Þjóðviljinn - 30.10.1973, Blaðsíða 1

Þjóðviljinn - 30.10.1973, Blaðsíða 1
DJOÐVIUINN Þriðjudagttr 30. október 1973 38. árg. 249. tbl. ÞAÐ BORGAR SIG AÐ VERZLA Í KRON irOTEK OPIÐ ÖLL KVÖLD TIL KL. 7, NEMA LAUGARDAGA TIL KL. 2. SUNNUDAGA MILLI KL. 1 OG 3 SlMI 40102 Hefur í engu verið slakað á? Vestfjarðabátar hafa engan frið Bretar toga yfir lóðirnar, en varðskipin hafast ekki að, segja vestfirsku skipstjórarnir Þjóðviljinn birtir í dag á 7. síðu harðort bréf frá þremur skipstjórum á fiski- bátum frá Súgandafirði. I Talsmaður Gœslunnar: Könnumst ekki við það 59 Þjóöviljinn lagði eftirfar- andi spurningar fyrir tals- mann Landhelgisgæslunnar og fékk eftirfarandi svört — Hvert er ykkar álit á um- sögnum vestfirskra sjómanna um hegðun breskra togara- manna? — Við könnumst ekki við þetta. — Hvorki að þeir fari inn fyrir 12 milurnar né séu á frið- uðu svæðunum? — Nei. Við könnumst ekki við eitt einasta einstakt tilfelli að þeir séu fyrir innan 12 mil- ur. Og varðandi þetta friðaöa svæði þá könnumst við ekki heldur við það. Það hefur komið fyrir að islenskir fiski- bátar hafa tilkynnt varðskipi að erlend skip væru á þessu svæði, þegar varðskipin hafa ekki verið á svæðinu. Þá hafa varðskip haldið þangað beint og þá hefur ekki verið neitt er- lent skip á þessu svæði. — Kannist þið við að erlendu togararnir liggi undir Grænu- hlið eða inni á fjörðum þegar eitthvað er að veðri? — Við vitum ekki um neina hópa sem hafa gert það. Það getur vel veriö að einhver skip leiti vars, en ekki svona öfga- kennt eins og þessir menn vilja gefa til kynna. Ég satt að segja skil ekki beint hvaða til- gangi þetta þjónar. — Eru varöskip á Vest- fjarðamiðunum núna? — Ég er ekki vanur að segja hvar þau eru þessa og þessa stundina. Ég get þó sagt það, að það hafa verið þarna varð- skip og það fleiri en eitt. —úþ Breytingar á samningsdrögum Einar Ágústsson mun i dag ráðgast við sjávarútvegsráðu- neytið og dómsmálaráðuneytið um breytingar á samkomulags- grundvelli Ólafs Jóhannessonar og Heaths i landhelgisdeilunni. Rikisstjórnin fól Einari að vinna að nauðsynlegum úrbótum á grundvellinum, og mun það verk nú vera komið áleiðis. bréfinu gera þeir grein fyr- ir óskammfeilinni hegðun breskra landhelgisbrjóta á Vestf jarðamiðum síðustu vikurnar og rekja einstök dæmi. Það er ekki skemmtilegt að lesa lýsingar vestfirsku skipstjór- anna á athafnaleysi islensku landhelgisgæslunnar annars veg- ar, þessar siðustu vikur, og hins vegar takmarkalausri ósvifni veiðiþjófanna, sem greinilega telja ekki aldeilis, að neitt vopna- hlé riki á miðunum. Skipstjórarnir er bréfið senda eru Gestur Kristinsson á Krist- jáni Guðmundssyni IS, Einar Guðnason á Sigurvon IS og Bragi Ólafsson á Ólafi Friðbertssyni 1S. Þeir segja m.a.: ,,Að sögn varðskipsmanna lof- aði togarinn að fara af þessuni slóðum og láta aðra breska tog- ara i grenndinni vita af veiðar- færum bátanna. Þessi afskipti varöskipsins munu hafa staðið yf- ir i 15-20 minútur. Þá setti það á ferð i stefnu á Barða og hvarf. Tvcimúr klukkustundum seinna voru svo togararnir aftur byrjað- ir aö hræra i lóöunum. Þessir atburðir gerast rétt við 12 milna mörkin... Nú spyrjum viö, sem heyrt höfum i fjölmiðl- um um viraidippingar og séð höf- um I sjónvarpi hóprekstur breskra togara, — HEFUR i ENGU VERIÐ SLAKAÐ A? Svari hver fyrir sig, Ólafur, Pétur, skipherrarnir. Föstudaginn 26. október var breskur togari kominn i var undir Grænuhlið i isafjarðardjúpi. Varðskip kom að þeim togara i augsýn islenskra skipa, og af- skipti varðskipsins tóku fáeinar minútur. íslenskur skipstjóri, sem var áhorfandi, talaði við varðskipsmenn og spurði, hvort ekkert ætti að aðhafast. — ,,VIÐ Framhald á bls. 14 Nú eru þcssir þrir heiöursmenn ekki lengur Votmúlagreifar, heldur fyrrverandi slikir. Þeir eru taliö frá vinstri: Guðmundur A.Böðvarsson sveitarstjóri, Guömundur Helgason 2. varaformaður sem forframað- ist og óli P. Guöbjartsson oddviti og skólastjóri. Þcssir þrfr beittu sér harðast fyrir Votmúlakaupunum. (Ljósmyndastofa Suöurlands) V otmúlagreif adæniið er liðið undir lok Selfyssingar höfnuðu Votmúlakaupunum Selfyssingar gengu til tvöfaldra kosninga á sunnudaginn var. Ann- ars vegar var kosið um kaup hreppsins á Vot- múlajörðunum og hins vegar um hvort Selfoss skuli sækja um kaup- staðarréttindi. Selfossbúar höfnuðu hvoru tveggja, greifa- dæminu og kauðstaða- réttindunum. A kjörskrá voru 1445 manns, og neyttu 1264 atkvæðisréttar sin, eöa 88%. Andvigir Votmúlakaupunum voru 986, eða 78,01%. Hlynntir Votmúlakaupum voru 247, eða 19,54%. Auðir og ógildir seölar voru 31, eða 2.45%. 