Þjóðviljinn - 01.11.1973, Blaðsíða 1
Samvinna smárra þjóða
ÍSLAND Á ORKUNA
GAMBIA HRÁEFNIÐ
Verður
titaniumrikur
sandur frá
Gambiu unninn
með islenskri
raforku?
Akaflega merkilegur atburður
hefur gerst I samskiptum tveggja
smáþjóða, en það er viljayfirlýs-
ing tveggja minnstu rikja Sam-
einuðu þjóðanna, tslands og
Afrikurikisins Gambiu, varðandi
möguieika á samvinnu landanna
um notkun á titaniumrikum sandi
frá Gambiu til framleiðsiu á
titaniumgjalli og járni meö raf-
bræðsiu á íslandi. Og það sem
gerir þcssi samskipti landanna
svo merkileg er að ef af þessu
verður, munu rikin gera þetta á
algerum jafnréttisgrundvelli
þannig, að Gambiumenn eiga
meirihluta i sandnámunum i
Gambiu en tslendingar minni-
hluta, en aftur á móti munu ts-
lendingar eiga meirihluta i verk-
Framhald á bls. 14
Nei, þetta er ekkert alvarlegt. Hér er aðeins veriö að brenna hálfónýtt bátsflak og var þetta liður I æf-
ingum slökkviliðsmanna, en nú stendur yfir námskeið fyrir þá á vegum Brunamálastofnunarinnar.
Eins og glöggt má sjá á myndinni bar bátur sá, er slökkviliðsmenn æfðu sig á, stafina AE 15, en er nú
sennilega orðinn öskuhrúga f fjörunni i Grafarvogi.
A ekki að rannsaka misrœmi i frásögnum af Vestfjarðamiðum?
„Getur verið að það
verði gert
sagði Olafur Jóhannesson
Forsætisráöherra Ólafur
Jóhannesson kom heim á
þriöjudagskvöld af fundi
Norðurlandaráðs. Blaða-
maður náði tali af ráðherr-
anum og spurði hann nokk-
urra spurninga i tilefni þess
ósamræmis sem er á yfir-
lýsingum Landhelgisgæsl-
unnar og skipstjóra á Vest-
fjarðamiðum um ástandið
þar.
— Hverja telur ráöherrann
vera ástæðuna fyrir þvi ósam-
ræmi sem fram hefur komið i
blöðum undanfarið á frásögnum
Landhelgisgæslunnar og fiski-
manna af ástandinu á Vestfjarða-
miðum?
— Satt að segja vil ég sem
minst tala um þetta. Það er ekki
allt skemmtilegt fyrir Islendinga
sem fram hefur komið i sambandi
við þessi mál.
— Nú hafa vestfirskir sjómenn
gefið lýsingu á þvi hvernig á-
standið er á þeirra miðum, að
þeir hafi kallað i varðskip, og
varpskipsmenn hafi sagt að þeim
sé bannað að aðhafast nokkuð. Nú
stangast slik ummæli á við það
sem opinberlega hefur verið gefið
út af yfirstjórn Landhelgisgæsl-
unnar. Hvað vilt þú segja um
þetta ósamræmi?
— Ég get ekki sagt annað um
þetta, en það sem Landhelgis-
gæslan segir — að hún kannist
ekki viö þetta, að ekki sé sinnt
kalli. Ég hef nú ekki verið heima
siðustu daga og hef þess vegna
ekki haft tök á að rannsaka þetta
nánar.
— Hvaða ástæðu gefa fyrir-
svarsmenn Landhelgisgæslunnar
fyrir þvi að ekki eru lengur gerð
kort af stöðu og um fjölda land-
helgisbrjóta innan 50 milnanna?
— Það hefur einmitt verið taliö
núna i dag og i gær. Sú talning
sýnir að visu að það eru allmargir
togarar hér við land.
