Þjóðviljinn - 20.06.1973, Síða 3
Miövikudagur 13. júni 1973. ÞJÓÐVILJINN — StÐA 3
Rífandi
stemning
Þaö var ekki bara klappaö,
heldur lika hrópaö og blistraö
og húsið kvaö viö af fagnaöar-
iátum áheyrenda á tónleikum
tékkós1óvösku lúöra-
sveitarinnar i Háskóiabiói i
fyrrakvöld.
Lúðrasveitin úr Hradcany
kastala var klöppuð upp hvað
eftir annað og áheyrendur
ætluðu helzt ekki að sleppa
þeim i lok tónleikanna, en úti-
fyrir beið rúta, sem átti að
flytja þá beint á flugvöllinn.
Attu þeir að fljúga heim um
nóttina og fara beint frá Prag
til Ústi nad Labem og leika
þar opinberlega næsta
morgun.
Þótt mikill fögnuður og
stemning væri rikjandi meðal
áheyrenda var salurinn langt
frá að vera fullskipaður,
kannski vegna þess, að okkur
hér hættir til að lita á lúðra-
sveitir sem einhverskonar úti-
hljómsveitir fyrst og fremst.
Mjög margir félagar úr
isienzku lúðrasveitunum voru
meðal áheyrenda og sögðu
sumir eftirá, að þeir gætu vist
farið að leggja frá sér hljóð-
færin úr þessu, en aðrir þvert
á móti, að þetta væri þeim
hvatning og sýndi hvað i raun
og veru væri hægt að gera,
þegar menn hefðu aðstæður til
nægilegra æfinga og
þjálfunar.
Fyrri hluta tónleikanna lék
lúðrasveitin aðallega klassisk
verk, sem annars heyrast
aðeins leikin af fullskipuðum
sinfóniusveitum, en eftir hlé
léttari tónlist, marsa, polka og
þjóðlög og var þá lika sungið
með. Mikla ánægju vakti er
nokkrir hljómsveitarmanna
klæddust þjóðbúningum og
mynduðu litla sveit i likingu
við þær, sem tiðkast i þorpum
Bæheims.
Hradcanylúðrasveitin lék
Þessi niynd var tekin þegar islenzkir og tékkneskir lúörasveitarnienn hittust viö Laugarnesskóla.
Formaður Lúörasveitarinnar Svans, Halldór Sigurðsson, tekur viö gjöf frá forinanni Hradcany-
sveitarinnar, þám. hijómpiötu með leik lúörasveitarinnar. Tii vinstri sést Gísli Ferdfnandsson úr
Svani. (Ljósm. vh)
einnig við opnun
tékkóslóvösku sýningarinnar
og á Bernhöftstorfu 17. júni.
Þar sem hún kom hingað
kringum þjóðhátiðardaginn,
þegar islenzkir lúörasveitar-
menn hafa sem mest að gera,
gáfust litil tækifæri til gagn-
kvæmra kynna. Þó hittu
félagar úr Svani aðeins þessa
tékknesku kollega sina milli
atriða á þjóðhátiðinni og léku
þá hvorir fyrir aðra við
Laugarnesskólann, þar sem
Tékkarnir bjuggu. —vh
Lagt af stað frá Njáisgötunni i gær. (Ljósm. S.dór).
Þing ISCM hófst i gœr
Ræða hvernig útbreiða
skuli nútíma tónlist
Þing Alþjóðasamtaka um
nútímatónlist, ISCM, hófst
að Hótel Loftleiðum i gær-
morgun með þátttakendum
frá um 20 löndum.
Formaður ISCM, André Jurres,
setti þingið, og siðan fluttu
fulltrúar hverrar deildar skýrslur
um starfsemi sina undanfarið ár
og helztu atburði á sviði nútima
tónlistar i sínum löndum.
Stungið var upp á fulltrúum i
næstu stjórn og ræddar voru til-
lögur um, hvar halda skyldi
þingið og tónlistarhátið i sam-
bandi við fjárhagsgrundvöll sam-
takanna og hvernig breikka
mætti félagsskapinn, og einnig
urðu fjörugar umræður um leiðir
til að úbreiða nútima tónlist.
