Þjóðviljinn - 06.10.1973, Side 12
12 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 6. október 1973.
Þórir Hallgrimsson:
Fimmkallinn
og réttlœtið
Bréf til dómsmálaráðherra
Paul Simon (t.v.) og Arthur Garfunkel leika músik sina I sjón-
varpinu i kvöid .
Þriggja mánaða vinna við
upptöku á einu lagi
Þar sem þú ert æðsti maður
dómsmála i landinu og ábyrgur
fyrir þvi að landsbúar búi við það,
sem við köllum „heilbrigt réttar-
far”, leyfi ég mér að senda--þér
þetta bréf. Astæðan fyrir þvi,að
bréfið er opið, er sú að ég álit að
efni bréfsins snerti fleiri en okkur
tvo. Fyrir nokkru lagði ég bil
minum við stöðumæli i Reykja-
vfk. Ég ætlaði að staldra stutt við
og setti þvi einn ,,5 kall” i mælinn,
en ekki tvo.
Þegar ég kom að bilnum aftur
var timinn á mælinum útrunninn,
og miði á bilnum. A miðanum
stóð að mér bæri að borga stöðu-
mælasekt. Ég mátti ekki vera að
þvi þá aðborga sektina, setti mið-
ann i hanskahólfið og gleymdi
þessu.
Þetta þykja þér eflaust ekki
miklar fréttir né tilefni til bréfa-
skrifta, en þetta er upphaf máls-
ins. Nokkru siðar barst mér
skattseðillinn og kvaðning frá
lögreglunni i Kópavogi að mæta
strax og borga sekt vegna van-
ræksluá aðsetja 5kr i stöðumæli,
ella yrði mér stefnt fyrir Saka-
dóm Kópavogs.
Ég bölvaði bæði skattseðlinum
og kvaðningunni.
En ég er forvitinn eins og
margir aðrir og langaði að vita
hvað kunningjar minir og ýmsir
efnamenn i Kópavogi borguðu i
opinber gjöld.
Þess vegna keypti ég Skatta-
kver Kópavogs.
Eftir að hafa lesið það rann mér
heldur betur i skap. Það er nefni-
lega ljóst, þó það sé vinstri stjórn,
að fjöldi manna, sem lifir vægast
sagt góðu lifi og stundar arðvæn-
lega kaupsýslu og brask, borgar
svo til ekkert i skatta.
Ýmist hljóta þessir menn
hreinlega að Ijúga til með tekjur
sinar eða hafa i frammi einhver
töfrabrögð til að gera framtalið
„löglegt”.
Sumir hafa eflaust leikið þetta
árum saman og stolið undan
hundruðum þúsunda eða réttara
sagt miljónum króna. t Þjóðvilj-
anum voru nýlega nefnd tvö dæmi
um furðulega álagningu i Kópa-
vogi.Annar aðilinn var heildsali,
sem á konu sem er i hálfu starfi
hjá þvi opinbera. Hann borgar 27
þús. I tekjuskatt. Hinn aðilinn er
einn stærsti kaupmaðurinn i
Kópavogi. Hann borgar engan
tekjuskatt.
Ótal fleiri dæmi mætti nefna.
Enginn,sem til þekkir, trúir. þvi
að þessir menn hafi ekki meiri
tekjur en fólk, sem lifir á elli-
styrk. I það minnsta dettur eng-
um i hug að gauka að þeim ýsu-
flaki eða mjólkurhyrnu, svo þeir
þurfi ekki að svelta, og mega ts-
lendingar þó ekkert aumt sjá.
Nú langar mig að leggja fyrir
þig smá þraut, ólafur Jóhannes-
Samtök rafverktaka efndu til
blaðamannafundar nýlega til
þess að tilkynna fréttamiðlum að
álgning á vinnu rafverktaka væ’ri
nú allt of lág. Þcss vegna væru
tvö stærstu rafverktakafyrirtæki
landsins að hætta rafverktaka-
starfsemi.
