Þjóðviljinn - 12.08.1973, Qupperneq 11
SIGLUFJÖRÐUR — BLÁÐAUKI
M I
Sunnudagur 12. ágúst 1973. ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 11
— Hvenær var þetta hótel
byggt, Steinar?
— Þetta hótel hefur verið
byggt i áföngum. Byrjað var árið
1937 eða 1938, en þá hét það Hótel
Siglunes. Hótel Hvanneyri, sem
þótti mjög merkilegt hótel á sin-
um tima, er nú i eigu Sparisjóðs
Siglfirðinga, og ég hef afnot af þvi
sem sumarhóteli, en þetta hótel
er opið allt árið.
— Hvað er gisting fyrir marga
hér?
— Fyrir 30 manns. Herbergin
eru 14.
— Hvernig gengur þetta svo
fyrir sig á sumrin?
— Vandamálið hjá okkur er að
fá Lágheiðina opnaðanógufljótt. I
sumar var hún ekki opnuð fyrr en
um miðjan júni, og þá var ég
búinn að tapa af a.m.k. fjórum
hópum, sem ætluðu hingað. Svo
byggist þetta mikið á ferðaskrif-
stofunum, þar sem við erum
endastöð. Það hefur verið tals-
vert mikið um það, að
Akureyringar komi hingað
Skagafjarðarleiðina um helgar,
borði hér og fari svo gegnum
Ólafsfjörð og Dalvik til baka, eða
öfugt.
Þegar ég kom hingað 1968 þá
gistu hér aðeins ein útlenzk hjón.
1 ár gista hér um þúsund erlendir
gestir. Ég vil þakka þetta þvi, að
við breyttum hótelinu og
lögðum I mikinn kostnað. Ég fékk
eina og hálfa miljón frá Ferða-
málasjóði til að endurbyggja hús-
ið, en það er hreint enginn pen-
ingur. Svo erum við með gengis-
tryggð lán, og ég hef þarafleið-
andi ekki undan að greiða vexti,
eins og þróunin hefur verið að
Nauðsynlegt
að koma sem fyrst
upp minjasafni tengt
síldveiðum og síldarverkun
■¥ ■¥■ Hótel Höfn á Siglufirði er óvenju vist-
legur staður og þar reyndist matargerð
standa á óvenju háu stigi. Við vorum
þvi nokkuð forvitnir að hitta hótel-
stjórann að máli.
Steinar Jónasson heitir hann og hefur
margt brallað um dagana. Ungur fór
hann utan frá Siglufirði og vilaði ekki
fyrir sér að hefja vinnu i kolanámu,
fyrst i Belgiu og siðan i Þýzkalandi. Eft-
ir nær þriggja ára starf i kolanámu fékk
hann leyfi til að læra matreiðslu i
Þýzkalandi, og þá konst hefur hann lært
vel. Nú er hann aftur kominn heim og
vill óðfús leggja sitt af mörkum til að
reisa við gamalt veldi Siglufjarðar.
■¥• -¥
Steinar Jónasson — frá Siglufirði ikolanámurl Beigfu og Þýzkalandi.
Nú hótelstjóri á Siglufirði og listakokkur.
Mikil aukning á
f erða ma n nastra u mi
til Siglufjarðar
Hótel Höfn.Vistlegt hótel þar sem 30 manns geta gist. Samastaður
félaganna á Siglufirði á veturna.
undanförnu. Það er ákaflega erf-
itt fyrir einstakling að reka svona
stað úti á landi.
— En þú sérð fram á bjartari
tima?
— Vissulega. Það er gifurleg
aukning ár frá ári. í fyrra komu
hingað fimm stórir hópar, en I
sumar koma tlu stórir hópar,
semsagt 100% aukning.