Þinginu lýkur siðdegis i dag eða
i fyrramálið eftir þvi hvernig
þingstörf ganga. — vh
HHHHH HHHHH HHHHH
í sumarleyfi að Flúðum
Þær virtust ekki siður eftir-
væntingarfullar en krakkarnir,
þegar þau fara i sinar sumar-
búðir, konurnar, sem biðu á
Njálsgötunni i gær eftir að leggja
af stað i erlof austur að Flúðum.
Þær eru i hópi eldri kvenna —
eintómar kellingar, sagði ein, —
sem Mæðrastyrksnefnd gefur á
hverju ári kost á vikudvöl úti á
landi þeim til hressingar og
hvildar. Að þvi er konurnar
sjálfar sögðu er þetta ein sú
mesta upplyfting, sem hægt er að
fá, og kváðust þær mundu
skemmta sér konunglega, lausar
við amstur hversdagsins og i
fjörugum félagsskap.
Alls eru það 40 konur, sem
komast i hvert sinn, og sagöi
hótelstjórinn á Flúðum, Ingólfur
Pétursson, að þetta væru dásam-
legustu gestir, sem staðurinn
fengi, allar svo glaðar og þakk-
látar öllu sem fyrir þær væri
reynt að gera.
— vh
Sumarferö Alþýðubandalagsins á Jónsmessu
Að þessu sinni verður farið
upp i Borgarf jörð. Lagt verður
af stað frá Umferðarmiðstöð-
inni klukkan átta að morgni
sunnudagsins 25. júni. Ferða-
langar eru beðnir um að mæta
við Umferðarmiðstöðina kl.
7.30.
Aðalfararstjóri verður
Björn Th. Björnsson,
listfræðingur. Hann hefur áð-
ur verið fararstjóri i Alþýðu-
bandalagsferðum, og mun án
efa mörgum vera til-
hlökkunarefni að njóta enn á
ný leiðsagnar hans, að þessu
sinni um byggðir Borgarfjarð-
ar.
I hverjum bil verður valinn
leiðsögumaður, staðkunnugir
Miöasala og pantanir
Grettisgötu 3.
Opið frá 9 til 19,einnig i hádeg-
inu.
Slmi: 18081 og 19835
menn, sem frætt geta ferða-
langana um örnefni og sögu
landsins.
Allir þátttakendur ferðar-
innar munu fá nestispakka og
er hann innifalinn i fargjald-
inti. En fátt eykur lystina bet-
ur en ferðalög, og er þvi
mönnum ráðlagt að hafa með
sér eitthvað matarkyns, þvi að
þótt góður biti sé i nestis-
pakkanum, mun hann
tæpast nægja vegmóðum
ferðalöngum á langri ferð.
Aðaláningarstaður ferðar-
innar er skammt frá Bifröst,
fimm minútna gang frá foss-
inum Glanna. Þar mun
Magnús Kjartansson, ráð-
herra ávarpa ferðalangana.
Kaupið eða pantið
farmiða sem fyrst
Verð miðanna er 500 kr.
fyrir fullorðna, en 300 kr. fyrir
börn, og er það mun minna
Svipmynd úr sumarferð Alþýðubandalagsins.
Veöurfróðir menn telja, að veðurguöirnir verði Alþýöu-
bandalagsmönnum hliöhollir um næstu helgi.
verð en i öðrum sambærileg-
um ferðum. Miðarnir eru til
sölu og tekið er á móti pöntun-
um á skrifstofu Alþýðubanda-
lagsins á Grettisgötu 3, frá kl.
9 — 7, einnig i hádeginu.
Leiðir og
áninga-
staðir
Umferðarmiðstöð
Geldingadragi
Skorradalur
Hestháls
Munaðarncs
Grábrókarhraun
Glanni
Stafholtstungur
Hvitársiöa
Hraunfossar
Barnafoss
Lundarreykjardalur
Uxahryggir
Biskupsbrekka
Mosfellssveit
Umferöarmiöstöö
Odýrustu farmiðarnir — leiðsögumaður