Þjóðviljinn - 30.05.1973, Blaðsíða 9
8 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Miövikudagur 30. mai 1973
Miðvikudagur 30. mai 1973 ÞJOÐVILJINN — SIÐA 9
AKLUBBURINN
ESHEFUR \
A litla bátinn má cinnig setja segl og stýri
HS
Svona báta smiða krakkarnir sjálfir á einum vetri.
Skeggi Guðmundsson er starfsmaöur klúbbsins. Hans hlutverk er að
vera sifellt á ferð um Fossvoginn og veita aðstoð ef illa fer.
Bátaleiga fyrir fulloröna fólkiö
Siglingaklúbbar Æsku-
lýðsráða Reykjavíkur og
Kópavogs hafa löngum
notið mikilla vinsælda.
Fleiri hundruð krakkar
safnast saman í Fossvogin-
um þegar sól hækkar á lofti
og yfir hundrað bátar af
öllum gerðum fara um
voginn þveran og endilang-
an.
Siglunes, siglingaklúbbur
Kópavogsbæjar, er nú að
hefja sitt 11. sumarstarf.
Blaðamönnum var af því
tilefni boðið að kikja á
starfsemina og sjá þær
miklu breytingar sem gerð-
ar hafa verið á aðbúnaði
klúbbsins.
I sumar verður fólki gef-
inn kostur á að sigla á bát-
um klúbbsins gegn vægu
gjaldi. Verður það væntan-
lega um helgar og er
ástæða til að hvetja fólk til
að notfæra sér þetta tæki-
færi.
Siglinga- og róðrarklúbburinn
Siglunes starfar á vegum Tóm-
stundaráðs Kópavogs. Hann var
stofnaður árið 1962 af Æskulýðs-
ráði Kópavogs en það hefur nú
verið lagt niður og á grunni þess
voru reist tvö ný ráð sem starfa i
nánum tengslum hvort við annað.
Það eru Tómstundaráð og Fé-
lagsmálaráð Kópavogs.
Markmið Sigluness er að efna
til róðra og siglinga með ungu
fólki og kenna þvi meðferð og
smiði báta. Klúbburinn heíur
lengi haft það að markmiði sinu
að búa út hentuga lendingaraðst.
báta i Fossvoginum og nú hefur
stórt átak verið gert i þvi máli.
Einnig hefur nú verið gerð rúm-
góð bátageymsla.
Bátakostur klúbbsins hefur
stækkað jafnt og þétt undanfarin
ár og nú er svo komið, að tæplega
40 bátar eru i eigu klúbbsins af
ýmsum særðum og gerðum. Auk
þess eru 5 14 feta seglbátar af
G.P. gerð i smiðum og verða þrir
þeirra teknir i notkun innan
skamms. bá hefur unglingunum
einnig verið gefinn kostur á að
smiða sina eigin báta i húsi
klúbbsins og hefur Ingi Guð-
mundsson, bátasmiður, leiðbeint
þeim jafnframt þvi sem hann hef-
ur annazt smiði G.P. bátanna.
Siglunes á nú orðið vandað hús-
næði, þar sem er rúmgóður salur
til bátasmiði og lagfæringa, eld-
hús og setustofa þar sem klúbbfé-
lagar geta fengið sér hressingu
milli þess sem þeir sigla og róa
um Fossvoginn.
Bátaleiga
fyrir almenning
Sú nýbreytni verður tekin upp i
sumar að gefa almenningi kost á
Bj örgunarbáturinn.
siglinga- og róðrarferðum um
helgar. Bátakostur Sigluness
verður notaður i það og einnig
munu einstakir klúbbfélagar
væntanlega leyfa afnot af sinum
bátum. Siglingaklúbbur Reykja-
vikur hefur reynt þetta og gafst
vel.
Fyrir bragðið breytist opnunar-
timi klúbbsins töluvert frá þvi
sem verið hefur. Engin klúbb-
starfsemi verður um helgar en
opið verður sem hér segir.
