Þjóðviljinn - 30.05.1973, Page 3

Þjóðviljinn - 30.05.1973, Page 3
MiOvikudagur 30. mal 1973 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 3 Einar Agústsson utanríkisráðherra við erlenda fréttamenn ALMENNIN GSÁLITIÐ SNÝST GEGN NATO Hreki það ekki Breta út úr landhelginni Endurskoðun á her- stöðvasamningnum við Bandaríkin hefst bráðlega, sagði utanríkisráðherra við fréttamennina. Hún er gerð i þvi skyni að losna við her- inn, enda ættu nú að teljast friðartimar. Heimsástand- ið er þannig að það ætti að vera unnt að halda hlut- leysi, persónulega vona ég að þeir tímar séu skammt undan að hernaðarbanda- lög í austri og vestri hverfi úr sögunni. Vinsældir NATO hafa óðum dvínað hér áislandi siðustu daga. Ef NATO-ráðið reynist ófúst eða ófært um að hrekja Breta út úr land- helginni mun þess gæta i almenningsáliti hérlendis gagnvart bandalaginu. Þetta er útdráttur úr þeim svörum sem utanrikisráðherra, Einar Agústsson, veitti viö spurn- ingum erlendra fréttamanna i gær. Þeir fjölmenntu á almennan fund hjá ráöherranum og spurðu margs varöandi landhelgismálið og tengsl þess viö stefnu Islend- inga i utanrlkismálum aö ööru leyti. Ráðherrann skýröi frá þvi aö rikisstjórnin heföi ákveöiö aö skrifa forseta Oryggisráðsins bréf þar sein athygli er vakin á þeim ófriöi sem Bretar fara nú meö á hendur Islendingum. Margar spurningar tengdust þvi erindi sem fastafulltrúi Is- lands hjá Atlanzhafsbandalaginu NATO afhenti á ráösfundi þess i gærmorgun. Lagöi ráöherrann áherzlu á þaö aö landhelgisdeil- unni sem slikri væri alls ekki vis- aö til NATO, heldur væri þess krafizt aö bandalagiö sæi til þess aö 1. grein NATO-samningsins væri ekki brotin af einu stærsta rikinu gegn þvi minnsta. Vitan- lega heföu viöbrögö NATO viö Véladeií Samband iRMÚLA 3 SIM Úr sýningarbás Véladeildar S.Í.S. Fremst á myndinni er eldunarhellan sem hitar meö rafbyigjum. Véladeild S.Í.S. með nýjung á heimilissýningunni Tíðinda- laust í land- helginni Aö sögn Hafsteins Haf- steinssonar blaöafulltrúa landhelgisgæzlunnar i gær- dag, var allt tiöindalaust á þeim miöum sem landhelgis- brjótarnir voru að veiöum á með herskipavernd. Flotinn var á sömu slóðum og siöustu daga, fyrir Noröurlandi og s-a af llvalhak. Rafbylgjur yið matseld Véladeild S.l.S. kynnir nýja gerð eldavélarhellna á heimilis- sýningunni. Hún er þannig gerö aö rafbylgjur hita pottana á ör- skammri stundu.en sjálf eldunar- hellan gerir ekki meira en rétt volgna. Þetta tæki er frá banda- riska fyrirtækinu Westinghouse en S.t.S. sýnir mörg fleiri verk- færi þaöan, s.s. grillofna, þvotta- vélar, uppþvottavélar, örbylgju- ofn, frystikistur, isskápa o.m.fl. Westinghouse hefur skapað sér Bjarnarey VE var tekin í landhelgi Nýja skipiö hans F.inars „ríka” sem smíöaö var i Slippstöðinni á Akurcyri og afhent var f vetur, Bjarnarey VE, var tekin að ólög- legum veiöum 0,7 sjómilur innan viö fiskveiðimörkin í fyrradag. Þaö var Arvakur sem tók Bjarn- areyna og færði hana til Þorláks- hafnar. Sjópróf fóru fram i þessu máli i gær,og siödegis kvað sýslumaður- inn i Arnessyslu upp dóm yfir skipstjóranum. Hann var dæmd- ur 160 þús. kr. sekt og afli og veiö- arfæri gerð upptæk. Skipstjórinn játaöi aö hafa verið fyrir innan þegar hann var tekinn, en sagði aö hér heföi verið um algert slys aö ræöa, en ekki ásetningsbrot. Hann heföi haldið sig vera fyrir utan mörkin. —S.dór mikla frægð fyrir ýmsar nýjung- ar i