Þjóðviljinn - 20.06.1973, Blaðsíða 8
8 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Miövikudagur 20. júni 1973.
llIlffiiBBlBIlII jj
KENN AR AMENNTUNIN
16. uppeldismálaþingiö var
haldiö i Reykjavik dagana 6. — 7.
júni 1973. Fyrsta uppeldismála-
þingið var haldið árið 1937.
Samband isl. barnakennara
stóð eitt að þinghaidinu til ársins
1952; en þá varð Landssamband
framhaldsskóiakennara einnig
Jónas Pálsson, skólastjóri,
flutti framsöguerindi, sem hann
nefndi: Skipan kennaramenntun-
ar I upphafi erindisins geröi ræðu-
maður grein fyrir hugmyndum
slnum um skyldunámsskólann á
komandi árum. Lagði hann
einkum áherzlu á eftirtalin atriði:
Uppeldisstarfið verði sett i önd-
vegi innan skólans, en fræðslan
komi næst, iögð verði vaxandi
áherzla á uppeidi og kennslu
yngri nemenda og uppeldisstarf
og kennsla sé þvi afdrifaríkari,
þvi yngri sem nemandinn er, allir
nemendur skulu vera jafnréttháir
án tillits til hæfiieika og
námsárangurs, lögboðnar
námsgreinar skulu allar njóta
sama réttar og sömu viröingar
innan skólans.
1 skóla komandi ára
verður verkaskipting.
Hefðbundið hlutverk kennara
mun skiptast milli nokkurra
sérkunnandi starfsmanna. Auk
verkstjórnarkennara eða
bekkjarkennara verða meðal
starfsmanna skólans sérfræðing-
ar i þekkingargreinum, safnverð-
ir, félagsráðgjafar með sér-
þekkingu á félagsvanda heimila
og skóla, námsráðgjafar,
stuðningskennarar afbrigðilegra
og tæknimenn. Sérfræðingar
þessir hljóta sameiginlega starfs-
menntun sem kennarar, en auk
þess framhaldsmenntun i sinum
sérgreinum innan menntastofn-
unar kennara eða i hinum
aimenna háskóla.
Oll starfsmenntun
á einum stað
Þvi næst vék ræðumaður að
skipan kennaramenntunár, og
voru helztu atriðin i máli hans
þessi:
011 starfsmenntun kennara
verði fyrst um sinn byggö upp á
einum stað. — Sérgreinaskólar,
sem nú starfa, iþróttaskóli,
myndlistar- og handiðaskóli,
tónlistarskóli og fóstruskóli verði
deildir með hagnýtum sérsviðum
innan aðalmenntastofnunar
kennara. Miðað við núverandi að-
stæður er eðlilegt, að Kennara-
háskóli tslands myndi kjarna
þessarar menntastofnunar
kennara.
Menntastofnun kennara sé
þannig búin starfskröftum, að
kennarar þaðan eigi ekki aðeins
rétt til heldur njóti forgangs sem
kennarar á skyldunámsstiginu
öllu — þ.e. væntanlegu grunn-
skólastigi. bað viðbótarnám, sem
þeim kann aö vera nauðsynlegt i
þekkingargreinum til kennslu á
siðari hluta væntanlegs grunn -
skóla, verði veitt annað hvort i
menntastofnun kennara sjálfra
eöa i hinum almenna háskóla.
betta er hagnýtt framkvæmda-
atriði, sem þó er mikilvægt i
fámennu landi eins og tslandi.
baö er á þessu sviði, sem
aðili, og nú bættist Félag háskóla-
menntaðra kennara i hópinn.
Uppeldismálaþingin eru að
jafnaöi haldin annað hvert ár. A
þeim er eingöngu fjallað um
skóla- og uppeldismál. Að þessu
sinni var rætt um menntun kenn-
ara.
togstreita milli stofnana og sér-
fræðinga gæti orðið og er likleg til
að valda eftiðleikum.
Æfingaskólinn verði gerður aö
miðstöö æfingakennslu — rekinn
sem tilraunaskóli á skyldunáms-
stigi. Skólinn verði algerlega
rikisskóli. Námskrárgerö og
nýjungar-þáttur i skólastarfi,
sem verið hefur á vegum Skóla-
rannsóknadeildar, verði fluttur
að Æfingaskólanum og Kennara-
háskólanum. Æfingaskólinn verði
þannig eins konar deild i mennta-
málaráðuneytinu og nátengdur
fræðsludeild ráðuneytisins.
bannig verði reynt að brúa bil
milli teóriu og praxis og einnig
tengja i raunhæfu starfi
nýbreytni i skólaháttum og
kennaramenntun.
