
eitthvað i fljótræði. Þeir gætu
ákveðið að stytta Drew aldur til
öryggis.
Andy sneri sér að Thornburg. —
Ed, ég vil að þú segir við Skoiman
að ég ætli að syngja á morgun
eins og ráð var fyrir gert. En þó
aðeins einu sinni og eins seint og
unnt er.
— Það verður i lagi. Skolman
verður ánægður með það sem
hann getur fengið. Og þegar við
segjum honum ástæðuna...
— Þú segir hvorki honum né
neinum öðrum nokkurn skapaðan
hlut.
Thornburg benti á simskeytið.
— Hvað um þessa vögguvisu?
Hún er ekki á söngskránni þinni.
— Eiginlega er hún það. Við
Fox höfum verið að vinna að
henni fyrir nýju plötuna mina.
— Það er mjög athyglisvert,
sagði Hub hljóðlega. Hann hafði
staðið við dyrnar, gleymdur eins
og húsgagn i bakgrunninum. Nú
litu þeir á hann. — Það er reyndar
furðulegt, að þeir skuli einmitt
velja það lag. Það er eins og þeir
hafi vitneskju úr innsta hring.
Fram að þessu hafði Andy
hugsað um ræningjana sem ,,þá”
andlitslausa og framandi. Honum
brá i brún þegar Hub gaf i skyn,
að ,,þeir” gætu verið einhverjir
nátengdir honum. Hann svaraði
ósjálfrátt: — Það er óhugsandi.
— Hve margir vissu, að þú
varst að æfa þetta lag?
— Það veit ég ekki'. Fox að
sjálfsögðu og Lou — og auðvitað
Lanny lika... Og sennilega hljóm-
sveitin. Andy hristi höfuðið. —
Það var ekkert leyndarmál. Hver
sem var hefði getað komizt að
þvi.
— Já, það getur verið tilviljun.
En efinn hafði fest rætur i huga
hans. Meðan Andy stóð þarna
þögull reyndi hann að finna i
félagahópnum andlit einhvers,
sem gæti verið fjandmaður. Það
tókst ekki. Hann þekkti þá alla
svo vel. Þeir voru allir hafnir yfir
grun. Hann sagði reiðilega: —
Það hlýtur að vera tilviljun.
Enginn af okkar mönnum myndi
gera annað eins.
— Það segirðu satt, Andy,
sagði Thornburg. — Guð veit að
þú átt eintóma vini meðal okkar.
Hub sagði ekkert. Thornburg
bætti við: — Og fyrst við erum að
tala um vini, á ég þá að sækja
blaðamennina?
— Ég fer fram. Það er fljót-
legra.
Hub opnaði dyrnar og Andy
gekk fram á ganginn. Blaða-
mennirnir höfðu dreift sér, sumir
voru setztir á gólfið, aðrir himdu
upp við veggina og létu sér sár-
leiðast. Koma Andys hafði sömu
áhrif og hringing i vekjara-
klukku. Þeir ruddust að honum og
allir i senn reyndu að vekja
athygli hans.
— Rólegir,piltar, sagði Thorn-
burg aðvarandi. — Einn i einu.
Gefið manninum tækifæri.
t þögninni sem fylgdi á eftir,
sagði Andy: — Mér þykir leitt, að
þið hafið þurft að biða svona
lengi, en ég hef ekki getað talað
við ykkur fyrr. Ég veit að þið
hafið verið að vonast eftir yfirlýs-
ingu frá mér og hér kemur hún.
Við Lissa erum bæði harmi lostin
yfir þvi sem gerzt hefur. Frú
Ruick var ekki aðeins i þjónustu
okkar, heldur einnig vinkona.
Lögreglan er að rannsaka málið
og ég efast ekki um að henni tekst
að upplýsa þennan hræðilega
harmleik.
Þegar hann þagnaði, spurði
einn blaðamannanna hárri
röddu: — Hvað um barnið?
— Ég hef ekkert um það að
segja.
— Nema hvað, tautaði einhver.
— Við vorum að frétta að kraf-
izt hefði verið lausnargjalds.
Ætlið þér að greiða það?
Andy valdi orð sin af natni. —
Það eru vissar spurningar, sem
ég get ekki svarað að svo stöddu.
Mér þykir það leitt.
Þeir voru ekki reiðubúnir að
taka synjun hans með geðprýði.
Þreytandi biðtiminn hafði gert þá
fjandsamlega og spurningar
þeirra voru frekjulegar. Af
hverju hafði Drews ekki verið al-
mennilega gætt? Hafði hann*heit-
ið verðlaunum ef ræningjarnir
fyndust? Hvern grunaði hann? Af
hverju var Lissa i felum? Var það
satt, að hún kenndi Andy um það
sem hafði gerzt? (Hann velti fyrir
sér, hvar þeir hefðu heyrt það).
Hvaða samband hafði verið milli
látnu konunnar og Tods Bake?
Andy fann að hann roðnaði og
svaraði stuttaralega: — Ég hef
ekkert að segja i sambandi við
son minn. Ég vildi óska að þið
vilduð sýna dálitla tillitssemi.
— Tillitssemi á að vera gagn-
kvæm. Það felst i orðinu.
Thorburg sagði sefandi: — Við
skulum semja frið. Andý vill
hjálpa ykkur eftir beztu getu, en
þetta er mjög viðkvæmt mál.
— Þér ætlið þá að semja við
ræningjana, greip einn frétta-
maðurinn fram i. — Hvað fara
þeir fram á mikiö?
Hún hvislaði aö Andy: — Viltu
losna við þá, herra Paxton?
