Þjóðviljinn - 04.10.1973, Qupperneq 16
UOB V////J V) V Almennar upplýsingar um lækna- þjónustu borgarionar eru gefnar i simsvara Læknafélags Reykja- vikur, simi 18888. —■
Fimmtudagur 4. október 1973
Vikuuii 2S. septeinber tl' 4. októ-
ber verftur kvöld- nætur- og helgal
þjónusta apóteka i V'estur-
liæjar Apóteki og Apóleki Austur-
bæjar.
Slysavarðstofa Borgarspítalans
(er opin allan sólarhringinn.
Kvöld-, nætur-og helgidagavakt á
Heilsuverndarstöðinni. Simi
21230.
Finnar undirskrifa
samninginn við EBE
Meira en ár i burðarliðnum vegna hlutleysis-
sjónarmiða og ótta við fjölþjóðafélög
r
Ottast
hráefnis-
skort
Það kom fram á fundi
Félags islenskra iðnrekenda
með blaðamönnum I gær að
þeir óttast nú mjög hráefnis-
skort, sem gert hefur og gerir i
vaxandi mæli vart við sig á
heimsmarkaðinum.
Það kom fram að þegar er
orðinn mikill skortur á plasti,
timbri, stáli og ýmsum kem-
Iskum efnum.
Astæðan fyrir þessum skorti
er mikið vegna aukinnar um-
hverfisverndar i heiminum.
Margar verksmiðjur sem
vinna kemisk efni hafa orðið
að hætta starfsemi sinni vegna
þess að þær hafa ekki staðist
kröfur um umhverfisvernd.
Sama er að segja um stáliðju-
verin, þau hafa mörg orðið að
loka.
Þegar skortur sem þessi
verður á heimsmarkaði
kemur það verst niður á litlum
markaði eins og á tslandi.
Aðilar á stóru mörkuðunum
geta keypt miklu meira magn
en við og þar af leiðir að þeir
ganga fyrir kaupunum.
Það mátti greinilega
merkja kviða á islenskum iðn-
rekendum vegna þessarar
jiróunar. -S.dór.
HELSINGFORS 3/10 —
Finnska stjórnin ákvað i
dag að undirritaður
skuli viðskiptasamning-
urinn umdeildi við Efna-
hagsbandalagið, og
gengur hann i gildi um
áramót. Felur hann i
sér friverslun með
iðnaðarvörur, en
landbúnaðarafurðir eru
utan hans.
Tollur á iðnvarningi almennt
skal horfinn um mitt ár 1977, en
hann verður 11 ár að hverfa á
pappirsvörum og er það hags-
munaatriöi Finna.
Samningsdrögin voru gerð i
fyrra þegar Rafael Paasio veitti
minnihiutastjðrn jafnaðarmanna
forystu í Finnlandi. Treysti hann
sér ekki til að taka á sig ábyrgð-
ina af staðfestingu samningsins.
Varð stjórnarkreppa af. Nú er
samsteypustjórn jafnaðarmanna
og nokkurra borgaraflokka viö
völd, en við stjórnarandstöðu
ihaldsmanna og kommúnista.
Kommúnistar hafa beitt sér
mjög gegn samningum með bæði
efnahagslegum og pólitiskum
rökum.
Mikils ótta hefur gætt i Finn-
landi við samninginn vegna
tengsla EBE við NATO og
hernaðarstefnu þess, en Finnum
er mjög i mun að varðveita hlut-
leysi sitt. Nú er talið að Sovét-
menn hafi fallist á þessi tengsl
Finnlands við EBE, enda hafa
Finnar gert ákveðinn samstarfs-
samning við Efnahagssamvinnu-
stofnun Austur-E vrópu,
Comecon.
Mikilvæg forsenda fyrir þvi, að
finnska stjórnin treysti sér til að
ganga frá samningnum við EBE
var sú, að búið væri að
samþykkja „efnahagslegu
Bestu kjör
MOSKVU 3/10 — George Shultz
fjármálaráöherra Bandarikjanna
hefur verið undanfarna daga i
Moskvu til aö ræöa viö Sovétleið-
toga um viöskiptamál.
