Þjóðviljinn - 01.11.1973, Blaðsíða 3

Þjóðviljinn - 01.11.1973, Blaðsíða 3
Fimmtudagur 1. nóvember 1973. ÞJÓÖVIL9INN — SÍÐA 3 1 dag hefst mikil ljósmyndasýning 6 ungra manna aö Kjarvalsstööum. Gestur sýningarinnar er Gunnar Hannesson, sem mun sýna litskyggn- ur meö mörgum vélum samtimis. Hér stendur Gunnar fyrir framan mikiö skilrúm, sem búiö er aö setja upp þvert yfir salinn og eru fjórar sýningarvélar á bak viö skilrúmiö. Vélarnar varpa myndum á þá fjóra hvitu fleti sem sjást á myndinni. (Ljósm.SJ) NYTT BÆJARSKIPULAG A NESKAUPSTAÐ: Ibúarnir taki þátt í þessu með okkur sagði Logi Kristjánsson bœjarstjóri Bæjarstjórn Neskaupstaöar hefur ákveöiö aö kaupa skipu- lagstillögur þeirra Ormars Þórs Guömundssonar og félaga, sem þeir sendu i skipulagssamkeppni Sambands s veitarfélaga um skipulag sjávarkauptúna í tilefni 50 ára afmælis skipulagslaganna, en þeir tóku Neskaupsstaö fyrir. Er meiningin hjá bæjarstjórninni aöljúka aöalskipulagi á tveim ár- um eöa fyrir árslok 1975. Logi Kristjánsson bæjarstjóri á Neskaupstað sagði að ákveðið hefði verið að kaupa þetta skipu- lag til að koma af stað umræðum meðal ibúa Neskaupstaðar um þetta mál og fá þá til að hugsa um það umhverfi sem þeir búa i og taka þá um leið afstöðu og virkan þátt i málunum. A laugardaginn var komu þeir Ormar Þór og félagar austur og skiluðu tillögunum af sér á al- mennum borgarafundi. Þar gerðu þeir grein fyrir þeim, og strax á eftir voru opnaðar um- ræöur um tillögurnar auk þess sem fólk gat lagt spurningar sin- Logi Kristjánsson ar fyrir þá. Eftir fundinn gafst fólki svo kostur á aö ræða við arkitektana um einstaka þætti skipulagstillagnanna og annað sem málið varðar. Logi sagði að svo virtist sem töluverður áhugi væri meðal ibúa Neskaupstaðar fyrir þessu máli. Sagði hann að ætlunin væri, að meiri umræður færu fram um málið meðal ibúanna, — þvi það er stefna okkar að ná til fólksins með málið og að þaö taki sem virkastan þátt i þvi, sagði Logi. Ekki verður farið nákvæmlega eftir þeim tillögum sem þarna liggja fyrir, enda eru þær samdar fyrir 2 árum og allar tölur sem farið var eftir við gerð þeirra eru siðan 1970, þannig aö ýmsu þarf að breyta frá þvi sem nú er. — Auk þess lit ég svo á, að aöal- skipulag sé alltaf þróun háð og verði ekki ákveðið i eitt skipti fyr- ir öll, sagði Logi. En slikar tillög- ur sem þessar eru nauðsynlegar til að styðjast við. —S.dór Mótmæla skemmtistað yið Suðurlandsbraut A fundi borgarráös I fyrradag var lagt fram undirskriftaskjal frá ibúum i smáhúsahverfinu viö Suöurlandsbraut og nágrenni, sem stundum var nefnt Múla- kampur eöa Gunnarsborg. í skjalinu óska ibúarnir þess að borgaryfirvöld hlutist til um að ekki verði opnaöur skemmtistað- ur viö Suðurlandsbraut meðan ekki hefur verið gengið frá samn- ingum við ibúa þeirra húsa sem verða að vikja af skipulagsástæð- um. Þessi skiljanlega ósk ibúanna i hverfinu er hluti af miklu stærra máli sem felst i viðleitni þeirra til að rétta hlut sinn gagnvart borg- aryfirvöldum. Hverfi þetta var byggt með samþykki borgaryfir- valda, en nú er fólkið sem óðast hrakið brott án þess að yfirvöld fáist til að koma til móts við kröf- ur þess. Borgin vill aðeins greiða mjög lágt verð fyrir húsin, og yfirvöld hafa mjög tregðast við aö ræða við ibúana um vandamál peirra sem eru neyddir til að flytja brott. MBL. HEFUR EFTIR LAING: Mikil stjórn- málaleg dirfska Blaðamenn Morgunblaðsins hafa gert sér sérstaklega titt við Austen Laing framkvæmdastjóra breskra togaraeigenda. t Mbl. i gær er birt viðtal við þennan holl- vin blaðsins, og þar fer hann nokkrum orðum um tillögur þær sem ræddar voru á fundum for- sætisráðherra Breta og tslend- inga i London fyrr i mánuðinum. Austen Laing segir: „Niðurstöðurnar eru enn trún- aöarmál svo að ég get þvi miður ekki fjallað um þær efnislega við yður, en þér megiö hafa það eftir mér, að ég dáist að forsætisráð- herrunum sem ég tel, að hafi báð- ir sýnt mikla stjórnmálalega dirfsku, Heath meö þvi aö draga breska flotann til baka, Jóhannesson meö þvi aö fara heim til stjórnar sinnar meö þcss- ar tillögur”. Hver hefur séðR-24133? A sunnudaginn, frá kl. 2 um nóttina til kl. 3 um daginn var bif- reiðinni R-24133 stolið þar sem hún stóð á götunni fyrir framan Fornhaga 17. Bifreiöin er af gerð- inni Moskwitch, árgerð 1970, hvít að