Þjóðviljinn - 30.05.1974, Blaðsíða 16
uóðviuinnX Almennar upplýsingar um lækna- þjónustu borgarinnar eru gefnar i simsvara Læknafélags Reykja- vikur, simi 18888. Helgar-, kvöld- og næturvarsla lyfjabúða i Reykjavik 24.-30. mái er i Laugavegs- og Holtsapóteki. '
Kvöldsimi blaðamanna er 17504 k
eftir klukkan 20:00.
Fimmtudagur 30. mai 1974.
Slysavarðstofa Borgarspítalans
er opin allan sólarhringinn.
Kvöld-, nætur- og helgidagavakt á
Heilsuverndarstöðinni. Simi
21230.
Þórunn Guðmundsdóttir (t.v.) og Lilja Helgadóttir röntgentæknar
Röntgentæknar segja
upp frá 1. september
— Vinna sömu störf með sömu ábyrgð og röntgen-
hjúkrunarkonur, en eru þremur launaflokkum neðar
Röntgentæknar, sem starfa hjá
borginni, hafa sagt upp vinnu frá
og með 1. september, vegna deilu
um laun og starfskjör. Teiur
Röntgentæknafélagið að þeir eigi
rétt á sömu kjörum og röntgen-
hjúkrunarkonur, sem vinna ná-
kvæmlega sömu störf.
Tveir fulltrúar röntgentækna,
þær Þórunn Guðmundsdóttir og
Lilja Helgadóttir, skýrðu Þjóð-
viljanum frá þessu máli i gær, en
röntgentæknar segja upp frá 1.
júni með 3ja mánaða uppsagnar-
fresti.
Röntgentæknar eru ný starfs-
stétt og útskrifaðist fyrsti hópur
þeirra eftir 2 1/2 árs nám úr
Röntgentækniskólanum eftir að
siðustu kjarasamningar voru
gerðir við starfsfólk sjúkrahús-
anna, en næsti hópur, 11 manns,
útskrifast eftir tvo mánuði. Mun
það fólk ekki heldur hafa i hyggju
að ráða sig til starfa fyrr en
samningar hafa verið lagfærðir
og ekki upp á lakari kjör en aðrir
þeir, sem vinna sömu störf.
Það sem deilan stendur einkum
um er launaflokkurinn og vetrar-
fri. Telja röntgentæknar sig hafa
fyllilega sambærilega menntun
við röntgenhjúkrunarkonur, sem
bæta við hjúkrunarnámið eins árs
sérnámi, enda vinna báðir hópar
nákvæmlega sömu störf með
sömu ábyrgð. Röntgenhjúkrunar-
konur taka hins vegar laun eftir
19. launaflokki, en röntgentæknar
eftir 16.
Vegna óhollustu, sem talin er
stafa frá röntgengeislum, var
lengi sú hefð, að fólk, sem vann
við röntgen fengi auk sumarfris
sérstakt vetrarfri, en það féll nið-
ur bæði hjá aðstoðarfólki og
röntgenhjúkrunarkonum við síð-
ustu samningagerð. Varð það til
þess, að hjúkrunarkonurnar
sögðu upp starfi sinu og tókst að
knýja fram 16 daga vetrarfri.
— Getum við ekki betur séð en
sama forsenda hljóti að gilda um
okkur röntgentækna, sögðu þær
Þórunn og Lilja, og reyndar um
aðstoðarfólkið lika. Enda var
okkur lofað — munnlega að visu
— sömu hlunnindum og röntgen-
hjúkrunarkonunum, meðan við
vorum i námi og þá höfðum við 10
daga vetrarfri.
Við krefjumst þess að fá sömu
kjör og fólk sem vinnur við hlið
okkar sömu störf með sömu
ábyrgð.
Jafnframt lýsti aðalfundur
Röntgentæknafélagsins yfir full-
um stuðningi við kröfur sjúkra-
liða, sem einnig hafa sagt upp
störfum vegna óánægju með
launakjör. —vh
Samið um aðskilnað
herja á Golanhæðum
JERUSALEM 29/5 — t dag var
tilkynnt um að loksins hefðu Sýr-
lendingar og ísraelsmenn fallist á
samkomuiag um vopnahlé og að-
skilnað herja á Golanhæðum, sem
Kissinger utanrikisráðherra
Bandarikjanna hefur haft milli-
göngu um að gera.
