Þjóðviljinn - 26.05.1974, Page 2

Þjóðviljinn - 26.05.1974, Page 2
2 StÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 26. mai 1974. © Við skoðum framboðslistana KONUR AÐEINS 16'Á% FRAMBJÓÐENDA Af samtals 2235 frambjóðendum, sem kosið er um i bæjar-og sveitarstjórnakosningunum i dag.eruað- eins 376 konur eða 16 1/2%. Er þetta þó örlitil framför frá þvi fyrir þremur árum, þá voru konur aðeins 7í) af 526 eða 15% . Hlutfailið er konum hagstæðara i kaupstöðunum en i kauptúnunum, þannig eru konur 230 af 1283 frambjóðendum i kaupstööum eða 17,9%, en aðeins 146 af 952 i kauptúnahreppunum, þ.e. 15,3% Á 5 stöðuin er sjálfkjöriö. Af samanlagt 50, sein þar eru á listum,er aöeins 1 kona. Og af 128 frambjóðendum til sýslunefndar eru konur ó. Þótt hlutfall kvenna meðal frambjóðenda hafi þannig hækk- að frá þvi f siðustu bæjar- og sveitarstjórnarkosningum er sagan þvi miður ekki öll sögð með þvi. Viða eru þær aðeins i vara- frambjóðendasætum eða vita vonlausum sætum á listunum. Ef við litum þannig á kaupstað- ina 18 utan Reykjavikur kemur i ljós, að i fimm efstu sætum list- anna, sem eru mismunandi margir á hverjum stað, eru sam- anlagt 330 manns, þar af eru kon- ur 53. Og ef við takmörkum okkur við þrjú efstu sætin kemur i ljós, að af 198 frambjóðendum i kaup- stöðum utan Reykjavikur, sem i þeim sitja, eru konur 23. Alþýðubandalagið hefur forystu Verkin sýna merkin. Það punt- ar kannski uppá listana að hafa konur einhvers staðar á þeim, en alvaran takmarkast við efri hluta þeirra. Þarna hefur Alþýðu- bandalagið ótviræða forystu, þótt enn betur mætti að standa frá rauðsokkasjónarmiði undirrit- aðrar. Þannig hefur Alþýðu- bandalagið á þeim listum i kaup- stöðum, þar sem það býður fram sér, 16 konur i fimm efstu sætum og 7 i þrem efstu. Og á listum, þar sem það tekur þátt i sameiginlegu framboði með öðrum vinstri flokkum, einum eða fleiri, eru 7 konur i efstu fimm sætum og 4 i þrem efstu. Framsóknarflokkurinn hefur 8 konur i 5 efstu sætum á listum i kaupstöðum, en aðeins 3 i þrem efstu, miðað við hrein flokks- framboð. Þar sem Framsóknar- flokkurinn er i samvinnu við aðra eru 6 konur i efstu fimm sætum, 3 i þrem efstu. Sjálfstæðisfiokkurinn er lika með 8 konur i fimm efstu sætum kaupstaðalistanna samanlagt, en aðeins 2 i þrem efstu. Hann hefur hvergi samvinnu um framboð i kaupstöðum. Alþýðuflokkurinn er með 5 kon- ur i fimm efstu sætum þar sem hann býður fram sér, en aðeins 1 i þrem efstu. Þar sem hann er i samvinnu við aðra flokka eru 4 konur i fimm efstu og 4 i þrem efstu. Þá eru ótaiin ýmis önnur fram- boð, einsog Framboðsflokks á Seyðisfirði, óháðra hér og þar, flokks ungra kjósenda á Nes- kaupstað o.s.frv., sem ógjörning- ur er að skilgreina öll. Eins hefur ekki verið talið með i þessum samanburði framboð Samtaka frjálslyndra og vinstri manna, þar sem þau bjóða hvergi fram ein sér, en þess ber að geta, að þar sem þau koma við sögu eru yfirleitt konur i sætum á efri hluta listanna. Efstar á 4 listum — engin á 17 Á aðeins fjórum listum á öllu landinu eru konur i efsta sæti. Það eru þær Soffia Guðmunds- dóttir hjá Alþýðubandalaginu á Akureyri, Ragnheiður Svein- björnsdóttir hjá Framsókn i Hafnarfirði, og Salóme Þorkels- dóttir hjá Sjálfstæðisflokknum i Mosfellssveit og Erla Guðmunds- dóttir á lista óháðra i Hveragerði. En staðirnir sem boðið er fram á eru samanlagt 48, þaraf sjálfkjör- ið á 5. Og samtals eru listarnir i kaupstöðum og kauptúnahrepp- um 165 talsins. Á 17 framboðslistanna eru eng- ar konur. Þaraf er aðeins einn i kaupstað, það er listi Fram- sóknarmanna á Eskifirði. Á fjórum stöðum þar sem sjálf- kjörið er er engin kona á listan- um, það er á Súðavik, Hofsósi, Djúpavogi og i Höfnum. Fyrir ut- an þessa staði er