Þjóðviljinn - 04.10.1973, Blaðsíða 12
12 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 4. október 1973
Atvinna
H j úkrun ar konur
óskast til starfa á næturvakt 2-3 nætur á
viku.
Uppl. hjá starfsmannahaldi frá kl. 15-17.
St. Jósepsspítali, Landakoti.
Sjúkraliðar
óskast nú þegar við handlækningadeild.
Uppl. hjá starfsmannahaldi frá kl. 15-17.
St. Jósepsspitali, Landakoti.
Hjúkrunarkonur
Sjúkrahús Húsavikur óskar að ráða nú
þegar tvær hjúkrunarkonur. Upplýsingar
veita framkvæmdastjóri og yfirhjúkrun-
arkona, simar 96-41333 og 96-41433.
Sjúkrahús Húsavíkur
Ljósmæður
Starf ljósmóður við Sjúkrahúsið i Húsavik
er laust til umsóknar nú þegar eða 1.
nóvember n.k. Upplýsingar um starfið
veita framkvæmdastjóri og yfirhjúkrun-
arkona, simar 96-41333 og 96-41433.
Sjúkrahús Húsavikur
Verkamenn
Þórisós H.F. óskar að ráða nokkra verka-
menn vana rörlögnum i holræsi.
Mikil vinna.
Skrifstofusimi 32270, heimasimi verk-
stjóra eftir kl. 7 á kvöldin 25666.
Vaktavinna
Aðstoðarmaður óskast við ullarmat.
Vaktavinna.
Góðar ferðir.
Álafoss h/f, simi 66300.
Aðstoðarstúlka
Þjóðviljinn vill ráða konu til aðstoðar á af-
greiðslu blaðsins, a.m.k. hálfan daginn,
með vinnutima fyrir hádegi til kl. 13 við
ýmis afgreiðslu- og skrifstofustörf.
Upplýsingar gefa framkvæmdastjóri og
afgreiðslustjóri blaðsins.
DWÐVIUm
Ráðskona óskast
á fámennt sveitaheimili úti á landi.
Má hafa með sér barn, 1 eða fleiri.
Upplýsingar á auglýsingadeild Þjóðvilj-
ans, virka daga frá kl. 9—6.
r
L
Líkflutningur
í strœtisvögnum
Fimmtudagsleikritið hefst i
kvöld klukkan 20.05. Ekki verður
annað sagt en að efnisþráðurinn
sé nokkuð freistandi, nefnilega
likflutningur með strætisvögnum
Lundúnaborgar. bað eru tveir
bræður, sem eru söguhetjur
leikritsins, en þeir taka sér fyrir
hendur að flytja bráðkvaddan
föður sinn með strætisvögnum
um London.
Höfundur útvarpsleikritsins,
Don Haworth, er kunnur fyrir
skemmtileg útvarps- og sjón-
varpsleikrit, og hefur hlotið mörg
verðlaun fyrir verk sin.
Bræðurnir, sem leikritiö fjallar
um, eru ungir menn.e.t.v. um
tvitugt. beir hafa haft það fyrir
venju að fara með pabba sinum i
Tivoli vikulega frá þvi þeir voru
kornungir. Avallt var farið með
strætisvögnum, ætið sömu leiðina
o.s.frv.
Nú bregður svo við að faðirinn
verður bráökvaddur i Tivoliinu og
liggur þvi beinast við að fá
sjúkrabifreið til að flytja hann af
staðnum. Bræðurnir, þeir Georg
og Fred, vilja það þó alls ekki.
beir segjast vera vanir þvi að
fara heim i strætisvögnum, og
vilja halda þeirri venju áfram.
Varla þarf að taka það fram, að
erfiðleikarnir sem þeir lenda i
verða margvislegir. Strætis-
vagnarnir eru fleiri en einn og
ekki bætir það úr skák að knatt-
spyrnukappleikur er að hefjast i
hverfinu og almenningsvagnarnir
þvi allir fullir.
Aðalhlutverkin leika þeir Hjalti
Rögnvaldsson og borsteinn
Gunnarsson.
Þorsteinn Gunnarsson leikur
Fred, annan bróöurinn.
Hjalti Rögnvaldsson — Georg
vildi flytja likið i strætisvagnin-
um.
STRÍÐ OG FRIÐUR
HJÁ SJÓNVARPINU
Þann 21. þ.m., sem er
sunnudagur, hefst i sjónvarpinu
sýning sovésku kvikmyndarinnar
Strið og friður, sem gerð er eftir
samnefndri sögu eftir Leó
Tolstoj, sem hér á landi er kunn
af þýðingu Leifs Haraldssonar.
Verður myndin að likindum sýnd
sjö sunnudaga i röð, en þar sem
hún hefur verið i kvikmynda-
húsum erlendis mun hún yfirleitt
hafa verið sýnd i fernu lagi.