Kissinger kom rétt enn einu
sinni frá Damaskus i gærkvöldi
með samþykki Sýrlendinga fyrir
flestum meginatriðum sam-
komulagsins. Israelsstjórn sat á
fundi um málið i dag, og var áður
en hann hófst talað um að aðeins
ætti eftir að skýra nokkur atriði.
Fyrir nokkrum dögum höfðu
meginatriði þessa samkomulags
komið fram i dagsljósið. Þau lúta
að þvi, að Israel skilar aftur
svæðum þeim sem tekin voru i
fyrra og nokkru af þeim sem tek-
in voru 1967. Hlutlaust belti verð-
ur á milli herjanna og verða um
1250 manna gæslulið frá Samein-
uðu þjóðunum staðsett þar.
Samkomulagið er að formi stutt
yfirlýsing um grundvallaratriði,
og verður það formlega undirrit-
að á fundi starfshóps Egypta og
Israelsmanna i Genf. Þessi háttur
mun á hafður vegna þess að Sýr-
land tók ekki þátt i fyrsta áfanga
Genfarráðstefnunnar. Að öðru
leyti verða gerðir sérstakir
samningar um framkvæmd
vopnahlésins beint milli Banda-
rikjanna annarsvegar og hvors
deiluaðila um sig hinsvegar.
Nú mun ljúka um ellefu vikna
stórskotahrið yfir viglinurnar,
sem hefur eftir að vopnahlé átti
formlega að ganga i gildi i fyrra,
grandað 200 Israelsmönnum. Bú-
ist var við þvi að hægrisamsteyp-
an á þingi snerist hart gegn
samningnum, sem var sam-
þykktur einróma af ráðherrum.
Túnin víða kalin
— en á Suðurlandi muna fáir
eftir svo góðu vori
Margir eru þeirrar skoð-
unar, áð þetta vor sé hið
mildasta sem komið hefur
um áraraðir, sagði Her-
mann Guðmundsson, bóndi
Blesastöðum á Skeiðum,
en Þjóðviljinn ræddi við
hann í gær um búskapinn.
Sauðburðurinn hefur gengið
vel, sagði Hermann, ég reikna
með að flestir bændur hér um
slóðir séu með 70—90% tvilembt,
enda hefur verið stefnt að þvi nú
um hrið að rækta upp tvflemb-
ur. Það er algengt lika að ærnar
séu þrilembdar.
Hefst ekki sláttur fyrr en venju-
lega i svo góðri tið?
Nú veit ég ekki — tún hér eru
viða talsvert kaiin. Klaki lá lengi
á þeim, og viða er mikið kal, en
það er mikið gras á milli kalblett-
anna.
Sagði Hermann lika, að fé hefði
verið látið bera úti og hefði þvi
viða gengið á heimatúnum, og
væntanlega kippir það nokkuð úr
sprettu.
En þetta er afskaplega gott vor,
sagði Hermann, ferðamanna-
stra-,mur er þegar hafinn um
veg ,ia hér, og strax ber talsvert á
þessum útlendingum með bak-
poka, þessu fólki sem ferðast á
puttanum, eins og það er kallað.
Ég hitti áðan tvo slika ferðalanga
á vegamótum Hreppa og Skeiða.
Þeir ætluðu i Árnes.
Enn hafa bændur fé sitt heima
við bæi, enda tekur gróður mikið
seinna við sér á úthögum en niðri
i byggðinni, en væntanlega taka
menn innan skamms að brýna
ljái sína. —GG
Sjö listar í Reykjavík
Spreng j utilr æði
fasista mótmælt
Enn óhagstæður
vöruskiptaj öfnuður
ROM 29/9 — Verkamenn um alla
Italiu fóru I fjögurra stunda verk-
fall til að mótmæla sprengjutil-
ræði i bænum Brescia, sem I gær
kostaði 6 manns lífið. 94 særöust.
Taliö er vist að nýfasistar hafi
verið að verki.
