Þjóðviljinn - 04.10.1973, Síða 6

Þjóðviljinn - 04.10.1973, Síða 6
6 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN I Fimmtudagur 4. október 1973 MOBVIUINN MALGAGN SÓSÍALISMA VERKALYÐSHREYFINGAR OG ÞJÓÐFRELSIS. Útgefandi: útgáfufélag Þjóöviljans Framkvæmdastjóri: Eiöur Bergmann Ritstjórar: Kjartan Ólafsson Svavar Gestsson (áb) Fréttastióri: Evsteinn Þorvaldsson Kitstjórn, afgreiösla, auglýsingar: Skóiav.st. 19. Simi 17500 (5 linur) Askriftarverö kr. 360.00 á mánuöi Lausasöluverö kr. 22.00 Prentun: Biaöaprent h.f. ÓVERÐSKULDAÐUR GEISLABAUGUR Nú á allt að vera NATO að þakka rétt einu sinni samkvæmt boðskap Morgun- blaðsins og forystu Sjálfstæðisflokksins. Morgunblaðinu i gær er svo mikið niðri fyrir við að gefa hernaðarbandalaginu dýrðina af brottför herskipanna að það gleymist eiginlega alveg að fagna sigri Is- lendinga. Nær öll stjórnmálaskrif blaðsins eru lögð undir þakkarávörp til NATO og fyrirsagnirnar ekki sparaðar. Ekki vantar að þessi hitasóttarkenndi lofsöngur Morgunblaðsins leiði berlega i ljós, hvar hugur og hjarta forráðamanna Morgunblaðsins og Sjálfstæðisflokksins eru bundin. En það vissu nú reyndar flest- ir Islendingar fyrir. En höfum við þá eitthvað að þakka? Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins i utan- rikismálanefnd alþingis létu bóka þann 11. september að úrslitakostir islensku rikis- stjórnarinnar um stjórnmálaslit jafngiltu ,,striðsyfirlýsingu” og að „skaðlegt” væri að láta slikt plagg frá sér fara. Vitað er að hvorki Atlantshafsbandalag- ið sjálft, né einstök riki innan þess utan eitt, hafa látið i ljós opinbera andstöðu við flotainnrás Breta og svivirðilega hegðun þeirra hér á íslandsmiðum að undan- förnu. Það er einnig vitað, að bænakvak Geirs Hallgrimssonar i Brússel i vor ýtti hvorki við Bretum eða öðrum NATO-herrum. Allar kröfur islensku rikisstjórnarinnar til Breta og NATO voru einskis metnar með- an þær voru ekki framsettar á þann hátt, sem Sjálfstæðisflokkurinn taldi jafngilda , ,striðsyf irlýsingu’ ’. Hitt skal ekki dregið hér i efa að einhver fiðringur hafi farið að fara um fram- kvæmdastjóra NATO, þegar ljóst var að Islendingar voru staðráðnir i þvi, að standa við úrslitakosti sina um stjórn- málaslit, ekki sist, ef framkvæmdastjór- inn hefur verið sammála Sjálfstæðis- flokknum um það, að þar með segðum við Bretum algert strið á hendur. En það var lika þá fyrst sem einhver hreyfing komst á málið. Sú staðreynd gnæfir yfir aðrar. Svo er auðvelt fyrir islenska kjósendur að svara þeirri spurningu bæði nú þegar og siðar, hvort málin hefðu nokkurn tima komist á það stig, hefði Sjálfstæðisflokk- urinn haldið hér um stjórnvölinn. Einu sinni var sagt, að við ættum að vera i Atlantshafsbandalaginu, svo að það verndaði okkur fyrir árás óvina utan bandalagsins. En nú er boðið upp á nýjar forsendur. Sú kostulega kenning er á borð borin fyrir lesendur Morgunblaðsins, að okkur íslendingum sé reyndar alveg bráð- nauðsynlegt að vera i NATO svo að NATO-stórveldin