Þjóðviljinn - 30.05.1974, Side 6
6 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 30. mai 1974.
UÚOVIUINN
MÁLGAGN SÓSÍALISMA
VERKALYÐSHREYFINGAR
OG ÞJÓÐFRELSIS.
Útgefandi: Útgáfufélag Þjöftviljans
Framkvæmdastjóri: Eiöur Bergmann
Ritstjórar: Kjartan Ólafsson
Svavar Gestsson (áb)
Fréttastióri: Eysteinn Þorvaldsson
Ritstjórn, afgreiösla, auglýsingar:
Skólav.st. 19. Simi 17500 (5 linur)
(Prentun: Blaöaprent h.f.
LÍTIL SAGA UM LÍTINN ÞINGFLOKK
í siðustu alþingiskosningum fengu Sam-
tök frjálslyndra og vinstri manna 5 al-
þingismenn. kjörna þingmenn og uppbót-
arþingmenn. Nú þegar gengið er til al-
þingiskosninga hafa þessir fimm þing-
menn klofnað i eins margar einingar og
frekast er unnt; þeir hafa valið fimm mis-
munandi leiðir:
Móðurskip þessa hóps, Hannibal Valdi-
marsson, hefur valið þá leiðina- að hætta
algerlega og óafturkallanlega afskiptum
sinum af stjórnmálum. Það eru vissulega
tiðindi, þegar sameiningarleiðtoginn
sjálfur gefst upp og fer að búskap sinum i
Selárdal eftir langan feril i islenskri
verkalýðshreyfingu. Þjóðviljinn vill nota
þetta tækifæri til þess að þakka Hannibal
allt það sem hann hefur vel gert fyrir is-
lenska verkalýðshreyfingu. Hitt verður
látið liggja á milli hluta á þessum stað.
Annar þingmaður SFV, Karvel Pálma-
son, á að heita áfram i SFV, en hann er i
stjórnarandstöðu.
Þriðji þingmaðurinn, Björn Jónsson,
hefur ákveðið að snúast til fylgis við Al-
þýðuflokkinn. Það kemur engum á óvart,
að Björn gerir slikt, eftir það sem á undan
er gengið. Hann hefur allt frá þvi að hann
lét ihaldið lyfta sér i forsetastól Alþýðu-
sambandsins verið á hraðri leið til hægri,
sat jafnan á svikráðum við vinstri stjórn-
ina, og það dettur vonandi engum verka-
lýðssinna i hug, að Björn Jónsson gangi i
Alþýðuflokkinn vegna hagsmuna islensks
verkalýðs. Hann er fyrst og fremst að
reyna að tryggja sina eigin hagsmuni.
Fjórði þingmaðurinn, Bjarni Guðnason,
hljóp úr Samtökum frjálslyndra og vinstri
manna og stofnaði nýjan flokk, Frjáls-
lynda flokkinn, sem beið afhroð i kosning-
unum sl. sunnudag, og er hann þar með úr
sögunni. Verður að segja það Bjarna
Guðnasyni til hróss að hann skuli láta úr-
slitin i borgarstjórnarkosningunum i
Reykjavik sér að kenningu verða.
Fimmti þingmaðurinn er Magnús Torfi
ólafsson, ráðherra. Hann hefur valið enn
eina leiðina og styður rikisstjómina.en er
áfram i Samtökum frjálslyndra og
vinstrimanna.
Nú er það eitt eftir að Magnús klofni frá
Torfa eins og góður maður orðaði það á
dögunum!
En gamanlaust:
Er ekki auðvelt fyrir vinstrimenn að
draga lærdóma af þessum ferli Samtaka
frjálslyndra og vinstri manna? Ætti ekki
að vera auðvelt að draga þá ofureinföldu
ályktun að vinstrimenn eru beinlinis að
eyðileggja atkvæði sin i þágu ihaldsins
með þvi að kjósa slika flokksnefnu? Er
ekki einfalt fyrir vinstrimenn, nú þegar á
öllu riður að berjast gegn hættunni frá
hægri, að sameinast um Alþýðubandalag-
ið, eina vinstriflokkinn i landinu, sem er
heill félagshyggjuflokkur og andvigur
hersetunni og aðild íslands að NATO. f Al-
þýðubandalaginu geta allir vinstrimenn
sameinast.