Kveðst hann hafa sannfært þá
um, að Nixon-stjórnin vildi gera
sitt ýtrasta til að Sovétrikin yrðu
látin njóta svokallaöra „bestu-
varnarlögin” i þinginu, en það
var gert á föstudaginn i siðustu
viku. Þar er kveðiö á um verð-
jöfnunarkerfi og rikisvaldinu gef-
in mjög viðtæk heimild til að hafa
stjórn á verðlagi.
thaldsmenn greiddu atkvæði
með þessum lögum vegna teng46a
þeirra við EBE-samninginn, þótt
þeir yndu ákvæðum þeirra illa.
Hins vegar snerust kommúnistar
á móti þeim af sömu ástæðum,
enda þótt þeir teldu þau i sjálfu
sér spor i framfaraátt.
Kekkonen forseti segir i yfirlýs-
ingu sem fylgdi fréttinni af
ákvörðun rikisstjórnarinnar, að
áhrif samningsins væru ekki
eingögnu jákvæð. Samningurinn
hvetti til þess aö rikið fengi val til
að takmarka áhrif fjölþjóðlegra
fyrirtækja i atvinnulifinu.
við Rússa
kjara” af hálfu Bandarikjanna,
en i þvi felst lægri toilur en ella og
vörukaupalán til langs tima.
Shultz kvaöst hafa skýrt Sovét-
mönnum frá þvi, að meirihluti i
báðum deildum Bandarikjaþings
vildi ekki veita þeim „bestu-kjör”
nema Gyðingar fengju að fara
frjálsir ferða sinna frá Sovétrikj
Nixon virðist
Tilbúinn að
reka Agnew
WASHINGTON 3/10 — Nixon
Bandarikjaforseti lýsti yfir
fyilsta stuöningi sinum viö Elliot
Richardson dómsmálaráöherra
og aöstoöarmann hans Henry
Peterson, en þeir hafa báöir feng-
iö mikla ofanfgjöf hjá Agncw
varaforseta fyrir þeirra hlut I
dómsrannsókninni gegn honum.
Nixon viðurkenndi að ákærurn-
ar gegn Agnew væru mjög alvar-
legs eðlis, en hann er talinn hafa
gerst sekur um mútuþægni og
skattasvindl meðan hann var rik-
isstjóri i Maryland. Ekki kvaðst
Nixon geta eða vilja þvinga Agn-
ew til að segja af sér þar eð hann
væri „kosinn af fólkinu” til em-
bættisins. Agnew yrði aö ákveða
það sjálfur hvort hann kysi að
sitja áfram i embætti, ef formleg
ákæra verður lögð fram á hendur
honum.
ALÞÝÐUBANDALAGIÐ
Fundur á Selfossi
Alþýðubandalagið i Arnessýslu boðar til fundar i félaginu
föstudaginn 12. október. Verður fundurinn haldinn i litla salnum i
Selfossbiói og hefst hann kl. 21.
Dagskrá fundarins:
1. Kosning fulltrúa á flokksráösfundinn og undirbúningur
flokksráösfundar.
2. Herstöövamáiiö.
3. Skipuiagning félagsstarfs i vetur.
4. önnur mál.
Félagar,fjölmenniö. — Stjórnin.
Ráðstefna um sveitarstjórnarmálefni
Kjördæmisráð Alþýðubandalagsins i Austurlandskjördæmi efnir
til ráðstefnu um sveitarstjórnamálefni næstkomandi laugardag,
þann 6. október.
Ráðstefnan verður haldin i Félagsheimilinu „Skrúð” á Fá-
skrúðsfirði og hefst klukkan 2 e.h.
Framsögumenn eru Sigurður Blöndal, skógarvörður, sem ræðir
um undirbúning komandi sveitarstjórnakosninga, og Helgi Selj-
an, alþingismaður, er ræðir um löggjöf um landshlutasamtök
sveitarfélaga.
Alþýðubandalagið á Akureyri
Almennur félagsfundur I Alþýðuhúsinu laugardaginn 6. októ-
berkl. 17.00. Þátttakendur á ráðstefnu ungra Alþýðubandalags-
manna, sem haldin verður á Akureyri þessa helgi, koma á fund-
inn.
Fundarefni:
1. Einar Kristjánsson ræðir um herstöðvamálið.
2. Ragnar Arnalds ávarpar fundargesti og svarar fyrirspurn-
um.
Félagar! Fjölmennum og mætum stundvislega.
Miöskjöldurinn sem sýnir nafngift landsins.