9-10 ára mánudaga og fimmtu-
daga kl. 2-4.
11-12 ára mánud., þriðjud.,
fimmtud. og föstud. kl. 4-6.
13 ára og eldri sömu daga kl.
7.30-10.00.
Auk þess verður farið i sjó-
stangaveiði á vegum klúbbsins á
miðvikudögum eins og undanfar-
in ár.
Margir velunnarar klúbbsins
hafa lagt honum lið að undan-
förnu. Bæjaryfirvöld Kópavogs
hafa sýnt skilning á málefnum
æskunnar hvað þetta snertir og
fyrir rausnarlegt fjárframlag
þeirra hefur nú verið stórbætt
Íendingaraðstaða i Fossvoginum.
Siglingar eru enda vinsælar og
slagar fjöldi þátttakenda hátt upp
ihina eljusömu knattspyrnumenn
i Kópavogi. Fjöldi siglara i Siglu-
nesi undanfarin ár hefur verið um
400.
Samstarf skozkra og
íslenzkra siglara
Arloga koma til Kópavogs fé-
lagarfcr siglingaklúbb i Glasgow.
1 ár Miunu þeir koma 1. júli og
munu Kópavogsmenn að venju
endurgjalda heimsóknina siðar i
sama mánuði.
Sigurjón Hillariusson, kennari,
hefurfrá upphafi átt veg og vanda
að uppbyggingu klúbbsins, og er
hann ennþá starfsmaður hans.
Núverandi forstöðumaður Siglu-
ness er Guttormur Ólafsson,
framkvæmdastjóri Tómstunda-
ráðs Kópavogs.
Ný skipan félags-
mála í Kópavogi
Fyrir ári siðan var Æskulýðs-
ráð Kópavogs lagt niður og við-
tækar breytingar gerðar á félags-
málastarfi bæjarins.
Þá hófst starfsemi Félags-
málastofnunar Kópavogs og hef-
ur hún með höndum framkvæmd
félagsmálastarfs kaupstaðarins.
Starfsemi stofnunarinnar skiptist
þannig milli hinna tveggja ráða
er áður er getið:
A. Félagsmálaráö:
1. Aðstoð við aldraða.
2. Afengis- og eiturlyfjavarnir.
3. Barnaheimili og leikvellir.
4. Barna- og unglingavernd.
5. Framfærsla.
6. Heimilishjálp.
7. Húsnæðismál.
8. Almennar upplýsingar og ráð-
gjöf.
B. Tómstundaráð:
1. íþróttamál.
2. Skólagarðar.
3. Tómstundastarf eldri bæjar-
búa.
4. Vinnuskóli.
5. Æskulýðsmál.
Félagsmálastofnun Kópavogs
er til húsa að Alfhólsvegi 32.
—Myndir-tcxti: GSP
„Landgræðsla-
landhelgismál
sveitanna”
Gljáfaxi tekur viö nýju hlutverki
Kins og fram hefur komið i
fréttum gaf Flugfélag tslands
landgræðslu rikisins flugvél
sina, Gljáfaxa. Afhendingin fór
fram i Gunnarsholti i siðustu
viku en landgræðslan hefur
starfað mikið þar á undanförn-
um árum. Nú eru þvi tvær flug-
vélar i landgræðslustörfum, TF-
TÚN og Gljáfaxi sem nú ber
nafniö Páll Sveinsson eftir
fyrsta landgræðslustjóranum,
sein nú er nýlátinn. Að sögn
Sveins Kunólfssonar, iand-
græðslustjóra, markar þessi
gjöf algjör timamót i sögu þess-
ara mála hér á landi.
Það var s.l. föstudag að Birgir
Kjaran, stjórnarformaður fiug-
félagsins, afhenti Halldóri E.
Sigurðssyni, landbúnaðarmála-
ráðherra, þessa veglegu gjöf.
