Þjóðviljinn - 01.11.1973, Blaðsíða 10
10 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 1. nóvember 1973.
Afmælisfundur
Skipstjóra- og stýrimannafélagsins öld-
unnar verður haldinn i Slysavarnafélags-
húsinu 3. nóv. kl. 15.
Fundarefni
I. Minnst 80 ára afmælis félagsins.
II. Heiðrun eldri félaga.
III. Kaffi.
Þeir félagar sem pantað hafa minnispen-
inga öldunnar, sem gefnir hafa verið út i
400 settum vitji þeirra i siðasta lagi fyrir
n.k. mánaðamót, annars seldir öðrum.
Stjórnin.
Atvinna
RÍKISSPÍTALARNIR
lausar stöður
STARFSSTÚLKA óskast til starfa
við DAGHEIMILI KLEPPS-
SPÍTALANS. Starfið er fólgið i þvi
að annast börn á ýmsum aldri og er
þvi nauðsynlegt að umsækjandi sé
barngóður að eðlisfari.
STARFSSTúLKUR óskast einnig til
ræstingastarfa við KLEPPS-
SPÍTALANN.
Upplýsingar veitir forstöðukonan,
simi 38160.
Reykjavik, 30. október 1973.
SKRIFSTOFA
RÍKISSPÍTALANNA
EIRlKSGÖTU 5,SlM111765
Hjúkrunarkonur
Sjúkrahús Keflavikurlæknishéraðs vill
ráða hjúkrunarkonur nú þegar.
Uppl. gefur forstöðumaður, yfirhjúkr-
unarkona eða yfirlæknir i sima
92-1400-1401.
Forstöðumaður
véladeildar
Þórisós h/f óskar eftir að ráða mann til að
veita forstöðu véladeild fyrirtækisins.
Umsækjandi þarf að hafa þekkingu á
vinnuvélum og rekstri þeirra ásamt vara-
hlutaþjónustu og haldgóða reynslu og
þekkingu á rekstrarbókhaldi og almennri
stjórnun, þar á meðal samningsgerð og
kjaramálum. Sá, sem ráðinn kann að
verða, þarf að geta byrjað störf eigi siðar
en 1. jan. 1974. Umsækjendúr snúi sér per-
sónulega til Páls Hannessonar fram-
kvæmdastjóraa eða bréfleiðis með upp-
lýsingar um fyrri störf eigi siðar en 10.
nóv. n.k. Fyrirspurnum verður ekki
svarað i sima. Launakjör eftir samkomu-
iagi.
honisos iii:
Sjö bækur koma út
hjá Hörpuútgáfunni
Sjö bækur munu koma út hjá
Hörpuútgáfunni á Akranesi i
haust.
„— og fjaðrirnar fjórar”er ný
bók eftir Guðmund Böðvarsson
frá Kirkjubóli. Með þessari bók er
lokið þeirri samantekt, sem höf-
undur hennar hefur gert á laus-
málsblöðum sinum, og Hörpuút-
gáfan hefur gefið út undir nafninu
„Linur upp og niður”. Aður eru út
komnar bækurnar „Atreifur og
aðrir fulgar” og „Konan sem lá
úti”. Þessar þrjár bækur eru
byrjun á heildarútgáfu af verkum
höfundarins. Þegar á næsta ári
mun koma út fyrsta bindi af
ljóðasafni Guðmundar Böðvars-
sonar i samstæðri útgáfu með
þessum bókum.
Kcfskinna II eftir Braga Jóns-
son frá Hoftúnum á Snæfellsnesi
(Hef bónda). Um langt skeið
hefur Bragi viðað að sér fróðleik
og frásögnum af skemmtilegu og
sérkennilegu fólki. Hörpuútgáfan
gaf út bókina „Refskinna I” árið
1971, en sú bók er safn af þess
konar efni. I þessari nýju bók eru
m.a. þættir af: Bjarna Finnboga-
syni á Búðum á Snæfellsnesi,
sagnir af Benedikt i Krossholti,
séra Jens Hjaltalin, Benedikt
Bakkman o.fl. Frásagnir af slys-
förum. Ennfremur skopsögur,
landsþekktir bragir og skop-
kvæði, sem ekki hafa áður birst á
prenti, svo sem: Skrópsbragur,
Boðsbréf i afmælisveislu, Ljóða-
bréf Lúðviks R. Kemp.