Steinar víkur nú talinu að nauð-
syn þess að koma upp minjasafni
á Siglufirði, tengt sfldarævin-
týrinu mikla. Ferðamálafélagið á
staðnum er að hefja undirbúning
að stofnun sliks safns, og eðlileg-
ast þykir, að slikt safn yrði i
sildarbragga. Þá þyrfti nauðsyn-
lega að koma vegur upp f Hóls-
skarð, svo að ferðafólk geti
gengið þaðan niður i Héðinsf jörð,
sem er mikill dásemdarstaður.
— Héðan eru ferðir út I Grims-
ey, en þar erum við i samkeppni
við Akureyringa, sem vilja eðli-
lega láta ferðamenn, er vilja
skoða Grimsey, fara frá sér.
Þaðan er fimm tima sigling, en
ekki nema þriggja tima sigling
héðan. Við viljum fá ferðafólk til
að hafa hér a.m.k. tveggja daga
viðdvöl, og noti þá annan daginn
til að skoða sig um hér og hinn
daginn til Grimseyjarferðar.
Vill nýja ferðaskrifstofu
norðanlands
Ég vil að hér norðanlands verði
stofnuð ný ferðaskrifstofa af
hálfu þeirra aðila sem hafa með
hótelrekstur og ferðamál að gera.
Þessi ferðaskrifstofa skipuleggi
siðan ferðir hér norðanlands á
sem heppilegastan hátt fyrir
okkur, þvi staðreyndin er sú, að
fólki er yfirleitt bent á of fáar
leiðir og jafnframt talaö um að
hvergi sé hótelpláss að fá. Ég get
til dæmis tekið á móti 60 manns
með góðu móti.og það er sjaldan
sem herbergin eru fullnýtt.
Ferðaskrifstofa Akureyrar gæti
t.d. sent hóp i dagsferð hingað,og
ég er viss um að útlendingar
kynnu mjög vel að meta slika
ferð, en það þarf bara að koma
þessu á.
— Hvernig er með aödrætti i
sambandi við hótelreksturinn?
— Við þurfum að fá allt kjöt frá
Akureyri, nema hvað ég get
fengið lambakjöt hér, en verð þá
að kaupa það á smásöluverði.
Svotil allt grænmeti verð ég að
kaupa frá’ Reykjavik eða Akur-
eyri.
— Hvernig liður svo veturinn
hjá þér?
— Október og nóvember eru
svotil dauðir mánuðir, en siðan
byrja jólaskemmtanir.og i janúar
hefjast árshátiðir. Svo eru haldin
hér almenn böll. Klúbbarnir
starfa hér allir, bridgefélagið,
Kiwanis, Lions og Rotary. Ég
teldi ekki ósanngjarnt að bærinn
styrkti þessa starfsemi yfir
vetrarmánuðina, t.d. með þvi að
borga föstu starfsfólki laun. Ég
hef ekki leyfi til að veita hér vin —
að visu fékk ég leyfi fyrir tveimur
árum en hafði þá ekki bolmagn til
að setja upp vinstúku. Svo rann
leyfið út og ég frétti, að ég myndi
ekki fá leyfi ef ég sækti um aftur.
Það er mjög bagalegt að hafa
ekki vinveitingar hér fyrir
erienda og innlenda ferðamenn.
Þetta leyfi er aðeins miðað við
sumartimann.
— Ertu fæddur hér?
— Nei, ég er fæddur á tsafirði,
en ólst upp hér og fór utan 15 ára
gamall og kom hingað aftur rúm-
lega þritugur.
Eygði möguleika þegar
nýi vegurinn kom
— Hvernig stóð á þvi?
— Mér datt ekki i hug að ég ætti
eftir að setjast hér að aftur. Ég
eygöi hér möguleika þegar Siglu-
fjörðurvar kominn i samband við
vegakerfið. Siglufjörður hefur
margt að bjóða ferðafólki, þó að
við sjáum það kannski ekki.