aðeins einn til viðbótar, þar sem engin kona er i framboði á neinum lista, það er á Flateyri. Fyrir utan Framsókn á Eski- firði og sjálfkjörnu listana eru það eftirfarandi, sem bjóða fram hreina karlalista: Sjálfstæðismenn Hellissandi, Framsókn Grundarfirði, Alþýðu- bandalagið Grundarfirði, Alþýðu- flokkur, Framsókn og SF'V sam- éiginlega á Patreksfirði, Vinstri menn Þingeyri, Sjálfstæðismenn Flateyri, Framsókn og vinstri- menn Flateyri, Frjálslyndir og vinstri menn Flateyri, Sjálf- stæðisfl. úrskurðaður utan flokka Reyðarfirði, Vinstri menn Stokkseyri, Alþýðufl., Framsókn ORÐ I BELG Kona óskast til að annast kaffihitun og ræstingu á kaffistofu. HóftyMjinn. Skóiavöröustig 19. Simi 17500. Halda þeir að aðeins konur geti lagað kaffi? Það lá við að hann væri sigri hrósandi á svip, kollegiminná fréttastofu Sjónvarps, þegar hann afhenti mér auglýsing- una þá arna úr Þjóðviljanum, amk. var hann meinfýsinn. Og er það nema von. Hér er maður að rifast og skammast yfir svona löguðu misrétti kynjanna i auglýsingum frá öðrum og svo ganga auglýs- ingastjórinn og framkvæmda- stjórinn hér sameinaðir fram i svinariinu. Enda hafa þeir fengið að heyra það frá kven- þjóðinni á blaðinu. En haldið þið að þeir hafi látið sér segj- ast? Ó-ekkí. Þeir auglýstu aftur á sama hátt. Og enn fáránlegra er þetta með tilliti til þess, að þar var einmitt karlmaður i þessu starfi hjá okkur siðast og stóð sig með prýði, lagaði ljómandi kaffi og hafði ætíð allt fágað og hreint. Núnú, svo fetar lögreglu- stjórinn i fótsporin og auglýsir eftir „kaffiumsjónarkonu”. Það gerði hann lika fyrr i vet- ur og virðist þarna búinn að finna upp splunkunýtt, kyn- greint starfsheiti. Til hvaða launaflokks skyldi það teljast? f- Kaffiumsjónarkona Lögreglustjóraembættiö óskar aö ráöa kaffiumsjónarkonu frá 1. júni n.k., vakta- Umsóknir, ásamt upplýsingum om fyrri störf, sendist fyrir 27. þ.m. Lögreglustjórinn i Keykjavik. 20. mai 1974. Heita eiginkonurnar ekkert? Svona er þetta viðar i nán- asta umhverfi manns. Þannig segir Andrea handrita- og prófarkalesari mér frá þvi, að þegar hún hitti samstarfs- menn okkar, prentarana, á árshátið Blaðaprents i vetur með konunum sinum, var kynningin þannig: — Þetta er Andrea, þetta er konan min. — Þær heita vist ekkert, virðast vera, sagði Andrea. Konur og börn Eða i viðræðum við nokkra aðra blaðamenn um Lifeyris- sjóð blaðamanna. Talið sner- ist frá lánamálum yfir i eigin- legt hlutverk sjóðsins, þe. eft- irlaunagreiðslur og bætur. — Og ef blaðamenn deyja i starfi fá konurog börn svo og svo mikið, kom út úr einum. Hvers eiga makar blaða- manna af kvenkyni að gjalda? Heimilisfang eiginmannsins ákvaröandi Áður hefur verið sagt hér i belgnum frá konu frá Vest- mannaeyjum, sem nú er búsett i Reykjavik og ætlaði að nota kosningarétt sinn hér. En þar sem eiginmaður henn- ar hafði enn lögheimili i Eyj- um fékk hún ekki að vera á kjörskrá hér. og óháðir sameiginlega Stokks- eyri og óháðir og Alþýðuflokkur Sandgerði. Jafnréttiö (!) í kauptúnunum Og þá er eftir að athuga, hve miklir jafnréttissinnar aðstand- endur framboðslistanna i kaup- túnahreppunum eru. Þar eru ým- ist 14 eða 10 á hverjum lista og ætti þvi að vera réttlátt að skoða til samanburðar 3 efstu sæti á 14 manna listunum og 2 efstu þar sem eru 10. Þar sem 14 eru á lista á Alþýðu- bandalagið 5 konur i þrem efstu sætum, Framsókn á 2, Sjálf- stæðisflokkurinn 1, Alþýðuflokkur og óháðir 1 og Vinstri og óháðir 1. Þar sem 10 eru á hverjum lista eiga sjálfstæðismenn 2 konur i tveim af efstu sætum, Sjálfstfl. og frjálslyndir 1, Framsókn 1 og Óháðir 1, en auk þessa eiga 10 konur 3. sæti á 10 manna listum i kauptúnahreppum. Húrra fyrir Alþýðu- bandalagi Selfoss! Einsog sjá má á hlutfalli kvenna á listunum i kauptúna- hreppunum, 146 af 952 frambjóð- endum, eru þær allsstaðar i mikl- um minnihluta þar, alveg einsog i kaupstöðunum, 230 af 1283. Ein mjög ánægjuleg undantekning finnst þó á þessu og það er fram- boðslisti Alþýðubandalagsins á Selfossi. Það er eini listinn á land- inu með jafnmörgum konum og körlum. Konurnar þar skipa 2., 3., 6., 8., 10., 12., og 13. sæti. Bravó! 