gerð heimilistækja og þykja vörur þessa fyrirtækis sérstak- lega vandaðar. Annars er véladeildin meö 3 bása á þessari sýningu, eldhús- tæki i tveimur þeirra, og hinn þriðji er helgaöur saumaskapn- um eingöngu. Þar sýnir S.l.S. saumavélar frá Singer, en þær eru nú 70% af heimsframleiðsl- unni á þessum markaöi. Auk heimilistækja frá þessum tveimur stórfyrirtækjum sýnir S.I.S. vörur frá þýzka fyrirtækinu Bauknecht. Það eru aðallega frystikistur og isskápar sem þaö fyrirtæki framleiöir, og eru kæli- skáparnir á mjög góöu verði. Þá má nefna frystikistur frá norska fyrirtækinu Elstar en þær eru framleiddar i 4 stæröum. Að lokum er rétt að nefna hina ódýru þvottavél frá Frigidaire.en hún er alsjálfvirk og skemmti- lega útbúin. Hún tekur allt að 5 kg af þurrum þvotti og þvær eftir 10 sjálfvirkum þvottakerfum. Is- lenzkur leiðarvisir fylgir með vél- inni auk þess sem þvottakerfis- textinn á vélinni er á islenzku. Frigidaire er itölsk gæðavara og mun vera óhætt að mæla með þessari vél. þessari sjálfsögöu kröfu áhrif á almenningsálit i landinu og aö- geröir stjórnvalda, og visaöi ráö- herrann til þess aö flestir ræöu- manna á útifundi ASl heföu taliö, aö ef NATO liöi innrásina værum viö tilneydd aö endurskoöa af- stööu okkar til þess sama banda- lags. Virtust fréttamennirnir hafa einna mestan áhuga á þessum þætti málsins og var ráðherrann þaulspuröur svipaöra spurninga og hann þegar haföi svaraö. Ekki kvaöst ráöherrann getaö svaraö til um þaö, hvaö NATO-ráöið heföi marga daga til aö ýta Bret- um út, þeir yröu ekki mjög marg- ir, né kvaö hann rikisstjórnina hafa ákveöiö sinar aögeröir ef svo færi aö hernaöarofbeldiö héldi áfram. Ef NATO hins vegar kæmi þvi til leiöar aö Bretar færu út meö herskip sin mundi bandalagiö hækka við þaö i áliti hjá Islend- ingum, en þaö heföi ekki nein áhrif á þá endurskoöun á her- ^töövasamningnum viö Banda- rikin sem nú stæöi fyrir dyrum. Ráöherrann kvöast ætla aö endurskoöun hans yröi hafin mjög bráðlega eöa aö öllum lik- indum i næsta mánuöi. Hann lagði áherzlu á það aö „endur- skoðun” væri i senn tækniyröi samningsins sjálfs um ákveöinn 6 mánaða frest, áöur en til upp- sagnar kæmi, og timi til athugun- ar á öllum hliöum málsins. Til- gangur þess að máliö er nú skoö- að er sá, aö tslendingar vilja losna við herinn og koma á þvi upphaflega ástandi að hér sé eng- inn her á friöartimum. Margt benti til þess aö nú séu friöartim- ar, og nefndi ráöherrann fjölda atriða i sambandi viö minnkandi spennu og slökun i alþjóðamál- um. Hann kvaðst alls ekki vera viss um þaö aö Atlanzhafsbanda- lagið mundi veikjast viö þaö þótt herstöðin hér yrði afnumin, þvi hér væri aö sinu viti aöallega eftirlitsstöö. En atriöi eins og þetta mundu koma til álita viö endurskoðunina. Einn erlendu blaöamannanna lét i ljós ótta viö þaö aö her stöðvalausir tslendingar mundu veröa hallir undir „önnur stór- veldi, svo sem austræn”, og sagöi þá ráöherrann aö hann teldi mögulegt aö halda hlutleysi um þessar mundir. Hann eins og svo margir aörir vonuöust til þess aö þeir timar væru skammt undan aö hernaöarbandalög austurs sem vesturs hyrfu úr sögunni. Vakin var athygli á þeim frétt- um sem nú hafa borizt frá Kan- ada um væntanlega stækkun á fiskveiöilögsögunni þar. Kvaöst utanrikisráðherra vona að Kan ada yröi Islendingum vinsamlegt i sambandi viö landhelgismáliö og mundi muna um stuöning þess við sjónarmiö okkar á