Þjóðviljinn - 30.11.1973, Blaðsíða 16
MOÐVIUINN Álmennár upplýsingar um lækna- þjónustu borgarinnar eru gefr-'- ' simsvara Læknafélags Reykja vikur, simi 18888. Kvöld, - nætur, - og helga - þjónusta apótekanna 23. — 29. nóvember veröur I Ingólfsapóteki og Laugarnesapóteki. W
Kvöldsimi blaðamanna er 17504 eftir klukkan 20:00.
Slysavaröstofa Borgarspitalans
.er opin allan sólarhringinn.
'Kvöld-, nætur- og helgidagavakt á
Heilsuverndarstöðinni. Simi
21230.
Föstudagur 30. nóvember 1973.
Allt riðlast
í Danmörku
KAUPMANNAHÖFN 29/11 —
Fyrir rúmri viku var gerö
skoðanakönnun um flokka-
fylgi i Danmörku og eru nú
komnar niöurstööur úr henni.
Samkvæmt henni er skatt-
svikaraflokkur Glistrups orð-
inn næst stærsti flokkurinn
meö 14% en á hæla honum
komi hinn nýi flokkurinn,
klofningsflokkur Jacobsens,
meö 13%. Jafn stór sé Radi-
kalaflokkurinn, en þá komi
vinstri menn með 12 og ihalds-
menn með 11 prósent. Sósial-
demókratar Ankers eru meö
22% og só5ialiski alþýðuflokk-
urinn með 8%
Arabar enn
í vígahug
KAIRÓ 29/11 — Niðurstaöa
leiðtogafundar Áraba viröist
vera sú að slá skjaldborg um
þá stefnu gagnvart ísrael að
heimta aftur herteknu svæðin
og hika ekki við að beita bæði
oliuvopni og öðrum vopnum i
þeim tilgangi.
t dag brotnuðu saman
samningaumleitanir Israels-
manna og Egypta við kiló-
metrastein 101 um þaö aö
hverjir þeirra hörfi gagn-
kvæmt frá svæðunum kring-
um Súezskurð. Egyptar hófu
skothrlö að tsraelsmönnum
sem svöruðu i sömu mynt.
Orkumálin hvarvetna á dagskrá
Olía úr flögubergi
WASHINGTON 27/11 — Lögregl-
an í Bandarikjunum og Pakistan
hefur lagt hald á 12 tonn af hassi
sem átti að selja i Bandarikjun-
um, og hefur aldrei verið gripið
meira magn af þessu dýrmæta og
eftirsótta efni. Vörusending þessi
átti að geta gefið miðlurunum 30
miljónir dollara i aöra hönd að
þvi er lögreglan segir.
Orkumálin og ráðstaf-
anir vegna ástandsins i
oliumálunum eru ofar-
lega á baugi i heims-
fréttunum. Efnahags-
bandalagið telur að oliu-
vandræðin verki mjög
verðbólguhvetjandi. í
Vestur- Evrópu verður
hraðað framkvæmdum
við þær verksmiðjur er
gæða úranium eiginleik-
um til þess að skapa
kjarnorku i þar til gerð-
um stöðvum. í Banda-
rikjunum hlakka menn
til þess dags þegar farið
verður að vinna oliu úr
oliumettuðu flögubergi.
28/11 — Ráðherranaínd EBE
kemur saman eftir helgina og
ræðir þá bæði veröbólgu- og oliu-
vandann. Stjórnarnefndin segir i
leiöbeiningum fyrir ráðherrana
að veröbólgan verði enn illvigari
vegna oliuskortsins. Þá hefur
heyrst að ýmsum þyki aö oliu-
hringarnir reki grunsamlega
pólitik um þessar mundir, og
kunni svo að fara að ráðherra-
nefndin setji þeim kosti til að fá
meiri og ódýrari oliu.