29 af 150 Og þá er aðeins eftir að spekú- lera i Reykjavikurlistunum. Þar eru 150 manns i framboði á 5 list- um, 30 á hverjum. Konur eru samanlagt aðeins 29. Einsog við- ast annarstaðar leiðir Alþýðu- bandalagið með 11 konur á listan- um, þar af 7 fyrir ofan miðju og 5 af 10 efstu mönnum. Framsókn kemur næst með 9 konur, 5 fyrir ofan miðju, en að- eins 3 af 10 efstu. Þá er J-listi Alþýðuflokksins og SFV með 7 konur á lista sinum, þar af 5 fyrir ofan miðju, en að- eins 2 af 10 efstu. Sjálfstæðismenn og Frjálslynd- ir eru jafnir, báðir listar með 6 konum. Á V-lista Frjálslyndra eru þær allar fyrir ofan miðju og 5 af 10 efstu, en á lista borgar- stjórnarmeirihlutans núverandi aðeins 2 ofar miðju og 1 af 10 efstu. Viljinn þeirra i verki! Bætum misréttið i þingkjörinu! Þessi grein var ekki hugsuð sem kosningaáróður ef einhverj- um skyldi hafa dottið það i hug vegna þess hve dreginn er fram hlutur Alþýðubandalagsins. Hér hefur verið gengið til verks með þvi hugarfari að skýra sem réttast frá staðreyndum um þátt kvenna i stjórnmálum einsog hann birtist i framboðum til bæj- ar- og sveitarstjórnarkosning- anna. Og hann er engan veginn nógu góður, ekki heldur hjá Al- þýðubandalaginu, þótt vissulega hljóti maður að draga sinar ályktanir af hug þess flokks og annarra til jafnréttis kynjanna við þann samanburð sem hér hef- ur fengist. Af þeim ástæðum get ég með góðri samvisku hvatt þá sem láta Framhald á bls. 17. ekki sist i barnaheimilismál- um. Skorturinn á dagheimilis- plássum kemur niður á for- eldrum og þá fyrst og fremst mæðrunum. Það er svo ótal mörg mismununin, sem rekja má beint til þessa hlutar. Og skorturinn kemur auðvitað lika niður á börnunum og er siður en svo ámælisvert að bera hag þeirra fyrir brjósti. Betur að fleiri karlar i áhrifa- stöðum gerðu það lika. Svo kveðjum við að sinni og stöndum okkur vel I slagnum i dag , — En i næstu viku kem- ur aftur jafnréttissiða og þá vonast ég til að fá frá lesend- um fleiri orö i belg. —vh Enn hrikalegra er dæmið af J , sem gift er sjómanni i millilandasiglingum á erlendu skipi. Atvinnurekendur hans krefjast þess af honum, að lögheimili hans sé skráð er- lendis þótt hann sé Islending- ur, enda kemur hann ekki heim til Islands nema með margra mánaða millibili. En J , sem aldrei hefur búið annarsstaðar og á hér sitt heimili og börn, fær nú ekki heldur að kjósa hér Iengur. Hún hefur verið strikuð útaf kjörskrá og kæra var ekki tek- in til greina. Skyldi það sama hafa gilt ef þetta hefði verið karlmaður giftur konu með heimilisfang i útlöndum? Hversvegna um barnaheimili? Að lokum úrklippa sem Les- andi sendir úr Visi. Vist er það leiðinlega áber- andi, að konum virðist skip- aður sérstakur bás i útvarps- og sjónvarpsumræðunum um sveitarstjórnamál, þe. þær tala fyrst og fremst um skóla- mál, heilbrigðisrhál, málefni aldraðra og barnaheimilis- mál, þótt vissulega séu til und- antekningar þar á. En er þetta ekki lika vegna þess, að einmitt þær finna hvar skórinn kreppir mest tJuörún Jónsdóttir, húsfrú: — Það var mjög Utift, som ég hiustafti á. Aftallega var þaft þátiurinn frú Akureyri, sem ég lagfti eyrun vift, en þar var engan fróftleík aft hafa. ftg" er iltið hfilui af.kon.um... i lyrsta sæti, þær taia M.ra.....,u,ih Jia'rfialSímill oI*ékkert.annaft.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.