taki mark á „striðsyfir- lýsingum” okkar og hiki þá kannski við að beita okkur sjálf hernaðarofbeldi. — Hvi- lik dýrð, hvilik dásemd! En hætt er nú við, að hefði forgöngu- mönnum aðildar íslands að Atlantshafs- bandalaginu á sinum tima verið sagt, að slik yrði þróunin i röksemdafærslu Sjálf- stæðisflokksins fyrir aðild Islands að hernaðarbandalaginu, þá hefðu ýmsir þeirra talið, að slikt gæti aldrei gerst, enda jafngilt þvi að snúa faðirvorinu upp á andskotann. En sé ráð okkar allt svo mjög i hendi Atlantshafsbandalagsins, eins og Morgun- blaðið vill vera láta, þá er nú best að þeir Morgunblaðsmenn, sem svo mjög eru ná- komnir höfuðstöðvunum i Brússel leiti svara hjá Luns framkvæmdastjóra um það, hvort NATO telji nú réttmætt, að Is- lendingar haldi uppi fullri landhelgisgæslu á miðunum, eins og lýst hefur verið yfir af forsætisráðherra íslands að gert verði, þrátt fyrir hótanir Breta um nýja her- skipainnrás. Og verði framkvæmdastjóra NATO eitt- hvað stirt um svör, þá er væntanlega ekki til of mikils mælst, að Morgunblaðið geri grein fyrir sinni eigin afstöðu til þess, hvort landhelgisgæslan eigi nú að halda á- fram togviraklippingum. Það gleymdist nefnilega i allri lofgerð- inni um NATO i gær, að gera grein fyrir afstöðu Morgunblaðsins og aðstandenda þess, varðandi það mikilvæga atriði. Hverjir eiga lífeyrissjóðina? Svar Jóns H. Bergs við opnu bréfi 17 formanna verkalýðsfélaga Siöast liöinn sunnudag birti Þjóöviljinn opiö bréf frá 17 for- mönnum verkalýösfélaga á Norö- urlandi til Jóns H. Bergs for- manns Vinnuveitendasambands tslands. t bréfinu voru 3 spurningar lagöar fyrir formann Vinnuveit- endasambandsins varöandi eign- arráö yfir lifeyrissjóöum verka- lýösfélaganna. Hér fer á eftir svar frá Jóni H. Bergs, er hann hefur óskaö eftir aö Þjóöviljinn birti. 1 opnu bréfi, sem birtist i Þjóö- viljanum s.l. sunnudag 30. september, beina formenn nokk- urra verkalýösfélaga á Noröur- landi þrem spurningum til undir- ritaös um þaö, hverjir eiga lffeyr- issjóöina. Þar eö bréfiö ber meö sér, aö átt er við hina almennu líf- eyrissjóöi, sem stofnaöir voru 19. maí 1969, eiga svör min viö þá sjóöi, en ekki er tekin afstaða til lifeyrissjóöa sérstakra stofnana eöa annarra lifeyrissjóöa. Þaö er álit mitt, aö lifeyrissjóö- irnir séu ekki eign verkalýös- hreyfingarinnar, og til þess aö foröast misskilning, vil ég taka fram, aö ég tel þá heldur ekki eign samtaka vinnuveitenda. Til álita gæti komið, hvort lifeyris- sjóöirnir eru eign sjóðfélaganna, launþeganna eöa þeirra vinnu- veitenda, sem til sjóöanna greiöa. Ég álit, að umræddir lifeyris- sjóöir séu sjálfseignarstofnanir, sem komið hefur veriö á fót meö kjarasamningum heildarsam- taka vinnumarkaðarins, þessum stofnunum hafa verið settar starfsregiur með reglugeröum sjóöanna, sem eru i samræmi viö þá kjarasamninga, sem urðu aö- dragandi aö stofnun þeirra. Aöild aö stjórnum sjóöanna er ákveöin I reglugerðunum og ákvæöum um þetta efni verður ekki breytt frek- ar