Þjóðviljinn - 26.07.1973, Blaðsíða 11
Fimmtudagur 26. júli 1973. ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 11
Erlendar bækur
Framhald af 5. siöu.
og byltinga i þeim rikjum.
Höfundur ræðir þessar kenningar
i löngu máli. hverjum hinna
þriggja eru helgaðar rúmlega
hundrað blaðsiður, baráttuað-
ferðir þeirra og áróðurstækni eru
ræddar og margvislegar athuga-
semdir gerðar við skoðanir þeirra
og fullyröingar. dæmi eru tekin úr
baráttu skæruliðahópa og bænda
alþýðu. t bókarlok birtast niður-
stöður höfundar. þar sem hann
telur, að ennþá sé verkalýður
iðnaðarrikjanna sá eini kjarni
sem geli umskapað samfélagið,
með vissum forsendum, sem
höfundur ræðir nánar. Þetta er
vel skrifuð bók og mjög fróðleg
fyrir þá, sem láta sig samfélags-
mál einhverju varða.
Kúba
Framhald af bls. 2.
átti að færa alþýðunni völdin”.
En árásin misheppnaðist.
Óheppnin elti uppreisnar-
mennina: nokkrir þeirra villtust i
hinum þröngu götum Santiago,
þar sem þeir voru ókunnir.
Forustuhópurinn, undir stjórn
Fidels Castro, komst inni herbúð-
irnar, en varðmennirnir áttuðu
sig fljótlega og gátu gefið
aðvörunarmerki. Fidel gaf
skipun um undanhald og margir
árásarmanna komust undan og
flúðu til fjalla. Abel Santamaria
hafði tekið borgarsjúkrahúsið við
tuttugu menn, og Raúl Castro
dómshöllina. Fjórir uppreisnar-
menn féllu i Moncada i sjálfum
bardaganum. Blóðbaðið hófst að
bardaganum loknum.
Uppreisnarmennirnir voru hand-
teknir hver á fætur öðrum og
drepnir, flestir eftir hinar hroða-
legustu pyndingar. Blóðhundar
Batista fengu fulla útrás fyrir
kvalalosta sinn, Aður en Abel
Santamaria dó,höfðu verið rifin
úr honum augun. Um sjötiu
manns voru sviptir lifi i þessu
óhugnanlega fjöldamorði.
Fidel Castro hafði komizt úti
sveit. A fimmta degi eftir árásina
var hann handtekinn ásamt
Oscar Alcalde og öðrum félaga.
Honum vildi bað til lifs að liðsfor-
inginn, sem handtók hann var
gamall skólafélagi hans og auk
þess heiðarlegur náungi, sem
vildi afstýra frekari morðum.
Hann fór þvi ekki með fangana til
Moncada, heldur i fangelsi
Santiago-borgar.
Sagan mun
sýkna mig
Tveimur mánuðum siðar hófust
réttarhöld i Moncada-málinu.
Fidel Castro varði sjálfur mál
sitt, sem lögfræðingur. Varnar-
ræða hans fyrir þessum rétti er
heimsfræg. Reyndar var þar
fremur um sókn að ræða en vörn,
öll er ræðan hatrammleg ákæra á
Batista og stjórnarfar bandarisku
hálfnýlendunnar Kúbu. A næstu
mánuðum vann Fidel að þvi að
búa ræðuna til prentunar, skrifaði
hana með sitrónusafa á milli lina
i bréfum til ættingja og vina.
Bréfin voru ritskoðuð, en fang-
elsisstjórninni datt ekki i hug að
leita að ósýnilegu letri. U.þ.b. ári
eftir réttarhöldin kom ræðan út á
prenti i Havana undir nafninu
„Sagan mun sýkna mig”.
33 uppreisnarmenn voru
dæmdir til fangelsisvistar fyrir
þátttöku i Moncadaárasinni.
Fidel Castro hlaut þyngsta
dóminn, fimmtán ár. 1 fangelsinu
á Furueyju stofnuðu þeir félagar
námshóp og lásu allt, sem þeir
gátu náð i af sósíaliskum bók-
menntum, ritum Jose Marti og
annarra kúbanskra föðurlands-
vina. Þeir höfðu samband við
fálaga utan fangelsisins og voru
harðákveðnir að halda baráttunni
áfram um leið og þeir losnuðu úr
fangelsi. Það gerðist fyrr en
nokkurn hafði grunað: u.þ.b.
tveimur árum eftir réttarhöldin
neyddist Batista til að veita þeim
sakaruppgjöf.
26. júli-hreyfingin var orðin
óumflýjanleg staðreynd i
kúbönsku þjóðlifi þegar áður en
þeir félagar gengu útúr fang-
elsinu á Furueynni. Fidel Castro
var þjóðhetja. Það, sem siðar
gerðist er kunnara en frá þurfi að
segja. Kúbönsku byltingunni lauk
með fullum sigri hinn fyrsta
janúar 1959. Arásin á Moncada
var upphaf hennar. Þessvegna er
26. júli þjóðhátiðardagur Kúbu.
