Þjóðviljinn - 01.11.1973, Síða 8
8 StÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 1. nóvember 1973.
Valdarániö í Chile sett í samhengi við
heimsvaldastefnuna og viðbrögð
hennar þegar hróflað er við arðránshlutfallinu.
HVER VAR HLUTUR
BANDARÍKJANNA?
Allt frá því valdarán
generálanna í Chile var
framið fyrir hálfum öðrum
mánuði hafa borgaralegir
fjölmiðlar annað hvort
þagað um hlutdeild Banda-
ríkjastjómar og umbjóð-
enda hennar — auðhring-
anna — i blóðbaði því sem
átt hef ur sér stað þar í landi
ellegar andmælt henni
Eftirfarandi greinar birt-
ust í danska blaðinu
politisk revy og skýra þær
frá samræmdum aðgerðum
auðhringanna — einkum
ITT — CIA og Banda-
rík jastjórnar við að
stuðla að, skipuleggja og
fjármatna valdaránið í
Chile. En menn skyldu var-
ast að hugsa sem svo að
þessar aðferðir séu eitthvað
nýjar af nálinni. Þær hafa
tíðkast víða um heim frá
því stríðinu lauk — þ.e.a.s.
þar sem beinni vopnaðri í-
hlutun Bandaríkjanna hef-
ur ekki verið beitt til að
drekkja umbótum í blóði.
í CHILE
Hvað gerir einn auðhringur
þegar hagsmunum hans
er stefnt í voða?
— Bréfaskipti ITT afhjúpuð.
Hagfræðingurinn frjálslyndi,
John Kenncth Galbraith, reit i
sumar bókrýni i breska blaðið
Sunday Times um bók eftir An-
thony Sampson sem hann nel'nir ,,
The Sovereign State: The Secret
History of ITT” (Rikið i rikinu:
Hin leynda saga ITT gæti hún
hugsanlega heitið á islensku).
Þar reynir Galbraith að búa til
sökudólg úr ITT og sýna fram á
að það sé undantekning innan
auðvaldsheimsins.
Sem dæmi um mistök ITT
nefnir hann tvö nýleg dæmi um
hegðan þess. Annað er það sem
fram kom i Watergate-upp-
ljóstrununum en það var að
fyrirtækið hafði greitt 400 þúsund
dollara i reiðufé og annað eins i
vörum i kosningasjóö Nixons til
þess að fá dómsmálaráðuneytið
til að falla frá yfirvofandi ákæru á
hendur þess fyrir brot gegn lög
um um hringamyndun. En ITT
hafði keypt upp risavaxið
tryggingafyrirtæki (sem var svo
gamalgróið að það hafði á sinum
tima tryggt Abraham Lincoln) til
þess að afla sér rekstrarfjár.
Vitanlega var fallið frá ákærunni
en Galbraith vill meina að fyrir-
tæki sem komið er i jafnvonlausa
rekstrarfjárstöðu og ITT hafði
verið i geti ekki lifað af i frjáls-
lyndu þjóðfélagi.
Hittdæmið eru tilraunir ITT til
að múta CIA með einni miljón
dollara til þess að skipuleggja
valdarán hersins i Chile i þeim
tilgangi að koma i veg fyrir óum-
flýjanlegan sigur Allendes i for-
setakosningunum i september
1970. Dr. Kissinger og CIA af-
þökkuðu gott boð þvi eins og
þróunin hefur leitt i ljós þurftu
þeir ekki á þvi að halda. En Gal-
braith og aðrir frjálslyndir hag-
fræðingar túlka þessa starfsemi
auðhringsins sem augljós merki
um valdleysi hans en ekki vald.
Valdaránið 11. september
virðist þó ekki renna stoðum
undir þessa kenningu borgara-
legs þjóðfélags um að ITT hafi
staöið höllum fæti eftir að það fór
„framaf hengifluginu”. Aðgerðir
ITT eru fremur reglan i framferði
einokunarauðhringanna á skeiði
heimsvaldastefnunnar en undan-
tekningin. Mál ITT hafa einungis
lyft hulunni af hversdagslegri
starfsemi eftiramerisku munstri.