Þriöjudagur 10. april
7.00 Morgunútvarp.
Veðurfregnir kl. 7.00. 8.15 og
10.10. Fréttir kl. 7.30, 8.15
(og forustugr. dagbl.) 9.00
og 10.00 Morgunbænkl. 7.45.
Morgunleikfimi kl. 7.50.
Morgunstund barnanna
kl. 8.45. Benedikt Arnkelsson
les sögur úr Bibliunni (2).
Tilkynningar kl. 9.30.
Þingfréttir kl. 9.45. Létt lög
á milli liða. Við sjóinn
kl. 10.05. Dr. Jónas Bjarnason
flytur fyrra erindi sitt um
fiskirækt i sjó (áður útv. i
júni i fyrra). Morgunpopp
kl. 10.45: Deep Purple
syngja og leika. Fréttir kl.
11.00. Hljómplöturabb
(endurt. þáttur Þ.H.)
12.00 Dagskráin. Tónleikar.
Tilkynningar.
12.25 Fréttir og veðurfregnir.
Tilkynningar.
13.00 Eftir hádegið. Jón B.
Gunnlaugsson leikúr létt lög
og spjallar við hlustendur.
14.30 Frá sérskólum i Reykja-
vik, XVI: Hjúkrunarskóli
tslands. Anna Snorradóttir
talar viö Þorbjörgu Jóns-
dóttur skólastjóra.
15.00 Miðdcgistónleikar. John
Ogdon leikur á pianó Sónötu
nr. 1 i d-moll op. 28 eftir
Rakmaninoff. Osian Ellis og
Sinfóniuhljómsveit
Lundúna leika Hörpukon-
sert nr. 74 eftir Gliére,
Richard Bonynge stj.
16.00 Fréttir.
16.15 Veðurfregnir. Til-
kynningar.
16.25 Popphornið.
17.10 Frainburðarkennsla i
þýzku, spænsku og
esperanto.
17.40 Útvarpssaga barnanna:
„Júlli og Dúfa” eftir Jón
Sveinsson. Freysteinn
Gunnarsson islenzkaði.
Hjalti Rögnvaldsson byrjar
lesturinn.
18.00 Eyjapistill. Bænarorð.
Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Tilkynningar.
19.20 Fréttasepgill.
19.35 Umhverfismál. Hjör-
leifur Guttormsson lif-
fræðingur talar um fræðslu
um umhverfisvernd.
19.50 Barnið og samfélagið.
Asgeir Sigurgestsson sál-
fræðinemi talar um börn og
f jölmiðla.
20.00 Lög unga fólksins. Sig-
urður Garðarsson kynnir.
20.50 Iþróttir. Jón Asgeirsson
sér um þáttinn.
21.10 Strengjakvartett nr. 4
eftir Béla Bartok. Végh-
kvartettinn leikur.
21.35 Hvað er mystlsk reynsla.
Sigvaldi Hjálmarsson flytur
erindi.
22.00 Fréttir.
22.15 Veðurfregnir. Lestur
Passiusálma (42)
22.25 Rannsóknir og fræði.Jón
Hnefill Aðalsteinsson fil. lic.
talar við Helgu Kress cand.
mag.
22.45 Harmonikulög. Conny
Sahm og Erling Gröndstedt
leika.
23.00 A hljóðbergi.
Rófuþjofarnir, rússnesk
þjóðsaga. Morris
Carnovský les i enskri
þýðingu eftir Amabel
William-Ellis.
23.35 Fréttir i stuttu máli.
Dagskrárlok.
Þriöjudagur lO.apríl
A að halda þjóðhátíð á Þingvöllum? nefnist umræðuþáttur sem
Guðjón Einarsson stýrir f sjónvarpi f kvöld. Þjóðhátiðarhald á
Þingvöllum hefur vcrið m jög umdcildur hlutur að undanförnu og
óteljandi félagasamtök hafa samþykkt yfirlýsingar með og þó
aðallega á móti slfkum tiltcktum. Það iná þvf búast við fjörugum
umræðum f kvöld.en i þættinum koma fram bæði talsmenn og
andstæðingar fjöldasamkomuhalds á Þingvöllum. Þátturinn
hefst að afloknum Ashton klukkan 21.25.
20.00 Fréttir,
20.25 Veður og auglýsingar.
20.30 Ashton-fjölskyldan. 48.
þáttur. Þýðandi Heba
Júliusdóttir. Efni 47. þáttar:
John Porter hefur fengið
ákafan áhuga á stjórnmál-
um og vinnur nú öllum
stundum á kosningaskrif-
stofu Verkamannaflokks-
ins. Þar vinnur Marjorie
kennslukona lika, og brátt
tekur að gæta nokkurrar af-
brýðisemi hjá Margréti.
Davið er óánægður með
starf sitt, en er þó ákveðinn
að þrauka, unz annað betra
býðst. Edwin er leiður á lif-
inu og getur ekki fyrirgefið
Tony Briggs, að hann skyldi
styðja föður sinn og sam-
þykkja sölu prentsmiðjunn-
ar.
21.25 Á að halda þjóðhátið á
Þingvöllum? Umræöuþátt-
ur i sjónvarpssal, þar sem
talsmenn og andstæðingar
fjöldasamkomu á Þingvöll-
um næsta sumar bera sam-
an bækur sinar. Umræðum
stýrir Guðjón Einarsson.
22.05 Hann Gagarin okkar.
Sovézk mynd, gerð i tilefni
alþjóðageimferðadagsins
12. april, en þann dag árið
1961 fór Júri Gagarin fyrst-
ur manna út i geiminn. Þýð-
ing myndarinnar er gerð á
vegum sovézka sendiráðs-
ins.
22.35 Dagskrárlok.
AUGLÝSINGASÍMINN
ER 17500. ÞJÓÐVILJINN