Havana, 4. júli 1973
Ingibjörg Haraidsdóttir
Akureyringar
Framhald af bls. 1.
sögu og sama er að segja um tvo
skipstjóra, sem félagið sendi út á
veiðar á togurunum. Verða þcir
afhentir i lok ágústmánaðar
næstkomandi.
Eins og menn vita hafði
Otgerðarfélag Akureyringa
pantað tvo af Spánartogurunum.
Nú hefur þaö beöið um að vera
leyst undan þeim kaupum og
sagði framkvæmdastjórinn,að
félagið hefði verið orðið smeykt
við stöðina vegna smiðagalla,
sem komið hafa fram i skipum,
sem hún hefur byggt fyrir ís-
lendinga, en eins og kunnugt er
hafa komið i ljós miklir gallar i
Bjarna Benediktssyni og litils-
háttar i Júni, sem stafa af
óvandaðri vinnu.
Einnig sagði hann, að þar sem
nú hefðu verið fest kaup á
togurunum tveim frá Færeyjum
væri alls óvist.hvort félagið heföi
fjárhagslegt bolmagn til að kaupa
tvo togara til viðbótar. —ÞH
Efnahagslögsaga
Framhald af 12 siðu
Þess ber að geta, að hér er
aðeins um að ræða hluta af verk-
efnum hafsbotnsnefndarinnar.
Dagskrármálin eru alls 25 og
skiptast sum þeirra i undirliði. Af
dagskrármálunum má nefna
reglur um sérstööu eyrikja og
rikja, sem ekki eiga aðgang að
sjó, siglingafrelsi, alþjóðleg sund,
sjávarmengun, visindalegar
rannsóknir á hafinu og hið alþjóð-
lega hafsbotnssvæði.
Hverjir eiga?
Framhald af 12 siðu
fram venjulegan framfærslu-
kostnað. Fallist skattstjóri á
umsókn skattþegns, skulu
tekjur hans til álagningar
lækkaðar um eigi lægri fjárhæð
en nemur barnafrádrætti sam-
kvæmt 16. gr. fyrir hvert barn,
sem þannig 'er ástatt um.
3. Efskattþegnhefurforeldra eða
aðra vandamenn sannanlega á
framfæri sinu.
4. Ef skattþegn hefur haft veruleg
útgjöld vegna menntunar
barna sinna eldri en 16 ára.
5. Ef skattþegn hefur orðið fyrir
verulegu eignatjóni af völdum
náttúruhamfara, eldsvoða eða
búfjársjúkdóma, enda hafi
hann ekki fengið tjón sitt bætt
úr hendi annarra aðila.
6. Ef gjaldþol skattþegns hefur
skerzt verulega vegna tapa á
útistandandi kröfum, sem ekki
stafa frá atvinnurekstri hans.
7. Ef skattþegn lætur af störfum
vegna aldurs og gjaldþol hans
skerðist verulega af þeim
sökum.
Nánari ákvæði um skilyrði fyrir
framangreindum ivilnunum
skulu sett i reglugerð. Skattstjóri
getur veitt ivilnanir samkvæmt
þessari grein án umsóknar.
Akvörðun skattstjóra samkvæmt
þessari grein má skjóta til rikis-
skattstjóra, sem tekur endanlega
ákvörðun i málinu. Rikisskatt-
stjóri skal sérstaklega fylgjast
með ivilnunum þeim, sem skatt-
stjórar veita samkvæmt þessari
grein, og sjá til þess, að sam-
ræmis sé gætt og réttum reglum
fylgt.
Greiði skattþegn, sem skatt-
skyldur er hér á landi, samkvæmt
ákvæðum 1. kafla þessara laga,
skatta af eignum sinum og
tekjum, sem skattskyldar eru hér
á landi til rikissjóðs eða opin-
berra aðila i riki, sem Island
hefur ekki gert við tvisköttunar-
samning, er rikisskattstjóra
heimilt, samkvæmt umsókn
skattþegns, að lækka tekjuskatt
eða eignarskatt með hliðsjón af
þessum skattgreiðslum.
Skattskráin
Framhald af bls. 1.
Prentvillur i skatt-
skránni
Það mætti teljast með ólikind-
um, ef engar prentvillur væru i
skattskránni. útreikningur og
prentun eru unnin hjá Skýrslu-
vélum, og við gerð skrárinnar
geta viða slæðzt inn villur.'Spjöld
eru ef til vill rangt götuð eða ein-
hver áföll verða i vélavinnunni.
Starfslið skattstofunnar fer yfir
alla skattskrána i leit að slikum
villum. Einn hæstaréttardómari
hér i borg á samkvæmt skatt-
skránni ekki að greiða neitt i
tekjuskatt og er það augljóslega
prentvilla i skránni.