ITT er einn stærsti auðhringur
heims með árlega veltu upp á 8.5
miliarða dollara og hálfan míl-
jarð i hagnað. Það má fá góða
mynd gf þvi h\e umfangsmikla
og virka pólitik auðhringarnir
reka i nefndri bók Sampsons og
ekki siður varðandi starfsemi ITT
I bókinni ..Socialismen máste
krossas!" sem er sænsk þýðing á
fjölmörgum leyndarskjolum úr
safni ITT sem blaðamaðurinn
Jack Anderson og rikisstjórn
Chile komust yfir eftir valdatöku
Allendes.
Bréfaskipti hinna ýmsu yfir-
manna og sendimanna ITT'eruþó
aöeins litið brot af þvi sem finna
má i árbókum félagsins i höfuð-
stöðvum þess i New York. Þau
snúast öll um ástandið i Chile á
timabilinu fram að kosningu
Allendes. þe. frá 14. september til
18. nóvember 1970. Upplýsingun-
um um hið pólitiska ástand i Chile
er safnað af njósnurum innan
Chilestjórnar. bandariska sendi-
ráðsins, utanrikisráðuneytisins i
Washington. skrifstofum CIA og
eftir öðrum leiðum innan utan-
rikisþjónustunnar bandarisku.
Upplýsingar þær sem berast
höfuðstöðvum ITT taka bestu
fréttaöflun fjölmiðla langt fram.
Útdráttur úr þeim er svo sendur
til utanrikisráðuneytis BandaHk-
anna og þaðan er fréttum dreift
til sendiráða og fjölmiðla i formi
fréttatilkynninga.
Með öðrum orðum stöndum við
hér frammi fyrir borgaralegri
fréttamiðlun og vitneskju hins
opinbera um alþjóðamál. Hið
þéttriðna net upplýsingasafnara
sem stórauðvaldið þenur um
allan heim leikur lausum hala um
allt stjórnmálalifið og er langtum
hreyfanlegra en venjulegir
fréttamenn. Yfirstjórn netsins fer
svo höndum um upplýsingarnar,
samræmir þær þörfum fyrirtækj-
anna og skapa með þvf hinn
„opinbera” sannleik.
En til viöbótar sýna bréfa-
skriftirnar til hvaða aðferða ein-
okunarfyrirtæki gripur þegar
hagsmunum þess er stefnt i voða.
Þessi bréf eru hið rétta andlit
vestræns kapitalisma áður en
förðunarmeistararnir koma til
skjaianna. Bréfiðsem varaforseti
ITT sendi Kissinger með hollráð-
um um það hvernig Bandarikj-
unum bæri að haga aðgerðum
sinum gegn hinu sósialiska Chile
samsvara f smæstu smáatriðum
þeim áætlunum sem Bandarikin
fylgdu næstu þrjú ár fram að 11.
september i ár. Þær fólust i þvi að
skapa efnahagslegan glundroða i
Chile með þvi að frysta banka-
innistæður, loka peningastofnun-
um, stöðva efnahagsaðstoð við
landið, ma. gegnum Alþjóða-
bankann, setja verslunarbann á
landið osfrv. Árið 1970 hóf ITT
upp á eigin spýtur að skipuleggja
vopnaða andstöðu meðal her-
foringja með allra handa fjár-
hagsstuðningi. Eitt atriði gengur
sem rauður þráður i gegnum öll
bréfaskiptin sem er leitin að
átyllu til að fremja valdarán eftir
griskri fyrirmynd rétt fyrir for-
setakosningarnar. En ögrunina
vantar. Gegn vonum láta sósial-
istar Allendes ekki ögra sér:
„Stjórnarskráleg lausn gæti td.
fylgt i kjölfar heiftarlegra innan-
landsátaka, verkfalla og bardaga
i þorpum eða borgum. Þetta ætti
að réttlæta siðferðilega- vopnaða
Ihlutun um óákveðinn tima. En
þaðkom skýrt i ljós af frásögn M.
að þetta er borin von.
Marxistarnir láta ekki ögra sér.
Það má hrækja framan í þá úti á
götu”, sagði M„ „og þeir þakka
bara fyrir sig”.
