Þjóðviljinn - 26.05.1974, Page 17

Þjóðviljinn - 26.05.1974, Page 17
Sunnudagur 26. mai 1974. ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 17 Dregur til tiðinda í Watergate: Ford snýst gegn Nixon WASHINGTON 25/5 - Gerald Ford, varaforseti Bandarfkjanna, sagði i gær, að sú ákvörðun Nixons að neita að afhenda fleiri Norska olían OSLO — Samkvæmt skýrslum frá OECD munu Norðmenn græða talsvert næstu árin á olíunni, sem fundist hefur i landgrunninu hjá þeim. Eins og sakir standa búa þeir við óhagstæðan greiðslu- jöfnuð við útlönd, en sökum oli- unnar er talið, að á næstu árum verði greiðslujöfnuðurinn hag- stæður að nokkrum mun. Sunna Framhald af bls. 20. merkur i sumar og gert var á hans vegum i fyrrasumar, þá að visu að hálfu leyti með dönsku leiguflugfélagi, Sterling. Sennilega eru þeir 92 farþegar sem töfðust i 2—4 daga við að komast út um daginn ekki eins bjartsýnir, og liklega ekki heldur þeir 30 sem biðu peningalausir i 5 daga i Höfn eftir heimferð. Spurður kvað Guöni Þórðarson vilja nefna 8.800 krónur sem al- gengasta fargjaldið I leiguflugi sinu út til Hafnar, það væri fyrir meginhlutann af félagshópunum, en einstaklingsfargjöldin væru yfirleitt 12—13 þúsund krón- ur. Far og hótel i viku fyrir ein- stakling væri t.d. á 17.500 krónur. Hjá Flugfélaginu fengum við þær upplýsingar að lægsta hóp- ferðagjald hjá þeim væri nú rúm- lega 11 þúsund krónur, og þurfti þá hópurinn ekki að fylgjast að heim. Þjóðviljanum er kunnugt um skólastúlku sem hugðist taka sér far með Sunnu um darinn. Eftir að hafa ferðtygjast nokkrum sinnum án þess að farið væri, fékk hún farseðilinn endurgreidd- an með 16.000 krónum (án hót- els!) og tók sér siðan far með Flugfélaginu sem kpstaði 21 þús- und krónur. Aætlun þess stóðst. hj— skjöl og hijóðbönd til þing- nefndarinnar i Watergate-málum gæti leitt til þess að forsetanum yrði stefnt fyrir ríkisrétt. Sagðist Ford harma þessa þrjósku i Nixon, og væri þetta miður gáfu- lega ráðið hjá honum. Leon Jaworski, sérlegur rannsóknardómari i Watergate- málum, bað i gær hæstarétt Bandarikjanna að krefjast þess af forsetanum að hann afhendi umbeðin gögn. Er þetta i fyrsta sinn, sem hæstiréttur Banda- rikjanna kemur við sögu i Water- gate. Er á báðum þessum fréttum að sjá að nú loksins fari að draga til meiriháttar tiðinda i málum þessum. Eðvarð Framhald af bls. 20. borgarstjórn, en hvort sem er, að samstarf vinstri flokkanna taki við eða að enn þurfi að halda uppi minnihlutaandófi, þá er það frumskilyrði til árangurs fyrir verkalýðsstétt borgarinnar, að Alþýðubanda- lagið sé óumdeiianlega sterk- asti aðilinn i vinstri fylkingu i borginni. Auk þess falla nú nær saman sveitarstjórnarkosningar og almennar alþingiskosningar og þvi geta úrslit i sveitar- stjórnarkosningunum og styrkleiki flokka þar i þeim kosningum haft afgerandi á- hrif á alþingiskosningarnar. Það er kannski ennþá augljós- ara að til þess að haldið verði áfram þvi margþætta starfi núverandi rikisstjórnar, sem hefur miðað að þvi að efla mjög hag alþýðunnar i land- inu, til þess er aukinn styrk- leiki Alþýðubandalagsins al- veg frumskilyrði. Komi Al- þýðubandalagið ekki verulega sterkt út úr þessum tvennu kosningum, þá mun ihaldsöfl- unum aukast ásmeginn