Ef menn verða varir við svona
villur, borgar sig að leiðrétta þær
strax, þvi að skattayfirvöld geta
krafið menn um viðbótar-
greiðslur hvenær sem er á næstu 6
árum.
Taprckstur
t lögum um tekjustofna sveitar-
félaga No. 8. 1972 segir svo i 4.
málsgrein 23. greinar:
,,Nú vinnur einstaklingur eða
hjón, annað hvort eða bæði eða
ófjárráða börn þessara aðila við
eigin atvinnurekstur eða
sjálfstæða starfsemi, og er þá
sveitarstjórn heimilt, ef sérstak-
lega stendur á, að ákveða,að
tekjur slikra aðila til útsvars
verði ákveðnar eftir þvi, sem ætla
má, að laun þessara aðila miðað
við vinnuframlag þeirra hefðu
orðið, ef þau hefðu unnið starfið i
þágu annars aðila.”
Nú má hugsa sér dæmi, sem
félli undir þetta lagaákvæði.
Skipstjóri, sem jafnframt er út-
gerðarmaður skilar rekstar-
reikningi útgerðarinnar með
framtali sinu, þvi að um einka-
rekstur er að ræða. Útgerðin er
rekin með tapi. og skipstjórinn
ætlar sér engin laun, hann hefur
lifað af fyrningum. Ef ekki væri
til áðurnefnt lagaákvæði, greiddi
hann ekkert útsvar. En i krafti
þess er áætlaður á hann tekju-
stofn og er þá gengið út frá
skýrslum um launaskatt, en á
þeim sjást meðallaun skipstjóra.
Nú má vera, að ástandið hafi á
siðasta ári verið svipað hjáEinari
rika og fyrrnefndum skipstjóra,
en ekki hefur enn unnizt timi til að
áætla þessar tekjur.
Útsvar hans og ýmissa
annarra, sem likt er ástatt um,
verður örugglega tekið til end-
urskoðunar I krafti þessara
ákvæða. Mega þeir þvi búast við
verulegri hækkun útsvars. ö.P.
Úrslit í
bikarkeppni
Úrslitin i 16 liða bikarkeppni
K.S.l. I gærkvöld, en þá fóru fram
fimm leikir, urðu þessi: 1B1 —
IBA, 5—1, KR — Völsungur, 3—2,
tBK— UBK, 5—0, IA — Selfoss,
3—2, IBV — Valur, 1—0.
: SPAKMÆLI :
■ ■
a Sá sem kann að fela kann »
J lika listinni að stela. En sá ^
* sem kann ekki að fela, ætti ■
a aldrei að stela. “
■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■
Staöa fræðslustjórans í
Reykjavík er laus
til umsóknar
Starfið veitiSt frá 1. október 1973.
Laun samkv. kjarasamningi borgarinnar
og Starfsmannafélags Reykjavikurborg-
ar.
Umsóknir ásamt upplýsingum um mennt-
un og fyrri störf sendist skrifstofu borgar-
stjóra fyrir 17. ágúst n.k.
Reykjavik 25. júli 1973.
Borgarstjórinn i Reykjavik
____________________________________
V estmannaeyingar
Þeir Vestmannaeyingar
sem snúið hafa aftur til Vcst-
mannaeyja og setzt þar að eða
stunda vinnu þar hafa nú liafið
undirskriftasöfnun þess efnis
að Viðlagasjóður sjái til þess
að viðlagasjóðshúsin verði
reist í Vestmannaeyjum, ein-
hver þeirra að minnsta kosti.
Nú þegar hafa nokkrar lóða-
umsóknir bori/t til bæjar-
sljórnarinnar i Eyjum og vilja
nienn reisa hús i þvi nýja
liverfi sem þcgar hefur verið
ákveðið að bvggja. Finust
Vestni annaey ingum ekki
nenia eðlilegt að eitthvað af
þeim viðlagasjóðshúsum sem
enn eru ekki komiii til landsins
vcrði reist þar i stað þess að
lialda óbreyttri fyrri áætlun.
Skólastjóra og kennara
vantar að Alþýðuskólanum Eiðum,
umsóknarfrestur til 5. ágúst. Upplýsingar
i menntamálaráðuneytinu og hjá Sigurði
Blöndal, Hallormsstað.
Skólanefndin.
F#?A FLI7CFÉLACWC/
Afgreiðslumenn óskast
Flugfélag íslands óskar að ráða tvo
afgreiðslumenn til starfa i farþega-
afgreiðslu á Reykjavikurflugvelli.
Verzlunarskóla- eða Samvinnu-
skólamenntun nauðsynleg.
Umsóknareyðublöðum, sem fást i
skrifstofum félagsins, sé skilað til starfs-
mannahalds i siðasta lagi föstudaginn 6.
ágúst n.k.
FLUGFÉLAG ÍSLANDS H.F.
FLVCFELAC ISLANDS
Hagsýn húsmóðir
notar Jurta
nntf \/nrrS /
gott verö/
gott bragö
• smjörlíki hf.