„Augu i svartan himin”er önn-
ur ljóðabók Friðriks Guðna Þór-
leifssonar. Bókin skiptist i 7 kafla,
sem eru hver með sinum blæ og
tóni , og bókin sem heild er
skemmtilega ólik fyrri bók höf-
undar, Ryki. Þó eiga þær tvi-
mælalaust eitt sameiginlegt:
Þann undarlega samleik fortiðar
og nútiðar, er gæðir mörg ljóðin
sérstæðu lifi.
„Gamanvisur” eftir Theódór
Einarsson frá Akranesi. Um
langt árabil hefur Theódór verið
mikilvirkur gamanþátta-, gam-
anvisna- og reviuhöfundur.
Margir vinsælustu . leikarar
landsins hafa flutt gamanvisur
hans. Meðal þeirra má nefna:
Alfreð Andrésson, Arna Tryggva-
son o.fl. 1 þessari bók eru nýjar og
gamlar gamanvisur um sitthvað,
sem efst er á baugi hverju sinni,
svo sem landhelgisvisur, verk-
fallsvisur, knattspyrnuvisur o.fl.
„Vippi ærslabelgur” eftir Jón
H. Guðmundsson, fyrrv. ritstjóra
Vikunnar. Fyrir jólin i fyrra kom
úteftir sama höfund bókin „Vippi
vinur okkar”. Halldór Pétursson,
listmálari, hefur myndskreytt
báðar bækurnar, sem eru ætlaðr
börnum 5—10 ára.
„Æöisgenginn flótti” er ný bók
eftir metsöluhöfundinn Francis
Clifford. Aður eru komnar á is-
lensku eftir hann bækurnar:
Njósnari á ystu nöf, Gildra njósn-
arans, Flótti i skjóli nætur,
Njósnari i neyð, í eldlinunni.
Francis Clifford hlaut 1. verð-
laun Crime Writers Association
1969.
„Brennandi ástarþrá” eftir
Bodil Forsberg. Aður eru komnar
út hjá Hörpuútgáfunni, eftir
þennan vinsæla og viðlesna höf-
und, bækurnar: Ég elska aðeins
þig, Vald ástarinnar, Hróp
hjartans og Ast og ótti.
Kveðja
GuðrúnBósadóttirBrunborg
Fœdd 5. júni 1896 —
„Dáinn, horfinn, harmafregn”.
Ollum Islendingum, sem áttu
þess kost að kynnast Guðrúnu
Brunborg, verða lik orð á munni,
er þeir fregna andlát hennar.
Guðrún Brunborg er eins og
þjóðsagnapersóna, ódauðleg. Lif
hennar og starf tvinnast á þann
hátt inn i veruleika islenskra
námsmanna i Osló, i fortið, nútið
og framtið, að goðsögn likist.
Sjóndeildarhringur hennar var
viðari en ætla mætti húsmóður á
barnmörgu heimili, framsýni
hennar og dugnaður bar vitni
rammislenskum menningararfi,
þróuðum i stríði við náttúruöflin.
Fyrir okkur, sem uppiifðum Guð-
rúnu sem veruleika, persónu,
verður ofarlega i huga lifsgleði
hennar og stórbrotinn persónu-
leiki. Hún bar móðurlega um-
hyggju fyrir þeim mörgu náms-
mönnum, sem til Oslóar komu.
Heimili hennar stóð námsmönn-
um ávallt opið, jafnt að nóttu sem
degi. Hún skapaði islenskum
námsmönnum jafnframt sama-
stað fyrir félagslif sitt með ts-
lendingastofunni á Sogni. Guðrún
Versuch das ,/Endspiel" zu
verstehen.
Theodor W. Adorno. Shurkamp
taschenbuch 72. Shurkamp 1973.
Undirtitillinn er Aufsatze zur
Literatur des 20. Jahrhunderts I.