Líka skóla- og félags-
ráðgjafar
Menntastofnun kennara annist
akademiska framhaldsmenntun
skólaráðgjafa og félagsráðgjafa
handa skólum, námsefnis-
sérfræðinga og uppeldisfræðinga
með sérhæfða menntun i stjórnun
skola, rannsóknum, námsefnis-
gerð, uppeldisheimspeki
og menningarsögu. A næstu 5 - 10
árum þróist við menntastofnun
kennara námsbrautir i uppeldis-
og kennslufræðigreinum, sem
fullnægi æðstu akademisku
námsgráðum. An þessarar
skipunar er menntastofnun
kennara ekki raunverulega starf-
andi á háskólastigi.
Andri tsaksson sálfræðingur
flutti annað aðalframsöguerindið.
Nefndi hann erindi sitt:
Kennaramenntun og grunnskóli.
i upphafi erindis sins rakti
ræðumaður hlutverk og skyldur
kennara skv. frumvarpi til laga
um grunnskóla. Siðan gerði ræöu-
maður grein fyrir núverandi gerð
islenzkrar kennaramenntunar,
þ.e. fjölda kennaramenntastofn-
ana, inntökuskilyrðum og náms-
lengd. Eigi færri en 7 stofnanir
annast menntun kennara fyrir
islenzka forskóla, skyldunáms-
skóia og framhaldsskóla, þar af
eru 5, sem einkum búa undir
kennslustörf á skyldunámsstigi.
Athygli vekur að menntun verk-
og tæknikennara á framhalds-
skólastigi er hverrgi ætlaður
staður i umræddu kerfi.
Eiginleikar góðs kennara
bá gerði Andri grein fyrir
hugmyndum sinum um, hvaða
eiginleikum kennari þyrfti að
vera gæddur með hliðsjón af
ákvæðum grunnskólafrumvarps-
ins, einkum markmiðsgreininni.
Niðurstöður ræðumanns voru
þessar: a) Virðing fyrir öllum
nemendum, heill þeirra og mann-
réttindum. b) Góðar skapgerðar-
eigindir: samvizkusemi, áhugi,
árvekni, snarræði, hugmynda-
auðgi, samstarfshæfni, kimni-
Andri tsaksson
Jónas Pálsson
gáfa, spurult visindalegt viðhorf.
c) bekking á vitræn, siðgæðis-
legum og tilfinningalegum
þroskaferli barna og unglinga. d)
Verksvit og verkhæfni, einkum að
þvi er varðar kerfisbundinn verk-
undirbúning (þ.e. kennsluáætlan-
ir), meðferð helztu hjálpartækja
við kennsluna, svo og kennslu og
verkstjórn nemendah.við nám.
e) bekking — á breiðum grund-
velli — á þvi námsefni, sem kennt
er. f) Góð framkoma (þ.e.
hæfilega örugg, sjálfkvæm,
kumpánleg og virk), svo og gott
málfar. g) bekking á uppeldis- og
kennslufræði, sögu uppeldis og
kennslu og á uppeldisheimspeki.
Hér hafa þessir eiginleikar
verið taldir i forgangsröð, þ.e. hið
mikilvægasta fyrst o.s.frv.
Lokaáfangi samsvari
háskólastigi
Um grundvallarskipan
kennaramenntunar urðu niður-
stöður þessar:
Miðað við nútimakröfur til
starfshæfni kennara viðist
eðlilegt að miða alla kennara-
menntun við það, að a.m.k. loka-
áfangi hennar samsvari
háskólastigi að þvi er varðar
fræðilega innsýn og sjálfstæð
vinnubrögð.
barf kennaramenntun
nauðsynlega að vera jafnlöng
fyrir alla kennara?
Miðað við fyrrgreindar nútima-
kröfur til starfshæfni kennara og
meö hliðsjón af islenzkum
aðstæðum sýnist eðlilegt, að
lágmarksundirstaða til að hefja
kennaramenntun fyrir skyldu-
náms- og forskólastig sé tveggja
ára nám á framhaldsskólastigi,
t.d. i framhaldsdeild gagnfræða-
skóla, menntaskóla, fjölbrautar-
skóla eöa enn öðrum skóla.
Eiginlegt kennaranám verði
siðan skipulagt sem 3ja, 4ra eða 5
ára nám, eftir þvi sem bezt er tal-
ið við eiga vegna kennslu á hlut-
aðeigandi sviði.
Ræðumaður taldi eðlilegt að
samræma eða sameina hið
dreifða kerfi kennaramenntunar-
innar á Islandi. Samræmd verði
skilgreining námseininga,t.d. að
1 námseining samsvari einni
vinnuviku i námi, námskrá veröi
samræmd og hugsanl. sameining
stofnana gæti komið til eftir nokk-
ur ár, t.d. þannig aö Kennara-
háskóli Islands yrði tiltölulega
sjálfstæð stofnun innan vébanda
Háskóla Islands.
Æskilegt námsefni
Að lokum gerði ræöumaður
grein fyrir æskilegu námsefni og
starfsaðferðum við menntun
kennara og voru helztu niðurstöð-
ur þessar:
Sé virkt nám og eigin upp-
götvanir talið vera árangursrikt
til námsárangurs og þroska
barna og unglinga, ættu kennara-
menntastofnanir að leggja sjálfar
áherzlu á kennslu- og náms-
aðferðir, sem einkennast af
prófun og uppgötvun.
