Þjóðviljinn - 20.06.1973, Page 1
UOWIUINN
Miðvikudagur 20. júni 1973. —38. árg. — 138. tbl.
ÞAÐ BORGAR SIG
AÐ VERZLA Í KRON
t í
Bruninn hjá Sláturfélaginu
TJONIÐ NEMUR
MILJÓNUM KR
Nútíma tónlistarhátíðin:
Elektrónísku tónleik-
arnir hefjast í dag
Lyric Arts Trio í Myndlistarhúsinu
Kins «f> sjá má mymlinni oru veggir og innviAir húss SS mikift
skcmmdir eftir brunann.
Mælingar á
V atnajökli
Tónlistarhátíðin í sam-
bandi við þing Álþjóða-
damtaka um nútímatónlist
ISCAA, hófst í gær með tón-
leikum Norska blásara-
kvintettsins, sem flutti
verk eftir norsk, finnsk og
sænsk tónskáld í Norræna
húsinu. í gærkvöld stóðu
íslenzkir tónlistarmenn
fyrir tónleikum í AAynd-
listarhúsinu við AAiklatún.
1 dag hefst flutningur á ele-
ktróniskri tónlist i Myndlistar-
húsinu við Miklatún og er
aðgangur aö þessum þætti tón-
listarhátiðarinnar ókeypis.
Verður flutt elektrónisk og önnur
nútimatónlist á segulböndum kl.
5-7 i dag og kl. 2-4 á morgun,
föstudag og laugardag. Gefst
þarna kostur á að heyra verk fjöl-
margra tónskálda frá ýmsum
löndum, S. Vassiliadis frá Grikk-
landi, S. Sumitani og M.
Shinohara frá Japan, P.Pignon og
M.Stibilj frá Júgóslaviu, J.
Antunes frá Frakkiandi, D. Kauf-
mann og K. Ager frá Austurriki,
B. Fenelly og I. Marshall frá
Bandarikjunum P.M. Braun frá
V-Þýzkalandi, T. Unvary frá
Ungverjalandi, S. Berge, B.
Fongaard, K. Kolberg og A.
Nordheim frá Noregi, E. Rudnik
frá Póllandi, D. Lilburn frá Nýja
Sjálandi, M.Longtin frá Kanada,
A. d. Monaco frá Venezuela og
L.G. Bodin frá Sviþjóð.
Þá verða i kvöld tónleikar The
Lyric Arts Trio i Myndlistar-
húsinu við Miklatún, en trióið
skipa þau Mary Morrison, Marion
Ross og Robert Aitken frá
Kanada. A efnisskrá tónleikanna
eru verk eftir landa þeirra, þá
Paul Pedersen, Harry Freedman,
John Weinzweig og Brunce
Mather, Argentinumanninn
Mario Davidovsky, Bengt Ham-
braneus frá Sviþjóð, Karel
Goeyvaerts frá Belgiu,Japanann
Toru Takemitsu og eftir Atla
Heimi Sveinsson og hefur sá
siðastnefndi samið þetta verk
sérstaklega fyrir trióið.
The Lyric Arts Trio flytur
einnig um hádegið á morgun að
Hótel Loftleiðum Tesinfóniuna i 9
slurkum eftir kanadiska tón-
skáldið Gabriel Charpentier, en
þetta er einskonar leikverk jafn-
framt, og tekur alltaf til með-
ferðar brýnt mál i þvi landi eöa
þeim stað sem það er flutt á
hverju sinni.
Kl. 5 sd. á morgun flytur
flokkurinn Harpans Kraft frá Svi-
þjóð nýstárleg verk franskra,
italskra og sænskra tónskálda, en
flokkurinn er skipaður mezzó-
sópran, klarinettleikara, celló-
leikara, pianóleikara og slag-
hljóðfærameistara.
Annað kvöld verða svo tón-
leikar Sinfóniuhljómsveitar
Islands með þýzka cellóleikaran-
um Werner Taube, Páll P.
Pálsson stjórnar. Eina islenzka
verkið á þeim tónleikum er eftir
Leif Þórarinsson, Draumur um
hús, hin eru eftir evrópsk tón-
skáld frá ýmsum löndum. —vh
Kins og sagt var frá i Þjóð-
viljanum i gær, kom upp oldur i
liúsi Sláturfólags Suðurlands við
Skúlagötu i Revkjavik i fyrra-
kvöld. Þótt sæinilega fljótt tækist
að slökkva eldinn. átti slökkvi-
liðið i miklum erfiðleikum að
koniast fvrir hann,og þarna varð
mikið tjón, þótt það yrði minna en
hætta var á.