Það er þvi drepfyndið þegar
einn sendimaðurinn skrifar þann
22. október — eftir að bréfa-
skiptin höfðu nær eingöngu snúist
um það hvernig best væri að setja
ögranirnar á svið og eftir að her-
foringinn Rene Schneider sem
var trúr Allende hafði verið myrt-
ur á götu - i miklum óánægjutón
til höfuðstöðvanna: „Arásar-
mennirnir flýðu og engin bönd
berast að þeim sem hlut áttu að
mál. En upp á siðkastið hafa lög
regla og her handtekið hermdar-
verkamenn meðal hægriöfga-
manna. Astandið er þannig i
Santíagó að menn gera þvi strax
skóna að hægriöfgamenn beri
ábyrgð á morðinu.”.
Við kosningasigur Allendes
slokknar — eins og ITT orðar
það — frelsisbálið i Chile og etv.
innan tiðar i allri Suður-Ameríku.
Og þá er farið að ræða um,,að
fara að vinna að þvi að sigra i
anarri lotu” eins og segir á einum
stað. Hér lýkur þessu stutta
bréfasafni eftir að dregin hefur
verið upp mynd af Eduardo Frei
sem var forseti fyrir hönd kristi-
legra demókrta á undan Allende
og tekur etv. við núna eftir fall
hans. Sú mynd er af samvisku-
lausum svikara við Chile og með-
færilegu handbendi Bandarikj-
anna.
Vitanlega gafst ITT ekki upp i
Chile eftir að Allende þjóðnýtti
eignir og fyrirtæki þess i landinu.
Valdaránið þann 11. september
átti sér stað meðan Sameinuðu
þjóðirnar rannsökuðu mis-
beitingu alþjóðlegu einokunar-
auðhringanna á vald — að frum-
kvæði Allendes. Daginn fyrir
valdaránið fór bandariski sendi-
herrann heim og bandariskar
flotadeildir athöfnuðu sig fyrir
utan höfnina i Valparaiso en þar
hófst aðförin að Allende.
Samkvæmt bandariskum
heimildum . vissi Bandarikja-
stjórn lika af valdaráninu sólar-
hring áður en það hófst.
En i alþjóðlegum auðvalds-
hópum hýrnaði verulega yfir
mönnum við fréttirnar af vaída-
ráninu. Koparverðið hækkaði i
kauphöllunum. Það hafði raunar
hækkað eilítið áður á árinu eftir
að hafa verið i lágmarki I 3 ár en
með þvi ætlaöi hið alþjóðlega
koparauðvald aö knésetja Chile.
Og auðvaldspressan fagnaði
(ÞH þýddi)
Fimmtudagur 1. nóvember 1973. ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 9
Óeirðir á götum Santíagó sem fasistasamtökin Föðuriand og frelsi stofnuðu tii. Einhvers staðar hljóta
þessi samtök aö hafa fengiö fé til allra þeirra sprengjutilræða, morða og annarra óþokkaverka sem
miðuöust öll við að sverta stjórn Aliendes I augum þjóðarinnar og að „létta oki marxismans af þjóð-
inni”. Eflaust hafa „lýðræðisvinirnir” ICIA og ITT verið óslnkir á franiiög.
í CHILE
Samgönguverkfallið kom við
veikan blett á efnahagslifi Chile. t
mjóu fjallalandi 'sem er 4000 km
á lengd og þar sem járnbrautar-
samgöngur eru tafsamar og ýms-
um erfiðleikum bundnar verður
að treysta á veganetið eigi vör-
urnar að komast frá suðri til
norðurs og öfugt.
Verkfallið hafði ýmsa örðug-
leika i för með sér. Verksmiðju-
lagerar voru i lágmarki, neyslu-
vörur i borgunum voru af skorn-
um skammti og efnahagslifið
hlaut mörg og þung áföll. En
þetta er ekki kjarni málsins.
Verkfall vörubilaeigendanna
var aðeins hluti af nýrri og við-
tækari atlögu sem reið bagga-
muninn i aö kollvarpa þeirr til-
raun serh stjórn Allendes var að
framkvæma. Þá tilraun áleit
Bandarikjastjórn stórhættulega
og spillandi fordæmi öðrum lönd-
um Suður-Ameriku.
