Þjóðviljinn - 06.01.1974, Qupperneq 16

Þjóðviljinn - 06.01.1974, Qupperneq 16
DWÐMUNN Almennar upplýsingar um lækna- þjónustu borgarinnar eru gefnar i simsvara Læknafélags Reykja- vikur, simi 18888. Helgar-, kvöld- og næturþjónusta lyfjabúða i Reykjavik 4. — 10. jan. verður i- Laugarnesapóteki og Ingólfsapóteki. ffl g 3 Kvöldsimi hlaðamanna er 17504 ' Jj Sunnudagur B. janúar 1 «74 eftir klukkan 20:00. Slysavarðstofa Borgarspitalansf er opin allan sólarhringinn. Kvöld-, nætur- og helgidagavakt á Heilsuverndarstöðinni. Simi 21230. Sveitarstjómarkosningar 26. mai og 30. júní n.k. Konur 2-3% sveitarstjórnarmanna Á árinu 1974, sem nú er nýhafið, munu fara fram sveitarstjórnarkosningar um land allt. Þann 26. maí fara fram sveitarstjórnar- kosningar í Reykjavík og kaupstöðum og einnig í þeim hreppum, þar sem 3/4 hlutar íbúanna eru bú- settir í kauptúni. í sveita- hreppunum verður hins vegar ekki kosið fyrr en 30. júní. Samkvæmt kosningalög- um verður að tilkynna um framboð 4 vikum og 3 dög- um fyrir kjördag, og renn- ur þvi framboðsfrestur í Reykjavik, bæjum og þorpum út þann 25. apríl n.k. t sveitastjórnarlögum segir m.a. um kosningu til sveitar- stjórna: „Sveitarstjórnarmenn skulu Hvernig á að hymia þriggja hœða hús? Islensk slúllta j clsls verðluun fyrir beslu lausnina Ung islensk stúlka, Agústa Sveinbjörnsdóttir, fókk góða viðurkenningu fyrir frammi- slöðu sina i námi i bvgginga- list við Konunglega listahá- skólann i Kaupmannahöfn. Uarna stunda um 1000 manns nám og hlutu 17 nemendur viðurkenningu. Agústa varð ein þeirra. Agústa lauk stúdentsprófi vorið 1971 og haustið 1972 hóf hún nám við Konunglega lista- háskólann. Viðurkenninguna hlaut Agústa fyrir lausnsina á teikningu og skipulagningu þriggja hæða ibúðarhúss. kosnir með leynilegum almenn- um kosningum. Bæjarstjórnir svo og hreppsnefndir i hreppum, þar sem 3/4 þegna, samkvæmt ibúa- skrá þjóðskrárinnar,eru búsettir i kauptúni, skal kjósa hlutfalls- kosningu. I öðrum hreppum skulu hreppsnelndarkosningar veria óhlutbundnar. bó skal einnig þar kjósa hlutfallskosningu, ef 25 kjósendur, sem eru á kjörskrá, eða 1/10 hluti kjósenda, sem er á kjörskrá i hlutaðeigandi hreppi, krefjast hlutfallskosningar i bréfi sliluðu til oddvita kjörstjórnar 6 vikum lyrir kjördag.”. Kosningaréttur og kjörgengi Um kosningarétt til sveitar- stjórna segir i 1». grein sveitar- stjórnarlaga: „Kosningarétt til sveitar- stjórna hafa allir sem: a) eru 20 ára að aldri, þegar kosning fer Iram, b) eru islenskir rikisborgarar, eða hafa jafnan rétt við þá, e) eru eigi sviptir lögræði”. Um kjörgengi i sveitarstjórn segir f 19. gr. sömu laga: „Kjörgengirisveitarstjórn eru allir þeir, sem Kosningarrétt hafa i sveitarfélaginu. Þeim, sem er kjörgengur heill og hraustur og yngri en 65 ára, er skylt að taka við kjöri i sveitarstjórn. Ueim, sem setið hefur i sveitar- stjórn eitt kjörtimabil eða lengur, er þó ekki skylt að'taka við kjöri, lyrr en liðinn er jafnlangur timi og hann átti þar samfleytt sæti siðast, enda tilkynni hann yfir- kjörstjórn i siðasta lagi 3 dögum áður en framboðsfrestur er út- runninn, að hann skorist undan endurkjöri.”