Myndin var gerð 1966 og er ein
þeirra sovésku kvikmynda, serri
Sigurður Kristinsson, málara-
meistari i Hafnarfirði, var ein-
róma kjörinn forseti Landssam-
bands iðnaðarmanna og varafor-
seti Þórður Gröndal, verkfræð-
ingur. Aðrir i framkvæmdastjórn
voru kjörnir: Gunnar S. Björns-
son, húsasmiðameistari, Jón
Sveinsson, tæknifræðingur, Karl
Maack, húsgagnasmiðameistari,
Gunnar Guðmundsson, rafverk-
taki, Arnfriður Isaksdóttir, hár-
greiðslumeistari, ólafur Pálsson,
húsasmiðameistari, og Guðbjörn
Guðmundsson, rafverktaki. úr
stjórn sambandsins gengu:
Ingólfur Finnbogason, Þórir
Jónsson og Ingvar Jóhannsson,
mesta athygli hafa vakið siðustu
árin. Leikstjóri er Sergei
Bondartsjúk og leikur hann jafn-
framt aðalpersónuna, Pierre
(Pétur) greifa. Bondartsjúk er
meðal hinna þekktustu af kvik-
myndaleikurum Sovétrikjanna og
kunnur meðal annars úr„örlög
manns’bg óþelló, sem báðar hafa
verið sýndar hérlendis, sú siðar-
nefnda i sjónvarpinu, en i henni
fer Bondardtsjúk með aðalhlut-
verkið.
Striö og friður er næsta viða-
en þeir gáfu ekki kost á sér til
endurkjörs. 20 menn að auki
skipa sambandsstjórn Lands-
sambands iðnaðarmanna.
Þrir iðnaðarmenn voru sér-
staklega heiðraðir á þessu iðn-
þingi. Vigfús Sigurðsson, húsa-
smlðameistari og fyrrum forseti
Landssambands iðnaðarmanna,
var kosinn heiðursfélagi Lands-
sambandsins. bá var Ingólfur
Finnbogason, húsasmíðameistari
og fráfarandi forseti Landssam-
bands iðnaðarmanna, sæmdur
gullmerki iðnaðarmanna og Sig-
urður Hólmsteinn Jónsson, blikk-
smiðameistari, var sæmdur heið-
ursmerki iðnaðarmanna úr silfri.
mikil mynd og stórfengleg svo
sem vænta mátti með tilliti til
sögunnar, sem tilfyrirmyndar er.
Með önnur aðalhlutverk fara
Ljúdmila Savéleva, sem leikur
Nataliu Rostovu, og Vjatséslav
Tihonof, sem fer með hlutverk
Andreis (Andrésar) Bolkonskis
fursta. Savéleva er fræg
ballerina, en hefur ekki leikið i
kvikmynd áður. - Með hlutverk
Napóleons mikla fer V.
Strséltsjik.
Alls fara sjötiu og tvær
manneskjur með talhlutverk i
kvikmyndinni, sem er áreiðan-
lega meðal þeirra mannfrekustu,
sem um getur. Skáldsagan Strið
og friður, sem er eitt frægustu rit-
verka Tolstojs, gerist sem
kunnugt er i Napóleonsstyrj-
öldunum i upphafi aldarinnar
sem leið, og meðal mannkyns-
sögulegra stórviðburða, sem þar
er lýst, ber helst að geta þriggja-
keisaraorustunnar við Austerlitz
og innrásar Napóleons i Rúss-
land, sem var mest innrás i það
land fram á Hitlers daga. Meðal
atburða i þeirri innrás má nefna
slaginn við Boródinó, þar sem
sjötiu til áttatiu þúsund manns
féllu, lauslega áætlað, ' og
Moskvubrunann. Inn i þessi
hrikalegu átök keisara og
annarra valdsmanna fléttast svo
ástir og örlög nokkurra
rússneskra aðalsfjölskyldna, sem
samkvæmt vana aldarinnar hafa
alist upp við franskan móð og
temja sér hætti eftir þvi.
Hallveig Thorlacius hefur snúið
texta myndarinnar úr frum-
málinu.
VIPPU - BltSKÖRSHURÐIN
Lagerstærðir miðað við múrop:
Hæð: 210 sm x breidð: 240 sm
- 210 - x - 270 sm
Aðrar stærðir.smíðaðar eftír beiðnl
GLUGGAS MIÐJAN
Siðumúla 12 - Slmi 38220
Fyrsti dans Nataliu I kvikmyndinni Strið og friður. Myndin gerist
jöfnum höndum i veislusölum rússneska aðalsins og á vigvöllum
Napóleónsstyrjaldanna, þar sem tugþúsundum var slátrað.
Stjórnarskipti hjá
iðnaðarmönnum