1 Róm og Milano fóru tugir eða
hundruð þúsunda manna um göt-
urnar. Til átaka kom er harð-
AB, félagar og aðrir stuðnings-
menn.
Fundur veröur haldinn I Góð-
templarahúsinu i kvöld (fimmtu-
dag)
Gestur fundarins veröur Lúðvik
snúnir vinstrisinnar gerðu áhlaup
á skrifstofur nýfasistaflokksins
og særðust nokkrir lögreglumenn.
1 Milanó kom og til beinna átaka
milli nýfasista og vinstrisinna —
var þar kastað grjóti og heimatil-
búnum sprengjum.
A sl. tveim vikum höfðu um 20
hægrisinnaðir öfgamenn verið
handteknir I Brescia, m.a. fyrir
ólöglegan vopnaburð.
Jósepsson ráðherra sem ræðir
stjórnmálaviðhorfið og bæjar-
stjórnarkosningarnar.
Fundurinn hefst kl. 9.00.
Stjórnin
Sjö framboðslistar verða I kjöri
I Reykjavik fyrir Alþingiskosn-
ingarnar. Þessir listar eru listar
gömlu flokkanna fjögurra, Fram-
sóknar, Alþýöubandalags, ihalds
og krata, en til viöbótar listar frá
Samtökum frjálslyndra og
vinstrimanna, Fykingunni og
KSML, kommúnistasamtökun-
um.
Lýðræðisflokkurinn nýi, sem
stofnaður var i Reykjavik, gat
ekki fyrir miðnættið i nótt barið
saman lista I Reykjavik, en mun
hins vegar bjóða fram lista i
P ykjaneskjördæmi.
Samtökunum og krötum mun
hafa gengið sérlega illa að koma
saman listum sinum og fá með-
mælendur um allt land, og bárust
framboðslistar þessara flokka
ekki til yfirkjörstjórna i hverju
héraði fyrr en seint og um siðir,
eða rétt fyrir miðnætti s.l.
KSML mun aðeins bjóða fram i
Reykjavik, en Fylkingin mun
bjóða fram i Reykjavík og I
Reykjaneskjördæmi. -GG
Illa horfir með vöruskiptajöfn-
uöinn um þessar mundir. Fjóra
fyrstu mánuði ársins var flutt inn
fyrir rúmlega þrem miljörðum
króna hærri upphæð, heldur en út.
Útflutningur jan.-april á þessu
ári nam 8,5 miljörðum króna, en
innflutningur á sama tima nam
11,7 miljörðum. Frá sama tima I
fyrra hefur útflutningur aukist
um rúman miljarð, en innflutn-
Glistrup
fyrir rétt
KAUPMANNAHÖFN 29/5 — For-
maður Framfaraflokksins
danska, Mogens Glistrup, verður
sakaður um að hafa svikið 2,2
miljónir undan skatti og að hafa
haft fé af niu skjólstæðingum sin-
um.
Auk þess hafi Glistrup svikið
um 2 miijónir undan skatti fyrir
skjólstæðinga sina. Þessar upp-
lýsingar eru úr blaðinu Politiken
sem telur liklegt að Glistrup verði
sviptur þinghelgi innan skamms.
ingur um fjóra og hálfan miljarö.
Hinn mikli innflutningur sem
skýrslur Hagstofunnar nú sýna,
stafar af þeirri miklu almennu
veimegun sem nú rikir i landinu
og kemur fram bæði á sviði
neyslu og fjárfestingar. En vöru-
skiptahallinn er mjög alvarleg
staðreynd, og hafa stjórnvöld ný-
lega gert ráðstafanir til að draga
úr honum, m.a. með þvi að inn-
flytjendur séu skuldbundnir til á-
kveðinnar fjárbindingar.
Kosninga-
happdrætti
Alþýðubandalagsfélög og aðr-
ir sem fengið hafa kosninga-
happdrætti hjá skrifstofu
flokksins og ekki hafa gert skil
eru minntir á að ljúka upp-
gjöri nú þegar.
Dregið verður 31. mai og verð-
ur uppgjör að hafa borist fyrir
þann tima.
Alþýðubandalagið
FUNDUR AB I
H AFN ARFIRÐI