Hann rifjaði þá upp nokkur atr-
iði úr æviferli þessarar lifseigu
flugvéiar. Hún var smiöuð árið
1943 og notuð i þágu Breta i sið-
ari heimsstyrjöldinni. Það var
svo 1946 að Flugfélagið festi
kaup á flugvélinni og þar hefur
hún verið þar til nú. Gljáfaxi
hefur þó ekki verið notaöur mik-
iðundanfariö — eni22árflutt
margan Islendinginn milli
staða.
llalldór afhenti vélina siðan
Sveini Runólfssyni, land-
græðslustjóra. Ilaviö Pálsson,
sonur Páls Sveinssonar, skirði
vélina eftir föður sinum.
Páll Sveinsson lagði siðan
strax upp i fyrstu landgræðslu-
ferð sina. Sáði i Keldnahraun
við Gunnarsholt en á þvi svæði
voru áður 6 stórbýli sem nú eru
farin í eyði vegna sandfoks og
gróðurleysis.
Flugvél þessi er mörgum
kostum búin þótt gömul sé. Hún
hefur t.d. áttfalt burðarmagn á
við eldri vélina, mun meira
flugþol og flughraða. Nú opnast
þvi nýjar leiðir fyrir land-
græðsluna, hægt er að fljúga
lengra frá flugvöllum og vegna
meiri hraða verður yfirferðin
mun meiri.
Landgræðsla hefst 1895
ljög um landgræðslu voru
fyrst sett 1895. Starf hófst svo
Sveinn Kuiióll'ssoii landgraiðslu-
stjóri.
Páll Sveinsson i fyrstu flugferð sinni með áburð og fræ. Hér sáir vél-
in i Keldnahraun.
1907 með sandgræðslu á suður-
landi. Landgræðsla rikisins hef-
ur unnið mikið á svæðinu kring-
um Gunnarsholt á undanförnum
árum og mikið hefur verið sáð i
Keldnahraun og heiðarnar þar i
kring.
Fiugvöllurinn við Gunnars-
holter mjög góður.þar eru tvær
brautir og sú lengri er 1750
metra löng, eða um 50 metrum
stærri en stærsta brautin hér i
Rvik. Þverbrautin er 1400 metr-
ar.
1 kringum Gunnarsholt voru
áður mörg stórbýli en þau eru
nú öll i eyði. Fyrir um 40 árum
var svæði þetta aðeins svört
eyöimörk en nú er nokkuð stórt
bú i Gunnarsholti, mikil túnrækt
og þarna starfar stór hey-
kögglaverksmiðja. Þannig hef-
ur miklu verið áorkað á undan-
förnum árum með TF-TÚN og
vonandi mun enn meira verða
gert á komandi árum.
Gunnarsholt, sem upphaflega
var byggt af afa Gunnars á
Hliðarenda, fór i eyði 1923 og
landgræðslan keypti jörðina 6
árum siðar. Þar var þá byggt
nýtt ibúðarhús og siðan hafizt
handa um ræktun og upp-
græðslu á svæðinu i kring. Fyrir
utan það gras sem búið þarf á að
halda eru nú ræktaðir um 1000
hektarar sem selt er af. 1
Gunnarsholti eru um 450 holda-
naut.
Við Gunnarsholt er starfandi
vistheimili fyrir drykkjusjúkl-
inga og þeir menn hafa unnið
ötullega að landgræðslumálum
þarna. Þeir eru einnig aðal-
starfskraftur i heykögglaverk-
smiðjunni.
Brýnasta verkefni i Gunnars-
holti nú er að byggja áburðar-
geymslu en engin slik er fyrir
hendi nú og allur áburður er
geymdur i pokum.
Félag islenzkra atvinnuflug-
manna hefur ákveðið að leggja
fram nannskap til að fljúga Páli
Sveinssyni og munu meðlimir
félagsins skiptast á um að
manna vélina.
GSP