Segir I álitsgerð rafverktaka,
sem Þjóðviljanum hefur borist,
að siðastliðin fjögur ár hafi
álagning lækkað verulega. Segja
verktakar að launakostnaður á
klukkustund nemi 315,52 kr. Þeir
skýra og frá þvi að þeir hafi sl.
vetur orðið að heyja harða bar-
son. Segjum sem svo að þú sért
staddur á Alfhólsveginum i Kópa-
vogi á móts við fógeta-skrifstof-
una, ásamt einum lögregluþjóni.
Þar sem þú stendur þarna
koma þeir hlaupandi til þin sam-
timis, bankastjórinn i Otvegs-
bankanum og hann Karl I Alfhól.
Bankastjórinn tilkynnir þér að
þjófur hafi rænt 200 þús. kr. frá
konu, sem var að leggja inn fé, en
Karl segir að annar þjófur hafi
stolið frá sér fimm karmellum.
Nú spyr ég þig, Ólafur Jó-
hannesson:
Hvorum þjófnum ætlar þú aö
segja lögregluþjóninum að ná?
Ég álit,að þú munir segja lög-
regluþjóninum að gripa banka-
ræningjann, en eftir á að hyggja
held ég, að þú munir segja lög-
regluþjóninum að elta karmellu-
þjófinn en láta bankaræningjann
eiga sig.
Ég álykta þetta af fenginni
reynslu.
Vissulega bar mér að setja
fimm-kallinn i stöðumælinn, en
mér finnst það hlálegt að stefna
mér fyrir Sakadóm Kópavogs,
leiða mig fram fyrir sprenglærða
dómarafulltrúa, sem biða min i
fullum embættisskrúða og taka
laun úr efstu flokkum launakerfis
opinberra starfsmanna, allt útaf
einum fimmkalli, sem ekki fór i
stöðumæli.
A sama tima er það látið við-
gangast, að fjöldi manna stelur
undan skatti tugum og hundruð-
um þúsunda. Þeir eru ekki leiddir
fyrir dómarafulltrúana finu.
Allt „kerfið” er sett i gang til að
eltast við 500aura, en ekkert virð-
ist t.d. vera athugavert við það,
þó að varla nokkur leigubilstjóri i
Kópavogi borgi tekjuskatt. Er
þetta hin nýja stefna vinstri
stjórnarinnar i skattamálum og
dómsmálum?
Að lokum vil ég segja þér, ólaf-
ur, að takir þú rögg á þig, sem
dómsmálaráðherra, og leiðréttir
þetta óréttlæti, mun ég með glöðu
geði greiða 5 krónurnar. Ég er
þess fullviss, að þú munt hljóta
stuðning alls almennings i landinu
og ekki ætti að standá á samstöðu
innan rfkisstjórnarinnar. Ekki er
að efast um stuðning Halldórs,
fjármálaráðherra, sem mun ef-
laust fá margar miljónir i rikis-
sjóð, sem hafðar hafa verið af
honum. Alþýðubandalagið og
Vinstri menn munu eflaust styðja
þig, en báðir þeir flokkar telja sig
hina einu sönnu verkalýðsflokka.
En gerir þú ekki neitt i málinu,
mun ég aldrei láta af hendi við
undirmenn þina né þig sjálfan
þennan þýðingarmikla „fimm-
kall”, sem „kerfið” er að eltast
við.
Með kveðju,
áttu við verðlagsyfirvöld. Hafi
m .a. orðið niðurstaðan fyrir verð-
lagsnefnd að fela Framkvæmda-
stofnun rikisins að kanna
álagningarþörf rafverktaka og
væri álitsgerðar að vænta á næst-
unni.
„Heimilisiðnaður eða hokurbú-
skapur mun ekki leysa vandamál
tækniþjóðfélags tuttugustu
aldar”, segja rafverktakar og
krefjast hærri álagningar.
Rétt er að láta koma fram að
rafverktakar geta þess ekki i
greinargerð sinni að í vexti er
aðili sem rafverktaki, en það er
félag rafvirkjasveinanna sjálfra.