en öðrum ákvæöum reglugeröa sjóöanna, nema samkvæmt þvi, sem fyrir er mælt I reglugeröun- um sjálfum. Þó að telja verði, aö lifeyris- sjóöirnir séu hvorki eign verka- lýðshreyfingarinnar né samtaka vinnuveitenda, eiga þessir aöilar ákveöin réttindi til lffeyrissjóð- anna. A þetta þó fremur viö ein- staklinga innan launþegasamtak- anna og vinnuveitendur, fyrirtæki og stofnanir, sem greitt hafa framlög til sjóðanna. Vinnuveit- endur eiga m.a. þann rétt gagn- vart sjóðunum, að þeir sjái laun- þegum fyrirtækja þeirra fyrir lif- eyri, þegar ákveönum skilyröum er fullnægt i samræmi við reglu- gerðir sjóðanna. Réttindi laun- þega og vinnuveitenda miðast yf- irleitt við upphæö þeirra fjár- framlaga, sem þessir aöilar hafa látið af hendi til sjóðanna. I umræddu bréfi til undirritaðs er minnst á aðra sjóði, sjúkra- sjóöi verkalýðsfélaganna og or- lofsheimilasjóði þeirra. Um þessa sjóði tel ég gilda mjög ólikar regl- ur og aö i sumum tilvikum séu þessir sjóðir eign hvers verka- lýösfélags, en samkvæmt samn- ingum við vinnuveitendur eru þeir ætlaðir til sjúkrastyrkja til félagsmanna og til byggingar or- lofsheimila verkalýösfélaganna, en önnur ráðstöfun þeirra háð samþykki aðila kjarasamninga um þessa sjóöi. JónH.Bergs lslendingur eða Breti? Vísir spyr: Alítið þér að Bretar séu að gefast upp í fiskveiðideilunni? Kristján Albertsson, rithöfundur : — bað er of míkiö sagt, að þeir séu aö gefast upp, en þeir eru aö gefa sig. Eg tel ekki vafa á, aö þeir geri sitt bezta til aö sættast. Heath og Sir Alec eru ljúfmenni og allir af vílja geröír tii að koma málunurn i lag. Ég vona fastlega, aö islenzka rikisstjórnin veröi jafnvelviljuö. SINFÓNÍAN í KVÖLD Fyrstu tónleikar vetrarins með Erling Blöndal Bengtson Fyrstu tónleikar Sinfóniu- hljómsvcitarinnar á þessu starfs- ári veröa haldnir i samkomuhúsi Háskólans I kvöld kl. 8.30. Erling Blöndal Bengtsson Ieikur meö hljómsveitinni sellókonsert eftir Edward Elgar: einnig eru á dag- skránni Siðdegi fánsins eftir Debussy og 4. sinfónia Beethovens. Sellókonsertinn hefur ekki veriöfluttur áöur á tónleikum hér á landi, en einleikarann þekkja islenskir tónlistarunnendur öllu betur, þar sem Erling hefur alltaf öðru hverju gefið sér tima til að heimsækja ættland móður sinnar. Erling Blöndal Bengtsson er prófessor viö konunglega tón- listarskólann i Kaupmannahöfn. Hann hefur löngu hlotið heims- frægö fyrir afburða kunnáttu og túlkun ýmissa stiltegunda. Er hann þvi afar eftirsóttur til hljómleikahalds og kennslu. Stjórnandi á þessum fyrstu áskriftartónleikum vetrarins er Frakkinn J.P. Jacquillat. Um siðustu heigi stjórnaöi hann flutn- ingi á Brúðkaupi Figarós i Paris, oghefurhann nú verið fastráöinn við frönsku óperuna frá byrjun næsta árs. Hann hefur ferðast með franskri sinfóniuhljómsveit til Bandarikjanna, Mexikó og Sovét- rikjanna og stjórnað á tónleikum hennar og hlotiö mjög góöa dóma. ■ Hljómsveitarstjórinn og einleikarinn.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.