„í þeim tilgangi að steypa
Mossadegh i tran og Arbenz i
Guatemala sem báðir höfðu kom-
ist á eðlilegan hátt til valda og
höfðu engin augljós áform á
prjónunum um að skapa
kommúniskt riki veittum við
stuðning andkommúnistunum i
báðum löndunum.” Þetta segir
Allen Dulles, fyrrum yfirmaður
CIA, i bók sinni um aðferðir leyni-
þjónustunnar. Og þvi skyldi CIA
hafa horfið frá aðferðum sem i
fleiri tilvikum höföu gefið góða
raun? Er ekki nær aö gera þvi
skóna að stofnunin hafi reynt
frekar að fullkomna þær?
25. júli hófust aðgerðir vöru-
bilaeigendanna. Þegar daginn
eftir var aðstoðarmaður
Allendes, Araya höfuðsmaður,
myrtur. Fljótlega var handtekinn
maður sem eftir öllum sólar-
merkjum að dæma var drukkinn.
Vitnisburður hans var þess eðlis
að rannsókn málsins beindist að
hópnum lengst til vinstri og
„nokkrum grunsamlegum Kúbu-
mönnum”. I kjölfar þessa
mögnuðu fjölmiðlar árásirsinar
á Kúbu og kúbanska sendiráðið i
Santíagó.
Þegar hinir seku fundust að
lokum — það reyndist vera
æskulýðsdeild Þjóðar-
flokksins — var næstum ekkert
skrifað um það. Forsiður dag-
blaða stjórnarandstöðunnar voru
helgaðar verkfalli vörubilaeig-
endanna samtimis þvi að morðtil-
ræðum fjölgaði dag frá degi og
gerðust á æ opinskárri hátt.
„Vörubilstjórar” hliðhollir
stjórninni voru sktonir niður eins
og hundar. járnbrautarteinar
eyðilagðir, brý.r sprengdar i loft
upp og oliuleiðslur slitnar. En
nærvera CIA kom greinilegast i
Ijós þegar fjöldi háspennumastra
var sprengdur i loft upp sam-
timis, með þeim afleiðingum aö
helmingur landsins varð raf-
magnslaus i þrjá stundarfjórð-
unga. Þetta var virkilega vel-
heppnuð aðgerð þar serr| augljós-
lega voru fagmenn á ferð — hátt
yfir hið klaufalega ofbeldi hafnir
sem ungfasistarnir i Föðurlandi
og frelsi beittu, en áður höfðu
nokkrir þeirra sprungið sjálfir i
loft upp við tilraun til að eyði-
leggja háspennumastur.
Sendimenn CIA sem báru vitni i
máli þvi sem höfðað var gegn ITT
i fyrra skýrðu svo frá að Eduardo
Frei hefði árið 1984 fengið 20 mil
jón dollara i fjárhagsstuðning svo
honum mætti lánast að sigra All-
ende i forsetakosningunum, og
framburði þeirra hefur ekki verið
mótmælt. Hversu margar
miljónir skyldi CIA hafa greitt i
júni i ár til að styðja koparnámu-
verkfallið i E1 Teniente og siðar
verkfall vörubilaeigendanna?
Eftir öllu aö dæma áttu þeir
siðarnefndu ekki að vera færir
um að kaupaheilalagera af vara-
hlutum á svörtum markaði eftir
mánaðarlangt verkfall — en þeir
gátu það samt. Hvaðan kom þeim
fé til þess?
Og skyldi það vera tilviljun að
„svarti” dollarinn féll i verði
siðustu vikurnar fyrir valda-
ránið? Bandarikjastjórn hefur
aldrei leyft þeirri rikisstjórn að
vera áfram við völd sem stefnir
að sósialisma eftir löglegum leið-
um og samkvæmt chilenskum
heimildum hefur tala banda-
riskra sendimanna i landinu þre-
faldastþað sem af er þessu ári.
Ekki má heldur gleymast sú stór-
undarlega lilviljun að bandarisk
flotaherdeild átti að taka sér
stöðu við strendur landsins i
endaðan ágúst vegna aðgerðinnar
„Unitas XIV”.
Einn af siðustu liöunum i þeirri
herstjórnarlist sem haföi það
markmið að steypa Allende
minnir á aðgerðina „Djakarta
1905”. Eins og i Indónesiu forðum
tið var markmiðið nú að sannfæra
chilenska herinn um að kommún-
istar hefðu laumast inn i raðir
hans eða að það væri yfirvofandi,
þannig að hægt væri aö framkalla
i hernum „heilbrigð uppreisnar-
viöbrögð” sem geröu hernum
kleift að „bjarga þjóðinni frá
marxismanum”.