og þá getur hver einasti launamaður sagt sér hvað gert verði til lausnar þeim erfiðleikum sem nú eru framundan. Þvi er eng- um blöðum um það að fletta, að þau verða leyst á kostnað verkafólksins. Þvi eru þessar tvennar kosningar beinn þáttur i hags- munabaráttu launafólks — verkalýðsstéttarinnar. óre. Alþýðubandalagið Skráning sjálfboðaliða Alþýðubandalagið vantar sjálfboðaliða til starfa strax. Fjölmörg verkefni biða vinnu- fúsra félaga og stuðningsmanna. Nauðsynlegt er að hef ja þegar i stað skráningu sjálfboðaliða vegna fundarins i Laugardalshöllinni og vegna starfa á kjördag, á sunnudaginn kemur. Siminn er 28655. Opið allan daginn til kl. 10 á kvöldin. Skrifstofan er að Grettisgötu 3. Kosningasjóður Þeir sem hafa fengið senda happdrættismiða i Happdrætti Alþýðubandalagsins eru beðnir um að gera skil hið fyrsta. Mörg verkefni biða þess að fé fáist til framkvæmdanna. Skrifstof- an á Grettisgötu 3 tekur við skilum. Allar upp- lýsingar i sima 28655. Breski herinn gegn mótmœl- endum? LUNDtlNUM 25/5 — Breska stjórnin tilkynnti í gærkvöldi að loknum ráðuneytisfundi að -ekki kæmi til greina að hún léti undan öfgasinnuðum mótmælendum i Norður-trlandi, sem standa nú fyrir allsherjarverkfalli er lamað hefur mestallt atvinnulif landsins. Talið er liklegt að stjórnin muni gripa til þess ráðs, að láta breska hermenn taka við nauðsynlegustu störfum, til dæmis við orkuver, en öfgamót- mælendur hafa margsinnis lýst þvi yfir að slik afskipti bresku stjórnarinnar mynu leiðatil mjög alvarlegra árekstra. — Fjórir menn voru drepnir á Norður-Ir- landi i nótt. Konur 16 1/2% Framhald af bls. 2. sig jafnréttismáiin skipta til að kjósa Alþýðubandalagið i dag. En betur má ef duga skal. A sama hátt og við konur þurfum að ná jafnrétti á menntasviðinu og á sviði atvinnulifsins, bæði hvað snertir launakjör, stjórnunarað- stöðu og áhrif i launþegasamtök- unum, verðum við að berjast fyr- ir jafnrétti á þvi sviði þjóðlifsins, þar sem afdrifarikustu ákvarðan- irnar eru teknar varðandi lif og afkomu okkar allra, þ.e. i bæjar- og sveitarstjórnum og á þingi. Sameinumst þvi um að róa að þvi öllum árum, að framboðslistarnir til alþingiskosninganna 30. júní veröi konum samboðnari. —vh Reiðhjólaskoðun í Reykjavík Lögreglan og Umferðarnefnd Reykjavik- ur efna til reiðhjólaskoðunar og umferðar- fræðslu fyrir börn á aldrinum 7—14 ára. Mánudagur 27. mai. Br eiða gerðisskóli Kl. 09.30—11.00 Melaskóli Kl. 13.30- -15.00 Hliðaskóli Kl. 15.30- -17.00 Þriðjudagur 28. mai. Árbæjarskóli Kl. 09.30- -11.00 Langholtsskóli Kl. 13.30- -15.00 Austurbæjarskóli Kl. 15.30- -17.00 Miðvikudagur 29. mai. Álftamýrarskóli Kl. 09.30- -10.30 Fossvogsskóli Kl. 10.30- -11.30 Laugarnesskóli Kl. 13.30- -15.00 Breiðholtsskóli Kl. 15.30- -17.00 Fimmtudagur 30. mai. Hvassaleitisskóli Kl. 09.30- -11.00 Vogaskóli Kl. 13.30- -15.00 Fellaskóli Kl. 15.30- -17.00 Börn úr Landakotsskóla, Vesturbæjar- skóla, Höfðaskóla, Skóla ísaks Jónssonar og Æfingadeild K.í. mæti við þá skóla, sem næstir eru heimili þeirra. Þau börn, sem hafa reiðhjól sin i lagi, fá viðurkenningarmerki Umferðarráðs 1974. Lögreglan i Reykjavik. Umferðarnefnd Reykjavikur. DYNACO hátalarar

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.