hafréttar- ráöstefnunni. Og sannarlega væri þarna verðugt verkefni fyrir brezka sjóherinn, þvi Kanada hefur landa lengsta strandlinu og útfærslan er i hvorki meira né minna en 200 milur! Hlógu þá er- lendu fréttamennirnir. hj— r Ovenju mikill hafís við Austur- Grœnland Rannsóknarskipiö Bjarni Sæmundsson kom úr 4ra vikna rannsóknarleiöangri til Austur-Grænlands um slöustu helgi. Viö höföum i gær samband viö Jakob Magnús- son fiskifræðing sem var leiöangursstjóri i þessari ferö og báöum hann segja okkur frá þvi helzta úr feröinni. Jakob sagöi aö lagt heföi veriö af stað 25. april og haldiö til austurstrandar Grænlands til aö leita miöa fyrir islenzku togarana og einnig til aö framkvæma ákveönar rannsóknir á þessu svæöi. Fariö var um svæöi allt aö Torbenskjöldsbanka en þetta svæöi allt er þekkt sem togaramið. Þaö gerði okkur nokkuö erfitt fyrir, sagöi Jakob, hvaö hafisinn var mikill á þessu svæöi, óvenju mikili miöaö við árstima. Aöal verkefni feröarinnar var aö leita að fiski fyrir togarana og vera þeim til aðstoðar þennan tima sem viö vorum úti og ég hygg aö segja megi aö þeir hafi haft nokkuö gagn af veru okkar þarna. Viö fórum yfir þetta svæði oftar en einu sinni og gáfum togurun- um upplýsingar bæöi um isinn og fiskinn. Við fundum þarna á nokkr- um svæðum allgóöan afla handa togurunum, en þvi mið- ur var nokkuö mikiö magn af smákarfa á þessum svæöum sem ekki var hægt að veiöa. Eins var nokkuð af karfa, hæng, en hrygnan, sem fer á djúpið til að gjóta, var ekki komin upp að landinu. Það helzta sem liggur fyrir af þeim rannsóknum sem gerðar voru er aö skilyrði i sjónum eru verri nú en var á svipuðum tima I fyrra vegna þess hve sjórinn er kaldari nú. Sjórinn er nú mun átuminni en var þá og stafar það af sjávarkuldanum. Jakob sagði aö djúpt úti af Vikurál hefði veriö floti af a- þýzkum, pólskum og sovézk- um togurum á grálúöuveiöum. Þarna er slæmur botn til aö toga yfir en þessi floti var aö fá góöan afla þarna þrátt fyrir það. Einhverjir islenzkir togarar reyndu viö þessa veiði en gáfust upp, vegna hættu á miklu veiöarfæratjóni. En þessi erlendi floti var þarna allan þann tima sem Bjarni Sæmundsson var viö Græn- land eða 4 vikur. Þá voru norskir lúöuveiðar- ar djúpt úti af Reykjanesi og allt aö austurströnd Grænlands. Norömenn hafa stundaö þarna lúöuveiöar um árabil og það eru all stór skip sem þarna eru. Lúöan er veidd á handfæri og þaö væri vissu- lega athugandi fyrir okkur Is lendinga hvort þessar veiöar hentuöu okkur ekki yfir voriö og sumariö. Aö sögn Jakobs virtust Norömenn veiða þarna vel.-S.dór AÆTLUNARFLUG Á SNÆFELLSNESIÐ Flugfélagiö Vængir hf. hefur hafið áætlunarflug á Snæfellsnes- iö. Veröur fyrst um sinn flogiö til Stykkishólms en seinna veröur einnig flogiö til Rifs þegar flug- völlur sem Vængir hófu byggingu á þar i fyrrasumar veröur full- gerður. Flogið veröur frá Reykjavik mánudaga, miðvikudaga og föstudaga klukkan 9 um morgun og einnig klukkan 18 á föstudög- um, og svo veröur eftirmiðdags- ferö á sunnudögum.þannig aö fólk getur brugöiö sér í helgarferö að vestan til borgarinnar og öfugt. Félagið mun nota 9 sæta vél i þessar feröir til aö byrja meö,en um mánaöamótin júní/júli á þaö von á 20 sæta vél til''landsins og mun hún veröa notuð I þessar ferðir ef þörf veröur á. Fargjaldiö er 1250 aðra leiðina en 2250 ef báö- ar ferðir eru keyptar i einu,— |>h

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.