Þjóðviljinn - 06.10.1973, Page 16

Þjóðviljinn - 06.10.1973, Page 16
mmi/ml Almennar upplýsingar um lækna- þjónustu borgarinnar eru gefnar i simsvara Læknafélags Reykja- vikur, simi 18888. J Laueardaeur 6. október 1973. Kvöldsimi blaðamanna er 17504 eftir klukkan 20:00. (/:• \ Vikuna 5.-11. okt. veröur kvöld-, Slysavarðstofa Borgarspítalans nætur-og helgarþjónusta apóteka er opin allan sólarhringinn. i Háaleitis- og Vesturbæjar- ‘Kvöld-, nætur- og helgidagavakt á apóteki. Heilsuverndarstöðinni. Simi 21230. Breskir kratar á leið til vinstri Samstaða um að stefna að þjóðnýtingu BLACKPOOL 5/10 — Flokksþingi breska Verka- mannaflokksins lauk i dag i andrúmslofti eining- ar og samstöðu. Þinginu lauk með þvi að allir 1.200 þingfulltrúar sungu söngvana „Rauði fán- inn” og „Hin gömlu kynni gleymast ei”. Samþykktar voru ályktanir um að iðnaðurinn eigi sjálfur að borga kostnað vegna meng- unar hans á umhverfinu. Einnig var ályktað um jafn- stöðu konum til handa. Ljóst er að flokkurinn er nú vinstri sinnaðri en hann hefur verið um margra ára skeið. 1 tveimur ræðum á þinginu hét leiðtogi flokksins Wilson þvi, að mikilvægar atvinnu- greinar yrðu þjóðnýttar undir eins og flokkurinn kæmist i stjórnarandstöðu. Flokkurinn mun þjóðnýta hafnarmann- virki, skipasmiðastöðvar, flugvélaverksmiðjur og hluta lyfjaiðnaðar og vélaiðnaöar. bar að auki stendur til að taka oliu- og gaslindir á hafsbotni, svo sem i Norðursjó, i opin- bera eigu. A flokksþinginu var sam- þykkt, að væntanleg ríkis- stjórn flokksins mundi gefa kjósendum færi á að kjósa um það, hvort Bretland skuli veröa áfram i Efnahags- bandalaginu. Akveðið var að flokkurinn skyldi beita sér fyrir hækkuðum ellilffeyri og að skólar skyldu smátt og smátt verða að öllu leyti á vegum hins opinbera. Lendur undir ibúðarhúsalóðir yrðu þjóðnýttar og verkamenn fengju atkvæðisrétt til að velja forstjóra i fyrirtækjum ríkis- ins. Umboð fasista- ríkis var fellt Mikil andstaða gegn S - Afriku hjá S.Þ. NEWYORK 5/10 — Hiö al- ræmda ríki kynþáttamis- réttisins/ Suöur- Afrika, fékk alvarlega áminningu á allsherjarþingi Samein- uðu þjóðanna i dag þegar samþykkt var að neita að viðurkenna umboðið frá fulltrúum þess. Tillaga frá Sýrlandi þess efnis að sendisveit Suður-Afriku yrði ekki viðurkennd með umboði var samþykkt með 72 atkvæðum gegn 37, en 13 þjóðir sátu hjá. Aður hafði sama mál verið afgreitt i 9 þjóöa nefnd, sem rannsakar kjör- bréf fulltrúanna, þannig að 5 vildu samþykkja suður-afrisku kjörbréfin, en 4 fella. Þau öfl sem fordæma kynþátta- aðskilnaðarstefnu Suður-Afriku- stjórnar og berjast almennt gegn fasisma og nýlendukúgun hafa unnið mikinn sigur með niður- stöðunni á allsherjarþinginu. Sagt er i fréttaskeytum að „vest- rænir fulltrúar” (náttúrlega frá Bretlandi, Bandarikjunum og slikum löndum) hafi vaðið um höfuðstöðvar SÞ eins og óðir menn til að telja fulltrúa ný- frjálsra rikja af þvi að neita suð- ur-afrisku legátunum um viður- kenningu, en það hreif ekki. Undanfarin ár hafa kjörbréf Suður-Afrikumanna legið óaf- greidd á allsherjarþinginu, en forsetar þingsins hafa úrskurðað að þeir mættu eigi að siður taka þátt i störfum þess. Núverandi forseti allsherjarþingsins, Lep- oold Benites frá Ekvador, er sagður vilja túlka samþykktina núna þannig, að hún feli i sér öfluga fordæmingu á stefnu suð- ur-afrisku rikisstjórnarinnar en útiloki hana ekki frá þátttöku i störfum þingsins. CHILE J ARÐSKJ ÁLFT AR OG ÚTGÖNGUBANN SANTIAGO 5/10 — Hermenn vopnaðir vélbyssum bönnuðu sendinefnd frá alþjóðasambandi jafnaðarmanna að leggja blómsveig á leiði Allend- es forseta i gær. Var nefndarmönnum hótað skothrið og voru þeir síðan hafðir i haldi i tvær stundir áöur en þeim var sleppt, þeirra á meðal var sjálfur framkvæmdastjóri alþjóðasambandsins, Hans Janitschek. Tveir harðir jarðskjálftakippir gengu yfir Chile i dag og munu þeir hafa oröið snarpastir i hafn- arborginni Valparaiso, sem varð rafmagnslaus, og samgöngur féllu niður. Talið er að kippirnir hafi verið 6,3 stig að styrkleika. Ekki hefur verið tilkynnt um manntjón, en erfitt er að fullyrða um það vegna