. Meðmælendur með framboðs- listum mega i Keykjavik ekki vera fifcrri en 100 og ekki fleiri en 200, i öðrum kaupstöðum ekki lærri en 20 og ekki fleiri en 40 og i hreppum ekki færri en 10 og ekki fleiri en 20. Sérhver kjósandi er þar á kjör- skrá, sem hann átti lögheimili þann 1. desember s.l. Sú er al- menna reglan. Ueir sem flytja lögheimili sitt á timabilinu frá 1. des. og fram að kosningum hafa þó möguleika á að kæra sig inn á kjörskrá á nýjum dvalarstað, en um þetta eru ákvæði þó ekki fylli- lega 1 jós i kosningalögum. 134 bæjarfulltrúar og 1016 hreppsnefndarmenn 1 sveitarstjórnarkosningunum i Kf þetta kosningaskilti er ekki hreppapólitik — ja, þá er vandfundið betra dæmi. t>cssi mynd var tekin I siðustu kosningum til hrepps- nefndar i Garðahreppi. Sjálfstæðisflokkurinn hefur verið ötulastur við að koma upp áróðurs- miðum, enda er fjármagnið mest á þeim bænum. Ekki einu sinni rusla- kassarnir fengu að vera í friði fyrir merkjamönnum Ihaldsins; menn spurðu að gefnu þvf tilefni sem myndin greinir frá hvort innihald Sjálf- stæðisflokksins myndi ekki vera einna likast innihaldi kassans. ALÞÝÐU BAN DALAGIÐ Alþýðubandalagið I Árnessýslu heldur fund föstudaginn 11. jan. n.k. kl. 20.30 að Eyrarvegi 15 Selfossi. DAGSKRA: l.Inntaka nýrra félaga. 2. Herstöðvamálið. Framsögu hefur Svavar Gestsson ritstjóri. Stjórnin — Kópavogsbúar! — Frá bæjarmálaráði H-listans. Umræðuhóparnir um félags- og skipulagsmál koma saman i Þinghóli mánudagskvöld klukkan 20:30. t félagsmálahópnum verða málefni aldraðs fólks meðal annars rædd, og i skipulagsmálahópnum verður rætt um staðsetningu skóla, dag- vistunarstofnana og skólahverfa. Allt áhugafólk er hvatt til að koma og taka þátt I starfinu. Þjóðviljinn hefur stundum sagt að leyniþræöir lægju milli ihaldsins og hernámsins. Þessi mynd véfengir að visu ckki þá kenningu; en myndin sýnir ekki aðeins leyniþræði: Hernámið og peningavaldiö er reyrð tryggilega í bönd með kosningaáróðri Sjálfstæðisflokksins. verða vor og sumar verður kosið i alls 14 kaupstöðum (með Reykjavik) og i 210 hreppum. Tala kaupstað- anna er sú sama og i siðustu sveitarstjórnarkosningum fyrir 4 árum, en hreppum semkosiðeri hefur fækkað um einn, þar sem Eyrarhreppur i N.-Is. (Hnifsdal- ur) sameinaðist tsafjarðarkaup- stað á kjörtimabilinu. 1970 var ekki kosið i 2 hreppum á landinu vegna fámennis, en það voru Loð- mundarfjarðarhreppur i N.-Múl. og Flateyjarhreppur i S.