Simon og Garfunkel munu
hræra hjörtu fslenskra sjónvarps-
áhorfenda I kvöld. 50 minútna
langur þáttur með þessum
snillingum hefst klukkan 20.50, og
munu þeir þar flytja mörg af
bestu lögum sinum, auk þess sem
þeir rabba um tónlist sina og sig
sjálfa.
Það þarf vart að kynna þá
félaga fyrir Islendingum, frægð
þeirra hér á landi, sem annars
staðar, er mikil, og vafalaust eru
þau mörg, geðshræringartárin,
sem fallið hafa við undirleik tvi-
menninganna.
Paul Simon og Arthur Gar-
funkel byrjuðu að leika saman
um 1960, eða á sama tima og
Bitlarnir fóru fyrst að láta ljós
sittskina. Simon var þá prófessor
i ensku við bandariskan háskóla,
og yfirgaf hann það starf um leið
og hann fóf að leika með Gar-
funkel.
Þeir félagar léku stanslaust
1 vetur verður I fyrsta sinn
haldið verkstjóranámskeið fyrir
skipstjórnarmenn á farskipum.
Er það undirbúið I samvinnu við
samtök skipstjórnarmanna og
farskipaútgerðir. Það er verk-
stjórnarfræðsla Iðnþróunar-
stofnunarinnar sem annast nám-
skeiðið. Þá verður haldið sér-
námskeið fyrir verkstjóra sveit-
arfélaga, sem. annast verklegar
framkvæmdir. Hafa slik nám-
skeið verið haldin áður.
I kennsluáætlun Verkstjórnar-
fræðslunnar fyrir næsta vetur
kemur fram, að ráðgert er að
halda fjögur 4ra vikna námskeið
og tvö skemmri framhaldsnám-
skeið. Tvö lengri námskeiðanna
eru almenn, þau höfða til sér-
hvers verkstjóra, óháð þvi i
hvaða atvinnugrein hann er.
Hefst hið fyrra þeirra 15. okt. n.k.
samani lOár, éða þar til árið 1970
að þeir slitu samvinnunni.
vinnunni.
Garfunkel fór út i kvikmynda-
leik og hefur náð nokkrum
árangri á þvi sviði, — lék m.a. i
mynd, sem sýnd var hér á landi
fyrir tveimur árum.
Paul Simon var alla tið snilling-
urinn i þessum dúett. Hann samdi
öll lögin, stjórnaði upptökunum
og fór með aðalhlutverkið I söng
og undirleik. Hann er geysilega
vandvirkur á alla hluti, og þess
eru dæmi að hann hafi eytt allt að
þremur mánuðum i upptöku á
einu lagi. Fer hann þá á milli
margra stúdióa, prófar allar út-
gáfur á laginu og velur siðan þá
upptöku, sem honum likar best.
Vandvirkni sem þessi er einstök,
en þvi verður ekki neitað að
árangurinn er i hlutfalli við
vinnuna. '
Simon hefur gefið út 3 plötur
siðan hann hætti með Garfunkel
Almennu námskeiðin eru haldin i
tvennu lagi, tvær’vikur i hvort
sinn. Fyrri hlutinn er einkum
helgaður hinum mannlega þætti
verkstjórnarinnar, hagnýtri
verkstjórn og vinnusálarfræði. A
siðari hlutanum er mestum tima
varið i námsefnin: vinnurai.n-
sóknir, vinnueinföldun og skipu-
laestækni.
Verstjórnarnámskeið hafa verið
rekin með núverandi sniði i ellefu
ár. A þeim tima hafa yfir 700
manns notið verkstjórnarfræðslu
á þennan hátt.
Daglegan rekstur verk-
stjórnarfræðslunnar annast
Iðnþróunarstofnun Islands, Skip-
holti 37.
Form. stjórnar verkstjórnar-
fræðslunnar er Adolf J.E. Peter-
sen verkstjóri, en forstöðumaður
er Þórir Einarsson dósent.