Staðurinn hefur vissan sjarma,
sem verkar vel á útlendinga. Þeir
tala um veðursældina hér, fjöllin
og Strákagöngin, sem þeim finnst
merkileg framkvæmd hjá svo
fámennri þjóð. Svo kannast
margir við sfldarævintýrið og
finnst gaman að ganga hér um
bryggjurnar, sem eru þvi miður
að grotna niður.
Grimsey er aðalaðdrátt-
araflið
Ferðamannastraumurinn er að
aukast eins og ég nefndi áðan og
það er búið að bóka talsvert fyrir
sumarið 1974. Strax I desember
var búið að bóka 600 gistinætur
fyrir árið 1974. Það er Grimsey
sem er aðalaðdráttaraflið. Við
fljúgum með fólkið héðan, ef
veður leyfir. Hér er nú statt fók,
sem ætlar út i Grimsey, en senni-
lega kemst það ekki vegna
slæmra lendingarskilyrða. Þvi
miður kemur Drangur ekki hér
við til að taka ferðamenn; hann
siglir bara beint frá Akureyri til
Grimseyjar. Ef hann tekur hópa
hér, þá verður að semja um það
sérstaklega fyrirfram.
— Er ekkert skip hér sem gæti
annazt þessa þjónustu?
— Þvi miður. Það þyrfti að
koma á föstum ferðum héðan
a.m.k. tvisvar i viku út i Grimsey.
Það myndi auka ferðamanna-
strauminn hingað gifurlega
mikið. Otlendingum finnst ákaf-
lega merkilegt að koma til
Grimseyjar og fá skjal sem sýnir
svart á hvitu að það hefur komið
norður fyrir heimsskautsbaug.
— En hvað með sjóstangaveiði?
— Það væri auðvitað mjög
æskilegt, þvi að hér er ekki nema
klukkustundar sigling á miðin.
En þetta er dýrt sport og það er
erfitt að kaupa upp þá báta sem
myndu henta bezt. Ég held að
þeir taki sem samsvarar tveggja
tonna afla að fara slika ferð.
Þetta er búið að ræða mikið og ég
vona að innan tiðar getum við
boðiö þessa þjónustu.
Það er ýmislegt hægt að gera
hér,en það vantar framtakið.
— Hvernig er að vera Sigl-
firðingur yfir veturinn?
— Þetta er dálitið merkileg
spurning. Hér vann fólk mjög
mikið yfir sumarið og tók svo
lifinu með ró á veturna. Nú er
þetta að breytast. Að undanförnu
hefur atvinna á veturna ekki
veriö minni en á sumrin. Mér
finnst lifskjör fólks hér ekki
lakari en viðast hvar annars
staðar. Fókið er nægjusamara.
Hér er allt annað viðhorf
til lifsins
— Hvers saknið þið hjónin hér?
— Við erum ánægð að vera hér
að þvi leyti, að okkur finnst vera
ódýrara aðlifahér, ogþaö mun
ódýrara. Svo er það friðurinn.
Þegar ég kem til Reykjavikur til
að hitta mann, þá fara oft einn til
tveir dagar bara i það aö finna
hann. Við erum miklu ánægðari
með okkur sjálf hér, finnum að
við höfum eitthvað til að lifa fyrir,
en I Reykjavik fundum við ekkert
annað en þrældóm. Hér er allt
annað viðhorf til lifsins. Hingaö
komu ung hjón frá Reykjavik til
aö starfa hjá okkur. Þau voru að
gefast upp i Reykjavik vegna
þess að það er svo dýrt að byggja
þar. Þau leigðu sina ibúð og þau
sögðu mér að þau myndu ekki
fara héðan aftur. Þau sögðust
ekki hafa Imyndað sér að það
væri svona gott að búa úti á iandi.
Það er hrein vitleysa að stefna
öllu fólki suður, það er svona
álika gáfulegt eins og að visa fólki
um borð i báti öllu út i annað
borðiö. Það vita allir hvað gerist
þá.