Þjóðviljinn - 30.05.1974, Blaðsíða 8

Þjóðviljinn - 30.05.1974, Blaðsíða 8
8 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 30. mai 1974. Mósambik, Suöur- Afrika og Ródesía eru hernaöarleg og efnahags- leg heild — sem hefur til þessa lotiö hvítum minnihlutastjórnum. Ef hin nýja stjórn Portúgals flytur herliö sitt heim frá nýlendunum veröur Suö- ur-Afríkustjórn aö taka ákvöröun um það, hvort ríkiö eigi upp á eigin spýtur að heyja styrjöld viöafríska skæruheri allt frá Namibiu til Mósambik. sem liggja að portúgölsku ný- lendunni Angöla. í Zambesidal i Ródesiu, þar sem landamæri liggja að Zam- biu, fær vigvel stjórnar Ians Smiths aðstoð 5000 „lögreglu- manna” og þyrlusveita frá Suður-Afriku. Sameinuðu þjóðirnar hafa bannað að selja vopn til Ródesiu, en slikur búnaður heldur áfram að berast frá Suður-Afriku. I landinu er einn hvitur maður á hverja 22 svarta, og hlutfallið er sifellt að breytast þeim hvitu i óhag. Margir ungir hvitir menn flýja land — þeir vilja ekki hætta lifi sinu i skæru- hernaði. Það kemur m.a. fram i þvi, að hvitum mönnum með at- kvæðisrétt hefur fækkað um 7000. Meðan Caetano og Salazar stjórnuðu Portúgal vildu þeir gjarna hjálpa minnihlutastjórn- inni i Ródesiu til að sýna fram á, að efnahagslegar refsiaðgerðir dygðu ekki til að hafa áhrif i al- þjóðlegu valdatafli. Hjálpuðu þeir Ian Smith við að fara i kringum samþykktir Sameinuðu þjóðanna um þessi mál. Hin nýja stjórn Portúgals vill að sjálfsögðu verða i húsum hæf á vettvangi Sameinuðu þjóð- anna og öðrum alþjóðasam- kundum, en ef svo á að vera, verður hún að hætta að taka þátt i að brjóta samþykktir SÞ um Ródesiu. I september 1970 tilkynnti John Vorsrter forsætisráðherra að Suður-Afrika mundi „berjast gegn hefndarverkum, ekki að- eins i okkar landi heldur og i hverju þvi Afrikulandi þar sem stjórnin biður okkur um að- stoð”. Tveim mánuðum siðar fengust þær upplýsingar hjá Lundúnablaðinu Times, að Suður-Afrika hefði a.m.k. tvisvar sinnum boðið Portúgal alveg ákveðna hernaðaraðstoð, bæði landhers og flughers. Portúgalskir liðsforingjar, sem höfðu strokið til Vestur-Evrópu, komu um leið upp um það, að þyrlur frá Suður-Afriku hefðu verið notaðar til fólksflutninga bæði i Angóla, Mósambik og Guineu-Bissau. Portúgalir hafa borið allt þetta til baka — en það mun hafa hlotið staðfestingu almennt að Suður-Afrika hefur sent bæði flugmenn, þyrlur og læknisað- stoð til nýlenduhersins i Mósambik. Byggt á Um 100 þúsund þeldökkir verka menn frá Mósambik vinna i námum Suður-Afriku. Sendir Suður-Afríka her inn í Mósambik? Stjórnaskiptin I Portúgal hlutu að koma illa við vald- hafana i Pretoriu, höfuðborg Suður-Afriku. En varla hafa þau komið þeim með öllu að óvör- um: Suður-Afrika viðurkenndi sem skjótast hina nýju stjórn. og sýnir sú staðreynd að Suður- Afrika vill hafa gott samband við valdhafa i Portúgal hverjir sem þeir annars eru. Forsætisráðherrann, John Vorster, hefur látiö í ljós vonir um að stjórnin i Portúgal „lendi ekki i röngum höndum” og á þar sjálfsagt viö að sósialistar og kommúnistar eigi aðild að bráðabirgöastjórn Spinola. Annars hafa rikisfjölmiðlar i Suöur-Afriku verið mjög sparir á athugasemdir. Þeir hafa að- eins látið að þvl liggja, að Spinola sé „rétti maðurinn til að fást við hermdarverkamenn”. Þeir hafa gert mikið úr þvl, að hershöfðinginn hafi I hinni frægu bók sinni um framtið portúgalska heimsveldisins haldið þvi fram að Portúgalir skyldu verða áfram i Afriku. Um viðbrögð Suður-Afriku- manna við þeim samningum sem hafnir eru i London við full- trúa Guineu-Bissau höfum við hinsvegar ekki frétt. Suður-Afrika eyðir sivaxandi upphæðum i vigbúnaði og hafa útgjöld til hermála þrefaldast frá þvi í fyrra. Siðan 1970 hefur verið fjölgað i hernum úr 44250 i 109300 menn. Hægt er að senda 500 