791 var andvigur þvi að Selfoss yrði kaupstaður, eða 62.58%, en 406meðmæltir, eða 32.12%. Auðir seðlar og ógildir voru 67, eða 5.30%. Ef reiknað er með öllum at- kvæðisbærum mönnum á Sel- fossi, og þá þeim sem heima sátu og ekki neyttu kosningaréttar, voru 68.24% allra andvigir kaup- unum. Þjóðviljinn hafði tal af hvorum tveggja, sigurvegurunum og hin- um sigruðu, og fara umsagnir þeirra hér á eftir. Úr liði sigurvegaranna töluð- um við við Bergþór Finnbogason, hreppsnefndarfulltrúa Alþýðu- bandalagsins. Hann sagði: „Við vissum strax i upphafi að þetta var ekki vilji fólksins, og það jafnframt, að ekki er hægt að gera svona kaup án þess að fólkið vilji það. Þetta ætti einnig aö vera lær- dómsrikt fyrir sveitarstjórnir annarra byggðarlaga i framtiö- inni, að ganga ekki i berhögg við vilja fólksins.” Siöan hringdum viö i oddvita hinna sigruðu, óla Þ. Guöbjarts- son. Hann sagði: ,,úrslitin eru skýr og vilji fólks- ins hefur komiö greinilega i ljós. Framsýni i sjálfu sér hefur ekki alltaf borgað sig, það eru mörg dæmi þess. Byggðin hér á Selfossi hefur vaxið nokkuð hratt, þó þjóðin sem slik hafi ekki ýkjamikiö tekiö eftir henni, en hún á eftir aö gera það. Þaö er vist. Selfyssingar eiga eft- irað verða sjálfum sér þess meö- vitandi, aö þeir eru afl, og ég er viss um það, aö i framtiöinni eiga þeir eftir að virkja þetta afl sjálf- um sér betur til hagsbóta en þarna kemur fram nú.” —úþ Verkamannasamband íslands: Fráleitt að sama prósentu- hækkun gangi yfir öll laun Á sunnudag lauk i Reykjavfk, 6. þingi Verkamannasambands is- lands. Eðvarð Sigurðsson var endurkjörinn formaður Verka- mannasambandsins, en Hermann Guðmundsson er varaformaður. i ályktun þingsins um kjaramál segir m.a.: „Þegar 6. þing Verka- mannasambands islands er nú haldiö að loknu 2ja ára samningstimabili er það skoðun þingsins, að verulega hafi áunnist 1 sföustu kjarasamningum og.að i lok samningatimabilsins standi meira eftir en oft áður”. Ennfremur segir: „Þingið telur það fráleita stefnu að sama prósentuhækkun gangi yfir öll laun”. K jara málaályktunin I heild er birt á 6. siðu Þjóðviljans og cinnig ályktanir þingsins um Eövarö Sigurðsson samstarf við BSRB, um land- helgismál og um skattamál. Þingið stóð i 2 daga og var hald- ið i Lindarbæ. Þingforseti var Hermann Guðmundsson formaður Vmf. Hlifar og varaforseti óskar Gari- baldason formaöur Vöku og Jóna Guðjónsd. formaður Framsókn- ar. Ritarar voru Karl Steinar Guðnason Keflavik og Kolbeinn Friðbjarnarson, Siglufirði. Félagsmálaráðherra, Björn Jónsson var við þingsetninguna og flutti ávarp, en Björn hefur verið I stjórn Verkamannasam- bandsins frá stofnun þess, lengst af sem varaformaður. Voru hon- um þökkuð störf hans i þágu sam- bandsins. Flutt var skýrsla stjórnar og kom m.a. fram i henni að i Verkamannasambandinu eru nú 40 verkalýðsfélög nær um 16.500 félagsmenn. Samþykktir voru reikningar sambandsins fyrir ár- iö 1972. Aöalmál þingsins voru kjara- málin, og fylgir hér með ályktun þingsins i þeim málum, svo og samþykkt um landhelgismáliö. I stjórn sambandsins til næstu tveggja ára voru kosin: Formaður: Eövarð Sigurðsson, Reykjavik. Varaformaöur: Her- mann Guðmundsson, Hafnarfirði. Ritari: Karl Steinar Guönason, Keflavik. Gjaldkeri: Vilborg Siguröardóttir, Vestmannaeyj- um. Aðrir i stjórn: Björgvin Sigurðsson, Stokkseyri. Guðriður Framhald á bls. 14

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.