Að sögn Jóns H. Bergs, for-
stjóra SS, varð mest tjón á húsinu
sjálfu, en afurðir sem voru i
mikilli hættu sluppu að mestu. Þó
voru matvæli i niðursuðurverk-
smiðjunni, sem skemmdust af
vatni og reyk. Þá voru ekki full-
kannaðar skemmdir á vélum
verksmiðjunnar i gærdag, en
talið var, að þær væru ekki
skemmdar neitt aö ráði. Hins-
vegar er húsið mikið skemmt og á
þvi hefur orðið stórtjón.
Eldurinn kom upp á efri hæð
hússins, i herbergi þvi sem
klæðaskápar starfsfólksins eru i,
en einhver hluti starfsfólksins var
á neðri hæð hússins, en það varð
ekki eldsins vart fyrr en slökkvi-
liöið kom, heldur var þaö kona
sem býr við Lindargötuna sem
gerði slökkviliðinu viðvart er hún
sá reykinn frá þaki hússins.
Þaö sem geröi slökkviliðinu
erfiðast fyrir var, að veggir og
loft hússins er einangraö með
torfi og i þaö komst eldurinn og
nær ómögulegt var að komast
fyrirglóðina nema rifa klæðningu
niður. Þarna á hæðinni er stór og
mikill frystiklefi þar sem mikiö
magn af kjöti er geymt, en hvorki
reykur né vatn komst þangað inn,
svo engar skemmdir uröu þar á.
Aftur á móti komst mikill reykur
og eitthvað af vatni inn i niður-
suðuverksmiðjuna og þar urðu
nokkrar skemmdir á matvælum.
Slökkviliðið var á vakt i húsinu
frá á miðjan dag i gær vegna
hættu á að glóð leyndist i einan-
grunartorfinu, en svo var ekki og
var vakt hætt um kl. 15.
Ekki lágu fyrir niðurstöður um
eldsupptök i gærdag, en unnið var
að þvi að kanna það mál,svo og að
meta tjónið.
S.dór.
Um þessar mundir er mikið um
aö vera uppi á Vatnajökli miöaö
viö þaö sem venjulcgt má tclja.
llópur trésmiöa vinnur aö lag-
færingu á skála á Grimsfjalli, en
sá skáli var oröinn nokkuö illa
farinn og þurfti lagfæringar viö,
og nú á aö Ijúka þeirri viögerð.
Þá er hópur manna á vegum
Jöklarannsóknarfélagsins sem
vinnur að hæöarmælingum frá
Grimsfjalli norður i Kverkfjöll.
Slikar mælingar voru geröar þar
fyrir 10 árum siðan, og við endur-
tekningu þeirra nú, sjást greini-
lega allar breytingar sem orðið
hafa þar á jöklinum á sl. 10 árum.
Loks er unnið aö þyngdar-
mælingum og hæðarmælingum
kringum Grimsvötn og er þaö
liður i almennum rannsóknum á
Grimsvötnum, ■ sem undir-
búningur fyrir frekari rannsóknir
þar næsta sumar. Rannsóknirnar
næsta sumar verða all-ýtarlegar,
m.a. verða boraðar tvær til þrjár
holur, svipað og gert var uppi á
Bárðarbungu i fyrrasumar. Það
er Vegagerðin sem stundur fyrir
rannsóknunum viö Grimsvötn.
B.S.R.B.
F ulltrúaþingi
slitið í
Þingstörf héldu áfram á
fulitrúaþingi Bandalags
starfsmannarikis og bæja í
gær. Fyrir hádegi störfuðu
nefndir og fjölluðu um
ýmsarályktanir, sem fram
höfðu verið bornar, en eftir
hádegi hófust þingfundir
að nýju.
Þinginu lýkur i dag, en verður
nánar sagt frá þingstörfum i
blaðinu á morgun.
dag
B.S.R.B. er stærstu launþega-
samtök á tslandi. Opinberir
starfsmenn hafa ekki verkfalls-
rétt og hefur gengið á ýmsu i
hagsmunabaráttu samtakanna
við vinnuveitandann, það opin-
bera.
Fulltrúaþing B.S.R.B. er haldið
á þriggja ára fresti. 168 fulltrúar
frá hinum ýmsu aðildarfélögum
sitja þetta þing, sem nú er háð i
Súlnasalnunr á Hótel Sögu.
Þingheimur handalagsins.