Sænska stjórnin ihugar aö ger-
ast aðili að 5 rikja áætlun um
byggingu verksmiðju er ,,auögi"
úranium fyrir kjarnorkuver. Að-
ur hefur heyrst að komið hafi til
mála að byggja hana i Norður-
Sviþjóö, en þvi er nú neitað. Er
borið við öryggis-, landvarna- og
umhverfissjónarmiöum. Helst er
ALÞÝÐUBANDALAGIÐ
REYKJANESKJÖRDÆMI
Kjördæmisráð Alþýöubandalagsins i Reykjaneskjördæmi heldur
fund I Þinghól I Kópavogi sunnudaginn 2. desember kl. 14.
Svava Jakobsdóttir alþingismaður ræðir um stjórnmálaviðhorfið.og
Siguröur Grétar Guðmundsson bæjarfulltrúi ræðir um sveitarstjórnar-
mál og undirbúning kosninganna i vor.
KÓPAVOGUR
Aöalfundur Alþýðubandalagsins i Kópavogi verður haldinn mánu-
daginn 3. desember kl. 20.30 i Þinghól að Álfhólsveg 11.
Auk aðalfundarstarfa veröur rætt um bæjarmálin og undirbúning
kosninganna i vor.
Stjórnin
talið að verksmiðjan verði reist i
Frakklandi. Hefuráhuginn á
kjarnorkuverum nú mjög aukist
vegna oliuskortsins.
innanrikisráðherra Bandarikj-
anna, Roger Morton, hefur gefið
út vinnsluleyfi á 6 svæðum i Colo-
rado, Utah og Wyoming, þar sem
oliumettað flögberg er i jörðu.
Talið er að úr þvi megi vinna alls
600 miljarða tunna af oliu við hit-
un á flögunum.
Eftir 3 ár á framleiðslan að
vera komin i gang og um 1981 eiga
svæðin 6 aö gefa af sér um 200
þúsund tunnur af oliu á dag.
Skömmtun i
Bretlandi
t dag hófst úthlutun
skömmtunarseöla fyrir bensin i
Bretlandi. Þar er nú mjög kalt i
veðri, en sökum þess að kola-
námumenn hafa hætt að vinna
yfirvinnu hefur kolaframleiðslan
dregist saman um fjórðung.
1 Danmörku var hætt i dag að
taka á móti erlendu verkafólki, og
atvinnuleyfi verða ekki endurnýj-
uð fyrir þá útlendinga sem nú
vinna i landinu. Mörg dönsk fyrir-
tæki hafa tilkynnt um 4ra daga
Framhald á 14. siðu I
Stórbruni
í Japan
TOKIÓ 29/11 — Um 100 manns
létust i miklum bruna i vöru-
húsi i japönsku borginni
Kumamoto i dag. Um 80
manns sködduöust i brunan-
um.
Verið var að breyta versl-
unarhúsinu i þvi skyni aö gera
það tryggara gegn eldsvoöa.
Slökkviliðsmenn börðust við
eldinn I 8 stundir, áður en þeir
gátu ráðið niðurlögum hans.
Margir létust af eitrun frá
reyk af brennandi gerviefn-
um.
I mai á sl. ári varö annar
stórbruni i Japan, þá brunnu
117 manns inni i næturklúbb.
Watergate:
Fleiri spólur ,truflaðar’
WASHINGTON 29/11 — Hinn sér-
staki rannsóknardómur vegna
Watergate-málanna hefur nú gef-
ið út fyrstu ákæru sina og er hún á
hendur Dwight L. Chapin, einum
af helstu samverkamönnum Nix-
ons forseta.
Chapin er ákæröur fyrir f jórfalt
meinsæri, en við hverju þeirra
getur legið 5 ára fangelsi og 10
þúsund dollara sekt. Starfi Chap-
ins var sá að skipuleggja hin dag-
legu viðtöl forsetans við fólk, og
var það gert i nánu samstarfi við
þá Haldeman og Ehrlichman,
valdamestu ráðunauta Nixons á
innanlandsvettvangi. Chapin
kaus að yfirgefa Hvita húsið
snemma á þessu ári og vinnur
hann nú hjá flugfélaginu United
Airlines.