1 talningunni i gær var talinn 51
breskur togari viö landið og þar
af voru 6 á ferð, en það voru ekki
nema 19 togarar þarna fyrir vest-
Kramhald á bls. 14
Vik i Mýrdal
Fannst
látinn
í rúmi
smu
Hafði lent i
slagsmálum á
dansleik
kvöldið áður
Maður um þritugt fannst
látinn I rúmi slnu sl. sunnu-
dagsmorgun, en hann átti
heimili skammt frá Vlk i Mýr-
dal. Það sem gerir þetta mál
sérstakt er að hann lenti i
slagsmálum á dansleik kvöld-
ið áður að Eyrarlandi I
Reynishverfi.
Aðsögn fulltrúa sýslumanns
i Vik i Mýrdal hafa yfirheyrsl-
ur þegar farið fram vegna
þessa máls. Þar kom fram að
maðurinn haföi lent i átökum
á dansleiknum, en ekki er
hægt að segja til um það fyrr
en réttarkrufning hefur farið
fram, hvort hann lést af völd-
um þeirra eða ekki. Sagði full-
trúinn að krufningsskýrsla
væri ekki væntanleg á næst-
lunni.
Að sögn fulltrúans hefur það
komið fram að maðurinn hafi
verið búinn að drekka mikið
magn af áfengi og verið mjög
illa á sig kominn. —S.dór
í DAG
Möðruvallahreyfing
svarar Timanum
0
Nemendur
Fiskvinnsluskólans
gera kröfur
oo
Hlutur
Bandarikjamanna
i Chile
ALÞÝÐUBANDALAGW:
Flokksráðsfundur um helgina
Flokksráösfundur Alþýðu-
bandalagsins verður haldinn i
Þinghól við Alfhólsvcg i Kópa-
vogi nú um næstu helgi. Fund-
urinn verður settur klukkan
20.50 á föstudagskvöld þann 2.
nóvember og lýkur sunnudag
4. nóvember.
1 flokksráði Alþýðubanda-'
lagsins eiga sæti um 90 menn
úr öllum kjördæmum lands-
ins.
A föstudagskvöldiö verða
kosnir starfsmenn fundarins.
Ragnar Arnalds.formaður Al-
þýðubandalagsins flytur yfir-
lit um störf flokksins á liðnu
ári og verkefnin framundan.
Hann mun einnig fjalla um
baráttuna fyrir auknu lýðræði
og jafnrétti.
Lúðvik Jósepsson, ráðherra
flytur framsöguræðu um þró-
un landhelgismálsins og efna-
hagsmálin. Að loknum fram-
söguræðum hefjast almennar
umræður.
Á laugardag verður fundur
settur kl. 10 f.h. Þá flytur
Magnús Kjartansson, ráð-
herra framsöguræðu um sjálf-
stæðismálin og þróun is-
lenskra atvinnuvega. Lagðir
verða fram reikningar flokks-
ins og siðan hefjast frjálsar
umræður til hádegis.
Kl. 13.30 e.h. á laugardag
hefjast störf umræðuhópa:
1. Sjálfstæðis- og utanrilíis-
mál. Umræðustjóri ólafur U.
Einarsson.
2. islensk atvinnuþróun.
Umræöustjóri Þröstur ólafs-
son
3. Efnahagsmálin og kjara-
samningar launastéttanna.
Umræðustjóri Siguröur
Magnússon.
4. Flokksstarfiö og undir-
búningur sveitarstjórnarkosn-
inganna. Umræðustjóri Sigur-
jón Pétursson.
Gert er ráð fyrir, að umræðu-
hóparnir starfi allan laugar-
daginn.
Sunnudaginn 4. nóvember
hefst fundur kl. 13.30 e.h. Þá
munu framsögumenn um-
ræðuhópanna gera grein fyrir
störfum þeirra og mæla fyrir
ályktunum. Siðan fara fram
almennar umræður. Á sunnu-
dag fer einnig fram kjör mið-
stjórnar Alþýðubandalagsins.
Fundinum mun væntanlega
ljúka um klukkan 19 siðdegis.