Þjóðviljinn - 30.05.1973, Blaðsíða 12

Þjóðviljinn - 30.05.1973, Blaðsíða 12
12 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Miövikudagur 30. mai 1973 Laus staða Staöa húsvarðar i Sjúmannaskólanum er laus til umsóknar. Umsóknir meö uppiýsingum um fyrri störf sendist menntamálaráðuneytinu fyrir 1. júll n.k. Laun samkvæmt kjarasamningi opinberra starfsmanna. Menntamálaráðuneytið, 28. mai 1973. Orlof húsmœðra i Reykjavik, verður að Laugum i Dalasýslu Rétt til orlofsins hefur hver sú kona, sem veitir, eða hef- ur veitt heimili forstöðu á launagreiðslu lyrir það starf, á hvaða aldri sem hún er. Hver hópferð tekur 9 daga og verður farið sem hér seg- ir: 1. orlofsdvöl verður 21. júni — 29. júni 2. orlofsdvöl verður 29. júni — 7. júlí 3. orlofsdvöl vcröur 7. júli — 15. júli 4. orlofsdvöl veröur 15. júli — 23. júli 5. orlofsdvöl verður 23. júli — 31. júli (>. orlofsdvöl veröur 31. júli — 8. ágúst 7. orlofsdvöl verður K. ágúst — 10. ágúst 8. orlofsdvöl veröur 10. ágúst — 24. ágúst 9. orlofsdvöl veröur 24. ágúst — 1. september. Umsóknum til Orlofsnefndar húsmæðra i Reykjavik er veitt móttaka frá 1. júni, alla daga kl. 3-6, að Traðarkots- sundi 6. Simi 12617. Sú kona, sem sótt hefur orlof húsmæðra áður,á fullan rétt til umsóknar, en hver sú,sem eigi helur áður sótt or- lofið, gengur fyrir, verði ekki hægt að sinna öllum um- sóknum. Orlofsnefndin i Reykjavik býður reykviskar húsmæður velkomnar að Laugum. Barnaheimili verður rekið á vegum nefndarinnar I Salt- vik á Kjalarnesi i ágústmánuði. Þetta er nýr þáttur i starf- seminni, sem yngri konur væntanlega notfæra sér. Allar upplýsingar á skrifstofunni að Traðarkotssundi 6. SÓLÓ- eldavélar Kramleiði SoLÓ-eldavélar af mörgum stæröum og gerö- um, —einkum liagkvæmar fyrir sveitabæi, sumarbústaði og báta. — Varahlutaþjónusta — V.iljum sérstaklega benda á nyja gerð einbólfa eldavéla fyrir smærri báta og litla sumarbústaöi. K LI) A VKL A VE HKSTÆÐI IÓIIANNS FH. KRISTJÁNSSONAR H.F. KLEPPSVEGI 62. — SÍMI33069. INDVERSK UNDRAVERÖLD nSfelirtt Nýkomiö: margar geröir af fallegum I útsaumuöum mussum úr indverskri bómull. Batik — efni I sumarkjóla. Nýtt úrval skrautmuna til tækifærisgjafa. Einnig reykelsi og reykelsisker I miklu úrvali. JASMÍN Laugavegi 133 (við Hlemmtorg) Tilboð frá 4 í kafla V esturlandsvegarins Miðfell og Véltœkni fá Miðnes- heiði og Grindavikurveg Fjórir aöilar sendu tilboö i lagningu 2,6 km kafla Vestur- landsvegar um Kollafjaröarkleif- ar, og voru öll tilboðin mun hærri en áætlun Vegageröarinnar. Tilboðin voru opnuö 25. mai, en útboðið miöað við að ljúka mætti verkinu i lok nóvember nk. eða ekki fyrr en i lok júli á næsta ári aö þvi er segir i fréttatilkynningu frá Vegagerð rikisins. 