lit. Auglýst var eftir henni i út- varpinu á mánudag, en bar ekki árangur, og þvi biður rann- sóknarlögreglan alla þá, sem kynnu að hafa séð til bifreiðarinn- ar, að hafa samband við sig. Stj órnmálasam- band við Kenýu Rikisstjórn tslands og rikis- stjórn Kenya hafa ákveðið að taka upp stjórnmálasamband. Sendiherra Kenya á tslandi mun hafa aðsetur i Stokkhólmi, en ákvörðun hefir eigi enn verið tekin hvað snertir aðsetur is- lensks sendiherra i Kenya. (Frá utanríkisráðuneytinu) HEITT í KOLUM FRAMSÓKNAR: Möðruvallahreyfing svarar Tómasi Framkvæmdancfnd Mööru- vallahreyfingar sendi frá sér fréttatilkynningu i gær i tilefni forustugreinar i „Timanum" i gær, þar sem skoraö var á „Holla flokksmenn” að svara vinnubrögðum Möðruvalla- hreyfingarinnar „með viö- eigandi hætti”. Ekki er þaö skýrt i forustugrein „Timans” hver sé viöeigandi háttur i þessum efnum. t fréttatilkynningu Möðru- vallahreyfingar segir: „Vegna árásar Tómasar Karlssonar i leiðara Timans hefur framkvæmdanefnd Möðruvallahreyfingarinnar ákveðið að birta nú stefnu- ávarp hreyfingarinnar, svo að allur almenningur fái rétta mynd af eðli ávarpsins. Stefnuávarp Möðruvalla- hreyfingarinnar hefur aðeins verið sent til tæplega 300 manna, sem allir teljast trúnaðarmenn Framsóknar- flokksins, en ekki „dreift i þúsundum eintaka” eins og Tómas Karlsson fullyrðir i árásarleiöara sinum. Möðruvallahreyfingin er eins og fram kemur i ávarpinu samtök félagshyggjufólks innan Framsóknarflokksins. Hún hefur að markmiði að „halda á lofti innan flokksins þeim hugsjónum sem eru grundvöllur tilveru hans, og efla tengslin við þau stjórn- málaöfl önnur, sem eiga mesta samleið með slikri hug- sjónabaráttu”. Möðruvallahreyfingin var stofnuð á Akureyri 27. ágúst sl. Þá er i fréttatilkynningunni gerð grein fyrir þvi hverjir skipa framkvæmdastjórn hreyfingarinnar enþeireru: Arnór Karlsson, fyrrv. form. kjördæmissambands Framsóknar á Suðurlandi, miöstjórnarmaður i. Fram- sóknarflokknum. Elias Snæland Jónsson, blaðamaður við Timann, for- maður SUF, i miðstjórn. Eyjólfur Eysteinsson (Jóns- sonar alþingismanns) for- maður Framsóknarfelags Keflavikur, miðstjórnar- maður i Framsóknarflokkn- um. Friðgeir Björnsson, mið- stiórnarmaður i flokknum, fyrrv. starfsmaður þing flokks Framsóknarflokksins. Hákonar Hákonarson, Akureyri, miðstjórnarmaður og i stjórn kjördæmissam- bands framsóknarmanna i Norðurlandi eystra. Kristján Ingólfsson, Hallormsstað, varaþing- maður og nýkjörinn i mið- stjórn fyrir Austurland. Magnús Gislason á Frosta- stöðum, miðstjórnarmaður og varaþingmaður. Ólafur Ragnar Grimsson, m iðstjórnarmaður . og stjórnarmaður i SUF. „Árásarleiðarinn" Forustugrein Timans i gær, sem Möðruvallamenn nefna „árásarleiðara” Tómasar Karlssonar, lauk með þessum oröum: „Af skiljanlegum (svo!) ástæðum hefur Þjóðviljinn haft mikinn áhuga á vexti og viögangi „Möðruvallahreyf- ingarinnar” og hinn 17. okt. sl. skýrir hann frá þvi i forsiðu- frétt, að hreyfingin hafi komið sér saman og samþykkt stefnuskrá. Hann skýrir frá þvi að eftirtaldir menn skipi framkvæmdanefnd Möðru- vallahreyfingar”, og samkv. heimild Þjóðviljans eru það þessir menn: Arnþór (svo!) Karlsson, Elias Snæland Jónsson, Friðgeir Björnsson, Ifákon Hákonarson, Kristján Ingólfsson, Magnús Gislason og Ólafur Ragnar Grimsson. Allir þessir menn, sem fylgjast vel með blaða- skrifum, hafa látið þvi ómót- mælt, að þeir skipi fram- kvæmdanefnd „Möðruvalla- hreyfingar” og beri þar meö ábyrgð á þeim rógi um Fram- sóknarflokkinn og forustu- menn hans, sem nú er dreift um landið. Hollir flokksmenn þurfa að svara svona vinnu- brögðum með viðeigandi hætti”. Ekki er alveg ijóst hvort Tómas Karlsson nefnir áhuga Þjóðviljans á vexti og við- gangi „Möðruvallahreyfingar til þess að styrkja þá menn eða veikja sem þar eru i fyrir- svari. Liklegra er þó að Tómas telji að með þvi að bendla Möðruvallamenn við Þjóðviljann séu þeir gerðir tortryggilegir. Er það ekki ný bóla i skrifum Tómasar að þannig sé að farið. Hann má þó minna á að Morgunblaðið birti nöfn framkvæmda- nefndarmannanna seint i ágúst og einnig að Þjóðviljinn er fréttablað, sem Tómas raunar veit vel og kann að meta þvi margra vikna gömul frétt úr Þjóðviljanum er hituð upp i dimmdálk á forsiðu tir ans i gær. — sv.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.