Þjóðviljinn - 30.10.1973, Síða 5
Þriðjudagur 30. október 1973 ÞJöÐVILJINN — SIÐA 5
GILS GUÐMUNDSSON, alþingismaður:
Norræn tillaga
um friðlýsingu
Norðaustur-Atlantshafsins. — Þýðingarmiðstöð kemst
senn á laggirnar. — Aukið samstarf vinstrisósíalista
Þingi Norðurlandaráðs lauk i
Stokkhólmi um helgina. Kjörinn
fulltrúi Alþýðubandalagsins á
þingi ráðsins var Gils Guömunds-
son alþingismaður. Ræddi Þjóð-
viljinn við hann I gærdag. t gær
barst frá norsku fréttastofunni
NTB frétt þess efnis að fram væri
komin i NLR tillaga um friðlýs-
ingu Norðaustur-Atlantshafsins.
Tiliögumenn eru fulltrúar sósial-
iskra flokka i Norðurlandaráði og
einn fulltrúi finnskra sósialdemó-
krata. 1 tillögunni er lagt til, að
NLR skori á rikisstjórnirnar að
fela sendinefndum sinum hjá
Sameinuðu þjóðunum að vinna að
friðlýsingu Norðaustur-Atiants-
hafsins i samræmi við grundvöll
friðlýsingar Indiandshafs en um
það mál hafa Sameinuöu þjóðirn-
ar gert sérstaka samþykkt.
Markmið tillögunnar er, að hið
friðlýsta svæði takmarkist af
Grænlandi i austri, Noregi i
norðri, við 80. breiddargráðuna,
og i Suðri við 60. breiddargráð-
una. A þessu svæði eiga hvorki að
vera hersveitir, herstöðvar né
heræfingar.
Þjóöviljinn bar þessa frásögn
NTB fyrst undir Gils:
— Já, við lögðum þessa tillögu
fram á laugardaginn var, og er ég
fyrsti flutningsmaður, en að auki
eru tveir flutningsmenn frá
Sosialistisk Valgforbund i Noregi,
tveir frá SF i Danmörku, þrir frá
finnská lýðræðisbandalaginu
SKDL og tveir frá VPK I Sviþjóö
og svo finnskur sósialdemókrati.
I sambandi við friðlýsingar-
málið almennt vil ég visa til þess
sem Jónas Arnason hefur oftar en
einu sinni sagt um þetta mál, og
hann hefur margoft gert ýtarlega
grein fyrir friðlýsingu Indlands-
hafs og hvað felst i þessari hug-
mynd.
Tillagan gerir aðeins ráð fyrir
þvi, að lagt verði bann við hvers-
konar hernaðarbrölti, en að sigl-
ingar verði leyfðar.
Þessi tillaga verður tekin til
umræðu I vetur á þinginu i Stokk-
hólmi.
KOSNINGARÉTTUR
— 1 NTB-fréttum frá Norð-
urlandaráðsþinginu er frá þvi
skýrt aö samþykkt hafi veriö að
stefna að þvi að Noröurlandabúar
fái kosningarétt á öörum Norður-
löndum þar sem þeir hafa verið
búsettir tiltekinn tima, enda þótt
þeir séu ekki rikisborgarar. I
fréttinni er einnig sagt frá þvi, aö
tillaga um þetta efni hafi verið
samþykkt með 57 atkvæðum, en 9
hafi setið hjá, Islendingar,
Færeyingar og Danir. Af hverju
sátu þessir hjá?
— Um það veit ég ekki, en ég
heyrði sagt, eftir atkvæöagreiðsl-
una, að hér væri enn á ferðinni
einn Efnahagsbandalagsdraug-
urinn og heföu Danir þess vegna
ekki þorað aö greiöa atkvæði meö
tillögunni, þeir óttuðust kröfu um
svipaö fyrirkomulag kosninga-
réttar innan EBE. Um afstööu
annarra islenskra fulltrúa vissi
ég ekki og um það voru engin
samráð, en ég greiddi tillögunni
atkvæði.
— Hvað er að frétta af
þýöingarmiðstöðinni norrænu?
— Þvi hefur .verið ' lýst
yfir aö ráðherranefndin hafi sam-
þykkt aö stofna þýðingarmiöstöð.
Þetta mál snertir okkur ákaflega
mikið. Hugmyndin er sú að nota
allverulegt fé á næsta ári til þess
að styrkja þýðingar úr Islensku
og finnsku og færeysku yfir á önn-
ur Norðurlandamál og svo þýð-
ingu á þessar þrjár tungur. Ekki
er fullmótað hversu framkvæmd
þessa máls verður háttaö, né
heldur hversu hárri upphæð verð-
ur varið i þessu skyni að ári, en á-
kvarðanir munu væntanlega
liggja fyrir fyrir áramót.