menn meö alvæpni á 90 minútum hvert sem vera skal i Suður-Afriku. En þrátt fyrir mikla fjár- festingu i Mósambik, þrátt fyrir samstarfið um Cabora Bassa stifluna, sem gefur rafstraum strax á næsta ári, þrátt fyrir áhyggjur af „öryggismálum”, er það alls ekki sjálfgefið að Suður-Afrika með öllu sinu ný- tiskulega hernaðarapparati hafi afskipti af átökum i Mósambik. Suður-Afrika hefur tæknina og Portúgalir hafa fallbyssu- fóðriö: sjötiu þúsund portúgalskir fótgönguliðar eru valda ráöamönnum i Pretoriu erfiðleikum i alþjóðlegu valda- tafli. Stjórnin reynir að koma fram sem friðsamlegt riki meðan yfirráð hvitra manna yfir Suður-Afriku teljast trygg. Ef menn lita á kort af suður- hluta Afriku frá sjónarhóli hinna hvitu minnihluta eru Mósambik, Suður-Afrika og Ródesia efnahagsleg og hernaðarleg heild. I þessum heimshluta er Suður-Afrika stórveldi, sem hefur ráð á að fjárfesta i hinum löndunum og sjá þeim fyrir ýmislegri tækni. Cabora Bassa er það dæmi sem áþreifanlegast er. Það hefði ekki verið unnt að fjár- magna þetta mikla orkuver i Zambesidal, sem gengur þvert i gegnum Mósambik sunnavert, án þess að Suður-Afrika lofaði að kaupa ralmagn þaðan Frá Mósambik koma árlega 80-100 þúsund verkamenn i námaiðnað Suður-Afriku. Þessi skipan hefur verið mjög hag- kvæm fyrir valdhafana i Pretoriu og Lissabon. Portú- galskir valdhafar fá helming launa verkamanna i gulli og borga þeim siðan i portúgalskri mynt, escudos, þegar þeir snúa heim aftur til Mósambiks.A þessari milliliðastarfsemi einni hefur Portúgal grætt meira en miljarð króna á ári — ekki mun af veita. Samkvæmt sérstökum samningi fer mikið af flutning- um til og frá Transvaalhéraði i Suður-Afriku —en þar eru marg ar helstu námur landsins — um höfnina i Lorenco Marques, höfuðborg Mósambiks. Viglina Suður-Afriku and- spænis svörtu Afriku liggur langt fyrir norðan eiginleg landamæri rikisins. I Namibiu, sem er formlega undir vernd Sameinuðu þjóðanna, en aðeins á pappirnum, berjast suður- afriskar hersveitir við þeldökka skæruliða, sem hafa bæki- stöðvar i nyrstu héruðunum, Veröur lagt I skæruhernað allt frá Namibiu til Mósambik? nú i Mósambik. En ef stjórnin i Lissabon kveður þetta lið heim verður afar erfitt fyrir stjórn Vorsters að standa I langvar- andi skærustyrjöld allt frá Namibiu i vestri til Mósambiks i austri upp á eigin spýtur og með aðstoð hálfrar miljónar hvitra landnema I Ródesiu og Mósam- bik. Slik þróun mundi einnig Eftir byltingu í Portúgal: Nudd í hjálmtýjum? — 1100 ára afmæli íslandsbyggöar vekur meiri athygli erlendis en hér heima, segir Indriði G. tslendingar verða að vara sig á þvi, að ætla sér að ganga með ölund til hátiðahalds á þessu þjóðhátiðarári. Við eigum nú einu sinni þetta 1100 ára afmæli. Við ætlum að halda það, höfum unnið að þvi og við getum ekki snúið við, sagði Indriði G. Þorsteinsson, framkvæmdastjóri Þjóðhátiðar- nefndar 1974, en hann boðaði blaðamenn á sinn fund i gærdag. Indriði sagði, að sér virtist að þjóðhátiðin á sumri komandi vekti mun meiri athygli erlendis og i erlendum blöðum, heldur en hér heima. Það er kannski skiljanlegt, sagði Indriði, hér hafa menn að undanförnu haft um margt að hugsa, Vestmannaeyjagos, þing- rof og kosningar, en ég sé ekkert um þjóðhátiðina i blöðum nema eitthvert nudd i hinum og þessum hjálmtýjum um kostnað við há- tiðina. Fullyrti Indriði, að erlendis þætti mönnum það merkilegt, að hér á Islandi hefði verið byggð i 1100 ár. Við i Þjóðhátiðarnefnd höfum gengið frá Heródesi til Pilatusar Framhald á bls. 13 Þjóöhátlðarnefnd hefur látið gera margs konar minjagripi, m.a. þannig útlitandi öskju, sem hefur aö geyma litinn öskubakka. Jafn- framt þvi aö vera hylki utan um bakkann, þénar askjan lika sem póstkort.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.