Þjóðviljinn - 20.06.1973, Síða 12
12 SÍÐA — ÞJÓDVILJINN Miftvikudagur 20. júni 1973.
V iðlagas j óður
auglýsir
Auglýsing nr. 5 frá Viðlagasjóði um bætur
fyrir tjón á lausafé.
í 39. grein reglugerðar nr. 62. 27. marz
1973 um Viðlagasjóð segir:
,,Nú hefur lausafé manna sannanlega
glatazt eða skemmzt af völdum náttúru-
hamfaranna i Vestmannaeyjum og skal
sjóðurinn bæta tjón manna, annað hvort
eftir mati trúnaðarmanna sinna eða mati
dómkvaddra manna.
Sjóðsstjórn skal úrskurða um bætur þess-
ar og er úrskurður hennar endanlegur um
hvað bæta skuli og bótafjárhæð.”
Auglýst er eftir umsóknum um bætur skv.
þessari grein og skal þeim skilað fyrir 20.
júli 1973 til skrifstofu Viðlagasjóðs, Toll-
stöðinni við Tryggvagötu i Reykjavik á
sérstökum eyðublöðum, sem þar fást af-
hent. Þeir sem ekki geta sótt eyðublöð
geta fengið þau póstsend, ef þeir óska eftir
þvi bréflega eða i sima 18340.
Stjórn Viðlagasjóðs.
UTBOÐ
Tilboð óskast i lagningu vatns- og frá-
rennslislagna i Tjarnargötu, Vogum,
Vatnsleysuströnd.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu
Vatnsleysustrandarhrepps, Valfelli,
Vogum, og á Verkfræðiskrifstofunni
HÖNNUNH.F., Höfðabakka9, Reykjavik,
gegn 2000 kr. skilatryggingu.
Tilboð verða opnuð 5. júli.
Sumarleyfisferðir
Ferðafélags íslands
í júni og júli
if C~ J verð kr.
21/6 4 dagar Tungnaáröræfi 3700
21/6 6 dagar Snæíell 7400
26/6 8 dagar Gönguferð: Hlöðuvellir — Hagavatn 3300
30/6 6 dagar Snæfellsnes. Breiðafjörður. Látrabjarg 5600
30/6 4 dagar V es tma nnaey j ar 4600
3/7 8 dagar Fjallgöngur við Svaríaðardal 7200
5/7 8 dagar Borgarfjörður eystri 7900
7/7 9 dagar Hvannalindir — Kverkfjöll 8550
13/7 10 dagar Kerlingarfjalladvöl 3800
14/7 9 dagar Mývatnsöræfi — Ódáðahraun 8550
17/7 8 dagar Skaftafell — öræfajökull 8850
14/7 6 dagar Um Strandir 5700
14/7 6 dagar Kjölur — Sprengisandur 5400
17/7 9 dagar Hornstrandaferð I 7900
21/7 6 dagar Landmannaleið — Fjalla- baksvegur 5400
23/7 10 dagar Hornstrandaferð II 8300
24/7 8 dagar Snæfjallaströnd — Isafjörður — Göltur 6400
24/7 8 dagar Gönguferð: Hlöðuvellir — Hagavatn 3300
28/7 4 dagar V a tna j ökulsf er ð 5900
28/7 6 dagar Lakagígar — Eldgjá — Land- mannalaugar 5400
Sumarleyfisferðir í ágúst auglýstar síðar.
Leitið upplýsinga. Geymið auglýsinguna.
FERÐAFÉLAG ISLANDS, Öldugötu 3.
Símar: 19533 ng 11798.
Nýsköpun sláturhúsa
Samband íslenzkra sam-
vinnufélaga, Starfsmanna-
félag SiS og Félag kaupfé-
lagsstjóra gefa út tímaritið
Hlyn. í siðasta hefti tíma-
ritsins var meðal annars
efnis ritgerð eftir Agnar
Tryggvason um sláturhús á
islandi. Það er allfróðlegt
að kynnast þeirri nýsköp-
un, sem fram fer á slátur-
húsum islendinga, og er því
hér birt niðurlag ritgerðar
Agnars.
Frá siðari striðslokum hefur
það verið keppikeflið að fækka
verulega sláturhúsum i landinu,
þvi að það virtist vera eina leiðin
til að búa þau svo úr garði, að
kröfum erlends og innlends
markaðar yrði fullnægt. Að hinu
leytinu er sá galli á þeirri fram-
kvæmd, aö slátrunin þarf að fara
fram á mjög takmörkuðum tima
að haustinu, þ.e. 1 til 2 mánuðum.
Var auðsætt, að með þeim
vinnubrögðum og tækni, sem við-
höfð voru i sláturhúsunum, voru
þvi mjög mikil takmörk sett, hve
miklu fé var hægt að slátra i einu
húsi, nema þá með mjög mörgu
starfsfólki, sem óviða fékkst til
þeirra starfa. Var þvi talið nauð-
synlegt að innleiða nýja tækni við
slátrunina, sem gæti aukið af-
köstin verulega miðað við fólk og
húsnæði. Jafnframt þurfti að
auka mjög alla aðstöðu til hrein-
lætis og sér i lagi við heilbrigðis-
skoðunina á kjöti og innyflum.
Hafði hingað til verið viðhöfð svo-
kölluð hringfláning i sumum hús-
um, sem þótti taka eldri aðferð-
um fram, hvað snerti bæði afköst
og góða meðferð kjötsins. Það var
þó greinilegt, að hér þurftu að
koma til ny vinnubrögð og tækni.