I kverinu eru átta greinar um
bókmenntir 20. aldar. Fyrsta
skrifið er um listina almennt og
hefst með setningu úr prolognum
að Wallenstein Schillers „Ernst
ist das Leben, heiter ist die
Kunst”. Þessi setning er ættuð úr
Ovid: Vita Verecunda est, Musa
jocosa mihi. út af þessu leggur
Dáin 14. okt. 1973
tók oft þátt i kvöldvökum hjá okk-
ur og var þá jafnan hressandi
blær i kringum hana. Hún var
ávallt opin fyrir nýjum áhrifum
og hafði ánægju af þvi að kynnast
fólkinu og taka þátt i gleðinni sem
jafningi okkar.
Traust hennar á hverjum ein-
stökum var örfandi afl. Ánægja
hennar með hópinn var einiæg.
Sérhver nýr námsmaður staðfesti
. óbifanlega trú hennar á ágæti
landans. Með sérhverjum náms-
manni barst henni ómur frá ætt-
landinu i fjarska.
Oft sagði Guðrún, að lif hennar
hér i Noregi væri útlegð. Útlegð i
hálfa öld. Samt sem áður var
Guðrún góður Norðmaður, henn-
ar ágæti eiginmaður og heimili
var norskt. Og sú sorg, sem lát
sonar hennar i þýskum fangabúð-
um á striðsárunum vakti, batt
hana Noregi, en jafnframt vakti
það löngun hennar til að veita Is-
lendingum hlýlegan samastað,
heimili i útlandinu.
Starf hennar er dæmi um
þrautseigju og fórnfýsi. Verkin
eru óvilhallur dómari.
Adorno á sinn snjalla máta.
Proust og Valéry stóöu Adorno
nær, og um þá eru þrjár
greinanna. Surrealismusinn,
Kafka og Beckett reka lestina,
bókin dregur nafn af siðustu
greininni, sem fjallar um Beck-
ett. Höfundur dregur samfélags-
legar ályktanir af bókmennta-
verkum þeim, sem hann ræðir og
án samfélagslegs skilnings á bók-
menntum verður allur bók-
menntalegur skilningur klisju-
kenndur og ófrjór og endar i
leiðinlegum absurdisma. Það er
gagnsamlegt að lesa greinar og
rit Adornos um listir og bók-
menntir, fáir taka honum fram i
gagnrýni og skilningi á þvi sviði.
Vera kann, að það gleymist
komandi kynslóðum, að bak við
liggi ævistarf einnar manneskju,
en samt sem áður standa verkin
sem óbrotlegur minnisvarði um
eina af dætrum Islands* Guðrúnu
Bóasdóttur Brunborg.
islenskir námsmenn í Osló.
Marxism and Christianity
Alasdair Maclntyre. Penguin
Books 1971.
Karli Marx hefur stundum
verið likt við spámenn Gamla
Testamentisins og vissulega
minnir hann oft á mælsku þeirra
þegar hann ræðst með heilagri
reiði gegn drottnurum þessa
heims, kagstrýkirflærð og hræsni
' gróðalýðsins og hæðir toppfigúrur
þær, sem sá lýður beitir fyrir
rikisvagn sinn. Etik kirkjunnar
og kommúnismans á margt sam-
eiginlegt, einkum þó etik og bar-
átta kirkjunnar á fyrri hluta
miðalda. í bók sinni setur
Marclntyre kommúnisma og
kristindóm upp sem hliðstæður að
vissu marki. I upphafi braut
kristnin blað i sögunni, méð kenn-
ingum sinum um helgi einstak-
lingsins, er skapnaðar guðdóms-
ins, og á þann hátt varð frum-
kristnin boðberi persónuhelgi og
frelsis og leysti einstaklinginn
undan skepnuskap heiðninnar
þ.e. að lita á manninn sem verk-
færi. Marxisminn leitast við að
leysa manninn undan oki arð-
ránsins, af hinum efnahagslega
klafa. Bók Mac-«Intyre er um
margt eftirtektarverð þótt stutt
sé.