MENNINGARHtJS
í ÞÓRSHÖFN
Þá vil ég geta þess sérstaklega,
heldur Gils áfram, að mér þótti
mjög ánægjulegur viðburöur, að
á þessu þingi var samþykkt að
reisa skuli norræna menningar-
miðstöð i Þórshöfn. Ekki er á-
kveöið hvenær hafist verður
handa, en áhugi er mikill, svo
vonandi verður ekki verulegur
dráttur á framkvæmdum.
Upphaflegur flutningsmaöur
þessarar tillögu hjá Norður-
landaráði var Erlendur Paturs-
son, og saknaöi ég þar vinar i staö
á þessu þingi sem hann sótti ekki
sem fulltrúi Færeyinga.
Loks vil ég undirstrika eitt at-
riöi dálitið, en þaö er samstarf
fulltrúa þeirra flokka á Norður-
landaráðsþingum.sem eru vinstra
megin við sósialdemókrata. Full-
trúar þessara flokka komu nú
saman og ræddu ýmis mál og á-
kváöu nú að koma á nánara sam-
starfi innan ráðsins en verið hefur
varðandi undirbúning og flutning
mála á Norðurlandaráösþingum.
Segja má raunar að tillagan um
friðlýsingu sé árangur þessa
aukna samstarfs.
Gils Guðmundsson
Viðgerð er hafin
á rafstrengnum
yfir Dýrafjörð
Erfitt ástand i rafmagnsmálum
undanfarnar vikur, sagði Aage Steinsson,
rafveitustjóri á ísafirði
Hinn 22. september sl. slitnaði
rafmagnsstrengurinn yfir Dýra-
fjörð og hefur viðgerð ekki getað
hafist fyrr en nú, vegna þess að
við eigum enga menn hér á landi
til að gera við slikar bilanir og
þurfum undir danska að sækja
með það. Og Danir hafa ekki get-
aö séð okkur fyrir nema 4 mönn-
um og þeir hafa verið að gera við
rafmagnsstrenginn til Vest-
mannaeyja og strenginn yfir
Elliðavog i Reykjavik, sagöi
Aage Steinsson rafveitustjóri á
tsafirði er við höfðum samband
við hann i gær og spuröum hann
hvað liði viðgerö þessa strengs
sem hefur sett allt raforkukerfið
á Isafiröi úr skorðum eftir að
hann slitnaði.
Aage sagði að viðgerðarskipið
hefði siglt inn á Dýrafjörð i morg-
un (mánudag) og sagðist hann
búast við að viðgerðin tæki eina 7
til 8 daga.
Sökum þessarar bilunar hefur
orðiö að keyra diselvélarnar á
tsafirði á fullu nótt og dag og vart
dugafctil. Til aö mynda hefur orð-
ið að grlpa til rafmagnsskömmt-
unar á ísafirði og hefur það komið
verst við frystihúsin á staðnum.
Nú stendur til að setja upp raf-
magnsdiselvélar á Bolungarvík
og Bildudal7 og sagöi Aage að
þegar þær væru komnar I gagnið
þyrftu Vestfirðingar engu að
kviða I rafmagnsmálum I vetur
að minnsta kosti.
Aage Steinsson sagöi að fullt
öryggi i rafmagnsmálum þar
vestra kæmi ekki fyrr en 1975 til
1976 þegar Mjólkárvirkjunin
verður tekin i notkun, en nú
stendur til að hefjast handa með
að styrkjallinukerfið norður eftir
frá Mjólká og verður þá væntan-
lega sett upp ný llna frá virkjun-
innitilnorðurfjaröanna. —S.dór
Með áratuga reynslu hérlendis
hefur ODHNER skipaö sér framar
sambærilegum reiknivélum -
vegna þægilegs vinnufyrirkomu-
lags, fljótvirkni og endingar.
Sölumenn okkar eru reiðubúnir
að gefa yöur ýtarlegar
upplýsingar um ODHNER reikni-
vélarnar og sýna yður hvernig
þær reikna.
Reynslan hérlendis, bæði
varðandi ODHNER vélar og þjón-
ustu, hefur sannað að yður er
óhætt aö reikna með ODHNER.
SIMAR: 12747-16647
'
...... -.............
Kassagerð Reykjavíkur
vantar herbergi
Viljum taka á leigu eins manns herbergi.
Uppl. á skrifstofunni i sima 38383.
Kassagerð Reykjavikur.
Barnagæsk}
Get tekið börn i gæslu. Upplýsingar i sima
25104.
Loftorka s/f — Hlaðprýði h/f
Höfum flutt skrifstofur okkar að Skipholti
35 III. hæð. Simi 84090 og 83522.
Aðalfundur
Aðalfundur Skipaafgreiðslu Suðurnesja,
verður haldinn föstudaginn 2. nóvember
kl. 2 e.h. i Framsóknarhúsinu i Keflavik.
Fundarefni: Venjuleg aðalfundarstörf.
Stjórnin