MFÍK vekur
athygli á
ástandinu á
Grœnlandi
Fulltrúaráðsfundur M.F.
t.K., haldinn i Kóþavogi,
telur sér skylt að vekja athygli
á málefnum nágrannaþjóðar
okkar á Grænlandi. M.F.t.K.
vill leyfa sér að benda dönsku
þjóðinni og dönskum valdhöf-
um á þá staðreynd, að ný-
lendustjórn á Grænlandi sam-
rýmistekki nútima hugmynd-
um um jafnrétti þjóðanna.
thlutun og athafnasemi er-
lends valds og útlendra manna
hefur þegar raskað græn-
lensku lifkerfi til sjós og lands.
Þessi ihlutun hefur einnig
raskað lifsháttum, siðum, trú,
listum og sjálfsvitund Græn-
lendinga. Hér er fágætum
mannlegum verðmætum
stefnt i tvisýnu, og ef þau
glatast, þá er heimurinn fá-
tækari og fáskrúðugri eftir.
Arðrán danskra fyrirtækja,á
grænlensku þjóðinni og græn-
lenskum náttúruauðlindum,
mergsýgur þjóðina og hefir
kippt fótunum undan atvinnu-
vegum hennar og brotið niður
merkileg mannleg sambýlis-
form.
Með inngöngu danska rikis-
ins i Efnahagsbandalag
Evrópu er ný vá fyrir dyrum
Grænlendinga. Verði fiski-
flotum fjölmargra Evrópu-
þjóða leyfðar skefjalausar
veiðar við Grænland og fjöl-
þjóðlegum auðhringum
heimilað að hremma þau
verðmæti sem finnast kunna i
grænlenskri jörð, þá er sjálf
tilvera grænlensku þjóðarinn-
ar i voða.
Menningar- og friðarsam-
tökum islenskra kvenna er
kunnugt um að danska þjóðin
og dönsk stjórnarvöld hafa
sýnt kúguðum þjóðum Afriku
samúð sina i orði og verki.
Danir hafa einnig áunnið sér
virðingu og vinsemd með þvi
að taka málstað striðshrjáðra
þjóða i Asiu.
M.F.Í.K. sendir þvi dönsk-
um konum og allri dönsku
þjóðinni kveðju sina, með
þeirri ósk og von, að danska
þjóðin og danskir valdhafar
vakni til fullrar vitundar um
ábyrgð sina á afdrifum Græn-
lendinga. Frá M.F.l.K.
MFÍK
harmar
atburðina
í Chile
Stjórn Menningar— og friðar-
samtaka islenskra kvenna
harmar þá atburði, sem átt
hafa sér stað að undanförnu i
Chile. Réttkjörinni stjórn
fólksins hefur verið steypt af
stóli með uppreisn
hersins,forseti landsins dr.
Salvator Allende myrtur, svo
og þúsundir borgara . Frelsi
og lýðréttindi hafa verið fótum
troðin og þúsundir fjölskyldur
misst ástvini sina. Meðal
hinna myrtu eru konur og
börn.
Á þessu ber afturhald Chile
alla ábyrgð svo og þeir er-
lendu aðilar, sem studdu upp-
reisn hersins með ráðum og
dáð. Bandarikin létu upp-
reisnarmönnum i té vopn fyrir
10 miljónir dollara.
Stjórn M F 1 K skorar á alla
tslendinga að stuðla að endur
reisn lýðræðis i Chile og rikis-
stjórn tslands að beita sér
fyrir þvi innan Sameinuðu
þjóðanna og minnir á, að eitt
af grundvallarmarkmiðum
Sameinuðu þjóðanna er að
efla lýðræði i heiminum, en út-
rýma fasisma.
Þórir Hallgrinisson.
Alagningin er of lág
Tvö stœrstu rafverktakafyrirtœkin láta
af störfum:
Verkstjórnarnám-
skeið skipstjórnar~
manna
700 manns hafa notið verkstjórnarfrœðslu