Sagan af fimm þingmönnum Samtaka
frjálslyndra og vinstri manna verður von-
andi viti til varnaðar, vinstrimenn kjósa
þvi Alþýðubandalagið i rikari mæli en
nokkru sinni fyrr i kosningunum 30. júni.
ÞOLA EKKI VINSTRISTJORNIR
Gylfi Þ. Gislason hefur lýst þvi yfir að Valdimarsson var rekinn úr flokknum
Alþýðuflokkurinn þoli ekki vinstristjórnir; fyrir vinstrivillu. Þessar upplýsingar
kosningaúrslitin i Reykjavik séu i raun og Gylfa Þ. Gislasonar ættu einnig að vera
veru eðlileg. Hið sama hafi gerst 1958, en verkalýðssinnum ákaflega fróðlegar nú
þá var Alþýðuflokkurinn i rikisstjórn. þegar Björn Jónsson er að ganga i Alþýðu-
Þetta eru athyglisverðar upplýsingar og i flokkinn. Björn þoldi heldur ekki vinstri
fyllsta samræmi við feril Alþýðuflokksins stjórn og gerist þvi próventukarl á hjá-
undanfarin 20 ár, eða frá þvi að Hannibal leigu ihaldsins.
Hagur þeirra batnaði
mjög á síðasta ári
Frá aðalfundum þriggja banka
Meðan prentaraverk-
fallið stóð yfir bárust
Þjóðviljanum fréttir um
aðalfundi og ársútkomu
priggja banka# Alþýðu-
bankans. Iðnaðarbankans
og Samvinnubankans.
Verður nú rakið nokkuð af
því helsta sem fram kom í
fréttum bankanna.
ALÞÝÐUBANKINN
Aðalfundur Alþýðubankans var
haldinn laugardaginn 6. april.
Samkvæmt skýrslu bankaráðs-
formannsins Hermanns Guð-
mundssonar batnaði afkoma
bankans mjög á sl. ári og hagur
efldist. Rekstrarafgangur fyrir
afskriftir nam 6,1 milj. kr., en
sambærileg tala fyrir árið áður
var aðeins 301 þúsund krónur.
Heildarútlán 1973 námu 465,4
milj. kr. og höfðu aukist frá fyrra
ári um 40,4%. Veðdeild mun á
næstunni hefja starfsemi við
bankann.
Einar ögmundsson varafor-
maður bankaráðsins gerði grein
fyrir tillögu um aukningu hluta-
fjár um 100 milj. kr. í tillögunni
var gert ráð fyrir þvi, að stéttar-
félögin hafi sem fyrr forkaupsrétt
að hlutabréfum, en þeim er heim-
ilt að selja allt að 40% til félags-
manna sinna.
Bankaráð skipa þessir menn:
Hermann Guðmundsson, Einar
ögmundsson, Björn Þórhallsson,
Jóna Guðjónsdóttir, Markús
Stefánsson.
IÐNAÐARBANKINN
Aðalfundur Iðnaðarbankans
var haldinn 30. mars. Heildarút-
lán bankans jukust um 22,3% á
árinu 1973, en innlánin um 30%.
Akveðið var að tvöfalda hlutafé
bankans. A aðalfundinum var
fjallaðum afkomu Iðnlánasjóðs. í
bankaráð voru kjörnir: Gunnar J.
Friðriksson, Vigfús Sigurðsson,
Haukur Eggertsson. Iðnaðarráð-
herra skipaði þá Benedikt Da-
viðsson og Guðmund Ágústsson I
bankaráðið.
SAMVINNUBANKINN
Aðalfundur Samvinnubankans
var haldinn 23. mars. Veru'eg
innlánsaukning var á sl. ári eða
um 35,6% alls. Fjármagns-
streymi i gegnum bankann nam
37 miljörðum á sl. ári; jókst um
55,8% á árinu. Rekstursafkoma
bankans batnaði, og samþykkti
fundurinn að greiða hluthöfum
arð. í bankaráði eru: Erlendur
Einarsson, Hjörtur Hjartarson,
Vilhjálmur Jónsson.