útgöngubannsins. Utanrikismálanefnd öldunga- deildar Bandarijaþings hefur grunað margt um hlutdeild Nix- on-stjórnarinnar i valdaráni hersins i Chile, og hefur hún reynt að grafast fyrir um hið sanna. Birtar hafa verið fundargerðir sem greina frá þvi að Kissinger utanrikisráðherra hafi verið spurður i þaula um það hvort leyniþjónustan CIA hafi verið nokkuð við valdaránið riðin, en Kissinger kvað hafa neitað þvi mjög eindregið. En valt er að taka fullyrðingar hans sem sönn- unargögn. ÍO MILJÓN KR. INNISTÆÐULAUST 1 fyrrakvöld fór fram skyndikönnun innistæðulausra tékka á vegum Seðlabanka íslands. Niðurstaða könnunarinnar var sú, að fram komu samtals 616 inn- stæðulausir tékkar að fjárhæö 10.096.733 krónur. Miðað við heildarveltu gærdagsins i ávisanaskiptadeild bankans, þá var hlutfall innstæðulausra tékka 0,803% af veltu. Niðurstöður siðustu þriggja kannana er getið hér til samanburðar: fjöldi tékka fjárhæð % af veltu 17/31972 602 4.856.087,10 0,92 19/101972 730 9.676.888,00 1,13 18/1 1973 643 4.224.714,00 0,45 ALÞÝÐU BAN DALAGIÐ H-lista fundur í Kópavogi. H-listinn heldur bæjarmálafund i Þinghóli á mánudagskvöld klukkan 20:30. Fjölmennið. Alþýöubandalagið i Hafnarfiröi Alþýðubandalagið i Hafnarfirði heldur félagsfund i Góðtemplarahús- inu uppi næstkomandi mánudagskvöld klukkan 20:30. Gils Guðmundsson, alþingismaður, ræðir um viðhorfin i herstöðvar- málinu. Kosning fulltrúa á flokksráðsfund. Félagar, fjölmennið! Stjórnin. Ungir sósíalistar þinga á Akureyri Ráðstefna ungra sósía- lista verður sett í Alþýðu- húsinu á Akureyri kl. 10 f .h. í dag. Til ráðstefnu þessar- ar hafa ungir Alþýðu- bandalagsmenn boðað og hefur farið fram undirbún- ingsstarf i starfshópum er fjallað hafa um helstu málaflokka ráðstefnunnar en þeir eru þrír. Dagskrá ráðstefnunnar er þannig: Laugardagur 6. okt. kl. 10.00 1. Tryggvi Þór Aðalsteinsson óttar Proppé (Reykjavik) i framkvæmda- nefnd æskulýðsnefndar setur ráðstefnuna. 2. Stutt inngangserindi um mála- flokka ráöstefnunnar. Starfs- liættir sósialisks flokks Óttar Proppé, Reykjavik. Sósiallskur flokkur og verkalýðshreyfing Helgi Guðmundsson, Akureyri Sósialiskur flokkur og þátttaka i borgaralegri rikisstjórn Þröstur Ólafsson, Reykjavik. 3. Þátttakendur skiptast i Starfs- hópa . kl. 13.00.Stafshópar kjósa sér um- ræðustjóra og hefja umræður. kl. 17.00. Fundur með Alþýðu- bandalagsfélagi Akureyrar a. Þröstur Ólafsson Herstöðva m álið . Einar Kristjánsson b. Ragnar Arnalds, formaður Alþýðubandalagsins svarar fyrirspurnum. Sunnudagur 7. okt. kl. 9.00-Starfshópar ljúka umræð- um og ganga frá ályktunum. kl. 12.00-Sameiginlegur matur á Hótel Varðborg. Spjallað við Ragnar Arnalds. kl. 13.00-Ráðstefnan i heild ræðir og afgreiðir ályktanir starfshópa og aðrar þær ályktanir, er kunna að koma fram. kl. 17.00 Ráðstefnunni slitið. Gert er ráð fyrir að ráðstefnuna sæki um 70 manns viða að af land- inu. Tryggvi Þór Aðalsteinsson Bretar þreytast Þorskastríðið milli tslands og Bretlands er þreytandi og kostnaðarsöm viðureign, segir i forystugrein breska stór- blaösins London Times I gær. Blaðið segir að engin ástæða sé til þess að ekki náist sam- komulag um það hversu inikiö breskir togarar megi veiöa innan 50 milna markanna. Blaðið segir að pólitiskan vilja skorti til að leysa deiluna. Watergate WASHINGTON 5/10 —Martin Douglas Kelly, fyrrum ráðu- nautur endurkosningarnefnd- ar Nixons, sagði Water- gate-nefnd öldungadeildar Bandarikjaþings í gær að hann hefði meðan á kosninga- baráttunni stóð mútað ungri stúlku til þess að klæða sig úr öllu og hlaupa fram og aftur fyrir framan kosningaskrif- stofu Edmunds Muskies, æp- andi vafasamar fullyrðingar viðkomandi þessum framá- manni demókrata. Var þetta eitt af mörgum álika brögðum til þess að spilla fyrir Muskie i prófkosningunum. Blaðberar óskast núþegar i eftirtalin hverfi: Þórsgötu Laugavegur II Seltjarnarnes Laugarnes Sigtún Álfheiina Skipasund Sæviðarsund Grunna Hjarðarhaga Hringbraut Hverfisgölu Rauðalæk Hafið samband við af- greiðslu Þjóðviljans i simum 17500 eða 17512.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.