Hvaða leiðir má benda á, til
þess að kennaramenntastofnanir
geti glætt þá eiginleika, sem
kennari þyrfti að vera gæddur?
Nefna mætti m.a. eftirfarandi:
a) Virðing fyrir nemendum:
Óbein áhrif með þvi, aö kennarar
kennaraefnanna hafi þetta
viöhorf sjálfir og sýni það i verki.
Fræðsla um mannréttindi.
b) Góöar skapgerðareigindir:
Óbein áhrif fyrir tilstilli þess, að
nám kennaranemanna reyni á
þessa þætti.
c) bekking á þroskaferli barna og
unglinga: Sálarfræöi verði
grundvallarþáttur i kennara-
menntun. Innan sálarfræðinnar
verði þroskasálarfræöi aðal-
námsefnið.
d) Verksvit og verkhæfni: Bein
starfsþjálfun verði grundvallar-
þáttur i kennaramenntun. í
beinni starfsþjálfun felist m.a.;
kennsluáheyrn og athuganir á
atferli nemenda, þjálfun i notkun
kennslutækja, gerð
kennsluáætlana og útbúnaður
efnis til kennslu, æfingakennsla
undir leiðsögn, samræður um
æfingakennslu sjálfs sins og ann-
arra helzt með kvikmyndum,
hópvinna að ýmsum verkefnum
og leiösögn og stjórn nemenda-
hópa viö ýmsar þroskandi athafn-
ir.
e) bekking — á breiðum grund-
velli — á þvi námsefni, sem kenna
skal: Nám á þekkingarsviðum,
sem samsvara námsefni þvi er
kenna skal, verði grundvallar-
þáttur i kennaramenntun.
Framan af kennaranáminu verði
að jafnaði um að ræða fastan
kjarna, en siðar valgreinar i sam-
ræmi við fyrirhugaðar kennslu-
greinar eða kennslusvið.
f) Góð framkoma og gott málfar:
Fordæmi þeirra kennara, sem
annast menntun kennaraefnanna.
Æfingakennsla. Virkt og almennt
félagslif. Móðurmálsnám
g) bekking á uppeldis- og
kennslufræöi, sögu uppeldis og
kennslu og á uppeldisheimspeki:
Nám i fræðilegum hluta uppeldis-
og kennslufræði i framhaldi af
þroskasálarfræðinámi og
samhliða kennsluæfingum og
atferlisathugunum. Helztu
menntastefnur krufnar til
heimspeki- og félagslegs uppruna
sins og samhengis.
Auk þessara tveggja
framsöguerinda fóru fram
hópumræður um tvö atriði:
1) Tengsl atvinnuvega, skóla og
kennaramenntunar. Stjórnandi
umræðnanna var Kristján Bersi
Ólafsson, skólastjóri. bátttak-
endur voru: Kristján Ragnars-
son, fi'amkvæmdastjóri, Haukur
Eggertsson, framkv.stjóri, Gunn-
laugur Sigurðsson, skólastjóri og
Stefán ólafur Jónsson, fulltrúi.
2) Getur öll kennaramenntun
haft sameiginlegan kjarna?.
Stjórnandi umræðnanna var
dr. buriður Kristjánsdóttir. bátt-
takendur voru: Valborg
Sigurðardóttir, skólastjóri, Hörð-
ur Agústsson, skólastjóri, Vigdis
Jónsdóttir, skólastjóri og Jónas
Pálsson, skólastjóri.
Að lokum fluttu stut't
framsöguerindi um kennara-
menntunina og einingu kennara-
stéttarinnar þeir Ingi Kristinsson
formaður Samb. isl.
barnakennara, Ólafur S. Ólafsson
formaður Landsambands fram-
haldsskólakennara og Kristján
Bersi Ólafsson, varaformaður
Félags háskólamenntaðra kenn-
ara.
Auk framantalinna atriða fóru
svo fram almennar umræöur um
hvert mál.
Engar samþykktir voru gerðar
á þinginu. En kennarasamtökin
hafa ákveðið að boða til ráð-
stefnu i september n.k. þar sem
mótuð verður stefna
kennarasamtakanna i menntun
kennara.
bingforsetar voru borgeir
Ibsen, Baldur Sveinsson og Hörö-
ur Bergmann.
(SamkV'. fréttatilkynningu
kennarasamtakanna.)
VOLVO 144
Til sölu er Volvo 144, árgerð 1967, i mjög
góðu ásigkomulagi. Skipti á ódýrari bil
koma til greina. Upplýsingar á daginn i
sima 17500 og á kvöldin i sima 51860.
Skipan kennara-
menntunar
Kennaramenntun
og grunnskóli
Mótuð stefna
í september