Framleiðsluráðið lagði þá fram
I, 5milj. kr. til tilraunasláturhúss,
sem komið var á fót i sláturhúsi
Kf. Borgfirðinga i Borgarnesi.
Var þar reynt hið svokallaða
færibandakerfi, sem sérfræðing-
ar á vegum Sambandsins höfðu
kynnt sér á Nýja Sjálandi og við-
ar þá nýskeð. Eru afköstin við
slátrunina miklu meiri en við
eldri aðferðir. Átti þessi nýja
tækni einnig að njóta sin enn bet-
ur, eftir þvi sem dagslátrun var
meiri.
Á þessu sama ári, sem til-
raunasláturhúsið i Borgárnesi tók
til starfa, var tekið fyrir útflutn-
ing á kjöti og sláturafurðum úr is-
lenzkum sláturhúsum til Banda-
rikjanna. Var ekki talið af heil-
brigðisyfirvöldum þar i landi, að.
islenzk sláturhús uppfylltu þær
kröfur, sem þar eru gerðar til
slikra vinnslustöðva. Var þetta
mikið áfall fyrir islenzkan land-
búnað og hvatti til áframhaldandi
uppbyggingar á fullkomnum slát-
urhúsum, sem uppfylltu nauðsyn-
legar gæðakröfur i helztu mark-
aðslöndunum. A árinu 1969 var
skipuð nefnd á vegum Fram-
leiðsluráðsins til þess að gera til-
lögur um uppbyggingu sláturhús-
anna. Var hún sammála um, að á
árunum 1970-1975 skyldu byggð
upp eða endurbætt eftirfarandi
sláturhús:
1. Nýtt sláturh. á Patreksfiröi.
2. Endurb. sl.hús á Isafiröi.
3. Endurb. sl.hús á Hólmavik.
4. Endurb. sl.hús á Hvammst.
5. Endurb. sl.hús á Blönduósi.
6. Endurb. sl.hús á Sauðárkr.
7. Endurb. sl.hús á Akureyri.
8. Nýtt sláturhús á Húsavik.
9. Endurb. sláturhús á Egilsst.
10. Nýtt sláturh. i Rangárv.sýslu.
II. Endurb. sláturhús á Selfossi.
Auk ofangreindra húsa koma
svo sláturhúsin i Borgarnesi og i
Búðardal. Aætlaður byggingar-
kostnaður ofangreindra 11 húsa
var um 220 milj. kr. eftir verðlagi,
sem gilti i ársbyrjun 1970. Attu ölí
endurbyggð hús að fá 30% af
stofnkostnaðinum endurgreitt
sem óafturkræft framlag, en hin,
sem talin voru ný, að fá 50% af
áætluðum stofnkostnaði greitt
sem óafturkræft framlag. Atti að
afla hins óafturkræfa framlags
með sérstöku verðjöfnunargjaldi
á innvegið kjöt, með gjaldi á
heildsöluverð kjöts og með sér-
stöku framlagi úr rikissjóði.
Frá þvi að gengið var endan-
Frá sláturhúsinu á Húsavik, en þar er beitt hinni nýju færibandatækni.
lega frá tillögum sláturhúsa-
nefndarinnar, hefur verið unnið
að framkvæmd þeirra svo sem
efni og aðstæður hafa frekast
leyft á hverjum stað. Hefur nú
verið komið upp fullkomnum út-
flutningshúsum i Borgarnesi,
Blönduósi, Húsavik og Selfossi,
en á hausti komanda verður slát-
urhús Kf. Skagfirðinga á Sauðár-
króki tekið i notkun og mun það
uppfylla allar körfur sem gerðar
eru, hvað útbúnað og hreinlæti
snertir, bæði á Bandarikja- og
Evrópumörkuðum. Þá er i undir-
búningi að endurbyggja slátur-
húsin á Hólmavik og á Hvamms-
tanga, svo þau geti jafnframt orð-
ið gjaldgeng á Bandarikjamark-
aði i siðasta lagi á árinu 1974.
Aðvörun frá Rafmagns-
eftirliti ríkisins:
"Að undanförnu hefur verið á
markaðnum talsvert magn af
flugdrekum, m.a. i liki fugla, sem
hafa náð mikilli útbreiðslu meðal
unglinga.
Allmikil brögð hafa verið að þvi.
að flugdrekar þessir falli niður á
rafmagnsloftlinur, bæði lág-
spennu- og háspennilinur og
hefur það jafnvel skeð á 130
þúsund volta linuna til Reykja-
vikur.
Hér getur verið um lifshættu-
legan leik að ræða, ef raki er i
lofti.og einkum ef unglingar fara
að reyna að ná þessu leikfangi
niður úr rafmagnslinunum. Þvi
skal brýnt fyrir þeim, sem missa
flugdreka sina niður á rafmagns-
linur, að gera ekki tilraun til þess
að ná þeim til baka, heldur að
tilkynna rafmagnsveitunni um
óhappið, sem mun geta látið
kunnáttumenn losa þá frá
linunum.
Þvi skal unglingum, börnum og
foreldrum bent á, að forðast að
vera með flugdreka i námunda
við rafmagnslinur og gera aldrei
tilraun til þess að losa þá frá linu,
sem þeir kunna að hafa flækzt i.”
Alltaf er það eins. A hverju ári er breiddur borðdúkur yfir
allt, einmittþegarekkert er lengurtil aðéta
Maður getur ekki of mikið á sig lagt fyrir viðskiptavini
eins og yður