Kaupgarður
kynnir
franskan
varnmg
Verslunin Kaupgarður, sem er
til húsa að Smiðjuvegi 9, Kópa-
vogi, og rekin á svipuðum grund-
velli og Hagkaup, kynnir þessa
dagana sérstaklega franskar nið-
ursuðuvörur, sem seldar eru á
hagkvæmu verði. Hefur fyrirtæk-
ið gerst umboðsaðili fyrir fransk-
an niðursuðuvarning frá fyrir-
tækinu General Conserve.
Eigendur Kaupgarðs sögðu
fréttamanni, að þetta væru vörur
i háum gæðaflokki og gerðu þeir
sér vonir um góðan markað fyrir
þær i framtiðinni. Franski versl-
unarfulltrúinn hér, Daniel Paret,
sagðist vilja stuðla að meiri við-
skiptum milli landanna á sviði
matvælaframleiðslu og kvað full-
vist að hægt væri að vinna aukinn
markað fyrir islenskar sjávaraf-
urðir i Frakklandi þegar fullar
sættir væru komnar i þorskastrið-
inu, en tollar á islenskan varning
eru nú of háir i Efnahagsbanda-
lagslöndunum.
—sj
Aðalfundur Kfél. S.-nesja
Aðalfundur Kaupfélags Suður-
nesja var haldinn i Félagsheimil-
inu Stapa I Njarðvik sunnudaginn
5. mai.
A fundinn komu 89 fulltrúar frá
4 félagsdeildum, ásamt stjórn og
endurskoðendum. Hermann
Eiriksson formaður setti fundinn
og flutti skýrslu félagsstjórnar.
Félagsmenn eru nú 2.414 og hafði
fjölgað á árinu um 533. Fram-
Suðurnesjadeild FEF
Á laugardag kl. 2 verður
stofnuð Suðurnesjadeild
Félags einstæðra foreldra#
í Félagsheimilinu Vík í
Keflavík. Síðar í sumar er
ætlunin að stofna deildir á
isafirði/ Akureyri og ef til
vill viðar á landinu, en f jöl-
margir félagar í FEF eru
búsettir víöa út um land.
Fundurinn á laugardaginn er
ætlaður öllum einstæðum foreldr-
um á Suðurnesjum, sem áhuga
hafa á, og sömuleiðis eru velunn-
arar og þeir, sem hefðu hug á að
gerast styrktarfélagar Suður-
nesjadeildarinnar, velkomnir á
fundinn. Jóhanna Kristjónsdóttir,
form. FEF, kemur á fundinn og
flytur ávarp, þá verða umræður
o.fl. á dagskrá.
Verulegur áhugi virðist rikja
viða úti um land að koma upp sér-
stökum deildum úr FEF og hefur
þvi verið afráðið að stjórn FEF
beiti sér fyrir þvi, méð aðstoð
heimamanna, að koma upp þess-
um félögum.
kvæmdir á árinu voru bygging
vörugeymslu við Vikurbraut.
Hafin var stækkun sölubúðar-
innar við Hringbraut 55.
Kaupfélagsstjóri Gunnar
Sveinsson flutti siðan skýrslu um
reksturinn. Heildar vörusala
félagsins nam kr. 455.809.805 og
hafði aukist um 42,9%. Afsláttur
veittur félagsmönnum út á af-
sláttarkort nam kr. 2.868.315.-.
Slátrað var á vegum félagsins i
Grindavik 9.245 fjár. Rekstraraf-
gangur nam kr. 1.396.261,- eftir að
.ifskriftir höfðu verið færðar.
Af tekjuafgangi Kaupfélagsins
var ráöstafað til eftirtalinna
aðila.
Til Skátafélags Heiðarbúa kr.
150.000.- til Njarðvikurkirkju kr.
150.000.- til Björgunarsv. Stakks
kr. 50.000.- til sumarbúst.
Starfsm. kr. 50.000
Úr stjórn áttu að ganga Svavar
Arnason og Ólafur Guðmundsson
en voru báðir endurkosnir. Kosnir
voru 6 fulltrúar á aðalfund S.I.S.
Nokkrar breytingar voru
gerðar á lögum félagsins.