„Frelsið oss undan oki
marxismans!,, —Það var gert
með dyggum stuðningi „lýð-
ræðissinnaða” alheimslögreglu-
þjónsins.
(ÞH þýddi)
Af hverju þrefaldaðist tala bandarískra
útsendara í Chile á þessu ári?
Byggingar-
félag
verkamanna
Aðalfundur Byggingarfélags
verkamanna i Reykjavik var
haldinn 18. október sl.
Formaður félagsins, Jóhann
Þórðarson, hdl., flutti skýrslu
stjórnarinnar og greindi ýtarlega
frá helstu verkefnum hennar. Þá
las gjaldkeri stjórnar,. Sigurður
Kristinsson, skrifstofustjóri, end-
urskoðaða reikninga félagsins
fyrir árið 1972, sem siðar voru
samþykktir samhljóða.
1 stjórn félagsins og varastjórn
voru kjörnir til næsta árs:
I aðalstjórn: Alfreið Guð-
mundsson, Sigurður Kristinsson,
Róbert Fétursson, Ingvar Björns-
son.
1 varastjórn: Markús
Hjálmarsson, Ingimar Karlsson,
Sveinbjörn Hannesson, Stefán
Þorgrimsson.
Þá var Helgi Hannesson endur-
kjörinn annar endurskoðandi til
næstu tveggja ára, og varamaður
hans var kjörinn Þorvaldur
Sigurðsson.
St jór ns ki paðu r formaður
félagsins er Jóhann Þórðarson,
hdl. Var hann skipaður frá 21.
júni 1972 að telja til fjögurra ára.
Frá stofnun félagsins, 5. júli
1939 og þar til það var lagt niður
sem byggingarfélag, með lögum
nr. 30 12. mai 1970, hefur það
byggt 526 ibúðir, auk verslunar-
og skrifstofuhúss.
Ilelga Skúla Kjartansson. Þelta
er 32. hefti af Studia Islandica, og
gerir höfundur stilfræðilegar at-
huganir á Fassiusálmum Hall-
grims Féturssonar, en þeim er
ætlað að varpa ljósi á lilurð sálm-
anna og samband þeirra við önn-
ur verk.
Acta botanica Islandica. Þetta
er 2. hefti árgangsins 1973 af
grasafræðitimaritinu Acta botan-
ica lslandica, en ritstjóri þess er
llörður Kristinsson. Meðal efnis
þessa heftis er ýtarleg ritgerð um
islenska hattsveppi eftir Helga
Hallgrimsson.
Aiulvari. Timarit Menningar-
sjóðs og Hins islenska Þjóðvina-
lélags, ritstjóri dr. Finnbogi Guð-
mundsson landsbókavörður.
Meðal efnis i Andvara að þessu
sinni verður ævisaga Ásgeirs Ás-
geirssonar forseta tslands eftir
Guðmund Gislason Hagalin. Aðr-
ir höfundar, sem rita i Andvara,
eru t.d. Gunnar Árnason, Þor-
steinn Sæmundsson og Peter
Hallberg.
Almanuk Ilins islenska Þjóð-
vinafélags fyrir árið 1974. Rit-
stjóri þiess er dr. Þorsteinn
Sæmundsson.
Rögnvalds Sigurjónssonar. Rögn-
valdur leikur hér fjögur tónverk;
tvö eftir Leif Þórarinsson og sitt
hvort eftir Atla Heimi Sveinsson
og dr. Pál tsólfsson. Hljómplata
þessi er framleidd i Danmörku.
Komið er út hjá tsafoldarprent-
smiðju III. bindi af ritinu Úr
byggðum Borgarfjarðar eftir
Kristleif Þorsteinsson frá Stóra-
Kroppi. Sonur fræðimannsins,
Þórður Kristleifsson, hefur búið
verkið i heild til prentunar. Þetta
er önnur útgáfa III. bindis. Það
kom fyrst út 1960, en fyrri bindin
tvö komu fyrst út á árunum 1944
og 1946. 1 þessu þriöja bindi eru
margir þættir um menn og mál-
efni I Borgarfiröi og i llúnaþingi á
fyrri árum. Hinn merki fræði-
maður og bóndi Kristleifur Þor-
steinsson andaðist áriö 1952.