Illa gengur með segulbands-
spólurnar sem Nixon lét loks af
hendi við dómarann og áttu að af-
sanna það að hann hefði vitað ,,of
snemma” um Watergateinnbrot-
ið. John Sirica dómari fékk að
vita um það i gærkvöldi, að fleiri
segulbandsspólur væru gallaðar
en sú ein sem innihélt 18 minútna
langt væl. Hefur Fred Buzhardt
lögfræðingur Hvita hússins sagt
Sirica að nokkrar truflanir séu á
þeirri spólu sem geymir samtöl
Nixons við Haldeman ráðunaut
hans, en „ekki væri ástæða til að
ætla að neitt hafi verið þurrkað út
af spólunni”.
Bent er á að Sirica hafi upphaf-
lega beðið um 9 spólur, en hann
hafi aðeins fengið sjö. Buzhardt
hefur sagt fyrir rétti, að hinar ný-
uppgötvuðu truflanir stafi af dyn
frá vörubilaumferð fyrir utan
Hvita húsið.
Ungfrú Rose Mary Woods,
einkaritari Nixons, hefur viður-
kennt að hugsanlega hafi hún af
misgáningi þurrkað eitthvað út af
spólunum, en hún hafi áreiðan-'1’'
lega ekki eyðilagt heilar 18 min-
útur! En hún geti ekki bent á
neinn sem hafi gert það.
Lionsklúbburinn Njörður hefur
ákveðið að gefa Flugbjörgunar-
sveitinni andvirði tveggja kraft-
mikilla Fordbifreiða sem siðan
verði innréttaðir hér á landi sam-
kvæmt ósk og þörf Flugbjörg-
unarsveitarinnar.
Austurríki:
Frjálsar fóstureyðingar
29/11 — í Austurriki voru i dag samþykkt lög um
frjálsar fóstureyðingar. Var frumvarpið samþykkt
á þingi með 93 atkvæðum gegn 88.
Sisialdemókratar fara með völd i landinu og hafa
meirihluta á þingi. Allir þingmenn þeirra greiddu
atkvæði með frumvarpinu. í Austurriki eru 90%
þjóðarinnar kaþólskrar trúar.
1. des.-blaðið
komið út
ÞRJÁR ÁSJÓNUR GEIRS HALLGRÍMSSONAR
tJt er komið hátiðarblað stú-
denta i tilefni 1. desember. útgef-
andi þess er 1. des! nefnd og SHl
en ritsjórar Rúnar Armann
Athúrsson og Gestur Guðmunds-
son. Veröur blaðinu dreift ókeyp-
is meöan upplag endist en það er
25 þúsund eintök.
Efni blaðsins er allt helgaö bar-
áttunni gegn heimsvaldastefn-
unni undir einkunnarorðunum:
Island úr Nató — Herinn burt!
Greinar blaðsins fjalla um
ýmsa þætti hernámsins hér á
landi og baráttu hernámssinna
gegn brottför herliðsins annars
vegar og um alþjóðlegt auðvald
og baráttuna gegn þvi erlendis
vegar. Greinarnar eru flestar rit-
aðar af stúdentum en einnig á
Sverrir Kristjánsson sagnfræð-
ingur grein i blaðinu sem hann
nefnir Herstjórnarlist handa van-
gefnum. Auk greina eru ljóð eftir
ýmsa höfunda i biaðinu.
Myndaröð þessi er tekin úr
blaðinu og skýrir hún sig væntan-
lega sjáif. — ÞH
A® hHWTAÍSC
so'áuf sTTEeisFoomiMS.
<jroÆPAMtii Áei/Ato (6
ó-TOÁFOSToófeKJAB:
HAu_G<t» HSSO»J
SfcOGoNJOM HEewAHS-
AMDST7E-fei»oCrA EÁfeA
EEE HAöSHuwiie
ist3am r
RuSSAÞHiR kgoMA i!
UF| KjATO l(