-Þing. Báðir þessir hreppar eru nú mannlausir og hafa verið samein- aðir öðrum, Loðmundarfjarðar- hreppur Borgarfjarðarhreppi og Flateyjarhreppur Hálshreppi. Hreppar á öllu landinu, sem voru 213 árið 1970,eru þvi nú 210 og er ekki annað vitað en hægt verði að kjósa sveitarstjórnir i þeim öll- um. Kjósa á samtals 134 bæjar- og borgarfulltrúa, þ.e. 15 i Reykja- vik, 11 á hverjum stað á Akureyri, Hafnarfirði og i Kópavogi, 7 á Sauðárkróki og i Ólansfirði en 9 i hverjum þeirra 8 kaupstaða, sem þá eru ótaldir. Alls mun bæjar- fulltrúum fjölga um 4 frá þvi kjörtimabili sem nú stendur yfir og verður fjölgunin um 2 i Hafn- arfirði og um 2 i Kópavogi. 1 sveitarstjórnarlögum er kveðið á um, að félagsmálaráðuneytinu sé heimilt að breyta tölu bæjarfull- trúa samkvæmt ósk hlutaðeig- andi bæjarstjórnar, þó þannig, að þeir séu eigi færri en 7 og eigi fleiri en 11. Um Reykjavik segir i lögunum að borgarfulltrúar skuli vera eigi færri en 15 og eigi fleiri en 27, og gildir lágmarkstalan i raun sem fyrr. Utan kaupstaöa verða kjörnir alls 1016hreppsnefndarmenn i 210 hreppum. Þetta er 7 hreppsnefnd- armönnurh færra en 1970, vegna sameiningar Eyrarhrepps og Isa- fjarðarkaupstaðar. I hverri hreppsnefnd eiga sæti 3—7 full- trúar, en um þetta segir i sveitar- stjórnarlögum, að meginreglan sé 5 fulltrúar en sýslunefnd sé þó heimilt að breyta tölu hrepps- nefndarmanna, samkvæmt ósk hreppsnefndar, þó þannig að hreppsnefndarmenn séu eigi færri en þrir og eigi fleiri en sjö. I siðustu sveitarstjórnarkosn- ingum var fjöldi kjörinna fulltrúa i hreppsnefndir sem hér segir: 5 i 167 hreppum, 3 i 30 hreppum og 7 i 14 hreppum. Enn liggja ekki fyrir tölur um fjölda á kjörskrá i komandi sveit- arstjórnarkosningum, en ætla má að um það bil 56% af heildaribúa- tölunni 1. des. s.l. verði á kjör- skrá, eða nálægt 120.000 manns. Jafnhliöa sveitarstjórnarkosn- ingunum verður kosið i sýslu- nefndir. Sýslunefndarmenn eru jafnmargir og hrepparnir, þ.e. 210, einn fyrir hvern hrepp, en sýslunefndir eru alls 23, svo að láta mun nærri að i hverri sýslu séu um 9 hreppar að meðaltali. Hlutur kvenna Eitt er það, sem stingur i aug- un, þegar hugleidd er skipun sveitarstjórna á Islandi. Sú stað- reynd, að af samtals 1053 fulltrú- um i hreppsnefndum, bæjar- stjórnum og borgarstjórn skuli aðeins vera 28 konur, en svo hefur þetta verið á þvi kjörtimabili, sem nú er að liða, og fækkaði reyndar niður i 27, þegar Hnifs- dalur sameinaðist Isafirði. Sem sagt 97—98% karlmenn, en aðeins 2—3% konur i sveitarstjórnum á íslandi. Furðuleg staðreynd, sem ýmsir munu sjálfsagt velt fyrir sér með tilliti til komandi kosn- inga. Konurnar 28 sem kjörnar voru fulltrúar i sveitarstjórnir 1970 skiptust þannig: 3 i Reykjavik, 2 i Kópavogi, 2 á Akureyri, 1 i Hafn- arfirði og 1 á Húsavik, þ.e. alls 9 i kaupstöðunum, 12 voru svo kjörn- ar i kauptúnahreppum og 7 i öðr- um hreppum.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.