1 fyrri tilh'ögunina bárust 4 til- Þakkir vegna Eyjasöfnunar Norrænu vinafélögin og félög Norðurlandabúa á tslandi, Norræna félagið og Norræna húsið, sem sameiginlega efndu til kvöldhátiðar i Háskólabiói 1. apr- íl s.l. til styrktar Vestmanna- eyingum vilja með þessu bréfi þakka öllum þeim einstaklingum, stofnunum og félögum, sem endurgjaldslaust tóku þátt i að afla fjár til góðs málefnis og stuðla að einstæðri og ógleyman- legri skemmtun. Nú eru allar tekjur af samkom- unni komnar inn, og i dag voru Rauða krossi tslands afhentar kr. 738.206,-. Með þökkum og árnaðaróskum Dansk-islenzka félagið Torben Friðriksson Finnlandsvinafélagið Suomi Sv. K. Sveinsson Islands-svenskornas förening Inga Þórarinsson Norræna félagið Gunnar Thoroddsen Dansk kvindeklub Lise Gíslason Nordmannslaget Else Aass Norræna húsið Maj-Britt Imnander Dannebrog Börge Jónsson Sinfóníu- hljómsveitin leikur úti á landi Sinfóniuhljómsveit tslands er um það bil að hefja tónleikaför til nokkurra staða á vestur- og norð- urlandi. Hún heldur tónleika i Búðardal 1. júni kl. 21. Hvamms- tanga laugardaginn 2. júni kl. 14 og á Blönduósi sama dag kl. 21. Þaðan verður svo haldið til Akur- eyrar og haldnir tónleikar i Akur- eyrarkirkju sunnudaginn 3. júni kl. 21. Hljómsveitarstjóri verður Páll P. Pálsson. Tónleikaför þessi er farin i samvinnu við Menn- ingarsjóð Félagsheimila og Menntamálaráð (Listum landið). Á þessu starfsári hefur hljóm- sveitin haldið tónleika utan Reykjavikur á eftirtöldum stöð- um: Hornafirði, Neskaupstað, Egilsstöðum, Keflavik, Garða- hreppi, Selfossi, Arnesi og að Minni-Borg. Sinfóniuhljómsveitin hefur i undirbúningi fastari skip- an á tónleikaferðum um landið, og verður reynt að afla fjár i þvi skyni. Verða þá tónleikaferðir hljómsveitarinnar fastur liður i starfsemi hennar og reynt að sjá til þess að komast til sem flestra staða utan Reykjavikur eftir þvi sem aðstæður leyfa. tsland-Noregur Haukur Ragnarsson Skandinavisk Boldklub Kristján Olafsson Det danske selskab Knud Salling Vilhjálmsson Færeyingafélagið Leivur Grækarisson Sænsk-Islenzka félagið Njörður P. Njarðvík boð, frá Aðalbraut s.f. að upphæð kr. 74.627.645.- frá tstaki h.f. kr. 70.137.885.-, frá Ýtutækni h.f. kr. 71.554.620.-og frá Þórisósi s.f. kr. 72.756.400.-. t siðari tilhögunina bárust 3 tilboð, frá Aðalbraut s.f. að upphæð kr. 68.765.320.-, frá Ýtutækni h.f. kr. 67.502.120 - og frá Þórisósi s.f. kr. 65.028.520.-. Aætlun Vegagerðar rikisins var kr. 63.792.000.-. Ákveðið hefur verið að taka lægstu tilboðum i lagningu Reykjanesbrautar um Miðnes- heiði og Grindavikurvegar, en út- boð þau fóru fram siðast i april s.l. Lægstu tilboð bárust frá Mið- felli h.f. og Véltækni h.f. annars vegar og Miðfelli h.f. og Veli h.f. hins vegar. Sildveiðibannið verði framlengt Skipstjóra- og stýrimannafé- lagið Aldan samþykkti eftirfar- andi á aðalfundi sinum: „Fundurinn samþykkir að skora á viðkomandi yfirvöld að sildveiðibann það við suður- og suðvesturland sem i gildi er til 1. sept. 1973, verði framlengt um eitt ár i viðbót, eða fram til 1. sept. 1974”. ÞEGAR DÝRIN HÖFÐU MÁL EFTIR JEAN EFFEL Já, börnin yðar eru víst of ung til að fylgjast með kennsl- unni Á PÁSKUAA — Þetta hlýtur að vera útburður!

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.