Veggskildir eftir
Einar Hákonarson
Gefnir út á vegum Þjóðhátiðarnefndar
Þjóðhátíðanefnd hefur
látið gera þrjá veggskildi
með listaverkum eftir Ein-
ar Hákonarson og sýndi
hún blaðamönnum þá á
fundi i gær. Einnig hefur
hún látið frá sér fara daga-
tal fyrir þjóðhátiðará'ið.
Einar Hákonarson vann sigur i
samkeppni um myndir á vegg-
skildi^n alls bárust 168 tillögur að
þeim. Myndirnar þrjár eru allar
byggðar á atriðum úr Landnámu.
Ein þeirra sýnir þegar Hrafna-
Flóki sleppir siðasta hrafninum á
leið sinni til íslands. önnur er af
sama manni i Vatnsfirði þegar
hann sér Breiðafjörð fullan af is
og skirir landið Island, og sú
þriðja er af þeirri athöfn þegar
land er helgað með eldi eins og
tiðkaðist á landnámsöld.
Fyrirtækið Gler og postulin i
Kópavogi gerði veggskildina og
eru þeir úr þýsku postulini.en ut-
an um þá er rammi úr kjörviði
sem einungis vex á Indóneslu.
Þjóðhátiðarnefnd hefur gert
samning við tvo aðila, O. Johnson
og Kaaber og SIS, um dreifingu
allra minjagripa sem nefndin læt-
ur gera. Mun SÍS dreifa þeim inn-
an samvinnuverslana en O.J. og
K. i einkaverslunum. Veggskild-
irnir þrir kosta rúmar 2600 krónur
og er sama verð um allt land.
Skildirnir verða aðeins seldir þrir
saman og er dreifing þeirra þegar
hafin.
Dagatalið sem getið var er eftir
Kristinu Þorgeirsdóttur. en hún
vann samkeppni um gerð merkis
þjóðhátiðarnefndar. Dagatalið er
út taui og þrykktar á það myndir
af landvættunum fjórum. og
merki nefndarinnar er einnig á
þvi.
Almenn ,
óánœgja
með frétta-
tíma hljóð-
varpsins
Mjög almenn óánægja virö-
ist vera meö hinn nýja kvöld-
fréttatima hljóövarpsins eftir
að hann var færður frá kl. 19
til 18.30.
Gisli Guðmundsson frétta-
ritari Þjóðviljans á Suðureyri
simaði til okkar i gær að
verkafólk þar væri upp til
hópa mjög óánægt með
þennan flutning fréttatimans.
Benti hann á aö fólk stundar
vinnu til kl. 19 og getur þvi
ekki hlustað á kvöldfréttir
sem sagðar eru kl. 18.30.
Þá hafa margir fleiri haft
samband við okkur og kvart-
að undan þessu. Háfnarverka-
menn hafa hringt og sagt að
þeir hafi verið búnir að stila
sinn vinnutima inná þaö að
vera komnir heim kl. 19 til að
heyra kvöldfréttir. Nú gætu
þeir ekki heyrt þær og bentu
þeir á að þeir heyrðu almennt
ekki fréttir allan daginn og
yrðu þvi að láta sér nægja
sjónvarpsfréttirnar einar.
Það skal tekið fram'að þessi
flutningur fréttatimans er að-
eins tilraun og verður þessu
eflaust breytt aftur fyrst svo
almenn óánægja er með hina
nýju timasétningu.
— S.dór.
Kleifarvatnsmálið:
Fátt nýtt
í skýrslunni
1 gær skilaði landssiminn loks
skýrslu til bæjarfógetans i Hafn-
arfirði um tækjafundinn i Kleifar-
vatni á dögunum.
Að þvi er bæjarfógetinn i Hafn-
arfirði sagði okkur i gær þá sýnd-
ist honum fátt nýtt I þessari
skýrslu en tók fram, að hann hefði
ekki farið nægjanlega vel yfir
hana enda hefði hann rétt verið að
fá hana i hendur.
Við munum skýra nánar frá
þessari skýrslu i blaðinu á morg-
-S.dór
Blaðberar
óskast
núþegar i eftir talin
hverfi:
Laugavegur 11
Seltjarnarnes
Laugarnes
Sigtún
Álfheima
Grunna
Hjarðarhaga
Hringbraut
Hverfisgötu
Rauðalæk
Hafið samband við af-
greiðslu Þjóðviljans i
simuin
17500 eða 17512.
—ÞH