Þjóðviljinn - 12.08.1973, Side 3

Þjóðviljinn - 12.08.1973, Side 3
Sunnudagur 12. ágúst 1973. ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 3 Viðlagasjóðshúsin i Hvcra- gerði, þau sem ekki eiga að standa nema til bráðabirgða. Hveragerði ... Þórgunnur sagði, að ekki hefðu allir sem byggju i Hveragerði atvinnu á staðnum. nokkrir vinna utan þorpsins og þá flestir við sjósókn úr ná- grannaverstöðvum. En at- vinnulff i Hveragerði er mjög blómlegt um þessar mundir og frekar skortur á vinnuafli en hitt, einkum i sambandi við byggingavinnuna, þvi að fyrir utan þau hús sem Hvergerð- ingar sjálfir eru að byggja er verið að reisa viðlagasjóðs- hús. Reist hafa verið eða er verið að reisa 50 bráðabirgðahús á vegum Viðlagasjóðs og er þannig gengið frá þessum hús- um, að þau munu ekki lengi eiga að standa. Þessi hús eru austast i Hveragerði, en aftur á móti eiga öll varanleg hús á vegum Viðlagasjóðs að risa vestast og þar eru einnig þau ibúðarhús önnur sem verið er að byggja. Það má þvi segja að ný hverfi hafi risið i ár sitt hvoru megin við gamla þorp- ið, sagði Þórgunnur. Þá stendur til að hefjast Aldrei hefur jafn mikið verið byggt af ibúðarhúsum i Hveragerði og á þessu ári barnafjölskyldur, þannig að hætt er við að mikil þröng verði i barna- og gagnfræða- skólunum i Hveragerði næsta vetur. Þórgunnur sagði að nokkuð væri unnið að varanlegri gatnagerð i þorpinu. Varan- legt slitlag hefur verið sett á nokkur hundruð metra af gatnakerfinu. Frá Suður- landsvegi að hótelinu hefur verið sett varanlegt slitlag og — Það hefur ekki fyrr verið byggt jafn mikið af ibúðarhús- næði hér i Hveragerði og i ár og jafnvel þótt viðlagasjóðshúsin séu ekki talin með. Fyrir utan þau eru hér i smiðum ibúðarhús svo tugum skiptir það er mest ungt fólk sem byggir, bæði aðflutt og eins Hvergerðing- ar. íbúum hefur einn- ig f jölgað mikið hér og eru nú orðnir fast að eitt þúsund, sagði Þórgunnur Björns- dóttir i Hveragerði er við höfðum samband við hana og spurðum hana um mannlif og fleira þar um slóðir. handa við byggingu nýs Iþróttahúss i Hveragerði og sagði Þórgunnur að þörfin á þvi væri orðin brýn, enda hefði ekkert verið gert i skólabygg- ingum siðan barnaskólinn var byggður 1946. Nú er það svo að I viðlagasjóðshúsin hafa flutt Hin nýja og glæsilega kirkja i Hveragerði.sem tekin var i notkun fyrir ári. lagfært i kringum hótelið þannig aö aðstaðan fyrir áætl- unarbila hefur batnað. Eins hefur verið lagt varanlegt slit- lag á götuna frá hótelinu að sundlauginni og eitthvað verð- ur meira gert i þessum málum i sumar. Nýlega var tekið i notkun nýtt hús fyrir póst og sima i Hveragerði og um leið gerðust þau merku tiðindi að tekið var til við að bera póst út daglega, en það hefur ekki verið gert til þessa. Þórgunnur sagði að Hvergerðingum þætti nýja húsið glæsilegt, en þó hefði margur óskað þess að þetta væri hús undir gagnfræðaskól- ann sem er á miklum hrakhól- um með húsnæði. Eftir að hraðbrautin til Reykjavikur var tekin I notk- un hefur eftirspurn eftir ibúðalóðum aukizt mjög i Hveragerði að sögn Þórgunn- ar og sama mun hafa gerzt á Selfossi. Þá hafa Hvergerð- ingar losnað við þann slæma óvin rykið, sem lagði yfir bæ- inn og nam við fjallatinda eftir að hraðbrautin kom. Að lokum sagði Þórgunnur, að Hveragerði sem fyrir nokkrum árum var friðsælt sveitaþorp, þar sem fólk gat gengið yfir götu án þess að lita til hægri eða vinstri og jafnvel staðið á götum úti og rabbað saman, væri nú orðið eins og hvert annað nútimaþorp með allri þeirri umferð og þeim hraða sem þvi fylgir. Sjálfsagt nokkuð sem ekki er hægt að sleppa við. — S.dór Stökur Verðlaunin fékk enginn Að mati dómnefndar reyndist ekkert þjóðhátiðarljóðanna I samkeppninni verölaunahæft. Af þvi tilefni orti Benedikt frá Hofteigi þessa stöku: Skáldin gátu ekkert ort, enda vart um slikt að spyrja, þegar bara þursagort þurfti til að enda og byrja. Mjálm Þegar Eykon urrar mest yrkir Matti sálma. En Moggalýgin bragðast bezt þá báðir saman mjáima. Mannfólki fjölgar og menn byggja sér hús

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.